Fréttablaðið - 25.06.2008, Blaðsíða 8
MARKAÐURINN 25. JÚNÍ 2008 MIÐVIKUDAGUR8
Ú T T E K T
M
argítrekaðar fullyrðingar um
gjaldþrot Sambands íslenskra
samvinnufélaga eiga sér enga
stoð í raunveruleikanum. Fé-
lagið hætti rekstri, seldi allar
eignir og samdi um og greiddi allar skuld-
ir sínar. Frá því uppgjöri hefur félagið fyrst
og fremst verið félagslegur vettvangur þar
sem samvinnumenn, fulltrúar kaupfélaganna
um allt land, koma saman og ræða sín sam-
eiginlegu mál,“ segir Guðsteinn Einarsson,
stjórnar formaður Sambands íslenskra sam-
vinnufélaga. Guðsteinn er líka kaupfélags-
stjóri Kaupfélags Borgfirðinga.
SKÚFFUFYRIRTÆKI
Það fer ekki mikið fyrir Sambandi íslenskra
samvinnufélaga, svo ekki er undarlegt að
fólk álykti sem
svo að það heyri
sögunni til. Til að
mynda finnst fátt
þegar félaginu er
flett upp í síma-
skrá. Þegar leit-
að er betur finnst
þó heimilisfang og
símanúmerið 430-
5500, sem er síma-
númer Kaupfélags
Borgfirðinga.
Lénin sis.is og
sambandid.is eru í
eigu aðila sem eru
ótengdir Sambandinu með öllu. Lénið sam-
band.is er í eigu Sambands íslenskra sveitar-
félaga.
Guðsteinn segir að ekkert laumuspil sé hér
á ferð og fólk sé velkomið á aðalfundi félags-
ins.
ÁHRIF FYRIR HUNDRAÐKALL
Eignir Sambandsins eru samkvæmt árs-
reikningi í fyrra um tuttugu milljónir króna.
Þetta eru bankainnistæður og verðbréf. Þá
er í þessu fólgið 7.000 króna stofnframlag til
Samvinnutrygginga, frá árinu 1946.
Ætla má þó að fleira finnist
í Sambandinu. Helst er þar að
nefna að líklega verður Sam-
bandið næststærsti hluthafinn
í Fjárfestingarfélaginu Gift,
sem stofnað hefur verið upp úr
eignarhaldsfélaginu Samvinnu-
tryggingum. Skilyrði fyrir eign
í félaginu er að hafa tryggt hjá
Samvinnutryggingum og að
óslitnum viðskiptum hafi verið
haldið við Vátryggingafélag Ís-
lands. Svo mun hafa verið í til-
viki Sambandsins; réttindi hald-
ist öll óskert, jafnvel þótt að-
eins sé tryggt fyrir hundrað kall.
Sambandið var alla tíð stærsti
tryggjandinn hjá Samvinnu-
tryggingum.
MIKIL UMSVIF GIFTAR
Umsvif Giftar í íslensku at-
vinnulífi eru nokkur. Félagið er
til að mynda stærsti hluthafinn
í Icelandair, ásamt Finni Ingólfssyni. Þá er
félagið þriðji stærsti hluthafinn í Exista. Fé-
lagið á auk þess stóran hlut í Kaupþingi, auk
þess sem þar er Exista ráðandi.
Meðal eigna Giftar eru einnig hlutir í
Landsbankanum, Straumi og Glitni. Þá á fé-
lagið einnig nokkra hluti í óskráðum félög-
um, eins og Fóðurblöndunni, Samkaupum,
Árkaupum og Saga Capital.
Sem næststærsti hluthafinn í Gift má ætla
að Sambandið hafi þarna nokkur áhrif.
MILLJARÐA EIGNIR?
Enda þótt markaðsvirði félaga í óbeinni eigu
Sambandsins hafi hríðfallið, líkt og annarra
skráðra félaga undanfarna mánuði, má ætla
að það hlaupi á milljörðum.
Enn er ekki fram kominn listi yfir hlut-
hafa í Gift fjárfestingarfélagi, en fram hefur
komið að Samvinnusjóðurinn mun líklega
ráða um þriðjungi. Í sjóðinn hafa runnið rétt-
indi þeirra sem tryggðu en féllu frá eða urðu
gjaldþrota.
Sé miðað við að sá sem lagði fram stofnféð
og var ávallt stærsti viðskiptavinur félagsins,
ásamt öllum deildum sínum, eigi tíund í Gift,
má ætla að eignirnar séu nokkrar. Þegar að-
eins er horft til eignar Giftar í Kaupþingi, Ex-
istu og Icelandair, er ekki óvarlegt að áætla
að þær eignir Sambandsins séu ekki minni en
tveir til þrír milljarðar, miðað við markaðs-
verð nú um stundir. Það er sem kunnugt er
með minnsta móti.
Þá er raunar ekki tekið tillit til skulda
Giftar. Óvíst er hversu háar þær eru.
Það er hlutfallslega töluvert minna en þegar
Sambandið stóð á hátindi sínum í íslensku at-
vinnulífi, en nóg til þess að fullyrða að Sam-
bandið er á lífi og vel rúmlega það.
Guðsteinn Einarsson segir óvarlegt að full-
yrða nokkuð um þetta enda liggi ekki enn
fyrir hvernig hlutnum í Gift verði skipt.
Þá hafi verið ákveðið, hvernig sem fer, að
því sem kemur út úr Gift verði skipt milli
kaupfélaganna. „Þau eiga Sambandið en ekki
öfugt,“ segir Guðsteinn og ítrekar að hlut-
verk Sambandsins sé fyrst og fremst félags-
legt. „Engar breytingar eru fyrirhugaðar á
starfseminni,“ bætir hann við.
HVERJIR RÁÐA?
Aðildarfélög Sambandsins eru kaupfélög, sem
starfa víða um land. Kaupfélag Skagfirðinga
er líklega stærst innan vébanda Sambands-
ins. Þar er kaupfélagsstjóri Þórólfur Gísla-
son, fyrrverandi stjórnarformaður Giftar.
Kaupfélag Eyfirðinga er líka stórt, einnig
Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga auk Kaupfélags
Borgnesinga og fleiri.
Þeir sem ráða fyrir Sambandinu koma úr
þessum stöðum. Til að mynda situr Sigur-
jón Rúnar Rafnsson, núverandi stjórnarfor-
maður Giftar, einnig í stjórn Sambandsins.
Því skyldi ekki vanmeta áhrif Sambandsins
í Gift.
FORNAR RÆTUR
Samband íslenskra samvinnufélaga var stofn-
að árið 1902 að Ystafelli. Þetta var verslunar-
félag sem stefndi að því í upphafi að ná hag-
stæðum samningum við heildsala og halda
utan um útflutning kaupfélaganna.
Aðildarfélögin voru fá í fyrstu, en um miðja
síðustu öld voru þau orðin fimmtíu og rekstur-
inn þá þegar orðinn umfangsmikill.
Félögin voru 45 árið 1980 en áratug síðar
voru þau 26. Þau eru nú fimmtán.
Á árum seinni heimsstyrjaldar voru starfs-
menn Sambandsins orðnir hátt í fimm hundr-
uð en voru þrír í upphafi hinnar fyrri. Starfs-
mönnum átti enn eftir að fjölga og voru
þeir upp undir tvö þúsund þegar umsvif
Sambandsins voru sem mest á níunda ára-
tugnum. Þá eru ótaldir þeir sem störfuðu
hjá kaup félögunum og ýmsum fyrirtækjum
sem tengdust Sambandinu. Núna er enginn
á launaskrá Sambandsins, en Guðsteinn
Einarsson stjórnar formaður heldur utan um
málefni félagsins, meðfram öðrum störfum.
GRÍÐARLEG UMSVIF
Sambandið óx mjög að vöxtum um miðja síð-
ustu öld. Auk þess sem bein starfsemi Sam-
bandsins jókst urðu til félög sem kölluð voru
samstarfsfyrirtæki Sambandsins. Í þessum
hópi voru Samvinnutryggingar, Olíufélagið,
Samvinnubankinn, Osta- og smjörsalan, Sam-
vinnuferðir og Iceland Seafood Corporation.
Á níunda áratug síðustu aldar störfuðu átta
deildir innan Sambandsins: Sjávar afurðadeild,
búvörudeild, iðnaðardeild, búnaðar deild,
verslunardeild, skipadeild, skipulagsdeild og
fjárhagsdeild.
SAMDRÁTTUR
Mikið var fjallað um endalok Sambandsins í
Morgunblaðinu upp úr árinu 1990. Þar kom
meðal annars fram að árið 1989 hefðu bók-
færðar eignir Sambandsins numið ríflega tólf
milljörðum króna, á þess tíma verðlagi. Árið
eftir hefðu þær hins vegar verið innan við
átta milljarðar en aftur nokkrum árum síðar
höfðu eignirnar rýrnað allverulega og námu
eignirnar þá prómilli af því, eða sjö milljón-
um króna.
Sambandið hefur heldur vaxið síðan þá,
Samband íslenskra samvinnufélaga
lifir góðu lífi
Samband íslenskra samvinnufélaga er ennþá til, þótt eignir þess séu ekki nema brot af því sem mest var undir lok síð-
ustu aldar. Starfsemi þess er í lágmarki en eignir þess í skráðum félögum kynnu að hlaupa á milljörðum króna, þrátt fyrir
miklar lægðir á hlutabréfamarkaði. Aðildarfélög Sambandsins starfa um allt land og umsvif þeirra eru umtalsverð, enda
þótt þau séu ekki undir hatti Sambandsins. Stjórnarformaður SÍS segir að Sambandið sé félagslegur vettvangur og engar
breytingar séu fyrirhugaðar á því. Ingimar Karl Helgason fór yfir núið og þáið hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga.
E I G E N D U R S A M B A N D S I N S
Kaupfélag Fjöldi félagsmanna
Kf. Kjalarnesþings 0
Kf. Borgfirðinga 1.325
Kf. Króksfjarðar 63
Kf. Steingrímsfjarðar 134
Kf. Vestur-Húnvetninga 497
Sf. Austur-Húnvetninga 341
Kf. Húnvetninga 496
Kf. Skagfirðinga 1.562
Kf. Eyfirðinga 13.052
Kf. Þingeyinga 1.760
Kf. Héraðsbúa 1.042
Kf. Fáskrúðsfirðinga 176
Kf. Austur-Skaftfellinga 800
Kf. Árnesinga 3.141
Kf. Suðurnesja 3.200
Samtals 27.589
ARNARFELL SAMSKIPA
Skipadeildin var ein mikilvæg-
asta deild Sambandsins og
tryggði flutninga á ströndinni
og milli landa.