Tíminn - 08.01.1982, Blaðsíða 8
8.
Föstudagur 8. janúar 1982
fSirimi®
Utgefandi: Framsóknarflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur
Gislason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdóttir. Afgreiðslustjori: Sig-
urður Brynjólfsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson. Elias Snæland Jóns-
son. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V. Ólafsson. Fréttastjóri: Páll Magnússon.
Umsjónarmaður Helgar-Timans: lllugi Jökulsson. Blaðamenn: Agnes
Bragadóttir, Bjarghildur Stefánsdóttir, Egill Helgason, Friðrik Indriðason,
' Heiöur Helgadóttir, Jónas Guðmundsson, Kristinn Hallgrimsson, Kristin
. Leifsdóttir, Ragnar orn Pétursson (iþróttir), Skafti Jónsson. Útlitsteiknun: ■
Gunnar Trausti Guðbjörnsson. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guðjón
Róbert Agústsson, Elin Ellertsdóttir. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Próf-
arkir: Flosi Kristjánsson, Kristin Þorbjarnardóttir, Maria Anna Þorsteins-
dóttir.
Ritstjórr,, skrifstofur og auglýsingar: Siöumúla 15, Reykjavik. Simi:
86300. Auglýsingasimi: 18300. Kvöldsimar: 86387, 84392. — Verö i lausasölu
6.00. Askriftargjald á mánuði: kr. 100.00—Prentun: Blaðaprent hf.
Deila sjómanna
og útgerdarmanna
■ Verkfall sjómánna hlýtur að leiða hugi manna
að þvi þýðingarmikla hlutverki, sem sjómanna-
stéttin gegnir i islenzku þjóðlifi. Það er ekki að-
eins útgerðin, sem hefur stöðvazt, heldur fisk-
vinnslan. Þúsundir manna, sem ekki taka þátt i
verkfallinu, hafa þannig misst atvinnu sina.
Deilan milli sjómanna og útgerðarmanna
stendur engan veginn i sambandi við fiskverðið
eitt. Þótt það yrði ákveðið með samkomulagi
milli fiskseljenda og fiskkaupenda, eða á annan
hátt, myndi deilan milli sjómanna og útgerðar-
manna samt halda áfram.
Deila þessara aðila snýst m.a. um tvö mikilvæg
,,princip”-atriði.
irþvV'á'ð*ek&Y vilja_fá tryggingu fyr-
inn hlutur til að greiða niður útgerðarkostnað,
nema þá með fullu samþykki þeirra. Með þessu
er aflahluti sjómanna skertur. Það eru eðlileg
viðbrögð þeirra, að hlutaskiptareglum verði ekki
breytt með þessum hætti, nema það verði þá bætt
þeim á annan hátt.
Siðara atriðið er það, að sjómenn vilja fá kaup-
bætur samkvæmt framfærsluvisitölu á svipaðan
hátt og launafólk, sem vinnur i landi. Erfitt er að
sjá, að sjómönnum verði til lengdar haldið sem
utangarðsmönnum i þessum efnum.
Fleiri atriði blandast svo inn i deiluna en fram-
angreind atriði eru veigamest.
Hér er um deiluefni að ræða, sem munu báðum
aðilum viðkvæm. Það bætir ekki úr skák, að
stjórnarandstaðan rær undir af öllum mætti og
reynir að auka sundrungu og ófrið. Hennar ósk-
hyggja er sú, að þetta geti orðið rikisstjórninni að
falli. Svoósvifin er núverandi stjórnarandstaða,
að hún hikar ekki við að stuðla að stórfelldu tjóni
þjóðarbúsins og atvinnuleysi þúsunda manna, ef
það gæti orðið vatn á myllu hennar og fært hana
nær valdastólunum.
Enn ömurlegra er þetta hlutskipti stjórnarand-
stöðunnar, þegar það er tekið með i reikninginn,
að forráðamenn hennar hafa ekki minnstu úrræði
fram að færa og meðan ráðherrar úr hópi hennar
fóru með sjávarútvegsmál dróst oft langt fram
yfir áramót að ákveða fiskverð.
