Fréttablaðið - 16.07.2008, Blaðsíða 35
MIÐVIKUDAGUR 16. júlí 2008 27
FÓTBOLTI Norska félagið Stabæk
hefur lengi haft augastað á Hús-
víkingnum Pálma Rafni Pálma-
syni. Í fyrrakvöld komst félagið
loksins að samkomulagi við
Íslandsmeistara Vals um kaup-
verð. Samkvæmt upplýsingum
Fréttablaðsins nemur það tæpum
40 milljónum íslenskra króna.
Lars Bohinen, yfirmaður knatt-
spyrnumála hjá Stabæk, telur
kaupverðið sanngjarnt. „Þetta er
góður samningur fyrir alla,“ sagði
Bohinen sem vildi ekki staðfesta
kaupverðið, frekar en Börkur
Edvardsson, formaður knatt-
spyrnudeildar Vals. Börkur sagð-
ist þó vera sáttur.
„Við erum sáttir, en maður fær
aldrei allt sem maður vill í lífinu,“
sagði Börkur en heimildir Frétta-
blaðsins herma að Valur hafi vilj-
að 40 milljónir fyrir Pálma.
Inni í samningnum var að Pálmi
spilaði ekki með Val í gær gegn
BATE þar sem Stabæk spilar í
UEFA-keppninni á tímabilinu.
Pálmi spilar með Val á
laugardaginn gegn
Keflavík og heldur
svo utan til að ganga
frá samningnum sem
er til þriggja og hálfs
árs. „Það verður vænt-
anlega ekkert vanda-
mál, hann er tilbúinn að
stærstum hluta,“ sagði
Bohinen.
Pálmi er með þessu orð-
inn einn dýrasti leikmað-
urinn sem keyptur hefur
verið frá Íslandi. ÍBV fékk á
bilinu 40 og 50 milljónir króna
fyrir Hermann Hreiðarsson þegar
hann fór til Crystal Palace árið
1997. Um helming af því fékk ÍBV
beint en það græddi svo á því
hversu mikið Hermann spilaði.
Marel Baldvinsson kostaði
Stabæk mjög nálægt 40 milljónum
króna árið 2000 þegar það keypti
hann frá Breiðabliki. Kaupverðið
var lægra, en var þó nálægt 40
milljónum með öllum bónus-
greiðslum. Stabæk hefur því keypt
tvo af þremur dýrustu leikmönn-
um Íslands.
Hólmar Örn Eyjólfsson gekk í
raðir West Ham frá HK fyrir
skemmstu. Kaupverðið á honum
fæst ekki gefið upp en það er talið
vera á milli 30 og 40 milljóna
króna.
Eiður Smári Guðjohnsen hefur
tvívegis farið frá íslensku félagi í
atvinnumennsku, fyrst fyrir lítinn
pening frá Val til PSV Eindhoven
og svo til Bolton frá KR. Hjá KR
var hann á frjálsum samningi og
því þurfti Bolton ekki að greiða
fyrir landsliðsfyrirliðann. Eiður
er eftir sem áður dýrasti Íslend-
ingurinn í sögunni eftir að Barce-
lona borgaði Chelsea 8,2 milljónir
punda fyrir hann árið 2006.
Pálmi er uppalinn Hús-
víkingur en hann gekk í
raðir KA árið 2003 og
fór svo til Vals 2006.
Hann bætist í stóran
hóp Íslendinga til að
leika með Stabæk.
Auk Veigars, Marels
og nú Pálma hafa
Helgi Sigurðsson,
Tryggvi Guð-
mundsson og
Pétur Hafliði
Marteinsson
verið á mála hjá
norska félaginu.
Bohinen segir að félagið vænti
mikils af Pálma. „Við vonum að
hann muni ná vel saman við Veig-
ar Pál,“ sagði Bohinen sem fékk
góð ráð frá Veigari hvað varðar
Pálma. „Hann sagði okkur að hann
væri góður leikmaður.“
Bohinen segir reynsluna af
Íslendingum vera góða og það sé
ekki síst það sem hann og félagið
hafa horft til þegar það ákvað að
kaupa Pálma. „Íslensku leikmenn-
irnir eru fljótir að aðlagast og ég
held að hann muni gera það líka.
