Tíminn - 12.02.1982, Page 7
Föstudagur 12. febrúar 1982.
'ij.'.S'i'.ilf
erlent yfirlit
■ Garret FitzGerald ■ Charles .1. Haughey
Hörð kosninga-
hríð hjjá írum
Úrslitin talin mjög tvísýn
■ STUTT, en hörð kosningabar-
átta er nii háð i irska lýðveldinu.
Þingkosningar fara þar fram
næstkomandi fimmtudag og eru
þá um þrjár vikur liðnar siðan
þing var rofið.
Garret FitzGerald forsætisráð-
herra rauf þingið tafarlaust, þeg-
ar f járlagafrumvarp rikis-
stjómarinnar var fellt meö 82 at-
kvæöum gegn 81.
Rikisstjórn FitzGeralds er
samsteypustjórn tveggja flokka
eða Fine Gael, sem er undir for-
ustu FitzGeralds, og Verka-
mannaflokksins. Þeir höfðu sam-
tals 80 þingmenn, Fine Gael 65 og
Verkamannaflokkurinn 15. 1
stjórnarandstöðu var Fianna
Fail, sem haföi 78 þingmenn.
Auk þessa eru svo sex óháðir
þingmenn, en einn þeirra er for-
seti þingsins og tekur þvi ekki
þátt i atkvæðagreiðslunni. Það
voru hinir óháðu þingmenn, er
réðu úrslitum. Fjórir þeirra
greiddu atkvæði gegn fjárlaga-
frumvarpinu, en einn þeirra at-
kvæði með þvi.
Það voru þessir sömu óháðu
þingmenn, sem réðu þvi", að Fitz-
Gerald varð forsætisráðherra á
siðastliðnu sumri, þegar atkvæði
voru greidd um, hvort honum eða
Charles Haughey, leiðtoga Fi-
anna Fail, yrði falin stjórnar-
myndun.
Auk framangreindra þing-
manna, voru tveir irskirþjóðemis-
sinnar eöa IRA-menn kjörnir til
þingsetu i kosningum, sem fóru
fram i júni'i' fyrra, en báöir voru
þeir fangar i Mazefangelsi i Ulst-
er og mættu þvi ekki til þings.
Annar þeirra er látinn.
HUGHEY rauf þingið I fyrra,
þótt ár væri eftir af kjörtimabil-
inu, þvi aö hann taldi sigurvonir
Fianna Fail sæmilegar þá. Hon-
um varö ekki að von sinni.Flokk-
ur hans missti ekki aðeins meiri-
hluta, heldur beið mesta ósigur
um tuttugu ára skeið.
Sigurvegari kosninganna varð
Fine Gael. Hann fékk 36%
greiddra atkvæða i stað 30% i
kosningunum 1977. Verkamanna-
flokkurinn tapaði hins vegar
verulegu fylgi eða fékk tæp 10%
greiddra atkvæða. Fianna Fail
fékk 45%.
Framboð IRA-manna mun hafa
átt verulegan þátt i tapi Fianna
Fail. Þeir töldu Haughey ekki
hafa reynzt nógu skeleggan i
þjóöernismálunum, en Fianna
Fail hefur veriö róttækari i þeim
efnum en Fine Gael og Verka-
mannaflokkurinn.
Fine Gael átti sigur sinn að
þakka, aö hann hafði lofað að rétta
við fjárhaginn og útrýma at-
vinnuleysinu, sem er mikiö i Ir-
landi. Hann deildim jög á hallann
á rikisrekstrinum og vaxandi
skuldasöfnun erlendis. Þá lofaði
hann lækkun tekjuskatta, en i
staöinn yrði viröisaukaskattur
hækkaður.
Fjárlagafrumvarpið, sem Fitz-
Gerald lagöi fyrir þingið, var ekki
nema að takmörkuöu leyti i sam-
ræmi við kosningaloforð Fine
Gael. Það gerði ráð fyrir mikilli
hækkunviröisaukaskattsins og
yrði hann m.a. lagður á fatnað,
sem áður hafði verið undanþeg-
inn sköttum. Virðisaukaskattur á
fatnaði átti að verða 18%. Það var
þetta ákvæði fjárlagafrumvarps-
ins, sem olli mestri gagnrýni og
rr un hafa átt aðalþátt i falli frum-
varpsins.
Annað olli lika mikilli gagnrýni.
Frumvarpiö gerði ekki ráð fyrir
neinni lækkun á tekjusköttum,
eins og Fine Gael hafði lofað.
FitzGerald réttlætti þetta með
þvi, að efnahagsástandið leyfði
ekki skattalækkun að sinni. Aðal-
áherzluna yrði að leggja á nú að
draga úr halla á rikisrekstrinum
og skuldasöfnun erlendis.
KOSNINGABARATTAN hefur
eins og búast mátti við snilizt
mest um fjárlagafrumvarpiö.
Haughey hefur deilt hart á hækk-
un viröisaukaskattsins, en Fitz-
Gerald á erlenda skuldasöfnun i
stjórnartið Fianna Fail. Þá hefur
FitzGerald haldiðþvifram, aðat-
vinnuleysið reki annig rætur til
stjómarára Fianna Fail. Haug-
hey bendir hins vegar á aö Fitz-
Gerald hafi illa efnt það kosn-
ingaloforð sitt frá þvi i fyrra, að
útrýma atvinnuleysinu. Þvert á
móti hafi þaö aukizt.
Staða Verkamannaflokksins er
erfiö i kosningabaráttunni, þar
sem hann stóð að f járlagafrum-
varpinu, sem ekki samræmdist
nema að takmörkuðu leyti loforö-
um hans. Verði hann fyrir nýju
áfalli, getur svo farið, að hann
verði ófús til stjórnarþatttöku.
Samkvæmt skoðanakönnunum
er fylgi stjórnarflokkanna og Fi-
anna Fail m jög svipað. Hins veg-
ar hefur F'itzGerald meira fylgi
en Haughey og gæti það ráðið úr-
slitum, þegar það bætist við, að
verulegur ágreiningur er um
Haughey i flokki hans.
Irskir þjóðernissinnar eða IRA
hafa frambjóðendur i nokkrum
kjördæmum. Einnig Irski sósial-
istaflokkurinn, sem býður fram
Bernadette Devlin i kjördæmi
Haugheys. Vel getursvo farið, að
þjóðernismálin hafi veruleg áhrif
á úrslitin, þótt mest athygli bein-
ist að efnahags- og atvinnumál-
unum.
Þórarinn Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar
______________________________7
erlendar fréttir
Uppreisnin
í Hama
■ Stjórn Sýrlands hefur nú
staðfest að borgin Hama i
norðurhluta landsins hafi
verið umkringd af her lands-
ins. Upplýsingarráðherra
landsins sagði á fréttamanna-
fundi i Damaskus, aö borgin
yröi höfð i herkvi þar til tekist
hefði að uppræta uppreisnar-
mennina og hann neitaöi aftur
þeim fréttum, sem hafa aðal-
lega komið frá Bandarikjun-
um um að það hefðu oröiö
alvarleg átök á svæöunum.
Þegar blaðamenn spurðu ráð-
herrann hvort þeir gætu heim-
sótt Hama.sagði hann að þeir
gætu þaö, en aðeins eftir að
leitin að glæpamönnunum
heföi borið árangur og sá
siðasti handtekinn. Stjórnin
hefur á meðan kvartað við
sendiherra Bandarikjanna i
Sýrlandi út af frettum i gær
frá USA um alvarleg átök i
Mama, og var fréttunum lýst
sem opinberri ihlutun i innan-
rikismálefni Sýrlands. Aörar
heimildir frá stjórnarandstöð-
unni herma að átök eigi sér
ennþá stað i Hama.
