Tíminn - 12.02.1982, Page 6
Föstudagur 12. febrúar 1982.
stuttar fréttir
,,Sjónvarps-
stjörnu-
námskeid”
í Borgarnesi
BORGARNES: Verkalýös-
félag Borgarness hefur
ákveðið að efna til „h'jöl-
miðlanámskeiðs” dagana 6.
og 7. mars n.k
Námskeiðið byrjar á erindi
Hallgrims Thorsteinssonar
fréttamanns hjá Hikisúl-
varpinu um hlutverk ljöl-
miðlunar i nútima þjóðfélagi.
Elias Snæland Jónsson, rit-
stjóri Timans og Tryggvi Þór
Aðalsteinsson frá MFA fjalla
siðan um samskipti dagblaða
og annarra fjölmiðla annars
vegar og stéttarlélaga hins
vegar. Dagskrá laugardagsins
lýkur með þvi aö Magnús
Bjarnlreðsson fjaliarum sjón-
varp sem fjölmiöil og fram-
komu fólks i sjónvarpi.
Siðari deginum veröursiðan
varið til verklegra ælinga um
framkomu i sjónvarpi undir
leiðsögn Magnúsar Bjarn-
íreðssonar. Stjórnandi nám-
skeiðsins verður Sigrún D.
Eliasdóttir, formaður Alþýöu-
sambands Vesturiands.
Miðað við fyrri aðsókn
Borgnesinga að margskonar
námskeiðahaldi er varla að
efa að fólk notar sér þessa nyj-
ung. En 20 manns munu kom-
ast á námskeiö þetta.
—IIEI
Fundur um kísij-
málmverksmiðju
á Reyðarfirði
AUSTUKI.AND: lönnefnd
Sambands sveitarlelaga i
Austurlandskjördæmi heldur
fund um „kisilmálm verk-
smiðju á Keyöarfirði” laugar-
daginn 13. lebruar i barna-
skólanum og heist hún kl. 13.
Markmið fundarins er sagt
tviþætt. 1 fyrsta lagi á aö gera
fyrirtækjum grein lyrir ein-
stökum framkvæmdaþátlum,
hversu stórir þeir veröa og
hvernig útboöum veröur
háttað, um gerö samninga,
tryggingar og svo lramvegis,
þannig að hægt sé aö meta á
hvern hátl þessar i'ram-
kvæmdir koma til meö aö
snerta viðkomandi íyrirtæki. i
öðrulagiað þeir sem aö undir-
búningi vinna kynnist betur
atvinnulifi á Austurlandi og
fái það staðgóðar upplýsingar
að þeir geti eftir þvi sem unnt
er, tekið tillit til allra að-
stæðna austanlands við
skiptingu i verkþætti og gerö
útboðsgagna.
Til lundarins er boöaö að
beiðni verkefnastjórnar um
kisilmálmverksmiöju. Sér-
staklega var lulltrú’jmirá at-
vinnulifi og fyrirtækjum á
Austurlandi boðiö til fundarins
og hafa a.m.k. 50 lulltrúar
fyrirtækja i fjóröungnum
þekkst það boö.
Framsöguerindi á íundinum
halda Svavar Jónatansson
verkíræðingur um byggingar
og jarðvinnu Gúömundur
Borgþórsson tæknifræðingur
um vélar og búnað, Tryggvi
Sigurbjarnarson verkfræðing-
ur um raíbúnað og Baldur Jó-
hannesson sem ljallar um
samninga, tryggingar og út-
boð. Að þvi loknu skipta þált-
takendur á ráöstefnunni sér i
umræðuhópa um þessi eini.
—IIEI
Ástand og
horfur I
atvinnumálum
SUDUKUAND: Stjórn og at-
vinnumálanelnd Samtaka
sunnlenskra sveitarfélaga
hafa ákveðiö aö efna til ráö-
stefnu um atvinnumál á
Suðurlandi i Gagnfræða-
skólanum á Selfossi laugar-
daginn 13. l'ebrúar kl. 13.00. A
ráðstefnunni helur Dorsteinn
Garðarsson lramsögu um
ástand og hori'ur i atvinnu-
málum kjördæmisins en einn-
ig verða lrjálsar umræöur og
stefnumótun i atvinnumálum.
Tilefni ráðsteínunnar er þaö
að sögn talsmanna SASS, að
ljóst sé að ekki er á næstu ár-
um að vænta aukningar á at-
vinnutækifærum i hinum hefð-
bundnu atvinnugreinum land-
búnaði og sjávarútvegi, Sunn-
lendingar verði þvi að hefja
sókn i atvinnumálum sinum ef
landshlutinn á að halda hlut-
deild sinni i ibúafjölda lands-
ins.
