Tíminn - 17.12.1981, Síða 24
VARAHLUTIR Mikiö úrval
Sendura um land allt
Kaupum nýleff B, Opið virka daga
bíla til niðurrifs ® 19
Sími (91) 7 - 75-51, (91) 7-80-30. aaga 10 lb
HEDD HF.
Kiípavogi 20 HEDD HF.
Gagnkvæmt
tryggingafé/ag
labriel
HÖGGDEYFAR
(JJvarahlutir
Armiíla 24
Sfmi 36S10
EKKI HÆGT AD SEGJA
AÐ ÞAÐ SÉ ÓVENJULEGT
rnm
— segir Markús A.
Einarsson,
veðurfræðingur, um
kalda haustið
■ „Miði ég við hitafarstölur frá Reykjavik, þá vill
svo til að á eftir fimm köldustu haustum — siðan
mælingar hófust þar um 1870 — þá fóru mjög kaldir
vetur”, sagði Markús Á. Einarsson, veðurfræðing-
ur, er Timinn spurði hann hvort kuldarnir i haust
gefi okkur kannski tilefni til að ætla að við megum
búast við hörðum vetri.
■ Markús tók iram, að þessir
fimm köldu vetur hafi þó vita-
skuld verið mjög miskaldir. „Þar
skar einn sig úr, sem l'rægur er,
þ.e. veturinn 1881, sem var mjög
afbrigðilega kaldur hér á landi.
En aðrir frægir kuldavetur — eft-
ir köldu hausti — voru 1874, 1888
og 1918, sem er mjög frægur.
Eftir þetta haust okkar sem nú
er nýliðið (október og nóvember)
horfir málið svo við.að það er það
kaldasta sem hér hefur komiö
siðan mælingar hófust", sagði
Markús. Reyndar bætti hann þvi
við að haustið 1917 var svipaö.
,,Þó ég vilji ekki halda þvi fram
að um algera tilviljun hafi verið
að ræða, aðsaman fari kalt haust
og kaldur vetur, þá er þó alveg
ljóst að það er alls ekki hægt að
segja að þarna sé um almenna
reglu aö ræða. Og þetta segi ég
ekki bara til huggunar, heldur
hygg ég að þetta sé staöreynd.
Það hafa t.d. komiðnokkur köld
haust önnur en þau fimm köld-
ustu ogég gæti bent á nokkur sem
hér hafa orðið, en á eftir fóru
skaplegir vetur, t.d. haustin 1923,
1926 og 1930. Þannig að þaö er af
og frá að spá einhverjum heljar
hörkum á þessum grundvelli ein-
um saman”, sagöi Markús.
Við spurðum hann hvort — auk
dropar
kuldans — hafi ekki verið óvenju-
lega staðviðrasamt i haust og vet-
ur, þ.e. stöðug kuldatið án úr-
komu nánast vikum saraan.
„Það er kannski ekki hægt að
segja aö það sé óvenjulegt. Hér
syðra þá munu menn hins vegar
telja óheppilegt að það sé svo kalt
á auða jörð i lengri tima. Frost
fer þá kannski djúpt i jörð ef
þessu heldur áfram sem horfir.
A hinn bóginn er ég þeirrar
skoðunar að það sé kominn timi
til að fara að nota orðið „óvenju-
legur” dálitið sparlegar i þessu
sambandi. Það er i rauninni kom-
inn timi til að menn hætti að
verða hissa á nokkuö köldu veð-
urfari. Það er nefnilega svo að
talsverðan hluta af þessari öld
okkar—eðafrá þviupp úr 1920 og
fram til 1964 — þá bjuggum viö
hér á landi við veðurfar og hita-
far, sem var alveg óvenjulega
hagstætt. Þessi hluti aldarinnar
var það hagstæður, að maður má
ekki reikna með að slikt standi
lengi og komi oft.
Þessvegna er það e.t.v. nær
lagi, að við séum núna i frekar
venjulegu veðurfari, eins og það
var i upphafi þessarar aldar og á
siðustu öld t.d. Ef til vill er þaö
svolitið dapurlegt að segja þetta,
en er engu að siöur staöreynd, að
minu mati”, sagði Markús.
