Tíminn - 12.02.1982, Síða 4
Föstudagur 12. febrúar 1982.
skák
X. REYK JAVIKUR
SKÁKMOTIÐ
Alþjóðlegi meistarinn Kindermann skýrir
snilldarskák sína í gærkvöldi fyrir Tímann:
Kindermann er ekkert
barnagaman!
B l>riöja umferð Reykjavikur-
skákmótsins var tefld i gær-
kvöld og vissulega voru ahorf-
endur fleiri að þessu sinni en
áður, eöa 2-200 manns. Mesta
spennu vakti tvimælalaust skák
þeirra L. Alburts og Guðmund-
ar Sigurjónssonar, en henni
lyktaði mcö jafntefli. Ekki dró
þaö úr spennunni að sjálfur
Kortsnoi skýröi hvað fram fór
fyrir áhorfendum.
Þctta kvöld var ekki beinlinis
hagstætt islcndingum i það
lieila tekið en Sævar Bjarnason
var hinn eini þeirra sem vann
sina skák en hann tefldi gegn
Grunbcrg. Hins vegar áttu
margir okkar manna jafnteflis-
skákir, cins og sjá má á bak-
siðu, þar sem viö birtum
heildarúrslit.
i dag er það alþjóðlegi
meistarinn Kindermann, sem
skýrir skák sina gegn Jóni L.
Arnasyni, en þetta er hörku-
skemmtileg skák sem tvimæla-
laust á eftir að birtast i erlend-
um skáktimaritum. Þaö er Jón
Þorvaldsson kennari, sem hér
spjallar við Kindermann um
skákina og skráir athugasemdir
hans:
3. umferð
llvitt: Stefan Kindermann
Svart: Jón L. Arnason
Kenónivörn (Tiskuafbrigði).
1. dl-KfO
2. C4-C5
3. d5-e(i
4. Kc:i-exd5
5. cxd5-dti
6. c4-gt>
7. Bd3
(Þetta mun vera fyrsta
skiptið sem Kindermann beitir
þessu afbrigöi)
7. ...-Bg7
8. Kg-e2-0-0
9. O-O-RaO
10. Kg:t-Rc7
11. h3-a6
12. a4-Bd7
(Sennilega ekki nákvæmur
leikur, þar sem d6 reiturinn
veröur lasburöa. Nákvæmara
var 12. ...Hb8 til þess aö leggja
drög aö...b5)
13. Bf4-Rf-e8
(Eftir 13. ...De7. 14. Hel hótar
hvitum illilega aö ieika peöinu
til e5).
14. a5-Hb8
15. Dd2
(Eftir 15. De2 b5 16. axb6
Hxb6 er ekki unnt aö leika 17.
Bxa6 vegna 17... Bxc3 18. bxc6
Rxa6 19. Hxa6 Bb5!)
15. ,..-b5
16. axb6-Hxbb
17. H'a2-Bb5?!
(Hollara svörtum var 17...
Db8 til þess aö þrýsta á peöiö á
b2 og gera einróiö aö þvi aö
hindra framsókn þess til b4,
sem er mikilvægt hernaöar-
lega).
18. Rxb5-Rxb5
(Eftir 18....axb5 19. b4 Ra6
(19...c4 bæri vott um litla her-
kænsku, þar sem drottningar-
vængurinn yrði fjötraöur og
hvitur næöi tangarhaldi á
d4-reitnum hugöist Kinder-
mann fórna skiptamun meö 20.
Hxa6 Hxa6 21. bxc4 dxc4 22.
Bxb5 Hb6 23. Bc6 og hvitur leik-
ur á als oddi).
19. Re2
(Hvitur undirbýr framsókn
Kindermann litur yfir skákina að tafli loknu.
peðsins til b4 og treystir tök sin
á c4).
19. ...-Rf6?!
(Eævi blandinn þar sem hvit-
ur var að leika b4. Snjallara var
19. ...Db8, þar sem 20. b4 er
svarað með 20. ...cxb4 21. Dxb4
Rc3)
20. b4-Rd4
(20. ... c4 21. Bxc4 Rxe4 22.
Dd3 og siöan Be3 er hagstætt
hvitum).
21. Kxd4
(Ahugavert var 21. bxc5 Rb3
22. Dc2 Rxc5 23. Be3 Rf-d7 24.
Rd4 Re5 25. Be2 og siöan f4 með
góöri stöðu fyrir hvitan).
21. ...-cxd4
22. Rf-al-Dc8
23. f3
(Eftir 23 Bxa6 kemur 23.
