Fréttablaðið - 23.07.2008, Side 14
MARKAÐURINN 23. JÚLÍ 2008 MIÐVIKUDAGUR14
F Y R S T O G S Í Ð A S T
F R Í S T U N D I N
D A G U R Í L Í F I . . .
Kolbrúnar Kolbeinsdóttur, viðskiptastjóra hjá eignastýringu Glitnis
6.30 Vakna hleypi Rómeó (kisu) og Matta (hundi) út að pissa og skelli
mér svo í sturtu.
6.40 Helli upp á sterkt kaffi og hræri í hafragraut, glugga í Moggann
og Fréttablaðið. Kveiki á tölvunni og athuga hvernig markaðir lokuðu
í gærkvöldi og nótt.
7.15 Vek Mettu dóttur mína sem á að mæta til vinnu kl. 8.30
8.00 Mætt í vinnuna og byrja á að kíkja á póstinn minn og svara
þeim tölvupósti sem kominn er.
8.30 Fundur á 5. hæðinni með greiningardeildinni og farið yfir stöð-
una á markaðnum.
9.00 Sest aðeins inn á kaffistofu með samstarfsmönnum mínum.
9.30 Annar fundur með forstöðumanni mínum Kjartani Smára þar
sem farið er yfir verkefnastöðu, sumarfrí og ýmislegt.
10.30 Sest við borðið mitt til að undirbúa kynningu á
Lausafjárstýringu. Kynningin fer fram úti í bæ kl. 14.00
11.50 Skrepp í mat nánar tiltekið í Grasagarðinn, þar sem sólin skín,
og hitti vinkonur mínar. Skýst líka aðeins heim til að fara einn stuttan
hring með hundinn (má ekki vera einn heima allan daginn).
13.15 Kem aftur til vinnu og klára glæru-„showið“ sem ég þarf að
nota á fundi kl. 14.00.
14.00 Fundur með viðskiptavini.
15.30 Kem aftur á Kirkjusand eftir vel heppnaðan fund og fer yfir
niðurstöður með Kjartani Smára. Fer yfir póstinn minn og svara
skilaboðum áður en ég fer heim.
16.30 Legg af stað heim, kem við í versluninni Fylgifiskum og kaupi
á grillið. Hringi í Mettu dóttur mína og tek stöðuna á henni.
17.00 Stekk í hlaupagallann og fer með Matta (hundinn) í skokk
kringum Elliðavatn sem tekur rúman klukkutíma, skila dauðþreytt-
um hundinum heim. Fer svo í ræktina aðeins að lyfta lóðum.
19.30 Ætla að fara að grilla þegar síminn hringir og okkur mæðgum
er boðið í grillveislu til Elísabetar frænku. Dóttirin reyndar ekki
komin heim svo ég hinkra eftir henni. Set í vél á meðan og ryksuga
smá hunda- og kattahár.
20.00 Dóttirin mætt og við drífum okkur í Hafnarfjörðinn og spjöll-
um saman á leiðinni um hvernig dagurinn okkar leið. Hún er afar
glöð með daginn sinn.
22.30 Höldum heim á leið saddar og sælar, komum við á leiðinni og
náum í hundinn sem var í pössun hjá ömmu.
23.00 Geri allt klárt fyrir dóttur mína sem þarf að vakna eld-
snemma.
23.30 Dríf mig í rúmið (alltof seint) les aðeins í bókinni I Hate
Presentations eftir James Caplin. Sofna fljótlega út frá henni. (Þó
mjög áhugaverð bók.) AMEN …
KOLBRÚN fer yfir gögn með Haraldi Gunnarssyni samstarfsmanni FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Lagskonur heitir kvennaveiði-
hópur sem ég er í. Fastur liður
hjá okkur er að veiða saman í
Hítará í Borgarfirði einu sinni
á ári,“ segir Eygló Jónsdóttir
framkvæmdastjóri hjá Franca
ehf. almannatengslum.
Um veiðidelluna segir Eygló:
„Veiðiáhugann byrjaði ég að
fá fyrir um áratug síðan. Og
reyni ég nú að komast í nokkr-
ar veiðiferðir yfir sumarið.“
„Fluguveiði þyki mér mjög
skemmtileg. En öll útiveran
í kringum veiðina finnst mér
frábær. Veiðimennskan er
orðin eitt helsta sumarsport
fjölskyldunnar.“
Fyrir utan veiðimennsk-
una eru það gönguferðir sem
frístundirnar eru notaðir í.
„Lengi hefur staðið til að fara
á Fimmvörðuhálsinn en af því
varð fyrr í sumar helgina fyrir
Jónsmessunótt. Við hjónakorn-
in fórum með um tvö hundruð
manna hóp á vegum Útivistar
í næturgöngu, en farið var af
stað í þremur hollum.“
Næsta skipulagða göngu-
ferðin sem er fram undan er
ferð um Leggjarbrjót. Þá er
gengið frá Þingvöllum yfir til
Hvalfjarðar.
