Fréttablaðið - 25.06.2008, Síða 6
MARKAÐURINN 25. JÚNÍ 2008 MIÐVIKUDAGUR6
F R É T T A S K Ý R I N G
L
istasöfn og sýningar eru tilvalinn
vettvangur fyrir fólk til að hittast
og ræða málin,“ segir Mikael Eric-
son, forstjóri sænska fjárfestingar-
bankans Carnegie. Hann bendir á að
fjármálaheimurinn hafi lengi stutt við bakið
á listamönnum með einum eða öðrum hætti.
Tíminn er talinn í öldum fremur en árum.
„Þeir sem hafa áhuga á fjárfestingum hafa
oft auga fyrir og áhuga á listum líka. Þeir
koma fljótt auga á verðmætin,“ segir hann.
Bankinn stofnaði til verðlauna- og farand-
sýningarinnar Carnegie Art Award fyrir ára-
tug og hefur síðan þá kynnt til sögunnar,
stutt vel við bakið á og sýnt verk eftir
142 norræna listamenn úr ýmsum afkimum
myndlistargeirans. Þar á meðal eru tuttugu
Íslendingar. Skemmst er að minnast þess að
myndlistarmennirnir Eggert Pétursson og
Hreinn Friðfinnsson hafa báðir hlotið önnur
verðlaun á sýningunni. Tveir Íslendingar
sýna verk sín nú. Það eru þau Þór Vigfússon
og Þórdís Aðalsteinsdóttir.
Carnegie Art Award-sýningunni hefur
vaxið fiskur um hrygg í þau tíu ár sem
hún hefur verið haldin og er hún í dag einn
af mikilsverðustu atburðum listaheimsins á
Norðurlöndunum.
REYNSLUBOLTI Í BANKAHEIMI
Mikael Ericson er hæstánægður með sýning-
una. Gott ef hann hefur ekki sjálfur tekið lit.
Júnísólin stendur hátt á lofti og silast hægt
í vesturátt. Hiti er nokkuð yfir meðallagi.
Himinninn er blár, heiðskír og tær. Flugvél
bætir hvítri línu við verkið.
Við sitjum í svalanum inni á Gerðarsafni
innan um málverk og aðra nútímalist. Úr
sýningarsalnum að ofan berast raddir og
tónar úr þeramíni. Andrúmsloftið fær á sig
einkennilegan blæ.
Starfsfólk Carnegie og Gerðarsafns er á
þönum enda í þann mund að opna sýninguna
eftir flakk hennar frá Kiama-nútímalista-
safninu í Helsinki í Finnlandi og Ósló. Hingað
er hún komin frá kóngsins Kaupmannahöfn.
Ericson er sjálfur nýlentur og volgur
ennþá, er tiltölulega nýtekinn við forstjóra-
stólnum hjá Carnegie. Ericson var í raun
ráðinn í byrjun árs en tók ekki við skútunni
fyrr en fyrir einum og hálfum mánuði. For-
veri hans hafði setið frá því seint á síðasta
ári eftir að sænska fjármálaeftirlitið mæltist
til þess að stjórninni yrði skipt út fyrir nýja
í kjölfar hneykslismála sem skóku bankann.
Forstjóranum var sömuleiðis skipt út fyrir
annan.
Spurður um málið hristir forstjórinn
höfuðið létt og lætur fingur leika um far-
símann – nýlegan síma frá Sony Ericsson.
Hann svíkur ekki lit. Mikael Ericson var
aðstoðar forstjóri Handelsbanken þegar kall-
ið kom frá Carnegie. Að því er Ericson segir
sjálfur steig hann fyrstu skrefin í fjármála-
heiminum í sænska fjármálaráðuneytinu
fyrir tuttugu árum. Þar var hann í aðeins eitt
ár áður en hann steig inn fyrir dyr Carnegie.
Hann var í sex ár hjá sænska fjárfestinga-
bankanum en fór þaðan til Handelsbanken. Í
raun má segja að forstjórinn sé kominn aftur
á kunnuglegar slóðir.
LISTHNEIGÐIR FJÁRFESTAR
Carnegie-bankinn var stofnaður árið 1803 og
fagnar því 205 ára afmæli um þessar mundir.