...Rxe4)
23. ...-Rh5
24. BxaO?!
(Sennilega vpr betra að leika
strax 24. Bh2 til þess aö halda
peöinu á b4. Eftir 24. ...Be5 get-
ur hvitur einfaldlega drepiö a6.
24. Hxa6 var of hættulegt vegna
24. ...Rxf4! og siðan Be5 með
ógnvænlegri sókn á svörtu reit-
unum).
24. ,..-Db8
25. Bh2
(Hvitum var nauðsyn á aö
halda liftórunni i svarta
biskupnum sinum).
(Timamynd Ella)
þá væru yfirburöir hvits smá-
vægilegir. Nú er svörtum hins
vegar vandi á höndum vegna
þess að i mörgum afbrigðum
veröur hrókurinn á b4 skot-
spónn).
27. f4-Bg7
28. e5
(Skyndilega snúast vopnin i
höndum svarts, þar sem setið er
um lif riddarans á h5 með hót-
uninni g4. Eftir 28...dxe5 29. fxe5
Bxe5 30. Bxe5 Dxe5 31. Dxb4
De3+ 32. Hf2 Dxd3 er hvitur
sælum skiptamun yfir).
28. ,..-g5
29. Ha8-IIb2
(29...Db7 30. H8-a7 Db6 31. De2
Rxf4 32. Bxf4 gxf4 33. Dh5 h6 34.
Df5 og sigurinn blasir við hvit-
um þar sem hrókurinn á a7 ger-
ir harðan aösúg að f7. Ef 29.
Db6, þá 30. De2 og sigrar).
30. Bxh7!
(30. Ddl? Dxa8 31. Hxa8 Hxa8
32. Dxh5 Hal+ 32. Bfl Hb-bl er
vænlegt hvitum).
30. ... Kh8
(30...Kxh7 31. Dd3+)
31. Ddl Dxa8
25. ...-Hxb4
(25...d3 kom til álita vegna
þess aö eftir 26. Hbl Da7 kemur
27. Bc4! (sem einn leikja fær
rönd viö reist hótuninni
27.. .Ha6+) 27...Hxb4 28. Hxa7
Hxbl+ 29. Kf2 Bd4+ 30. De3
30.. .Hb2+. Hvitur ætti að fórna
skiptamun með 26. b5, þar sem
hann vinnur lika peöiö á d3 á
eftir).
26. Bd3-Be5?!
(26...Hb3 var ákjósanlegri og
32. Dxh5!!
(Mikilvægur leikvinningur
þar sem svarti kóngurinn á sér
nú ekki skjól á f8. Eftir 32.
Hxa8? Hxa8 33. Dxa5 Hal+ 34.
Bbl+ nægir 35. Kg8 svörtum).
32. ...-Hf-b8
(32....Dxal+ 33. Bbl+!)
33. Hxa8-Hxa8
(Nú sér svartur sæng sina út-
breidda en þráast þó viö vegna
timahraks keppenda).
34. Bg3-gxf4
35. Bxf4-dxc5
36. Bg6+-Kg8
37. Bxf7 + -Kf8
38. Be6-Ha7
39. Bxe5-Bxe5
40. Dxe5-Hb-b7
41. Df6 + -Ke8
42. d6 Svartur gefst upp
A
■ Kortsnoi spjallar við blaöamann aö Hótel Loftleiðum í
gær. Timamynd EUa.
„Mistök ollu
því að ég tek
ekki þátt
í mótinu”
— sagði Kortsnoj í samtali
við Tímann
■ „Það voru aginlega mistök
sem ollu þvi' aö ég tek ekki þátt
i Reykjavfkurskákmótinu, en
ég var búinn aö lofa að tefla á
skákmóti i Róm sem hefst
áður en mótinu hérna likur.
Þótt mér þyki meira í Reykja-
vikurskákmótið variö, þá gat
ég ekki gengiö á bak orða
minna”, sagði Viktor Korts-
noi, skákmeistari sem i gær
kom til Reykjavikur til að
fylgjast meö skákmótinu
sterka, sem nú fer fram að
Kjarvalsstöðum. En blaöa-
maður Timans hitti hann að
máli á Hótel Loftleiöum rétt
eftir komu hans.
— Hefur þú teflt mikið siöan
i Merano?
