Tíminn - 12.02.1982, Side 5
Föstudagur 12. febrúar 1982.
5
fréttir
Ira mkv* mdaiijdrl Loftferfta-
rftlrliUlni I lamlall vlA Tlmann I
K>r. þrgir hann var aA þvl
ipurAur hvnrt iú itaAa hrfAi kom-
IA upp hþt I.oftfrrAarflirlltlnu aA
krnnarar og prtifdómarar á nám-
ikrlAi fktgumfrrAanlJóra srm
haldiA varnýlrga, hrfAu nellaAaA
fara yflr prdftlrlauin rlm nrm-
andani í þrim forirndum aA
hann hrfAi ikllaA inn föUubum
„MÓDGUN VIÐ MENNTflKERFIД
— segir Jens Guðmundsson, formaður Félags islenskra flugumferdar-
stjóra, um fölsunarmálið á flugumferðastjóranámskeiðinu
■ ..Prófskirteinið sem lagt var
fram. var ekki i samræmi við
skirteinið frá skólanum þar sem
prófið vartekið. Ég talaði siðast
í morgun við skólastjóra þess
skóla og hann fullyrðir að þessu
umrædda prófskirteini hafi
verið breytt, eftir að það fór frá
skólanum”, sagöi Jens Guð-
mundsson, formaður Félags is-
lenskra flugumferðarstjóra,
þegar blaðamaður Tímans
spurði hann i gær, hvers vegna
félagið hefði óskað eftir þvi að
ekki yrði farið yfir prófúrlausn
eins nemandans á námskeiði
flugumferðarstjóra en iTiman-
um i gær birtist frctt um þetta
tnál.
„Þegar við i félaginu kom-
umst að þessu, þá sendum við
Flugöryggisþjónustunni, Loft-
ferðaeftirlitinu og flugmála-
stjóra bréf, þar sem við ósk-
uðum eftir þvi að þetta yrði
rannsakað. Við biðum enn eftir
svari frá þessum aðilum en
Loftferðaeftirlitið hefur þó
svarað þvi á þann veg að það
segist hafa falið Flugöryggis-
þjónustunni þetta mál.
Við samþykktum á sinum
tima að þessi umræddi aðili
fengi aö sitja námskeiðið og
taka próf eftir beiðni en i þeirri
beiðni var einnig óskað eftir að
þetta mál yrði kannað”, sagði
Jens. ,,Við stoppuðum það þvi
ekki að hann tæki próf, en hins
vegar hefur ekki komið neitt
svar við þvihvort þetta skirteini
var falsað eða ekki og hver
gerði þaö og það er ástæðan
fyrirþvi aðekkihefur verið far-
ið yfir prófið. Við höfum sem
sagt ekki fengið nein gögn i
hendurnar sem breyta þessari
skoðun okkar”, sagði Jens jafn-
framt.
Jens tók það skýrt fram að
endanleg afstaða Félags is-
lenskra flugumferðarstjóra
myndi ekki liggja fyrir i' þessu
máli fyrren svar hefðiborist frá
framkvæmdast jóra Flug-
öryggisþjónustunnar, Hauki
Haukssyni varðandi rannsókn
málsins.
Sagði hann að eftir að þessi
einkunnabreyting hefði orðið
uppvis, en hún hefði komið iljós
þegar Ingólfur Georgsson
starfsmaður Loftferðaeftirlits-
ins hefði yfirfarið gögn þau sem
nemar flugumferðastjóranám-
skeiðsins höfðu sent inn, þá
heföi stjórn félagsins borist
fjöldi áskorana frá félagsmönn-
um, þar sem farið hefði verið
fram á að þetta mál yrði at-
hugaö og manninum helst visað
frá. Ákvörðun stjórnarinnar
hefði hins vegar orðið sö að
krefjast ekki frávisunar i þeirri
von, aö þetta væri einhver mis-
skilningur.