Þótt Skoti, sem nefndi bankann eftir sjálfum
sér, hafi stofnað hann hefur bankinn frá upp-
hafi verið rótfastur á Norðurlöndunum. „Það
var þess vegna mjög auðsótt mál fyrir bank-
ann að tengjast norrænum listaheimi,“ segir
Ericson. Hann bendir sömuleiðis á að marg-
ir af viðskiptavinum bankans séu afar áhuga-
samir um listir, ekki síst nútímalist. „Það var
því eðlilegt að við snerum okkur að listaheimi
Norðurlanda,“ segir forstjórinn. Hann bætir
við að vettvangur lista geti verið mjög skap-
andi. Á sýningu sem þessari gefist tækifæri
til að hittast og ræða málin. „Það getur skilað
góðum árangri,“ bendir Ericson á.
Fimm hundruð gestir voru væntanlegir við
opnun sýningarinnar hér.
Bankinn greiðir allt umstang við verð-
launasýningarnar, gefur út hnausþykka bók
um verkin, listamennina og tilheyrandi.
HRÆÐILEGUR ÓRÓI
Aðspurður um yfirstandandi erfiðleika á fjár-
málamörkuðum segir Ericson þetta hræði-
legan tíma. „En þetta er bara svona – það er
hart í ári,“ segir hann og bendir á að niður-
sveiflan og erfiðleikarnir nú séu öðruvísi en
fyrri kreppur. „Þetta er alþjóðleg sveifla í
fjármálageiranum sem til lengri tíma getur
haft áhrif á efnahag margra landa og fólks
sem þar býr. Jafnvel í nokkurn tíma eftir að
jafnvægi hefur náðst. Svona áföll hafa ekki
dunið yfir áður í mæli sem þessum, svo ég
viti til,“ segir hann.
Ericson segir þetta nær einungis eiga við
um lönd utan Norðurlandanna. Málið líti
öðruvísi út innan þeirra, þótt flestir hafi verið
snertir af vandræðunum í Vesturheimi.
Hann bendir á bankakreppuna hér á landi
á vordögum 2006 máli sínu til sönnunar. Í
henni hafi íslensku bankarnir treyst stoðir
sínar. „Þeir komu áreiðanlega betur búnir inn
í kreppuna núna en hefðu áföllin ekki dunið
yfir fyrir tveimur árum,“ segir hann.
MEÐ ÍSLENDINGA VIÐ STJÓRNVÖLINN
Sjálfur hefur Carnegie ekki farið varhluta af
vandræðum. Í fyrra urðu starfsmenn hans
uppvísir að því að skrá verðmæti valréttar-
samninga í eigu hans of hátt í tvö ár á undan.
Við þetta urðu eignir ofmetnar og bókhald
sýndi betri afkomu en raunin var.
Niðurstaða sænska fjármálaeftirlitsins var
á þá lund að eftirliti, stjórnun og áhættustýr-
ingu bankans væri ábótavant og var um tíma
útlit fyrir að bankinn yrði sviptur starfsleyfi.
Óvissa ríkti um framtíð bankans. Forstjórinn
yfirgaf skútuna. Eftirmaður hans tók tíma-
bundið við stýrinu þar til Mikael var kallaður
til eftir áramótin.
Mikael Ericson segir menn sína hafa lært
mikið síðan þá. Hann bendir á að Carneg-
ie sé ágætlega í sveit settur hvað lausafé og
áhættudreifingu varðar. Helmingur af tekj-
um komi frá fjárfestingastarfsemi en af-
gangurinn frá eignastýringu og úr einka-
bankaþjónustu. Stefnt sé að því að bæta
starfsemi tryggingafyrirtækisins Max Matt-
hiessen, sem keypt var í mars í fyrra, undir
stoðir fjárfestingabankans á næstunni „Ég er
sérstaklega spenntur fyrir því enda mun það
bæta bankann og dreifa áhættunni. Það gerir
hann sterkari fyrir vikið,“ segir Ericson.
Íslendingar hafa á tíðum sést í hluthafahópi
Carnegie. Glitnir, Straumur og fleiri áttu um
tíma hluti í bankanum en Milestone, í nafni
sænska fjármálaþjónustufélagsins Moderna
(áður Invik), festi kaup á tíu prósenta hlut í
honum síðasta haust – á sama tíma og útlit-
ið var sem svartast. Félagið hefur aukið við
sig og situr nú á sautján af hundraði hluta-
bréfa. Anders Fällman, forstjóri Moderna, er
stjórnarformaður fjárfestingabankans. Eric-
son nefnir þetta með bros á vör.
