Tíminn - 17.12.1981, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 17. desember 1981
17
íþróttir
Ungur Skagamadur
til Glasgow Rangers
Sigurður Jónsson 15 ára knattspyrnumaður frá Akranesi dvelst nú við
æfingar hjá Glasgow Rangers — Forráðamenn Rangers linntu ekki lát-
um fyrr en hann samþykkti að koma til þeirra og kynna sér aðstæður
■ Sigurður Jónsson 15 ára gam-
all knattspyrnumaður fra Akra-
nesi er nú staddur hjá skoska
knattspyrnufélaginu Glasgow
Rangers þar sem hann mun verða
i hálfan mánuð við æfingar og
kynna sér aðstæður þar.
Sigurður sem leikur með 3.
flokki iA var i drengjalandsliðinu
sem lék gegn Skotum i sumar og
hrifust forráðamenn Rangers
mjög af ieiknihans og vildu ólmir
fá hann til fe'lagsins og helst
ganga fra' samningum við hann
strax.
Tíminn hafði i gær samband við
Jón Sigurðsson föður Sigurðar og
sagði hann að forráðamenn Glas-
gow Rangers hefðu ekki linnt lát-
um fyrrr en þeir voru búnir að fá
svar um að Sigurður kæmi til
þeirra og fór Sigurður utan i
fyrradag.
Sigurður mun ekki gera neinn
atvinnumannasamning aö svo
stöddu, hann er á siöasta ári i
grunnskdlanum og hefur ihyggju
að ljúka þvi námi áður en hann
fer að hugsa um atvinnu-
mennsku.
Glasgow Rangers leggur mjög
hart að fá Sigurö til liðs við sig,
minnugir þess að þeir misstu á
sinum ti'ma bæði Asgeir Sigur-
vinsson og Pétur Pétursson frá
sér. Asgeir fór ásinum tima einn
út til Rangers og mun hafa leiðst
dvölin hjá félaginu. Til þess að
slikt endurtæki sig ekki meö Sig-
urð þá var ekkert þvi til fyrir-
stöðu að Siguröur gæti tekið
hvem þann sem hann vildi með
sér utan og fór Ólafur Þórðarson
félagi Sigurðar með honum. Ólaf-
ur leikur einnig með 3. flokki 1A i
knattspyrnu en bróðir Ólafs er
Teitur Þórðarson atvinnumaður i
knattspyrnu i Frakklandi.
Aö sögn Jóns föður Siguröar
var Rangers ekki eina félagið
sem hafði áhuga á að fá hann til
sin. Mörg fleiri félög höföu sam-
band við hann og eitt af þeim var
Lokeren i Belgiu sem Arnór Guð-
johnsen leikur með
Sigurður á eftir eitt ár enn i 3.
flokki og það er nokkuð ljóst aö
hann mun sennilega ekki leika
hérá landi með 2. flokki eftir eitt
ár þvi allt bendir til að hann verði
kominn iatvinnumennskuna er sá
timi rennur upp. Likur benda þvi
til að Siguröur verði yngsti ís-
lenski leikmaðurinn til þessa sem
gerist atvinnumaður. röp—.
■ Hreggviöur Agústsson er líklegur arftaki Páls Pálmasonar I marki
IBV.
Timamynd Ella
H reggvið-
ur aftur
til Eyja?
■ Miklar likur eru taldar á þvi að
Hreggviður Ágústsson sem á sið-
asta keppnistimabili lék i marki
1. deildarliðs FH gangi að nýju til
liðs við sina gömlu félaga i Vest-
mannaeyjaliðinu.
Það þykir nokkuð ljóst að
hvorki Páll Pálmason né Ársæll
Sveinsson muni geta varið mark
Eyjamanna i sumar vegna
meiðsla sem erfiðlega gengur að
fá bót á.
Hreggviður hefur alla tið leikið
með Eyjamönnum utan siðastlið-
ins keppnistimabils er hann lék
með FH. Hreggviður var vara-
markvörður 1. deildarliðs IBV og
fékk fá tækifæri á að leika með
liðinu vegna góðrár frammistöðu
Páls. röp-
Harlem Globe-
trotters kemur
■ Hið þekkta bandariska sýning-
arlið Harlem Globetrotters er
væntanlegt hingað til lands i april
á vegum Körfuknattleikssam -
bands tslands og Flugleiða.
Harlem Globetrotters hefur
ferðast viða um heim og sýnt list-
irsinar og ávalltfyrir troðfullum
húsum. Harlem Globetrotters
mun leika hér tvo leiki og með
heimsókn sinni hingað til lands þá
bæta þeir þar með 100. landinu i
safnsitt.
röp—.
