Tíminn - 12.02.1982, Blaðsíða 8

Tíminn - 12.02.1982, Blaðsíða 8
8 Wímm Föstudagur 12. febrúar 1982. Íiisteii Utgefandi: Framsoknarflokkúrinn Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdóttir. Afgreiðslustjori: Sig- uróur Brynjólfsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson.Elias Snæland Jóns- son. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V. olafsson. Fréttastjóri: Páll Mignússon. Umsjónarmaður Helgar-Timans: lllugi Jökulsson. Blaðamenn: Agnes Bragadóttir. Bjarghildur Stefánsdóttir, Egill Helgason, Friðrik Indriðason, Heiður Helgadóttir, Jónas Guðmundsson, Kristinn Hallgrimsson, Kristin Leifsdóttir, Ragnar orn Pétursson (iþróttir), Skafti Jónsson. Utlítsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert Agustsson, Elin Ellertsdóttir. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Próf- arkir: Flosi Kristjánsson, Kristin Þorbjarnardóttir. Maria Anna Þorsteins- dóttir. Ritstjórn. skrifsvofur og auglýsingar: Siðumúla 15. Reykjivik. Simi: 36300. Aualýsinaasinii: 18300. Kvöldsimar: 86387, 86303. — Verð i lausasölu -6.00. Askriftargjald á mánuði: kr. 100.00— Prentun: Blaðaprent hf. Fækkun í Straumsvík ■ Nýlega var skýrt frá þvi i fiölmiðlum, að unnið væri að ýmsum tæknibreytingum i álverinu i Straumsvik. Markmiðið með þeim er að gera reksturinn hagkvæmari og ódýrari. Talið er, að hægt verði að fækka starfsmönnum um 100, þegar þessar breytingar eru komnar til framkvæmda. Svipaðir atburðir eru að gerast á sviði stóriðj- unnar viðs vegar um heim. Tölvuvæðingin svo- nefnda á mestan þátt i þessu, en fleiri tækni- breytingar beina þróuninni i þessa átt. Þetta er ein af helztu orsökum atvinnuleysisins i stóru iðnaðarrikjunum. Svipuð þróun á sér nú stað i stóriðjunni og i landbúnaði og sjávarútvegi undanfarna áratugi og heldur þar raunar áfram enn. Þetta er engan veginn bundið við stóriðjuna eina, heldur gerist ekkert siður á sviði hinna minni iðnaðarfyrirtækja. Hér á landi er t.d. að finna fleiri dæmi þess, að starfsmönnum hjá til- teknum fyrirtækjum hafi fækkað verulega eða staðið i stað, þótt framleiðslan hafi margfaldazt. Vélar hafa leyst mannshöndina af hólmi. Vafalaust mun þetta gerast i enn rikari mæli i náinni framtið. Það er þvi ákaflega hæpið að treysta þvi, að iðnaðurinn eða nánar tiltekið framleiðslu- iðnaðurinn geti að verulegu magni tekið við þvi vinnuafli, sem bætist hér við á næstu áratugum. Nýr íramleiðsluiönaður mun að visu bætast við, en vafasamt er aö hann geri betur en að bæta i skörðin vegna starfsmannafækkunar, sem verð- ur hjá hinum eldri fyrirtækjum af völdum tækni- væðingarinnar. Þetta leiðir hugann að þvi að mun betur þarf að sinna öðrum atvinnugreinum en þeim þremur, sem nú er lögð á mest áherzla, þ.e. landbúnaði, sjávarútvegi og framleiðsluiðnaði, þótt áfram verði að treysta rekstrarskilyrði þeirra eftir megni. Vaíasamt er þó, að þeir skapi miklu fleiri atvinnutækifæri. Sennilega biða möguleikarnir fyrir ný atvinnu- tækifæri mest á sviði hins svonefnda þjónustu- iðnaðar, eins og samgangna, ferðamannaþjón- ustu, listsköpunar, veitingastarfsemi o.s.frv. Vaxandi þörf verður fyrir allt