Þess má geta i þessu sam-
bandi að samkvæmt bráða-
birgðatölum Hagstofunnar um
ibúafjölda hinn 1. des. s.l.
haföi mannfjölgun i Suður-
landskjördæmi aðeins orðið
0,14% á siðasta ári meðan
þjóðinni i heild fjölgaði um
1,23%. Hefur þvi orðið um
töluverða hlutfallslega ibúa-
fækkun að ræöa á Suðurlandi.
Markmið ráðstefnunnar er
þvi að freista þess að móta
stefnu i öllum atvinnugrein-
um, sem siðan yrði útfærð
nánar innan einstakra at-
vinnusvæða. Káðstefna þessi
er öllum opin og ekki aö eía að
fólk getur sótt þangaö tölu-
veröan lróðleik. —UEI
,,Til ad auð-
velda mönnum
leitina í ffrum-
skógi laganna”
■ A vegum Sambands
islenskra sveitarfélaga er
komin út LAGASKRÁ —
atriðaskrá, sem hefur að
geyma lög reglugerðir og
samþykktir um sveitar-
stjórnar mál i' samantekt
Magnúsar E. Guðjónssonar,
framkvæmdastjóra sam-
bandsins. „Tilgangurinn með
þessari útgáfu er að auðvelda
sveitarstjórnarmönnum leit-
ina i frumskógi laganna”, seg-
ir höfundur m.a. i formála.
Ætti slik skrá kannski ekki sist
að verða gagnleg þeim fjölda
nýrra sveitarstjórarmanna
sem kosnir verða i sveitar-
stjórnir viða um land i' vor.
1 ritinu er lagaskrá eftir
aldursröö og skrá um lög
reglugerðir og samþykktir
eftir einstökum málaflokkum,
sem eru eftirfarandi: Ibúa-
skráning, kosningar og stjórn-
un, stjórnsýsla og allsherjar-
regla, fjármál sveitarfélaga,
skipulag og byggingaeftirlit,
brunamál, vegir og umferð,
félagsmál, heilbrigðismál,
menntamál, landbúnaður,
fyrirtæki sveitarfélaga. Auk
þess er skrá yfir samþykktir
um stjórn bæjarmálefna.
—HEI
fréttir
Eftirsóttar lóðir í Jörf abyggð á Akureyri:
sectAn lúðir en
UMSÓKNIRNAR194
■ Byggingarnefndarmenn á
Akurevri hafa varla verið öfunds-
verðir af þvi að eiga á 2000. fundi
sinum nú nýlega að velja á milli
194 umsækjenda sem sótt höfðu
um I6einbýlishúsalóðirvið Jörfa-
byggð á Akureyri. (Umsóknirnar
samsvara um 1.200 umsóknum i
Reykjavik miðað við ibúafjölda).
Timinn spurði þvi Sigurð Óla
Brynjólfsson bæjarráðsfulltrúa
hvort þetta bæri vott um þvilikan
lóðaskort á Akureyri.
,,Nei þú getur fengið nægar
lóðir bæði fjölda einbýlishúsalóða
sem hafa verið lausar frá þvi' i
fyrra og 60 raðhúsalóðir sem ég
held að 3 hafi sótt um.
Skýringin á þessu er sú, að
Jörfabyggð er i eftirsóttum
bæjarhluta rétt fyrir ofan
Menntaskólann, lóðirnar eru
góðar og gatnagerðargjöldin þau
sömu og á verri lóðum. Margir
keyptu sér þvi miða i von um
vinning”.
Sigurður ásamt nokkrum öðr-
um bæjarfulltrúum lögðu til að
lagt væri 50.000 króna sérstakt
lóðagjald á þessar lóðir, en það
var feilt i bæjarstjórn. I umræð-
unum i bæjarstjórn sagði Sigurð-
ur sjálfsagt að hafa þarna há
lóðagjöld bæði vegna þess að ella
væri verið að gefa lóðarhöfum
umfram aðra, kvaðst þar m.a.
hafa borið fyrir sig álit fasteigna-
sala um að einbýlishús við Jörfa-
byggð mundiseljast á 200.000 kr.
hærra verði en jafn gott hús i öðru
hverfi. Jafnframt sagði hann
sjálfsagt að hafa lóðagjöldin há
þvi það yrðu bara ftakksgæðingar
og fyrirmenn sem fengju þessar
lóðir.
— Og fór svo?
— Nei, þeir þorðu siðan ekki að
fara þá leiðina. Það voru 6 sem
fengu úthlutun með sameiginlegri
ákvörðun byggingarnefndar en
siðan urðu eftir um 60 sem höfðu
svipaðan punktafjölda eftir ein-
hverju kerfi sem þeir bjuggu sér
til. Voru umsóknimar settar i pott
og 10 dregnar út. Það var ómögu-
legt að úthluta þessu þannig að
útkoman varð eftir atvikum.”
