Tíminn - 17.12.1981, Page 15
15
Fimmtudagur 17. desember 1981
Sinfóníutónleikarnir
■ Siöustu tónleikar Sinfóniu-
hljómsveitarinnar fyrir jól voru
haldnir 10. desember. Á efnis-
skránni voru Svita úr Blindings-
leik eftir Jón Ásgeirsson, Pianó-
konsertnr. 21 (C-diir) eftir Moz-
art, og 7. sinfónia Beethovens i A-
dúróp. 92.Lutz Herbig frá Þýzka-
landi stjórnaöi.
Þvi miöur tókust þessir tdn-
leikar ekki eins vel og bezt hefði
verið á kosiö, sem er þeim mun
ergilegra meö þaö i huga, aö það
var „skipulagsfeil” um aö kenna
— nefnilega ónógri æfingu i öllum
verkunum nema hinu fyrsta. Þvi i
þaö fór allur krafturinn, enda
frumflutningur. Stjdrnandinn
kom ekki til landsins fyrr en á
þriðjudaginn fyrir ttínleikana, og
istaöþess aö æfa tónleikana með
Páli H. Pálssyni, var dundaö viö
aöra hluti. Og viö lá, aö einleik-
arinn, Gisli Magnússon, yrði aö
spila hluta af konsertnum i fyrsta
sinn með hljdmsveitinni á kon-
sertnum sjálfum.
Svona handabakavinna gengur
auövitað ekki. Þótt ýmsir að-
standendur hljómsveitarinnar
kunni að telja þaö skipta mestu
máli aö hljómsveitin „uppfylli 40
tima vinnuskylduna” með hvers
kyns gutli, þá er það hinn mesti
barnaskapur aö leggja ekki höf-
uðáherzlu á hina hálfsmánaöar-
legu tónleika, sem eru helztu
tengsl hljómsveitarinnar við
þjóöina. Og gagnvart islenzkum
einleikurum gæti þaö nánast litið
út sem hefndarráöstöfun að gefa
þeimekki kost á nema 2-3 æfing-
um meö hljómsveitinni. Það er
nefnilega óliku saman að jafna
þegar útlendir feröatónlistar-
menn koma hér viö og spila kon-
sert, sem þeir eru búnir að spila
500 sinnum á undanförnum 500
dögum með jafnmörgum hljóm-
sveitum. Þegar islenzkir einleik-
arar eiga aö spila er alveg sjálf-
sagt aö þeir fái jafnmargar
æfingar og þeir þurfa ( þaö er
ekki sfzti tilgangur Sinfóniu-
hl jómsveitarinnar aö gefa
islenzkum tónlistarmönnum
tækifæri til að koma fram meö
fullum sóma.
Svita Jóns Asgeirssonar Ur
Blindingsleik er verulega
skemmtilegt verk og hnyttilega
Siguröur
Steinþórsson
skrifar um
tóniist
samið. Jón nær með ýmsum tón-
skáldabrellum þeim „stemmn-
ingum”sem fyrirsagnir kaflanna
segja aö hann ætli að ná. Og
þarna gat að heyra hinn fi'nasta
harksöng, svo ég hef varla heyrt
annan betri hérlendis, enda telst
það til tiðinda, ef jazzistifær heila
sinfóniuhljómsveit til umráöa —
jafnvel „bigböndin” svonefndu
eru litið annaö en lúörasveitir.
C-dUr pianókonsertinn er i hópi
meistaraverka Mózarts, enda
sameinar hann frægð, vinsældir
og listræna snilld. Allir þekkja
hann af upptökum með frægum
pianóleikara. En til aö vera „full-
kominn Mózart” heföi þurft aö
æfa þetta betur, eins og áöur
sagði, þvf nvorki hljómsveit vor
né einleikarar geta hrist svo
hreinan og brothættan atburð
sem „fullkominn Mózart” fram
úr erminni undirbúningslitið.