þetta, m.a. vegna þess, að vinnutiminn mun styttast og tryggja verður fólki aðstöðu til að notfæra sér tómstund- imar á sem fjölbreyttastan hátt. Samgöngurnar geta sennilega átt mun rikari þátt i þvi að fjölga atvinnufyrirtækjum íslend- inga en þegar er orðið. Það er t.d. ánægjulegt til þess að vita, að islenzk skipafélög annast sigling- ar i vaxandi mæli á erlendum vettvangi, jafn- hliða þvi sem þau fullnægja enn betur þörfum Is- lendinga sjálfra. Það er lika mikilvægt, að is- lenzk flugfélög annast fólksflutninga milli heims- álfa og vöruflutninga erlendis. Um þessi málefni þarf að hugsa meira og undirbúa aðgerðir á viðari grundvelli en nú er gert. Annars getur mistekizt að finna hinni upp- vaxandi kynslóð næg verkefni. Þ.Þ. menningarmál Múrrista á Kjarvalsstöðum Kjarvalsstaðir Gunnsteinn Gislason Múrrista, veggmyndir. 20 myndir. fi. febr.-22. febr. 1982 Vesturgangur. Múrsmiði ■ Maður verður þess óneitan- lega var, að myndlist okkar er að veröa fjölbreyttari. Ungir fram- sæknir myndlistarmenn velja gjarna sérgreinar i listum, i stað þessað frelsa heiminn i venjulegu málverki i oliu, eða vatnslitum, eða með hefðbundinni geröhögg- mynda. Um þetta má nefna allmörg dæmi. Við eigum orðið nokkra flinka grafíklistamenn, vefara og leirkerasmiði. Enn aðrir vinna i gler. Um mdrsmiði hefur þó ekki verið mikið, þótt einstaka mynd- listarmaður hafi reynt fyrir sér með mosaik, og gjört myndir. Og nú höfum við fengið enn eina sérgreinina, en það er múrrista. MUrrista er ævaforn aðferð til að búa til listaverk, og er til i ýmsum hliðstæöum. Sgrafitto (Sgraffito) er gömul aðferð til að skreyta húsveggi, og var þekkt á Italiu á 15. öld og var snemma i brúki iSviss,á vissum stööum, og hefur verið um aldir. Þessi aðferð er ýmist notuö ásamt málverki, eða ein sér, og á vorum dögum einnig i smærri myndverk, færanleg. Þá er aöferðin einnig notuð i gerð leirmuna. Gunn- steinn Gislason lýsir aðferðinni með svofelldum oröum i sýn- ingarskrá (sjá einnig mynd); „Nafnið sgraffito er komið af italska orðinu sgraffiare sem þýðir rista. Fyrr á timum var þessi veggmyndatækni notuð samhliða al fresco myndum sem hluti af byggingalistinni. Munur- inn á fresco og sgraffito myndum felst i þvi að i stað þess að mála múrinn er skafið i blauta steyp- una til að fá myndina fram. Uppistaðan i múrristu er fin- mulinn hvitur marmari, kalk og steinlitir. Veggurinn sem skreyta á er lagöur virneti og rappaður. Að þvi loknu eru lituð múrlög dregin hvert yfir annað eftir þvi hve margir litir eiga að vera i myndinni. Siðasta lagið er yfir- leitt hvitt. Að þessu loknu er vinnuteikning fest á múrinn og framkölluð i blauta steypuna. Myndin er siðan skorin til með beittum hnif og litir og form skafin fram. Þegar allur raki er horfinn úr steypunni má verja hana með blöndu af hreinu bývaxi og parafinvaxi sem brætt er inn i múrinn.” Og nú hefur Gunnsteinn borið þessa list með sér hingað, þótt eigi sé hún með öllu óþekkt hér, eða vissar greinar hennar. Gunnsteinn Gíslason Gunnsteinn Gíslason hefur að baki langt nám í myndlist og mikla reynslu. Hann er fæddur árið 1946 og stundaöi nám við Myndlista- og Handiöaskóla Is- lands 1963-1967 i kennaradeild og frjálsri myndlist. Innritaðist i Edinburgh College of Art 1967 og lagði stund á veggmyndagerö og glerhönnun. Kennarar hans voru John W.C. Lawrie og Helen N. Turner. 