Fréttablaðið - 09.07.2008, Page 1
Dýr olíudropi | Heimsmarkaðs-
verð á olíutunnu náði sögulegu há-
marki í síðustu viku þegar tunn-
an fór yfir 146 dali. Helsta ástæð-
an fyrir hækkuninni er talin vera
stýrivaxtahækkun Seðlabanka
Evrópu og ótryggt ástand í Íran.
Dow í lægð | Hlutabréfavísitöl-
ur lækkuðu á Wall Street í byrjun
vikunnar. Dow Jones hefur ekki
verið lægri frá því árið 2006 en
hún lækkaði um 0,50 prósent á
einum degi.
Stýrivextir hækka | Stýrivextir
Seðlabanka Evrópu hækkuðu um
25 punkta í síðustu viku og eru nú
4,25 prósent. Ástæður hækkunar-
innar liggja helst í háu matvæla-
verði og 4 prósenta verðbólgu sem
aldrei hefur mælst hærri.
Lækkun í Asíu | Hlutabréf í Asíu
lækkuðu í gær og hefur MSCI
Kyrrahafsvísitalan ekki verið
lægri í tæp tvö ár. Bréf fjármála-
fyrirtækja og banka lækkuðu
mest og leiddu því þessa lækkun
á vísitölunni.
ESB niður með VSK | Tillaga
frá framkvæmdastjórn ESB ligg-
ur fyrir um að leyfa aðildarríkj-
um ESB að lækka virðisaukaskatt
á ákveðnum flokkum niður í fimm
prósent. Lækkunin myndi einkum
ná til staðbundinnar starfsemi svo
sem byggingafyrirtækja og veit-
ingahúsa.
136
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 9. júlí 2008 – 28. tölublað – 4. árgangur
8-9
Veffang: visir.is – Sími: 512 5000
H E L S T Í Ú T L Ö N D U M
„Ég hætti á síðasta ári. Það var
einfaldlega kominn sá tími sem
ég hafði ætla mér að vera þarna,“
segir Ólafur Jóhann Ólafsson at-
hafnamaður um fjárfestingu sína
í Árvakri.
Það vakti mikla athygli þegar
Ólafur Jóhann keypti 16,7 pró-
senta hlut í félaginu í nóvember
árið 2005.
Samkvæmt heimildum Mark-
aðarins var það Björgólfur Guð-
mundsson sem keypti hlutinn,
ekki löngu fyrir áramótin. Hann
mun nú ráða um 36 prósenta hlut
í félaginu.
Ólafur Jóhann segist í samtali
við Markaðinn aldrei hafa ætlað
að eiga hlutinn í Árvakri lengi.
En um brottförina segir hann.
„Þetta var allt í sátt og sam-
lyndi.“
Ólafur Jóhann segist hafa feng-
ið arð af fjárfestingunni, en út-
listar það ekki frekar.
Hluthafar í Árvakri eru nú Val-
týr, Björn Hallgrímsson, Ólafs-
fell, Forsíða, MGM og Garðar
Gíslason. Ólafsfell og Forsíða eru
bæði í eigu Björgólfs. Árvakur
gefur út Morgunblaðið, 24 stundir
og heldur úti vefnum mbl.is. - ikh
Ólafur farinn
frá Árvakri
FL Group
Þriggja ára saga
FL Group (nú
Stoðir)
Warren Buffett
Hugsaðu
áður en þú
framkvæmir
Samkeppniseftirlitið hefur sent
bönkum og fjármálastofnunum
ítarlegt erindi með fjölmörgum
spurningum um íslenskan við-
skiptabankamarkað. Tilefnið er
fyrirhugaður samruni Kaupþings
og SPRON sem samþykktur
hefur verið af stjórnum beggja
félaga, en bíður nú samþykkis að-
alfunda, Fjármálaeftirlitsins og
Samkeppniseftirlitsins.
Bankamenn sem Markaðurinn
hefur rætt við segja að erindið
sé mjög viðamikið og munu ein-
hverjir lykilmenn hafa verið
kallaðir til vinnu úr sumarfríi til
að svara því.