„Við erum ekki reiðubúnir til
þess að taka þátt i þannig
skripaleik, að virða ekki þau
próf og þær niðurstöður sem
menntastofnanir i landinu láta
frá sér fara, þvi þá erum við um
leið að rýra gildi prófs flugum-
ferðarstjóra. Ég segi það sem
formaður félagsins og ég held
að það sé álit flestra flugum-
ferðarstjóra að það sé vonlaust
að taka þátt i að dæma próf ein-
hverra manna sem siðan geta
breytt einkunnum eftir eigin
geðþótta. Slikt væri bara
móðgun við menntakerfið i
landinu”. Aðspurður um það
hvort flugumferðarstjórar
hefðu oröið varir við einhvern
þrýsting ofan frá, ss. frá flug-
ráði um að dæma þessa úrlausn,
sagöi Jens: „Hvorki pólitiskur
þrýstingur né þrýstingur frá
öðrum aöilum hefur áhrif á okk-
ur. Við látum réttlætið ráða
okkar afstöðu. Hins vegar skal
það segjast alveg eins og er, að
ekki hefur verið um slikan
þrýsting að ræða”.
—AB
'
■ Brátt munu 10 nýir flugumferðarstjórar bætast I hóp flugum-
ferðarstjóra og að sögn talsmanna flugturnsins er ekki vanþörf á.
Þessir 10 sem nýlokið hafa flugumferðarstjóranámskeiði hér heima,
munu brátt halda til Bretlands i framhaldsnám áður en þeir taka við
störfum hér á Reykjavikurflugvelli og á Keflavikurflugvelli. Þessi
mynd er af flugumferðarstjórum að störfum i flugturninum á
Reykjavikurflugvelli.
Timamynd —Róbert
„Breyting á
einkunn Ijós
frá upphafi”
— segir Guðmundur Matthíasson,
deildarstjóri Flugöryggis-
þjónustunnar
■ „Stofnunin tók þá ákvörðun á
sinum tima að leyfa þessum
manni að sitja námskeiðið”,
sagði Guðmundur Matthiasson
deildarstjóri Flugöryggis-
þjónustunnar i viðtali við Tim-
ann i gær, „en þessi breyting á
einkunn varð ljós strax i upp-
hafi, áður en námskeiðið
byrjaði þegar verið var að meta
prófgögn umsækjendanna”,
Guðmundur sagði að siðan
hefði átt að koma tii kasta próf-
nefndar þeirrar sem ætti að
velja menn af námskeiðinu til
þess að fara til Bretlands i
framhaldsnám en slikt hefði
aldrei komið til i þessu tilviki
vegna þess að ekki hefði verið
farið yfir prófúrlausn þessa
manns.
Guðmundur sagði að Flug-
öryggisþjónustan hefði ekki
verið beðin um að rannsaka
þetta mál, af Félagi íslenskra
flugumferðarst jóra, heldur
hefði Loftferðaeftirlitið fengið
þá beiðni i hendur. Sagði Guð-
mundurað Flugöryggisþjónust-
an hefði einungis fengið afrit af
þessu bréfi félagsins.
Guðmundur sagðist ekki vita
hvort þetta yrði endanleg niður-
staða þessa máls, en þaö væri
greinilega stopp i bili og sagðist
hann jafnframt ekki vita
hvernig eða hverjir myndu taka
á þvi, ef um áframhald yrði að
ræða. Þó væri ljóst að slikt yrði
■ Guömundur Pétursson
að gera i samvinnu við fag-
félagið sem sagt, Félag is-
lenskra flugumferðarstjóra.
Sagðist hann ekki sjá að um
neitt framhald á þessu máligæti
oröiö að ræöa nema með fullum
vilja félagsins.