„Mestaefni
sem ég hef séd”
— segir Anton Bjarnason þjálfari
drengjalandslidsins í knattspyrnu
miklar og hjá drengjum sem
æfa sem atvinnumenn.
Framkvæmdast jórinn vildi
þvi fá Sigurð til Rangers i
öllumhansfrium.eins ogum
jól og páska.
Sigurður er m esta efni sem
ég hef séð og mér f innst hann
vera mun betri heldur en As-
geir Sigurvinsson og Arnór
voru þegar þeir voru á hans
aldri. Hann er stórkostlegur
leikmaður, hann er yfirveg-
aður og sendingar hans eru
eins og þær hafi veriö mæld-
ar meö reglustiku.
Allir leikmennirnir i
skoska drengjalandsliöinu
eru með atvinnumanna-
samningensamtbarhann af (
þeim öllum i leikrtum. Sig-
urður er ekki nema 15 ára er
á fyrra ári i 3. flokki og á þvi
2ár enn eftir i drengjalands-
liðinu."
röp—.
Landsliðshópur í
borðtennis valinn
■ „Drengjalandsliöiö l&K
gegn Skotum í sumar og fór
leikurinn fram 400 km fyrir
noröan Glasgow og forráöa-
mcnn Rangers sendu mann
alla þessa vegalengd gagn-
gcrt til þess að fylgjast meö
Siguröi”, sagöi Anton
Kjarnason þjálfari unglinga-
landsliösins I knattspyrnu I
samtali við Timann I gær.
Siöan þegar við vorum
komnir Ut á flugvöll og vor-
um að fara heim þá mætti
framkvæmdastjórinn út á
völl og hafði hann meö sér
lykil að hótelherbergi og
vildi ólmur að Siguröur yrði
eftir úti.
Fluginu til Islands seink-
aði um tvo tima og fórum viö
Siguröur ásamt fram-
kvæmdastjóranum að skoöa
völlinn hjá Rangers og allar
aðstæöur.
Við gerðum framkvæmda-'
stjóranum grein fyrir þvi að
Sigurður gæti ekki orðið eftir
og sagðist hann þá myndi
hafa samband v.ið hann sið-
ar. Framkvæmdastjórinn
sagði viö Sigurð að hann gæti
tekiö foreldra sina eða ein-
hvern vin sinn með sér út það
væri ekkert mál. Þeir ætluöu
sér ekki aö brenna sig á þvi
sama og gerðist með Asgeir
að fá Sigurö einan út og að
honum leiddist svo að hann
færi heim. Þeir ætiuðu sér
greinilegaað leggja allt isöl-
urnar til þess að ná i strák-
inn.
FramkvæmdastjóFÍ Rang-
ers sagði að geta Sigurðar
væri jafnmikil og hjá strák-
um sem væru 2-3 árum eldri
en hann. Þar sem keppnis-
timabilið hér heima væri
ekki nema nokkrir mánuöir
værihættaá þviað framfarir
Sigurðar yröu ekki eins
■ Mikið er um að vera hjá borð-
tennisfólkinu eftir áramótin, 10.
janúar halda sex ungmenni til
Færeyja og taka þar þátt i borð-
tennismóti og er þetta mót fyrir
17 ára og yngri keppendur. 1 byrj-
un febrúar verður siðan Evrópu-
keppnin baldin á eynni Jersey.
Island befur ávallt sent keppend-
ur á þetta mót og svo verður einn-
ig nú og er áætlaö að þangað fari
um fimm keppendur.
Stefán Konráösson er einn þeirra sem valinn hefur veriö í landsliös-
hópinn i borötennis.
Landsliösnefnd Borðtennis-
sambands Islands hefur valið hóp
til landsliðsæfinga fyrir þessi
verkefni og er hann þannig skip-
aöur:
Karlar:
Bjarni Kristjánsson UMFK
Gunnar Finnbjörnsson Erninum
Hjálmtýr Hafsteinsson KR
Jóhannes Hauksson KR
Kristján Jónasson Vikingi
Stefán Konráðsson Vikingi
Tómas Guðjónsson KR
Tómas Sölvason KR
Konur:
Ásta M. Urbancic Erninum
Ragnhildur Sigurðardóttir UMSB
Unglingar:
Andri A Marteinsson Vikingi
Bergur Konráðsson Vikingi
Bjarni Bjarnason Gerplu
Björgvin Björgvinsson KR
Friðrik Berndssen Vikingi
Kristinn Már Emilsson KR
Kristján Viðar Haraldsson HSP
Kristján Hjartarson Gerplu
Endanlega verður valið til
Færeyjarferðarinnar um jólin og
á Evrópumótið verða keppendur
valdir i næsta mánuði. röp-.