* é
■
Kratísk
rekstrar-
hagfræði
■ Við útgáfu hins fjög-
urra siöna Aiþýðublaös
starfa eftirtaldir: rit-
stjóri, ritstjórnarfulltrúi,
þrir almennir blaðamenn
og fimm manns i öörum
störfum.
Er það kyn þó keraldiö
leki?
Samhugur
og einhugur
Allaballa
■ Alþýðubandaiags-
inenn hafa löngum stært
sig af þvi að i þeirra
flokki riki samhugur og
eining fullkomin um flest
mál. Sú er þó ekki raunin
I bygginganefnd borgar-
innar, þar sem fulltrúar
flokksins eru komnir i hár
saman og bókanir ganga
á vixl. Og út af hverju
halda menn svo að hat-
rammar deilur standi á
milli hinna tveggja Alla-
ballafulltrúa i umræddri
nefnd? Jú, hvort leyfa
skuli Dagblaðinu stækkun
á húsbyggingu sinni i
Þverhoiti!
Umrædd stækkun var
samþykkt á fundi bygg-
ingarnefndar meö fjórum
atkvæðum gegn tveimur,
— á móti voru Guörún
Jónsdóttir og Gunnar H.
Gunnarsson, en Gunnar
er annar fulltrúa Alþýðu-
bandalagsins i nefndinni
— hinn er Magnús Skúla-
son, formaður nefndar-
innar.
1 bókun, sem Gunnar
lét gera, kemur meðal
annars fram eftirfarandi:
„Ég vil lýsa furðu minni á
ákefð formanns nefndar-
innaraökeyra þetta mál í
gegnuin nefndina og gera
sig m.a. sekan um brot á
þeirri hefð að fresta máli
til næsta fundar... Ég hlýt
aö mæla hart gegn sam-
þykkt þessa máls, enda i
hróplegu ósamræmi við
mótaða stefnu Alþýöu-
bandalagsins i skipulags-
málum.”
Undir þessu gat Magn-
ús formaður og fclagi
ekki setið og lét bóka á
móti: „Ég harma bókun
G.H. G. Erindið hefur
verið meðhöndlað á
tveimur fundum nefndar-
innar og fengiö eölilega
afgreiðslu. Hingað til hef-
ur tiökast, aö nefndar-
menn geti haft sinar
skoðanir, án þess aö
verða fyrir persónulegum
Fimmtudagur 17. des, 1981
fréttir
Margeir í öðru
sæti tapaði í síð-
ustu umferð.
■„Ég var að ljúka við
að tefla sfðustu um-
ferðina rétt i þessu, og
skákin fór þannig að
ég tapaði fyrir
Djuric,” sagði
Margeir Pétursson,
skákmaður i viðtali
við Timann i gær-
kveldi. Margeir hefur
að undanförnu keppt á
skákmóti i Júgóslaviu
og fyrir siðustu um-
ferðina var hann i
öðru sæti með 8,5
vinninga en Djuric i
fyrsta sæti með 9 vinn-
inga, þannig að Djuric
dugði jafntefli i þess-
ari skák. Djuric sigr-
aði þvi i þessu móti
með 10 vinninga og
Margeir varð i öðrú
sæti með 8,5 vinninga.
—AB
Lengsta stopp i
sögu sjónvarpsins
■ Sjónvarpsútsend-
ing lá niðri i gærkveldi
i iiðlega hálftima á
miðjum útsendingar-
tima, þvi dreifimagn-
ari bilaði. Sjónvarps-
útsending hefur aldrei
i sögu sjónvarpsins
stöðvast jafnlengi, og
að sögn Harðar Fri-
mannssonar, verk-
fræðings Sjónvarps-
ins, þá stöðvaðist
sending þetta lengi,
þvi illa gekk að finna
hvað væri að. Þegar i
ljós kom að dreifi-
magnarinn var bilað-
ur, var um leið skipt
um magnara, og var
þá hægt að hefja út-
sendingu á nýjan leik,
enda marga farið að
lengja eftir „dallasn-
um”.
—AB
dagar
til jóla
dylgjum um ástæður til
afstöðu”.
Svona eru nú ástir sam-
lyndra flokksbræðra....
Krummi ...
sér i Gunnarsbókinni haft
eftir forsætisráðherra:
„stunda leikfimiæfingar
flesta morgna áður en ég
fer á fætur” hmm....