Tíminn - 17.12.1981, Page 22
22
Fimmtudagur 17. desember 1981
Kvikmyndir og leikhús
kvikmyndahornið
John Wayne i
galianum sem
varö sam-
hljóma nafni
hans.
Syngjandi Wayne
Stjörnubíó
Villta vestriö/ The Wild West
• Meöal þeirra sem fram
koma: John Wayne, Henry
Fonda, Gregory Peck, Roy
Rogers, Clint Eastwood,
Charles Bronson, Cary Cooper
og Robert Mitchum.
John Wayne er oftar á tjald-
inu i þessari syrpu saman-
klipptra atriöa úr kvikmynd-
um um Villta vestrið en nokk-
ur annar ofangreindra leikara
enda lék hann i myndum af
þessu tagi í yfir 40 ár. Er hann
fékk Óskarsverðlaunin á sfn-
um tima var það ekki ein-
gtingu fyrir leik sinn f mynd-
inni True Grit heldur var
meira verið að heiöra hann
fyrir hið mikla starf hans f
þessum kvikmyndum.
I syrpunni kynnumst við
nýrri hliö á John Wayne en
hann birtist okkur sem syngj-
andi kúreki. Okkar allra
vegna og hans sjálfs þá hætti
hann söngferli sinum fljótlega
enda átti ég bágt með að trúa
þvi að þetta væri Wayne sem
birtist allt f einu á tjaldinu á
hvitum hesti, f Roy Rogers
galla og með gitar I hendinni.
Fjörið hefst i Tombstone
bænum sem reis á einni nóttu
enda sat hann á einum rikustu
silfurnámum sem fyrir
fundust I Vestrinu. Doc Holli-
day gengur um krána og
reynir aö fá menn til einvfgis
við sig, Wyatt Earp stillir
hann. John Wayne, bros-
mildur og sjálfsöruggur
gengur inn i krána. Hann
kássast upp á jússur illvigra
náunga og kemur af stað
hörku slagsmálum eins og oft
sjást I myndum af þessu tagi
en þeim lýkur með þvf að
Wayne er hent út úr kránni.
Hinum sögufræga bæ Tomb-
stone var raunar aldrei lýst á
réttan hátt i myndum um
vestrið. Frægasta kráin þar
The Oriental skartaöi 30 feta
löngu barborði úr dýrasta
maghony, þykk plussteppi
huldu öll gólf, dýrasti kristall
hékk f loftinu, vinkjallarinn
gaf f engu eftir þvf besta í
Paris og innfluttir franskir
kokkar elduðu ofan f gesti
staðarins. Eitt sinn reyndu
tveir kúrekar að rfða á hestum
sinum inn I krána. Þeir voru
skotnir til bana af fyrsta
manni sem sá þá koma inn úr
dyrunum fyrir þessa
ókurteisi. A barnum báðu
menn ekki um hrátt viski
heldur nýjustu kokteila þess
tima.
í syrpunni förum við siöan i
gegnum borgarastriðið og
timana þar á eftir en myndin
endar á siðustu sýningu
Buffalo Bill.
Syrpan er alls ekki tæmandi
sérstaklega þar sem varla er
til filmubútur i henni sem er
gerður eftir 1960 og er það
miður. Auk þess er allt of
miklum tfma aö minu mati
eytt i hina svokölluðu syngj-
andi kúreka. Þulur myndar-
innar segir þaö enn opna
spurningu hvort slikir kúrekar
hafi verið til eða ekki. Ég efast
ekki um að syngjandi kúrekar
hafi verið til þ.e.a.s. skitugir,
sauðdrukknir menn, drekk-
andi á sóðalegum börum og
kyrjandi klámvisur. Syngj-
andi kúrekar i stfl við Roy
Rogers voru örugglega ekki til
enda efast ég um aö Roy gamli
hefði lifað af meir en tvær
minútur i Tombstone.
Fyrir unnendur Villta
vestursins er þetta ágætis
mynd þvi f henni má finna
margar perlur eins og til
dæmis götubardagana f
„High Noon” meö þeim Gary
Cooper og Grace Kelly.
—FRI
★ ★ Bankaræningjar á eftirlaunum
★ ★ Alltiplati
★ ★ ★ útlaginn
° Flugskýli 18
★ ★ Hefndaræði
★ ★ ★ Blóðhefnd
Stjörnugjöf Tfmans
★ ★ * * frábær • *** mjóg góð • ★ ★ góö • ★ sæmlleg ■ O léleg