,,Nei, ég hef aðeins teflt ör-
fáar skákir. Ég er núna ný-
kominn frá Bandarikjunum
þar sem ég var að reyna aö
selja kvikmynd sem
júgósl avneskir kunningjar
minir geröu um mig bæði sem
skákmeistara og pólitiskan
leiksopp. Myndin heitir „Talk
on Chess”. Hún er 53ja
minútna löng og þvi gekk ekki
eins vel að koma henni út eins
og ég gerði mér vonirum. Hún
er vist of löng fyrir sjónvarp
og of stutt fyrir kvikmynda-
hús, en þó tókst að lokum að
selja hana einni sjónvarps-
stöö”.
Karpov hefur heilt
risaveldi á bak við sig
— Hvaö olli ósigri þinum i
Merano?
,,Ég var óheppinn i Merano,
keppnin var hörö og andrúms-
loftið var mjög þrúgandi það
olli þvi aö ég gaf Karpov of
mikið forskot. Þaö má segja
aö ein vigið hafi veriö búiö eftir
fjórar skákir”.
— Margir segja að þú hafir
mættilla undirbúinn, hafir t.d.
teflt nær sleitulaust i heilt ár
áöur éft mótið hófst?
,,Nei, það er ekki rétt, enda
sýndi ég þaðaö ég átti nægan
kraft þegar leiö á mótið. Þá
sýndi ég bæöi mikinn baráttu-
vilja ogþrek.En i fyrstu skák-
unum var ég mjög niöurdreg-
inn vegna þess að fjölskyldu-
mál min voru ekki aö leysast
eins og ég haföi gert mér vonir
um. Það er enginn leikur aö
tefla á móti heilu risaveldi.
Karpov hefur heilt risaveldi á
bak viö sig og þetta sjónarspil
i sambandi viö fjölskyldu
mina er aöeins tilaö kiekkja á
mérsemskákmanni. Þeirvita
sem er að ég tefli undir getu
meðan öll þessi mál eru i
óvissu. Eftir á að hyggja tel ég
mig jafnvel hafa gert vitleysu
með þvi að tefla undir þessum
kringumstæöum. Ég veit ekki
hvort fólk almennt gerir sér
ljóst hversu mikið sovésk
stjórnvöld leggja uppúr þvi að
halda heimsmeistaratitlinum.
Þau beita öllum mögulegum
brögðum og berjast á öllum
vigstöövum. Einsog reyndar i
iþróttum almennt. Þau álita
það stórpólitiskt mál hvar
heimsmeistaratitlar liggja”.
— En er ekki Karpov betri
skákmaður en þú?
„Nei, það held ég ekki. Hann
sýndi þaö á mótinu i Merano
aö hann hefur marga veik-
leika. Hann geröi oft hrapaleg
mistök sem heimsmeistari á
ekki að gera. En aftur á móti
kom þaö mér svolitið á óvart
hvaö honum hefur farið fram i
endatafli. Þegar viö tefldum
fyrir rúmum þremur árum, i
Manilla þá var ég betri i enda-
tafli en hann aftur á móti i
flóknu miðtafli en i Merano
má segja að þetta hafi snúist
við”.
— Hvernig likar þér við
Karpov persónulega?
„Karpov er mjög flæktur i
pólitik. Ég álit að þaö sé fyrst
og fremst honum aö kenna að
fjölskyldu minni er haldið i
Sovét og ég veit aö hann hatar
mig, en ég get ekki sagt aö ég
hati hann, mér finnst hann
fyrst og fremst h'tilmótlegur.
Enda held ég að það hafi ekki
verið dekrað eins viö nokkurn
skákmeistara i Sovétrikjun-
um, t.d. var hann með nærri 70
aðstoðarmenn i Merano
meðan ég hafði aðeins 10”.
— Heldurðu að þið heyið ein-
vigi að þremur árum liðnum?
„Mig óar við tilhugsuninni,
ekki vegna þess aö ég búi ekki
yfir nægum styrk til að mæta
honum, heldur er ég búinn aö
fá viðbjóð á öllu þessu um-
stangi. En þetta er allt
óráðið”, sagði Kortsnoi.
— Þú ert hingaö kominn til
aö fylgjast með Reykjavikur-
skákmótinu, hvern teluröu lik-
legan sigurvegara?
„Þaö er erfitt að segja, þvi
þaö eru margir sterkir sem
tefla hérna og ég treysti mér
ekki til aö svara þessu öðru
visi en aö ég trúi þvi að sá
sterkasti vinni”.
— Ætlar þú að skýra skákir
fyrir áhorfendum?
,,Já, ég reikna með þvi”.
—Sjó