Hvað varðar ferðir utan
landsteinanna er Eygló nýkom-
in úr vikuferð til Danmerkur.
Þá var keyrt frá Kaupmanna-
höfn yfir til Álaborgar, þar
sem elsti sonurinn og tengda-
dóttir býr.
„Ég geri ráð fyrir að skot-
ist verði til Álaborgar með
litlum fyrirvara á næstunni,“
nefnir Eygló, sem varð lögleg
tengdamóðir nýverið eins og
hún orðar það, en í Álaborg var
brúðkaup sonarins haldið. - vg
EYGLÓ JÓNSDÓTTIR Eygló Jónsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Franca almannatengslum,
segir að fluguveiði sé allra skemmtilegasta veiðin. MARKAÐURINN/ANTON
Með veiðidellu í áratug
Eygló Jónsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Franca almannatengslum, veiðir í
Hítará í Borgarfirði með Lagskonum einu sinni á ári.
Vala Georgsdóttir
skrifar
„Ef þér líkar ekki veðrið núna bíddu þá bara í eina
mínútu og veðrið breytist,“ nefnir Finnur Jóhanns-
son, kvikmyndagerðarmaður og framleiðandi hjá
Truenorth, þegar hann vísar til frasa sem hann
þekkir úr kvikmyndagerðarbransanum.
Ráðgjafafyrirtæki Einars Sveinbjörnssonar, Veð-
urvaktin ehf., býður upp á veðurþjónustu í flestu
því sem viðkemur veðri og veðurfari. Verkefnin
eru fjölbreytt að sögn Einars og nefnir hann þar á
meðal sértækar veðurspár vegna byggingafram-
kvæmda eða viðburða, úrvinnslu veðurathugana og
ráðgjöf við skipulagsmál svo fátt eitt sé nefnt.
„Hver dagur í kvikmyndatökum kostar sitt. En
eftir því sem meira liggur undir skiptir sköpum að
menn séu að vinna við rétt veðurskilyrði,“ nefnir
Einar sem hefur komið töluvert að því að vinna veð-
urspár fyrir kvikmyndaiðnaðinn.
„Einar getur verið ansi naskur á veðrið, enda
þekkir hann vel til staðhátta,“ segir Aðalsteinn
Snorrason, arkitekt hjá Arkís, sem hefur átt marg-
ar samræður við Einar um skjólmyndun við hönn-
un bygginga og mannvirkja.
Að sögn Einars er oft auðvelt að grípa til aðgerða
til að draga úr óhagstæðum vindáttum. Eftir því
sem húsin eru hærri skapast meiri hætta á því að
óhagstæðir vindar myndist á milli húsanna. „Enda
geta vindsveipir beinlínis verið stórhættulegir,“
bendir Einar á.
Óveðurskaflinn sem reið yfir í byrjun árs varð
til að mynda til þess að menn fóru að huga að vind-
brjótum til að setja á milli húsa, sérstaklega á stöð-
um þar sem háhýsi eru.
„Íslenskt veðurfar er furðulegt,“ segir Finnur
og bendir á að þegar verið sé að undirbúa útitökur
fyrir bíómyndir eða auglýsingar sé gríðarlega mikil-
vægt að nýta sér ráðgjöf veðurglöggra manna.
Nýverið var Finnur við tökur á auglýsingu úti á
landi. Veðurskilyrði virtust góð þegar lagt var af
stað. En skyndilega kom úrhellisrigning og þá var
ráð að hringja í Einar og kanna stöðu mála: „Það er
rigning núna, hvernig verður veðrið eftir klukku-
tíma?“
FINNUR JÓHANNSSON Í kvikmyndagerð skiptir miklu að hitta á
réttar aðstæður í útitökum, líkt og Finnur Jóhannsson kvikmynda-
gerðarmaður bendir á. MARKAÐURINN/ARNÞÓR
Bíddu í eina mínútu
Veðurvaktin ehf. er ráðgjafafyrirtæki í eigu Einars Svein björnssonar veður-
fræðings. Þeir Finnur Jóhannsson, kvikmyndagerðarmaður og framleiðandi
hjá Truenorth, og Aðalsteinn Snorrason, arkitekt hjá Arkís, segja ráðgjöfina
sem þar er hægt að fá mikið þarfaþing.
EINAR SVEINBJÖRNSSON Einar, sem er landsmönnum að góðu kunnur sem veðurfræðingur, rekur fyrirtæki sem meðal annars býður
upp á sértækar veðurspár. Þær nýta sér til dæmis fyrirtæki þar sem tímasetning verkefna kann að ráðast af veðurfari. MARKAÐURINN/AUÐUNN