Samkvæmt lögum ber Sam-
keppniseftirlitinu að kortleggja
stöðu og markaðshlutdeild ein-
stakra aðila áður en það fellir úr-
skurð um tiltekinn samruna; og
heimilar hann þá eða hafnar.
Eins og Markaðurinn hefur
greint frá eru frekari samrun-
ar fjármálafyrirtækja í pípun-
um. Þreifingar hafa átt sér stað
milli eigenda Sparisjóðsins Byrs
og Glitnis um samruna og eins
þykir líklegt að fleiri sparisjóð-
ir muni leita eftir samstarfi við
Kaupþing þegar samruninn við
SPRON er frágenginn. - bih
Bankamarkaðurinn kortlagður
Samkeppniseftirlitið undirbýr umsögn um sameiningu Kaupþings og SPRON
Evruvæðing
Slóvakar með
grænt ljós á evru
Guðný Helga Herbertsdóttir
skrifar
„Það eru engar breytingar fyrirhugaðar á fyrirtæk-
inu,“ segir Hreinn Erlendsson, einn eigenda IOD,
sem hefur tekið yfir Tölvulistann. IOD tók heild-
sölu Tölvulistans yfir fyrir um ári, og á nú félagið
í heild sinni.
Ásgeir Bjarnason, fyrrverandi eigandi Tölvulist-
ans, segir ástæðuna fyrir sölunni ekki vera bága
skuldastöðu fyrirtækisins.
Heimildir Markaðarins herma að undanfarið hafi
Tölvulistinn barist fyrir tilveru sinni. Lánardrottnar
hafi haft áhyggjur af stöðunni og jafnvel haft hönd
í bagga með niðurstöðunni.
Ásgeir segist hafa selt IOD heildsöluna í fyrra þá
jafnframt kauprétt á rekstri Tölvulistans, sem nýta
mátti frá áramótum. „Ég vildi hins vegar ekki selja
fyrr en nú.“
IOD er ein stærsta heildsala og dreifingarfyrir-
tæki í tölvuhlutum á Íslandi og er í eigu sömu aðila
og eiga Heimilistæki, Sjónvarpsmiðstöðina og Max
Raftæki. Hreinn Erlendsson gerir ekki ráð fyrir
öðru en að starfsmenn Tölvulistans haldi störfum
sínum.
Eftir því sem Markaðurinn kemst næst hafa einn-
ig orðið breytingar á eignarhaldi byggingafyrirtæk-
isins Mest. Þar var þrjátíu manns sagt upp störfum í
lok apríl. Hátt í 200 manns starfa enn hjá félaginu.
Fyrirtækið Leikbær varð gjaldþrota í vor. Leik-
fangaverslunarkeðjan Just4kids tók yfir rekstur
þriggja verslana hennar. Ólafur Örn Jónsson, eig-
andi Just4kids hér á landi, segist hafa tekið við
rekstrinum og greitt fyrir, skuldirnar hafi hann
ekki tekið.
Eftir því sem Markaðurinn kemst næst keyptu
heildsalar lager Leikbæjar, sem var áður í eigu fjöl-
skyldu Þorvarðar Elíassonar.
Nokkuð hefur verið um að lánardrottnar hafi
reynt að sigla viðskiptavinum sínum í var í ólgu-
sjó markaðanna nú um stundir. Nærtækt dæmi eru
aðgerðir Landsbankans gagnvart Nýsi. Heimildir
Markaðarins herma þó að fullvíst sé talið að frek-
ari eignatilfærsla verði á næstunni, þar sem sterk-
ari aðilar taki yfir rekstur félaga sem búa ekki leng-
ur yfir nægu eigin fé.
Mörg fyrirtæki
í kröppum dansi
Breyting hefur orðið á eignarhaldi Tölvulistans og bygg-
ingafyrirtækisins Mest. Leikbær heyrir sögunni til. Búast
má við frekari eignatilfærslum að kröfu lánadrottna.
Tíma - og verkskráning
Flotastýring og eftirlit
www.trackwell.com
Vistvænn
kostur!