1968 var Gunnsteini boðið (einum nemanda skólans) aö taka þátt i samsýningu skoskra höggmyndalistamanna i Banda- rikjunum. Vorið 1969 lauk hann D.A. (Edin.) prófiog héltsýningu viö skólann og var prófverkefnið kirkjuskreyting, unnin i sgraffito. Setti upp vinnustofu i Reykja- vik 1969 og hóf einnig kennslu við Vogaskóla það haust. Veturinn 1971 kenndi Gunnsteinn námsönn i veggskreytingu við Myndlista- og handiöaskólann. Haustið 1972 hóf Gunnsteinn nám i kennslugreinum mynd- mennta við Konstfackskolan T1 i Stokkhólmi og lauk þaðan prófi 1975. Þáum haustið var hann ráð- inn kennari og deildarstjóri viö myndlistadeild Fjölbrautaskól- ans í Breiðholti og stundakennari i kennslufræðum við Myndlista- og handiðaskólann. Hann byrjaði að sýna myndir árið 1967 á samsýningum, en sýn- ingin á Kjarvalsstöðum mun vera fyrsta einkasýning hans. Múrv'erkið Það er gaman að skoða múr- verk Gunnsteins Gislasonar, og það má hverjum manni vera ljóst, að þarna er á ferðinni agað- ur og vandvirkur myndlistar- maöur. Liklegt má telja að hann eigi eftir að vinna verk i þessu landi, vegna þess að áhugi fyrir veggskreytingum — úti og inni — er meiri núna hér á landi, en oft áður. A sýningunni eru 20 myndir. Flestar smáar, ef miöað er við þá stærð, sem slikar myndir ná á réttum stöðum, t.d. sem vegglist á salarkynnum, eða á húsum. Ekki getur Gunnsteinn þó talist timamótamaður i öðrum skiln- ingi, en þeim aöhann kemur með nýtt efni. Úrvinnsla fcffma og myndbygging er vönduð, en að öðru leytiþekktogsú hin sama og iðkuð hefur veriö lengi. A hinn bóginn eru myndirnar allar i há- um gæðaflokki, hvaö útfærsluna snertir. Mikinn skáldskap greinir maður ekki, en hinn ljúfi tónn, sem listamaðurinn hefur tileink- að sér, fellur i geð. Sérlega skemmtilegt verk þótti mér (kringlótt) mynd, sem Reykja- vikurborg hefur nú eignast. Þar opnast veggurinn, ef svo má segja. Það er ekki alltaf jafn auövelt að ráða efni abstraktmynda af nöfnum þeirra, fremur en að fylgja söguþræði spilaðra tón- verka. Aftur á móti fer maður stundum nærri um hugarheim myndlistarmanna við að lesa myndanöfnin. Myndheiti Gunn- steins eru t.d. Vor, Stormur, Upp- haf dags, Vorfugl I, Þriliða, Dag- draumur, Leysingar, Austanregn og Huldukona. Það eref til vill miskunnarlaust að segja i blöðum, að sérstök þörf séfyrir ákveðna listamenn í land- inu, umfram einhverja aðra. En þótt ég vildi nú ekki alveg fallast áað hafa öll hús með múrristum, þá fæ ég ekki annað séð en þarna sé kominn fram heppilegur mað- ur fyrir byggingalist okkar. Til að auðga hana og fegra. Mulningur Gunnsteins Gisla- sonar mun vera marmari. Gam- an væri að vita, hvort islensk steinefni eru nothæf i svona myndir? Islenskt grjót erfagurt, en vont grjót, svona byggingafræöilega, þvi veðrun er mikil hér á landi. Þaðerástæða tilaö hvetja sem flesta til þess að koma að Kjar- valsstöðum og sjá þessar myndir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.