Hann þarf tíma til að aðlagast eins
og allir, og hann fær hann,“ sagði
Lars Bohinen. - hþh
Stabæk borgar í annað sinn tæpar 40 milljónir króna fyrir Íslending:
Pálmi Rafn einn sá dýrasti í sögunni
DÝRASTUR Hermann er dýrasti
leikmaðurinn seldur frá Íslandi,
ÍBV fékk um 50 milljónir króna
árið 1997 þegar hann fór til
Crystal Palace. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
40 MILLJÓN KRÓNA VERÐMIÐI Valur vildi fá 40 milljónir fyrir Pálma Rafn og fékk
næstum uppsett verð. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
KÖRFUBOLTI Ísland tapaði öðrum
æfingaleiknum í röð gegn sterku
liði Litháen í gær. Fyrri leiknum
tapaði Ísland 115-62 en bata-
merki voru á leik liðsins í gær
sem tapaðist 105-67 fyrir framan
tíu þúsund áhorfendur.
Lið Litháen er meðal þeirra
sterkustu í heimi og keyrði það
yfir íslenska liðið í síðari hálf-
leik eftir að sá fyrri hafði verið
nokkuð jafn.
Logi Gunnarsson skoraði 23
stig fyrir Ísland, Jakob Sigurðar-
son fjórtán og Sigurður Þor-
valdsson tíu. - hþh
Íslenska landsliðið í körfubolta tapaði aftur stórt:
Batamerki á leik Íslands
FÓTBOLTI Íslandsmeistarar Vals
eiga erfitt, en ekki óyfirstíganlegt,
verkefni fyrir höndum á Vodafone-
vellinum eftir viku í forkeppni
Meistaradeildar Evrópu.
Liðið tapaði aðeins með tveim
mörkum gegn BATE Borisov í
Hvíta-Rússlandi í gær, 2-0. Bæði
mörk Rússanna komu seint í leikn-
um eða á 73. og 78. mínútu. Það
var Gennadi Bliznyuk sem skoraði
bæði mörk heimamanna.
„Þetta var mjög erfiður leikur
en við vörðumst vel. Lögðum upp
með að liggja aftarlega, leyfa
þeim að leika úti á velli og það
gekk ágætlega enda fengu þeir fá
færi. Það var svo algjör óþarfi að
fá þessi tvö mörk á sig og fyrra
markið var reyndar ólöglegt að
okkar mati,“ sagði Guðmundur
Benediktsson, framherji Vals.
„Þetta lið var svipað að styrk-
leika og við bjuggumst við. Þetta
er hörkulið en vel hægt að vinna
þá á heimavelli. Við getum unnið
öll lið á heimavelli og mætum því
til leiks nokkuð bjartsýnir,“ sagði
Guðmundur en sigurvegari viður-
eignarinnar mætir Anderlecht í
næstu umferð.
- hbg
Valur slapp ágætlega frá fyrri leiknum gegn BATE:
Getum unnið heima
STRÍÐIÐ EKKI BÚIÐ Valur tapaði fyrri orrustunni gegn BATE Borisov en Guðmundur
Benediktsson segir stríðið ekki búið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Landsbankadeild kvenna:
KR-Keflavík 4-0
Hólmfríður Magnúsdóttir, Hrefna Huld Jóhannes-
dóttir, Katrín Ómarsdóttir, Ólína G. Viðarsdóttir.
Þór/KA-Valur 1-3
Ivana Ivanovic - Margrét Lára Viðarsdóttir 2,
Hallbera Guðný Gísladóttir.
Breiðablik-Afturelding 3-0
Fanndís Friðriksd., Jóna Hauksd., Sandra Magnús.
Fylkir-Fjölnir 2-0
Lizzy Karoly, sjálfsmark.
Stjarnan-HK/Víkingur 4-0
Inga Birna Friðjónsdóttir 2, Björk Gunnarsdóttir,
Tinna Mark Antonsdóttir.
STAÐAN:
1. Valur 10 10 0 0 41:7 30
2. KR 10 9 0 1 31:6 27
3. Stjarnan 9 5 2 2 19:11 17
4. Breiðablik 9 4 1 4 21:17 13
5. Afturelding 9 3 2 4 5:8 11
6. Þór/KA 9 3 1 5 16:17 10
7. Fylkir 10 3 1 6 11:24 10
8. Keflavík 10 2 2 6 10:29 8
9. HK/Víkingur 10 1 3 6 10:24 6
10. Fjölnir 10 1 2 7 9:30 5
FÓTBOLTI Það er ekkert lát á góðu
gengi Vals og KR í Landsbanka-
deild kvenna. Bæði lið unnu leiki
sína í gær og hafa þar með
talsvert forskot á næstu lið.
Valur sem fyrr á toppnum með
fullt hús stiga en KR fylgir í
humátt á eftir en KR hefur aðeins
tapað fyrir Val í sumar. - hbg
Landsbankadeild kvenna:
Valur og KR
á sigurbraut
GLEÐI Embla Sigríður Grétarsdóttir og
félagar í KR fagna hér einu af fjórum
mörkum liðsins í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON