Tíminn - 12.02.1982, Blaðsíða 2
Föstudagur 12. febrúar 1982.
2_____________
í spegli Tímans}
ItBÉttt
Umsjón: B.St. og K.L.
Alan Jay
Lerner
gefur
konu
sinni
söngleik
■ Alan Jay Lerner lendir
ekki i vandræöum, þegar
hann þarf aö gefa konunni
sinni gjöf, hann skrifar
bara fyrir hana söngleik.
Alan er höfundur
frægra og vinsælla söng-
leikja, s.s. May Fair
Lady, Camelot og Gigi,
og er nú meö i smiöum
nýjan söngleik, sem
geröur er eftir leikritinu
Idiot’s Delight frá árinu
1936, en Clark Gable og
Norma Shearer geröu þaö
vinsælt á hvita tjaldinu á
sinum tima. Söngleikinn
tileinkar hann konu sinni,
og skal hún fara meö
aöalhlutveriö á Broad-
way. Hún er allt aö 40
árum yngri en tónskáldiö
og sú áttunda i röö eigin-
kvenna hans. Hvort hann
var svona stórtækur i
gjöfum til hinna 7 forvera
hennar. vitum viö ekki.
Stráksi stakk
afogmamman
ienti í klónum
á löggunni
■ Frægt fólk getur lent i
ýmsum þeim kringum-
stæðum, þar sem mis-
skilningur á misskilning
ofan getur komið þvi i
klipu, rétt eins og viö hin.
A þvi fékk leikkonan Pet-
ula Clark að kenna ekki
alls fyrir löngu. Hún hafði
verið að versla i stór-
verslun i London og i
fylgd með henni var niu
ára gamall sonur hennar,
Patrick. Réttara væri að
segja, að hann hefði átt að
vera i fylgd með henni,
þvi að skyndilega sá
stráksi sér leik á borði og
stakk mömmu sina af.
Petulu varö svo mikið
um, þegar hún áttaði sig á
að hann var horfinn, að
hún stökk út úr búðinni til
að leita að honum fyrir
utan. Henni gleymdist i
látunum, að hún var með
ýmsa hluti úr búðinni i
höndun, sem hún var ekki
búin að borga. En þar
sem þetta er fin og virðu-
■ leg verslun hefur hún
marga leynilögreglu-
menn i sinni þjónustu,
sem einmitt hafa það
verkefni að fylgjast með
að svona lagað gerist
ekki, kúnnarnir eiga ekk-
ert með að yfirgefa
búðina með ógreiddar
vörur. Og þar sem þeir
eru starfi sinu vel vaxnir,
fór þessi atburður ekki
framhjá þeim. Þeir tóku
þvi á sprett á eftir aum-
ingja Petulu og handsöm-
uðu hana hið snarasta.
Þeir höfðu m.a.s. svo
mikið við að kalla lög-
regluna á vettvang. Seint
og um siðir tókst þó
Petulu að útskýra málið
en ekki þótti henni þetta
alls kostar þægileg lifs-
reynsla.
Rock Hudson tekur
upp nýja lifnaðarhætti
■ Rock Hudson hefur
nýlega gengið undir
stóran hjartauppskurð,
sem heppnaðist vel, en nú
hefur hann fengið ströng
fyrirmæli um aö taka upp
hollari lifnaðarhætti en
hann hefur ástundað
hingað til. Rock er orðinn
55 ára og oft er erfitt aö
kenna gömlum hundi að
sitja. Hann fór létt með að
draga úr áfengisþambi,
drekkur nú sem svarar
1—2 sjússum á dag og
þykir ekki mikið. Erf-
iðara er aftur á móti með
reykingarnar. Rock hefur
til þessa reykt 2 pakka af
sigarettum á dag og á
ákaflega erfitt með að
venja sig af þeim ósið.
Hefur hann nú gripið til
þess ráðs að fá dáleiðara i
liðmeð sér til að sigrast á
þessum óvini sinum,
nikótinþörfinni. Við
óskum honum allra heilla
i baráttunni.