—HEI
Heiðruð
fyrir
aðstoð við
fatlaða
íslendinga
■ Norsk hjón, Edith og Thor
Hauge, voru heiðruð sérstaklega
fyrir aðstoð við fatlaða tslendinga
á umdæmisstjórnarþingi Lions-
manna á Norðurlöndum sem
haldið var i Reykjavik fyrir
skömmu.
Edith og Thor Hauge hafa
fórnað i sjálfboðavinnu sumar-
leyfum sinum við að taka á móti
samtals 15 islenskum ungmenn-
um sem eiga við fötlun að striða.
Islenskir Lionsmenn hafa kostað
ungmennin til utanfarar og dval-
ar i búðum íyrir fatlaða i Noregi,
sem reistar voru fyrir tiu árum.
Stofnfé til byggingar búðanna
aflaðist með sölu rauöu fjaörar-
innar.
—Sjó.
■ Norsku hjónin Edith og Thor Hauge voru heiðruð með gjöfum fyrir
störf þeirra i þágu islenskra ungmenna, á umdæmisstjóraþingi Lions-
manna á Norðurlöndum, þau brugðu sér strax i gjafirnar utan yfir
smokinginn og siðkjólinn.
Raudi kross Islands
sendir mann til Póllands
■ Björn Tryggvason, aðstoðar-
seðlabankastjóri og fyrrverandi
formaður Rauða kross Islands er
nú i Póllandi á vegum RKI.
Hann mun aðstoða pólska Rauða
krossinn við skipulagningu og
dreifingu á þorskalýsinu sem RKI
festi kaup á og sendi til Póllands
handa skólabörnum þar i landi.
Þá mun Björn ennfremur ræöa
viö hjálparsveit sem Alþjóða-
samband Rauða krossfélaga setti
á laggirnar i Varsjá um framhald
hjálparaðgerða frá Rauða krossi
tslands.
Lýsiskaup RKI voru fjármögn-
uð með beinu framlagi úr
Hjálparsjóði RKI og rikisstjórn
tslands samþykkti einnig að veita
Rauða krossi Islands framlag úr
rikissjóði til sama verkefnis. Jón
Ásgeirsson, framkvæmdastjóri
Rauöa krossfélaga sem einkum
hafa aðstoðað pólska Rauöa
krossinn komu saman til fundar
til þess að ræða ástandið í Pól-
landi. Þar kom m.a. fram að enn
er mikill matvælaskortur i land-
inu, lyf vantar tilfinnanlega en
einkum eru það hjúkrunarvörur
og önnur tæki sem notuð eru á
sjúkrahúsum, sem mest skortir.
Um siðustu áramót ákvað
stjórn Rauða kross Islands að
félagið skyldi beita sér fyrir þvi
að kanna hvort e.t.v. væru á
sjúkrastofnunum hérlendis fáan-
legar hjúkrunarvörur sem senda
mætti til Póllands.
Nú er hafin söfnun slikra
hjúkrunargagna og hefur Heil-
■ Forseti Islands Vigdis Finn-
bogadóttir mun dveljast i Bret-
landi dagana 17.-19. febrúar n.k. i
opinberri heimsókn i boði bresku
rikisstjórnarinnar. 1 heimsókn-
inni mun forseti m.a. eiga við-
ræður við forsetisráðherra Breta,
frú Margréti Thatcher og sitja
hádegisverðarboð Elisabetar II.
Bretadrottningar i Buckingham-
höll. Þá mun hún skoða breska
þjóöminjasafnið breska þingið og
veröa viðstödd leiksýningu i þjóð-
leikhúsinu i Lundúnum. Forseti
brigöisráöuneytið hvatt til þess
að rikisspitalarnir taki virkan
þátt i þessari tilraun RKt. Þá
hefur af hálfu ráðuneytisins einn-
ig verið óskaö eftir þvi við inn-
flytjendur og framleiðendur lyfja
að þeir veiti aöstoð, t.d. með þvi
að gefa RKt lyf sem senda mætti
til Póllands.
JGG
fer einnig til Oxford, þar sem
m.a. verða kynntar visindarann-
sóknir á sviði læknisfræði og til
Stratford-on-Avon að heimsækja
Shakespeare-leikhúsið. Aðal-
veislu heimsóknarinnar heldur
yfirborgarstjóri Lundúna.
Forseti mun fara utan hinn 16.
þ.m. og daginn eftir að hinni opin-
beru heimsókn lýkur mun hún
taka þátt i þorrablóti tslendinga-
félagsins i Lundúnum.
Vigdfs til Bretlands
—JGG