Fréttablaðið - 19.07.2008, Blaðsíða 56
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Gerðar Kristnýjar
Ísland og Ameríka mætast á flot-bryggjunni við Hofsána. Þar
stika bandarískar smástelpur
fram og aftur og segja kátar: „I’m
on a catwalk.” Þær dilla sér í
mjöðmunum eins og fyrirsætur
sem aldrei hafa migið í saltan sjó
en finnist manni slíka reynslu
vanta í ferilskrána býðst tækifær-
ið hér. Þegar þokan leggst yfir
Hofsós svo enginn sér handa sinna
skil er hægur vandi að laumast út
og láta ótrúlegustu drauma ræt-
ast. Þessi staður ætti vel heima í
einum af þessum bresku sjón-
varpsþáttum um ungan prest eða
kannski lækni sem snýr aftur í
þorpið þar sem hann ólst upp.
HÉR er allt sem þarf; ein kirkja,
ein verslun, einn skóli, eitt safn,
einn veitingastaður og að minnsta
kosti eitt aðkomuskáld. Það er
hinn hrímhærði Bill Holm sem
talar við ókunnuga eins og hann
hafi þekkt þá alla sína ævi og
lætur fátt setja sig út af laginu. Að
minnsta kosti sér hann ekki
ástæðu til að gera hlé á frásögn
sinni þegar ég læt Barokkmeistar-
ann eftir Margréti Eggertsdóttur
vaða ofan á könguló sem hættir
sér yfir stofugólfið. Þegar sögunni
lýkur ráðleggur Bill mér þó að
sleppa því að fara til Ástralíu,
köngulærnar séu öllu fyrirferðar-
meiri þar.
BILL er af vestur-íslenskum
ættum og sama á við um kana-
díska ættfræðinginn Nelson Gerr-
ard sem hefst við í Vesturfarasetr-
inu. Þar hefur hann sett upp
merkilega sýningu á ljósmyndum
úr fórum Vestur-Íslendinga. Ferm-
ingarbörn, gamalmenni, brúðhjón,
ungbörn og hermenn horfa hátíð-
leg inn í myndavélina og heil ævi-
saga leynist oft í myndatextum
Nelsons. Ég laumast til að spyrja
hann hvort einhver ættingja
minna hafi flust vestur á sínum
tíma. Nelson sest við tölvuna og
skrollar svo langt aftur í aldir að
undir lokin bera flestir ákaflega
vafasöm viðurnefni. Enginn Vest-
ur-Íslendingur finnst þó.
ÁHUGI minn á fjarlægum heim-
um hefur samt vaknað og ég leggst
í bækur um miðla sem sendu fram-
liðna lækna til veikra kvenna. Þeir
birtust þeim um nætur og fóru
höndum um brjóst þeirra og lær.
Allar vöknuðu þær svona líka
fjallhressar og algjörlega kommu-
lausar næsta morgun. Litlu fyrir
brottför rekst ég á Nelson sem
hefur fréttir að færa. Hann hefur
fundið skyldmenni mín sem héldu
til Vesturheims og þar sem þau
voru frá Króksfjarðarnesi tóku
þau upp nafnið Crawford. Enn og
aftur, Ísland og Ameríka.
Sumar á Hofsósi
Opið virka daga 10-20 | laugardaga 10-18 | sunnudaga 12-18 | www.IKEA.is/utsala
©
In
te
r I
KE
A
Sy
ste
m
s B
.V
. 2
00
8
TINDRA ilmsprittkerti
12 stk. 295,- 495,-
BÄSTIS tjöld f/gæludýr 48x48x40 cm.
ýmsir litir 595,-/stk. 995,-
PLASTIS uppþvottaburstar
L24 cm ýmsir litir 95,-/stk 150,-
HULDA púðaver 72x72 cm.
marglitað 295,- 595,-
UNNI motta 70x130 cm
marglitað 1.290,- 1.690,-
SERVERA bakkar Ø 24 cm
ýmsir litir 195,-/stk. 295,-
MÖRKER vinnulampi
H44 cm grænn 295,- 395,-
SYNTES SKISS skálar
2 stk. Ø 9 H6 cm/ Ø 7 H7 cm
150,-. 295,-
SKÄMT blómavasar H21 cm.
ýmsir litir 35-/stk. 95,-
KILAN rúmteppi 280x180 cm
blágrænt 2.690,- 3.290,-
VENNY pottaleppar 2 stk.
ýmsir litir 295,- 395,-
ALEXANDRA metravara
150 cm 195,-/m 295,-
HULDA VILSE sængurverasett
150x200/50x60 cm. Rautt/hvítt
1.190,- 1.990,-
ATOLL SPORT himnasæng
marglitað 290,- 490,-
1.990,-
MÄSEN baðsloppur, tvær stærðir S/M & L/XL
ýmsir litir verð pr. stk. 2.990,-
MÅLA LYSA sjálýsandi málning
6 stk. ýmsir litir 595,- 795,-
ÚTSALA
Í dag er laugardagurinn 19. júlí,
202. dagur ársins.
3.54 13.34 23.11
13.13 13.19 23.21