Fullyrða má, að enginn sjávarútvegsráðherra
hefur gert meira til þess en Steingrimur Her-
mannsson að reyna að ná samkomulagi milli
fiskkaupenda og fiskseljenda um fiskverð.
Lausn á þvi máli væri vafalaust fengin, ef það
stæði ekki i veginum, að eftir sem áður væri deila
sjómanna og útgerðarmanna óleyst. Meðan svo
horfir, halda fulltrúar fiskkaupenda og fiskselj-
enda meira að sér höndum en ella, enda verða
þeir fyrir ekki litlum þrýstingi stjórnarandstöð-
unnar i þeim efnum.
Rikisstjórnin hefur reynt og mun reyna enn
frekar að leysa þessa deilu. Það er ekki auðgert
verk og á stjórnarandstaðan sinn þátt i þvi. Til
þess er vart hægt að ætlast að rikisstjórnin fari að
beita sér fyrir lagasetningu á þessu stigi.
ísland er ekki Pólland sem betur fer. Hér verða
þvi verkföll ekki leyst með svipuðum hætti og
þar. Hér verður að treysta á þroska deiluaðila og
að æsingaöfl reyni ekki að gera illt verra.
Þ.Þ.
þingfréttir
íslenskur iðnaður
Keppir við
ríkisstyrkta
framleiðslu
■ Tómas Árnason viðskipta-
ráðherra svaraði i des. s.l. fyrir-
spurnum frá Guðmundi G.
Þórarinssyni um styrktarað-
gerðir við iðnað i viðskiptalönd-
um íslendinga. Hér er um veiga-
mikið mál að ræða þar sem is-
lenskur iðnaður á i harðri sam-
keppni við innfluttar iðnaðarvör-
ur, sem i mörgum tilvikum eru
styrktar af opinberum sjóðum i
þeim löndum sem varan er fram-
leidd. Þetta gerir samkeppni
örðuga og erfitt er að halda uppi
samjöfnuði I verði við framleiðslu
vörutegunda sem þannig eru
lækkaðar i verði i framleiöslu-
löndunum.
Siðan eftirfarandi spurningum
var svarað á Alþingi hafa verið
gerðar ráðstafanir til að jafna bil-
ið á einhverjum sviðum, t.d. 35%
innborgunarskyldu á innflutt hús-
gögn og tollskrá hefur verið
breytt til að jafna að nokkru verð
á innfluttum húsum tilbiinum og
þeim sem framleidd eru hér.
porariiiböuu aí',—o r n
ar voru lagðar fram og i svari
viðskiptaráðherra felst tals-
verður fróöleikur um hvernig
málum þessum er háttað og fer
hér á eftir meginhluti umfjöllun-
ar þeirra um málið sem hefst á
spurningum fyrirspyrjanda:
,,1. Hvað líður störfum nefndar,
sem átti að kanna til hvaða
styrktaraðgerða hafi verið gripið
i hUsgagnaiðnaði i friverslunar-
^sandalagslöndum okkar?
2. Hvað hyggst rlkisstj. gera i
vanda húsgagna- og innréttinga-
iönaðarins? ”
Tilefni þessarar fsp. er það, að
eins og öllum þingheimi er kunn-
ugt, hefur verið gripið til marg-
háttaðra styrktaraðgerða viö
iðnað í ýmsum viðskiptalöndum
okkar, ýmsum löndum, sem við
erum i friverslunarbandalagi við.
1 þessum löndum hafa verið gefn-
ar út leiðbeiningabækur um það,
hvernig og hvaða styrktarað-
geröa viðkomandi iðngreinar
geta leitað til og leitað eftir. Hér á
landi hafa bæði Félag isl. iðnrek-
enda og Landssamband iðnaðar-
manna gert sér far um að reyna
að fylgjast meö þessum styrktar-
aðgerðum og tekið saman yfirlit
yfir þessar helstu aðgerðir. Eins
og menn vafalaust vita i flestum
þessara landa eru þessar að-
gerðir flokkaðar ýmist undir at-
vinnuaukandi aðgerðir eða
byggðasjónarmið.
