Fréttablaðið - 19.07.2008, Blaðsíða 31
heimili&hönnun ●
„Þetta eru allt munir sem tengj-
ast mér persónulega,“ segir Vig-
dís Grímsdóttir rithöfundur og
bendir út í eitt hornið í sólríkri
stofunni. Þar getur að líta marga
fagra smáhluti ofan á drekkhlöðn-
um bókaskáp. „María mey er mikil
vinkona mín, ég erfði áhugann á
henni frá Nínu Björk Árnadóttur
skáldkonu sem orti um hana fal-
legt ljóð,“ heldur Vigdís áfram
og vekur athygli á tveimur stytt-
um af guðsmóðurinni. Aðra þeirra
kveðst hún hafa fengið á krafta-
verkastaðnum Lourdes í Suður-
Frakklandi. „Englarnir eru svo
allir frá systur minni, sem tók upp
þann fallega sið á síðustu árum að
gefa bara engla, og eilífðarblóm-
ið í litlu krúsinni er frá ritstjór-
anum mínum, Þórgunni Skúla-
dóttur,“ bætir Vigdís við og rekur
sögu fleiri dýrgripa. „Teketillinn
er kerti frá bróður mínum og mág-
konu og litla hjartað sem hang-
ir á myndaramma er saumað af
mömmu sem er mín aðalskvísa í
heiminum. Svo á ég litla verndar-
dúkku frá ömmustelpunni minni.
Dúkkan er úr plasti og það er gott
því þá get ég farið með hana í bað,
eins og gefandinn benti mér á.“
Allir hlutirnir á hillunni henn-
ar Vigdísar eru sögulegir í augum
skáldsins. Þarna eru hestar til að
komast áfram á og hnöttur til að
hafa yfirsýn yfir heiminn. Einnig
gamall trékarl sem á tvær kærust-
ur sem báðar virðast orðnar frá-
hverfar honum. Litla jólatréð bíður
eftir að jólin komi aftur og aftur og
tvær grænar skjaldbökur eru síð-
ustu gripirnir sem upp verða tald-
ir hér. „Þetta erum við Bíbí,“ segir
Vigdís hlæjandi. „Hún breytti
okkur eina nótt í þetta!“ -gun
HILLAN MÍN
Allir dýrgripirnir á einum stað
„Dúkkuvagninn er gjöf frá systur minni og í honum eru kristalssteinar með útgáfuár-
tölum bókanna minna,“ útskýrir Vigdís. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
● Í ÞURRKATÍÐ SUMARSINS
er garðkannan eitt af ómissandi bús-
áhöldum þeirra sem fást við rækt-
un. Þessi rauða kanna er fáanleg í net-
versluninni systerlycklig.se. Eins og sjá má er
hún sjálf blómskreytt en það sem meiri athygli
vekur þó eru úðagræjurnar sem hún er búin.
Þær gefa viðkvæmum blómum þægilegan úða og
koma líka að notum í þvottahúsinu þegar úða þarf
fatnað og dúka fyrir strauingu.
● SKEMMTILEGAR BÓKASTOÐIR James The Doorm-
an og James the bookend er skemmtileg hönnun frá Black+Blum.
James the doorman er hinn fullkomni herramaður sem sér um að
halda öllum hurðum opnum sem eiga það til að lokast af sjálfu sér.
James the bookend er afar hentugur í bókahilluna sem er úttroð-
in af bókum. Karlarnir eru úr gúmmíi og litaúr-
valið er mikið og því geta allir fundið sér það sem
þeir vilja. James the doorman og
James the bookend eru alltaf á
stöðugri vakt og þjóna tilgangi
sínum í öllu.
hönnun
LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 2008 7