STÍGUR VARLEGA TIL JARÐAR
En aftur að óróleika á fjármálamörkuðum.
Ericson segir erfitt að spá fyrir um fram-
haldið og veigrar sér við því að geta til um
hvenær þessu ljúki. Útilokar samt ekki að
það verði fljótlega, jafnvel með haustinu.
„Það eru komin mýmörg tækifæri og lík-
lega munum við sjá auknar yfirtökur og sam-
runa fyrirtækja þá,“ segir hann og bendir á
að fjármálaheimurinn sé afar viðkvæmur um
þessar mundir. „Ég stíg sjálfur varlega til
jarðar,“ segir forstjóri Carnegie.
MIKAEL ERICSON Forstjóri sænska fjár-
festingarbankans Carnegie segir fjármála-
heiminn einkar viðkvæman um þessar
mundir en telur útlit fyrir að sjást muni til
sólar síðar á árinu. MARKAÐURINN/VALLI
Listir og fjármál mætast í sýningarsalnum
Norræna ferða- og verðlaunasýningin Carnegie Art Awards var opnuð í Gerðarsafni í Kópavogi í síð-
ustu viku. Áratugur er liðinn frá því að sænski fjárfestingarbankinn Carnegie ýtti þeim úr vör. Mikael
Ericson, sem nýtekinn er við forstjórastól bankans, settist niður með Jóni Aðalsteini Bergsveinssyni fyrir
opnun sýningarinnar og ræddi við hann um tengsl fjármála- og listaheimsins.
Vissir þú að ...
Carnegie Art Award-sýningin nú var
opnuð í október í fyrra í nútímalista-
safninu í Kiasma í Finnlandi. Síðasta
sýningin verður í Alþjóðlega nútíma-
listasafninu í Nice í Frakklandi í apríl á
næsta ári...
Þetta er tíunda árið sem Carnegie Art
Award-sýningin er haldin...
Sýningin var haldin ár hvert frá árinu
1998 til 2002. Frá 2003 hefur hún verið
haldin annað hvert ár...
Fyrir sýninguna nú tilnefndu 35 sérfræð-
ingar allt að fimm listamenn. Í ár voru
143 listamenn tilnefndir...
Á sýningunni nú voru 26 listamenn vald-
ir eftir tilnefningu og sýna þeir 65 verk...
Síðastliðin tíu ár hafa 142 listamenn
frá Norðurlöndunum sýnt 620 verk á
Carnegie Art Award...
Heildarverðmæti verka á sýningunni nú
nemur rúmum sjö milljónum sænskra
króna, jafnvirði tæpra hundrað milljóna
íslenskra króna...
Fyrstu verðlaun nema einni milljón
sænskra króna. Önnur verðlaun eru 600
þúsund en þriðju 400 þúsund. Auk þess
veitir Carnegie-bankinn ungum og efni-
legum listamanni 100 þúsund sænskar
krónur í styrk á hverri sýningu...
Bankinn hefur greitt sextán milljónir
sænskra króna í verðlaunafé á áratug.
Þetta jafngildir rúmum 218 milljónum
íslenskra króna...
Torsten Andersson, sem hlaut fyrstu
verðlaun á sýningunni nú, var í þriðja
sæti á fyrstu sýningunni fyrir áratug...
Af átta sýningum sem haldnar hafa
verið hafa Svíar unnið fyrstu verðlaun í
fimm skipti. Allar Norðurlandaþjóðirnar
nema Íslendingar hafa stigið í sigur-
sætið...
Svíar hafa frá upphafi haft langflesta
fulltrúa á Carnegie Art Award...
Fæstir fulltrúarnir á sýningunni síðast-
liðin tíu ár eru frá Íslandi...
Tveir íslenskir listamenn hafa hlotið
önnur verðlaun á sýningunni...
Íslendingar eru eina Norðurlandaþjóðin
sem aldrei hefur fengið þriðju verð-
laun...
Norðmenn er eina Norðurlandaþjóðin
sem aldrei hefur fengið önnur verð-
laun...
Norðmenn og Íslendingar hafa fengið
jafn mörg verðlaun...
VERK EFTIR VERÐLAUNAHAFA
Torstein Andersson frá Svíþjóð