—AB
>lga meðal kennara og prófdómara
á flugumferdarstjóranámskeiðl:
NEITfl AÐ DÆMA ÖR-
LAUSN EINS NEMANDA
- segja hann hafa skilað inn fölsuðum prófgögnum
„LofUerAaeltlrliUA gat ekkl
I fariA yfir prófúrlauin þeiia
I manns, þar eö kcnnararnir i
I fluKumferAarstjórantmikeiAinu
I neltuAu aA leiArétta prúfúrlauin
I hans ok prófdómaramlr aem eru
abstoAar lofUirbaef tlrllUnu
| vlA aA dæma prófúrlauanlraar aA
•I yf irferA kennaranna. neit-
I ubu þvf ab fara yfir þesia prðftir-
i”, saRAl Grétar óskanton
prófKdgnum, kbur en hann setl
3 fluKumferAaritjóranámikelAiA.
Samkvæmt heimildum Tlmans,
þd skilabi einn nemandinn á ndm-
skeibinu inn afriti af stúdents-
prðfssklrteini, þar sem students-
prðfseinktnn f ensku haföi verib
breytt. Upprunalega einkunnin
var D,en hcnni haf Ai verib brcytt
I B.
Grétar sagöi ab prðfi þessa til-
tekna manns hefbi ekki veriA vls-
að frá af hálfu Loítferöaeftirlits-
ins heldur heföi ekki veriö h*gt
ab meta þab þer sem prðfdðmar-
ar og kennarar hefbu neitab ab
fara yíir þab samkvrmt fyrir-
skipun Félags flugumferbar-
stjðra.
Frétt Ti'mans í gær.
„í athugun hjá
flugmálastjóra”
segir Haukur Hauksson, frkvstj.
Flugöryggisþjónustunnar
■ Vegna þeirra ummæla Jens
Guðmundssonar, formanns
Félags islenskra flugumferðar-
stjóra að félagið tæki ekki end-
anlega afstöðu til prófúrlausnar
mannsins sem skilaði inn
fólsuðu stúdentsprófsskirteini,
fyrr en svör frá Flugöryggis-
þjónustunni bærust um rann-
sókn þess máls, snéri Timinn
sér til Hauks Haukssonar,
framkvæmdastjóra Flug-
öryggisþjónustunnar og spurði
hann hvað þeirri beiðni félags-
ins liði.
„Gangurinn er sá að það er
ákveðin nefnd sem gerir tiUögur
um það hverjir skuli fara i
framhaldsnámið og visar siðan
sinum tiUögum tU flugmála-
stjóra. Þessi nefnd hefur nú lok-
ið störfum og máUð er nú hjá
flugmálastjóra en þar hefurþað
aðeins verið í einn dag. Það er
þvi i athugun hjá flugmála-
stjóra núna og má vænta
ákvörðunar innan tiöar frá hon-
um, og verður sú ákvörðun
væntanlega tekin i samráði við
Flugöryggisþjónustuna og Loft-
ferðaeftirlitið.
I niðurstöðum nefndarinnar
sem sendarvoru flugmálastjóra
er getið um það, af tilteknum
ástæðum úr bréfi Félags is-
lenskra flugumferðarstjóra að
nefndin hafi ekki getað fjallað
um prófúrlausn þessa manns”,
sagði Haukur.
Haukur tók það fram, að þessi
framkvæmd væri á vegum Loft-
ferðaeftirlitsins, þvi þeirra
menn veldu menn til þess að
fara yfir prófið og auk þess
menn til þess aö yfirfara gögn
allra umsækjendanna.
Haukur sagöi að tvær full-
yrðingar stönguðust á i þessu
máli — annars vegar væri það
fullyrðing skólastjóra skólans
sem skrifaði stúdentinn út, þess
efnis að skirteininu hefði verið
breytt eftir aö það fór frá
skólanum og hins vegar væri
fullyröing hins aðilans sem
héldi því fram að sklrteiniö
hefði komið I þessu formi frá
skólanum. Sagði Haukur að þaö
væri ekki iman verksviðs Flug-
öryggisþjónustunnar að sanna
hvor aðilinn færi með rétt mál.
Slfkt hlyti að heyra undir rann-
sóknarskyldu aðila utan flug-
málastjómar, sem fjalla um
slik mál.
—AB