Ég hef áður gert þaö að um-
ræðuefni hér i þinginu að til að
mynda i Sviþjóð er gefin út sér-
stök bók, sem heitir Studhand-
boken, sem fjallar um þessar
styrktaraðgerðir og i Danmörku
hef ég séð bók, sem heitir Offent-
Uge studbeordninger. 1 tengslum
við þetta mál er rétt að geta þess
enn einu sinni, að til að mynda i
Sviþjóð er sérstakur listi yfir þær
styrktaraðgerðir, sem tréiðnaður
þar ilandi getur leitað eftir. Þess-
ar styrktaraðgerðir eru i þeirri
bók sem ég hef séð taldar upp i
fernu lagi i fyrsta lagi omstelln-
ingsstud,sem kallað er eða nokk-
urs konar aðlögunarstyrkur, i
öðru lagi strukturgarantie, sem
mun vera lán þar sem bæði er
unnt að fella niður vexti og af-
borganir ef vissum skilyrðum er
fullnægt. 1 þriðja lagi er um að
ræða exportstud eða sérstakan
útflutningsstyrk og i fjórða lagi
udbildingsstud sem er svona
menntunar- og þjálfunarfræðslu-
styrkur.
Styrkir við
iðnað erlendis
I viðbót við þetta eru skil-
ar-oininoar á fiölmörgum styrkj-
greiddir flutningastyrlcir tu iyrir-
tækja, flutningastyrkir sem geta
numið um 15-35% af heildar-
flutningskostnaði. í Sviþjóð vitum
við að mörg fyrirtæki út um
landsbyggðina fá greiddan styrk
á hverja vinnustund, sem starfs-
menn yfir 50 ára aídri vinna. í
Finnlandi vitum við að unnið er
með sérstaktkákaraktie.þar sem
veitt er nokkurs konar rikis-
ábyrgð vegna áhættu sem fyrir-
tæki lenda i vegna innlendra
kostnaðarhækkana. 1 Noregi vit-
um við að veitt eru vaxtalaus
fjárfestingarlán og ísumum lönd-
um eru fjárfestingarstyrkir sem
nema allt að 15% af heildarfjár-
festingu. Hér er um nokkuð
vandasamtmálaö ræða en það er
þó alveg ljóst, að þar sem við er-
um i frlverslunarbandalagi við
lönd, fríverslunarbandalagi þar
sem viö og þessi lönd höfum
gengist undir að fella niður inn-
flutningsgjöld af vörum, þá tala
menn um samkeppni, friverslun á
jafnréttisgrundvelli. Sá jafn-
réttisgrundvöllur er auðvitað
ekki til staðar ef siöan er beitt
sérstökum styrktaraðgerðum til
þess að lækka raunverulegan
kostnað þessara iðnaðarvara en
þær síðan fluttar inn til okkar
undir yfirskini friverslunar.
Snemma á þessu ári hygg ég
að viöskrn. hafi skipað nefnd til
þess að kanna með hverjum hætti
þessar styrktaraðgerðir væru i
okkar nágrannalöndum. Niður-
staða þeirrar nefndar gæti siðan
oröið eða átti að geta orðið grund-
völlur fyrir þvi með hverjum
hætti ætti að bregðast við þessu
og hvort til að mynda ætti að
leggja á sérstaka jöfnunartolla.
Litlar fréttir hafa borist af starfi
þessara nefnda og ég verð að játa
það að mér þykir sá timi vera
orðinn nokkuö langur, sem þarna
hefur liðið, þvi að lengier búið að
ræða þessar styrktaraðgerðir hér
i þessu landi. Það er rétt að geta
þess, að það er ekki þó að þessi
fsp. hljóði sérstaklega varðandi
vandamál húsgagnaiðnaðarins,
þá er hann ekki einn á báti, heldur
eru fjölmargar aðrar iðngreinar,
sem eru styrktar i okkar
viöskiptalöndum. Ég vil þar sér-
staklega nefna fataiðnað og
vefjariðnað margs konar. Ég tel
algerlega óhjákvæmilegt, að is-
lenska rikisstj. bregðist við þess-
um styrktaraðgerðum I okkar
viðskiptalöndum, enda samrým-
ast þær ekki ákvæðum um fri-
verslun. Ég hef þvi lagt fram
þessa fep. hér i von um að fá greið
svör um hvað rikisstj. hyggst
gera i þeim vanda, sem þessi iðn-
grein stendur frammi fyrir nú.
upplýsingar
Tómas Arnason viðskipta-
ráðherra sagði m.a. i svari sinu:
1 framhaldi af viðræðum sem
fram hafa farið við forystumenn
Félags isl. iðnrekenda var
ákveðið aö kanna, hverjar væru
helstu styrktaraðgerðir i' hús-
gagnaiðnaði á Norðurlöndum. Þá
er jafnframt ákveðið að i fram-
haldi af slikri könnun muni is-
lenska rikisstj. taka erindi upp
hjá EFTA ef nauðsyn bæri til.