Strídsaðilar í
Chad funda
í Naírobí
■ Einingarsamtök Afriku
hafa ákveðið að hætta friðar-
aðgerðum sinum i Chad i lok
júni. Sérstakur nefndarfundur
samtakanna i Nairobi sagði að
allt herlið yrði kallað heim
fyrir þann tima. Neíndin
hvatti einnig striðsaðila til að
leggja niður vopn, fyrir lok
þessa mánaðar, og lagði til að
ný stjórnarskrá yröi gerð og
efnt yrði til nýrra kosninga.
Sendinefndin frá Chad sem
forseti landsins leiðir, gekk út
tvivegis á meöan fundir stóðu
yfir og að sögn fréttamanna i
Nairobi er ekki enn þá ljóst
hvort að Chad hafi haínað
samþykktum OAU, F’réttarit-
arinn segir að á meðaí OAU
eru hræddir um að engin lausn
finnist i hinni pólitisku ringul-
reið sem nú rikir i landinu, þá
horfi samtökin einnig i þann
gifurlega kostnað við aðhalda
uppi herliðinu i Chad, sem nú
telur um 3.000 manns.
Fjöldi manns
látinn laus
í Egyptalandi
á næstunni
■ Einn hæsti dómstóll
Égyptalands, Rikisdómstóll-
inn, hefur nú numið úr gildi
neyðarreglur þær sem settar
voru á i Egyptalandi, eftir
morðið á Sadat, Egyptalands-
forseta,en á meðan þær voru i
gildi voru yfir 1500 and-
stæöingar Sadat handteknir i
september sl. Afnám þessara
reglna gerir það að verkum,
að nú verður hægt aö láta
lausa úr fangelsi yfir 1000
manns. sem enn voru i haldi.
Mubarak, Egyptalandsfor-
seti, hefur sagt að hann muni
láta alla þá lausa, sem ekki
hafi verið fundnir sekir um
glæpsamlegt athæfi, en hann
muni ekki þola eða láta óátalið
aö trúarlegar öfgahreylingar
vaöi uppi.
Orfáum klukkustundum
eftiraðRikisdómstóllinn gerði
úrskurð sinn opinberan, var
þaö tilkynnt að 81 hefði þegar
verið sleppt úr haldi.
Haig og Hass-
an ræðast við
í Marokkó
■ Utanrfkisráðherra Banda-
rikjanna, Alexander Haig, er
nú staddur i Marokkó, þar
sem hann ræðir viö Hassan
konung um málefni landanna
fyrir botni Miðjarðarhaís, og
striðsástandið i Vestur-
Sahara.
Talsmaður Bandarikja-
stjórnar sagði að Bandarikja-
stjórn léti það liggja á milli
hluta, hverjir færu með völdin
i Vestur-Sahara, en styddi
Madrid-samkomulagið, þar
sem framkvæmdavaldiö væri
i höndum Marokkó og Mári-
taniu. Búist er við þvi að Haig
og Hassan muni einnig ræða
möguleikana á þvi aö
Marokkó kaupi meira magn af
hergögnum frá Bandarikjun-
um, en gert hefur veriö hingað
til, til þess að vega upp á móti
vopnasendingum Sovétmanna
til skæruliða.
THAILAND: Vietnömsk flutningavél, með 13 manns um borö,
brotlenti i gær, i Thailandi, um 30 kilómetrum frá landamærum
Kampútseu. Að sögn talsmanna i Bangkok, fórst einn viö brot-
lendinguna og tvær særðust. Hinir voru færöir til yfirheyrslu.
SUÐUR-AFRÍKA: Þeldökkir verksmiöjuverkamenn og
stúdentar i Suður-Afriku lögðu niöur vinnu i gær i hálfa klukku-
stund til þess að mótmæla dauöa hvits verkalýðsleiðtoga i vörslu
lögreglunnar i siðustu viku. Mjög almenn þátttaka var I vinnu-
stöðvuninni, og reyndu stjórnendur fyrirtækja, eða lögregla ekki
á nokkurn hátt aðkoma i veg fyrir hana.