Mikki mús kallaður í kerinn
■ Mikki mús fær heilmikið af bréf um f rá bar opinberan sfimpil og í því var eyðublað, láta þetta sem vind um eyrun þjóta, ekki
aðdáendum sínum. En aðstandendum hans sem hr. Michael M. Mouse var vinsamlega yrði hjá þvi komist að svara bréfi frá yfir-
i Disneyland í Kaliforniu brá heldur en ekki beðinn að fylla út, svo að hægt væri að skrá völdum og bætti við: — Ekki kærum við
í brún nýlega, þegar innan um öll saklausu hann til herþjónustu. okkur um að Alríkislögreglan komi og taki
bréfin var eitb sem skar sig úr. Umslagið Fulltrúi Disneylands sagði ómögulegt að Mikka mús fastan!
■ t fremstu röð sat Karólína ásamt foreldrum slnum, en Robertino á næsta bekk
fyrir aftan. Nú spá menn þvi, að að ári beri honum sæti á fremsta bekk, sem einum
meðlimi fjölskyldunnar.
Hillir undir að
Karólína fái að
eiga Robertino?
■ Látið hefur verið að
þvi liggja, að furstafjöl-
skyldan i Monakó hyggi á
tslandsferð i sumar. Ekki
fylgdi það fregninni,
hversu margir meðlimir
fjölskyldunnar hafa hug á
þvi að lita hér við, en út-
lendar fregnir benda til
þess, að fjölgunar sé von
hið fyrsta i fjölskyldunni.
Er þar átt við þá viður-
kenningu, sem samband
þeirra Karólinu prinsessu
og Robertino Rossellini
virðist hafa hlotið hjá for-
eldrum hennar.
Ekki alls fyrir löngu
var furstafjölskyldan
viðstödd fjölleikahúss-
sýningu i Monakó. At-
hygli viðstaddra vakti, að
i fylgd með fjölskyldunni
var Robertinoog sat hann
hjá henni.
Ekki vakti
siður athygli, hvað
Karólina var glaðleg og
ánægð. Fólk lagði þvi
saman tvo og tvo og þótt-
ist fá út 4. Er sagt, að
það eina, sem nú standi i
vegi fyrir þvi að þau
gangi að eigast sé viður-
kenning páfastóls á
hjúskaparslitum
Karólfnu og Philippe
Junot, en Vatikaniö hefur
ekkert veriö að flýta sér i
þeim efnum.
A meðan heldur
Philippe uppteknum hætti
og tekur fullan þátt i sam-
kvæmislifinu með stöðugt
nýja og nýja konu upp á
arminn. Er sagt, að þar
sýni Philippe Karólinu
drengskaparbragð, þvi að
ekki fari hjá þvi, að kirkj-
unnar menn dragi þá
ályktun af háttalagi hans,
að hann liti i raun og veru
ekki á sig sem giftan
mann lengur, og þvi sé
ekkert þvi til fyrirstöðu
að slíta formlega þvi
hjónabandi, sem ekki er
lengur til, nema á pappir-
um kirkjunnar.
Dátt var með Sorayu og „Herra 100.000 volt”.
Soraya er
enn á ferli
■ Hún Soraya, sem einu
sinni var keisaraynja I
tran, er ekki dauð úr
öllum æðum, þó að litið
beri á henni i fréttum nú
oröið. Nýlega sást til
hennar á vinsælum næt-
urklúbbi, L’Ecume des
Nuits I Paris, þar sem
hún sat að daðri við
vinsælan söngvara,
Gilbert Becaud, sem
kallaður er Monsieur
100.000 volt. Hann lét ekki
sitt eftir liggja i daðrinu
og þótti mörgum
viðstöddum sem neist-
arnir flygju á milli. En
heldur þótti þeim öryggi i
þvi að vita að eiginkona
söngvarans var á staðn-
um og virtist staðráðin i
þvi að koma i veg fyrir að
skammhlaup yrði á milli
hinna tveggja.
■ Karólina skemmti sér konunglega. Á bak við hana grillir i Robertino.