Tíminn - 08.01.1982, Side 18

Tíminn - 08.01.1982, Side 18
12 Kvikmyndir og leikhús Föstudagur 8. janúar 1982 kvikmyndahornið I ■ „Reds” hin merka kvikmynd Watten Beattys um John Reed og vinkonu hans Louise Bryant, var ein af jólamyndunum vestur i Bandarikjunum i ár og hefur vakiö athygli. Mynd þessi þykir hiö mesta hættuspil f járhagslega þar sem hún kostaði meira en 30 mill- jónir dollara. Hún er rúmlega þrjár klukkustundir aö lengd. Gagn- rýnendur I New York hafa vaiiö hana bestu mynd ársins, og hér sjást aðalleikararnir: Warren Beatty sem John Reed og Diane Keaton sem Louise Bryant. Beatty var einnig ieikstjóri og handrits- höfundur ásamt Trevor Griffiths. Kvikmyndagagnrýnendur í New York: „REDS” BESTA MYND ÁRSINS ■ Kvikmyndagagnrýnendur i New York greiöa á ári hverju at- kvæöi um bestu kvikmynd ársins, besta leikstjórann og bestu leikarana i aöalhlutverkum. Aö þessu sinni var kvikmyndin „Reds” kjörin besta mynd ársins. Myndina geröi Warren Beatty, sem jafnframt leikur aöalhlutverkiö — bandariska blaöamanninn John Reed, sem varö vitni aö rússnesku byiting- unni 1917 og skrifaði fræga bók um þann atburð „Tiu dagar sem skóku heiminn”. Samkeppnin var hins vegar harðari um besta leik i aðal- hlutverki kvenna. Þar sigraði Glenda Jacksonfyrir hlutverk skáldkonunnar Stevie Smith i kvikmyndinni „Stevie”. Hún hlaut 36 stig, en Faye Duna- way fékk 34 stig fyrir „Mommie Dearest” myndina um Joan Crawford. Fyrir besta frammistöðu i aukahlutverkum fengu þau Mona Washbourne og Jon Gielgud viðurkenningu gagn- rýnendanna i New York — sú fyrrnefnda fyrir „Stevie” en Gielgud fyrir „Arthur”. Brasiliska myndin „Pixote” var kjörin besta erlenda mynd ársins, og mun það vafalaust hafa komið ýmsum á óvart. Af öðrum myndum, sem fengu atkvæði, má nefna hinar þekktu pólsku kvikmyndir „Járnmaðurinn” og „Marm- aramaðurinn” og mynd Zan- ussis „Contract”. Þeir Zan- ussi og Wajda fengu hins veg- ar i staðinn sérstaka viður- kenningu. Verðlaunaafhendingin fer fram 31. janúar næstkomandi. - ESJ Það eru 27 gagnrýnendur, sem hafa atkvæðisrétt, og vel- ur hver um sig þrjár bestu myndir, leikstjóra eða leikara og gefur þeim þrjú, tvö og eitt stig. „Reds” hlaut 37 stig, og var alllangt á undan næstu mynd, „Prince of the City” sem fjallar um spillingu með- al lögreglumanna i New York. Sú mynd hlaut 25 stig, „At- laniic City” nýjasta mynd Louis Malle, fékk 24 stig, og „Chariots of Fire” 23 stig. Sidney Lumet var kjörinn besti leikstjórinn með 33 stig fyrir „Prince of the City”. Næst komu Louis Malle (26 stig), Hugh Hudson fyrir „Chariots of Fire” (25) og Warren Beatty (20). John Guare hlaut viður- kenningu fyrir besta kvik- myndahandrit, en hann skrif- aði handritið að „Atlantic City” með 48 stig en næst komu Sidney Lumet og Jay Presson Allen með 25 stig. „Chariots of Fire”fékk við- urkenningu ganrýnendanna i New York fyrir bestu kvik- myndatökuna. Svo vikið sé að leikurunum, þá fékk Burt Lancaster flest atkvæði i kosningunni um besta leik i aðalhlutverki karla á liðnu ári fyrir frammi- stöðu sina i „Atlantic City”. Hann fékk 58 stig, og var þannig langt fyrir ofan alla aðra. Næstur kom Henry Fonda fyrir „On Golden Pond” með 27 stig. Etias Snæland Jónsson skrifar * Hvell-Geiri o Dante og skartgriparánið * Góðir dagar gleymast ei ★ ★ ★ Stjörnustrið II. ★ Jón Oddur og Jón Bjarni ¥ -¥ örtröð á hringveginum ★ ★ Flótti til sigurs ★ ★ ★ útlaginn ★ ★ ★ Blóðhefnd Stjörnugjöf Tímans * * * * frábær ■ *** mjög göð ■ * * göð ■ * sæmileg ■ O léleg

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.