Og siöast á efnisskránni var 7.
sinfóni'an, sem Beethoven samdi
árið 1812. Louis Spohr lýsir i
endurminningum sinum þeim at-
burði, þegar Beethoven stjórnaöi
frumflutningi 7. sinfóniunnar, þá
varhann oröinn svo heyrnarsljór,
aö hann heyröi ekki nema hávær-
ustu kaflana: „Hin nýju tónverk
Beethovens uröu feykivinsæl,
sérstaklega A-dúr sinfónian: hinn
dásamlegi annar kafli var klapp-
aður upp, og haföi djúp og varan-
JSLENSK
BOKAMENNIfcilG
ER VERÐMÆTI
BÆKUR MENNINGARSJÓDS
THORKILD HANSEN
,
Steindór Steindórsson
frá Hlöðum
JENS MUNK
Bókin lýsir á eftirminnilegan hátt svaöilförum Jens Munks í norðurhöfum
svo og aldarandanum í Danmörku um 1600. Þetta er sú bók Thorkilds
Hansen sem náð hefur mestri útbreiðslu og gerði hann að einum virtasta
höfundi Norðurlanda.
ÍSLENSKIR NÁTTÚRUFRÆÐINGAR
Átján þættir og ritgeröir um brautryðjendur íslenskra náttúruvísinda og
jafnframt innsýn í sögu þess tímabils.
SAGA REYKJAVÍKURSKÓLA
Skólalífiö í Lærðaskólanum 1904—1946.
BÓKAÚTGÁFA MENNINGARSJÓÐS
OG ÞJÓÐVINAFÉLAGSINS
Skálholtsstíg 7 — Reykjavík
leg áhrif á mig. Flutningurinn var
stórkostlegur þrátt fyrir óörugga
og iðulega hlægilega stjórn Beet-
hovens.
Það gat hver maður séö, aö
þessi vesalings pianósnillingur
heyröi ekki lengur slna eigin tón
list. Þetta var sérstaklega áber-
andi i siöari hluta fyrsta „all-
egro”-kaflans, þar sem þagnir
koma fyrir tvisvar I röö, i seinna
skiptiö „pianissimo”. Þetta virö-
isthafafarið framhjá Beethoven,
eftir siöari þögnina var hann
kominn 10 eða 12 takta fram Ur
hljómsveitinni þegar pianissimó-
kaflinn byrjaði. Til að sýna
pianissimóiö var hann búinn að
beygja sig alveg undir púltið, og
rétti nú úr sér hægt og hægt eftir
þvi sem „crescendo” jókst, unz
hann stökk hátt í loft upp þegar
hann taldi aö „forte” ætti að
byrja. Þegar þaö skeöi ekki leit
hann furöulostinn i kringum sig,
undrandi yfir þvi aö hljómsveitin
væfi ennþá aö spila „pianissimo”
og áttaöi sig ekki fyrr en „forte”-
kaflinn byrjaöi loksins og hann
fór að heyra tónlistina sjálfur.”
Svona fór nú þaö. Stjórnandinn
á fimmtudaginn, Lutz Herbig,
sýndi þess öll merki aö hann
kynni sitt fag, en einhvern veginn
lyftist sinfónian aldrei almenni-
lega til flugs hvað sem olli — ég
gizka á æfingaleysi.
13.12 Siguröur Steinþórsson
Bisa
Þessi margeftirspurða rúmsamstæða
komin aftur.
Verð kr. 3.970.— með dýnum
Húsgögn og
innréttingar
Suðurlandsbraut 18
Sími 86-900
RsherPrice
LEIKFÖNG í MIKLU ÚRVALI
10 mismunandi gerðir af
barna-fararskjótum.
Nýtt leikfang
á hverjum degi.
Playmobil
í miklu úrvali.
Póstsendum.
m m
LEIKFANGAVERZLUNIN J0J0
AUSTURSTRÆTI8 - SÍM113707