Aflað hefur verið gagna, bæði
með tilstuðlan Félags isl. iönrríi-
enda og einshefur sendiráðum Is-
lands á Norðurlöndunum verið
falið að afla slikra gagna frá viö-
komandi löndum. Nú er verið að
vinna úr þessum gögnum. Hv.
þm. gerði nokkra grein fyrir
styrktaraðgerðum t.d. i Sviþjóð
og ég hygg, að þær upplýsingar,
séu til i höndum þeirrar nefndar,
sem er að vinna Ur þessum mál-
um, en það verður að segja það
einsog eraðþað hefur ekki verið
sérlega greiður aðgangur að þvi
aö fá upplýsingar af þessu tagi.
Þetta hefur staðið árum saman,
deilur um þessi mál og það hefur
ekki verið greiður aðgangur að
þvi, það verður að segja það eins
og er. 1 umr. um vandamál
iðnaðarins er oft á það minnst, að
styrkveitingar til iðnaðar sam-
rýmist ekki reglum friverslunar.
1 EFTA-samningnum eru itarleg
ákvæði um rikisstyrki, þar sem
segir m.a. að ekki megi greiða
slika styrki til Utflytjenda. Enn-
fremur segir þar, að ekki megi
I
I
Blönduvirkjun
— athugasemdir við grein Torfa Jónssonar
á Torfalæk „Eftir Kastljós”
■ Athugasemdir við grein Torfa
Jónssonar á Torfalæk „Eftir
Kastljós” sem birtist i Timanum
á bls. 8-9, fimmtudag, 7. janUar.
Undirritaðir starfsmenn
BUnaðarfélags Islands óska hér
með eftir að koma eftirfarandi
athugasemdum á framfæri vegna
þeirra ummæla og tilvitnana i
grein Torfa um virkjun Blöndu,
sem snerta umsagnir þeirra til
Rafmagnsveitna rikisins:
1. Samkvæmt bréfi frá
Rafmagnsveitum rikisins til
Búnaðarfélags íslands, dags. 19.
febrúar 1981, fól stjórn félagsins
undirrituöum aö kanna og leggja
mat á hugsanleg áhrif Blöndu-
virkjunar á landtap og afréttar-
nýtingu á Auðkúlu- og Eyvindar-
■staðaheiðum. Sundurliðað álit
var sent i tveim bréfum til
Kristjáns Jónssonar rafmagns-
veitustjóra, hið fyrra dags. 4.
mars og hið siðara dags. 20.
mars. Aö sjálfsögðu önnuðust
Rafmagnsveitur rikisins dreif-
ingu afrita þessara bréfa ásamt
öðrum gögnum. Er okkur óvið-
komandi.hversu snemma og með
hvaða hætti heimamenn fengu
álit okkar i hendur, enda áttum
við þar ekki hlut að máli.
2. A þeim tima, sem bréfin voru
skrifuð, voru virkjunaraðilar að
leggja mat á uppgræðsluþörf,
bótaþörf o.fl. vegna undirbúnings
samningsdraga fyrir virkjunar
Blöndu, og höfðu nokkrir mis-
munandi virkjunarkostir verið
kynntir. Okkar hlutverk var að
kanna ýmsar skýrslur og gögn i
málinu, svo sem um gróður og
beitarþol, hugsanleg áhrif á um-
hverfi lóns og veituskurða, og
uppgræðsluþörf, og gefa álit, en
ekki vinna að ákveönum
rannsóknum á svæðinu. Okkur er
ekki kunnugt um aðaðrirhafi lát-
ið slika samantekt frá sér fara.
Efni framangreindra bréfa hefur