Fréttablaðið - 27.10.2008, Page 2
2 27. október 2008 MÁNUDAGUR
Matthías, ertu kannski trúaður
á laun?
Allavega ekki ofurlaun.
Matthías Ásgeirsson er formaður Vantrú-
ar. Hann gagnrýndi presta fyrir að hvetja
þjóðina til að spara þegar þeir sjálfir væru
á ofurlaunum.
FÆRÐ Björgunarsveitin Garðar á
Húsavík var kölluð til aðstoðar í
gærmorgun þegar flytja þurfti
sjúklinga af Heilbrigðisstofnun
Þingeyinga á Húsavík á Sjúkra-
húsið á Akureyri.
Mikið hefur snjóað á svæðinu
undanfarna daga og var ekki fært
fyrir sjúkrabíl yfir Víkurskarðið.
Þá var vegurinn um Dalsmynni
og Fnjóskadal lokaður vegna
snjóflóðahættu.
Farið var með sjúklingana á
tveimur björgunarsveitarbílum
en snjóruðningstæki ruddu
brautina. Ferðin sóttist vel og
sjúklingana sakaði ekki. - þo
Ófærð á Norðurlandi:
Vegir ruddir
fyrir sjúklinga
DANMÖRK Yfir fjörutíu manns voru
handteknir í tengslum við mótmæli
gegn flóttamannabúðunum í Sand-
holm í Danmörku nú um helgina.
Fjórir verða leiddir fyrir dómara í
Helsingjaeyri, þrjár konur og einn
karlmaður.
Mótmælin voru haldin undir
kjörorðinu „Lokið búðunum“. Til-
gangurinn var að mótmæla með-
ferð Dana á flóttamönnum, sem
sækja um hæli í Danmörku. Skipu-
leggjendur mótmælendanna segja
það vera ruddalega kynþáttamis-
munun að einangra flóttamenn í
sérstökum búðum og óþolandi sé að
hælisleitendur þurfi að bíða árum
saman eftir afgreiðslu mála þeirra.
Meira en þúsund manns tóku þátt
í mótmælunum, sem áttu að vera
friðsamleg. Hópur manna braust
þó í gegnum raðir lögreglumanna
og að girðingu búðanna, sumir með
vírklippur, og ætlaði að rjúfa girð-
inguna. Lögreglan beitti táragasi
gegn mótmælendum og á frétta-
myndum má sjá mikinn reyk á
svæðinu.
Í danska dagblaðinu Politiken er
haft eftir skipuleggjendum mót-
mælanna að þau hafi borið tilætlað-
an árangur: „Okkur tókst að vekja
athygli á aðstæðum flóttamanna.“
Þótt skipuleggjendurnir hafi
hvatt til friðsamlegra mótmæla
hvöttu þeir einnig mótmælendurna
til að fara í gegnum girðinguna og
klifra upp á þak búðanna og hrópa
þar mótmæli sín.
- gb
Hópur mótmælenda vekur athygli á meðferð flóttamanna í Danmörku:
Fjórir dregnir fyrir dómara
MÓTMÆLIN VIÐ SANDHOLM-BÚÐIRNAR
Lögreglan beitti táragasi á mótmælend-
ur við flóttamannabúðir skammt norður
af Kaupmannahöfn. NORDICPHOTOS/AFP
HELSINKI Árni Páll Árnason,
þingmaður Samfylkingarinnar,
gagnrýndi harkalega framgöngu
Breta gagnvart Landsbankanum og
Icesave-
reikningunum á
ráðstefnu
finnska þingsins
sem fram fór í
Helsinki í gær.
Ráðstefnan var
haldin í
tengslum við
þing Norður-
landaráðs sem
hefst í dag.
Fundarmenn
létu í ljós mikla samúð. Norðmenn
hafa þungar áhyggjur af málinu og
Árni Páll segir að varaforseti
Evrópuþingsins, breski þingmaður-
inn Dianna Wallis hafi sagt sér að
hún deildi ekki viðhorfi breskra
stjórnvalda.
Geir Haarde forsætisráðherra
mun í dag hitta forsætisráðherra
Norðurlandanna á fundi sem
helgaður er alþjóðlegu fjármála-
kreppunni.
- ghs
Ráðstefna í Helsinki:
Létu í ljós
mikla samúð
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu handtók í
gær karlmann sem grunaður er
um aðild að alvarlegri líkamsárás
í íbúðarhúsi við Hverfisgötu á
laugardagskvöld.
Fjórir hettuklæddir menn
ruddust þar inn og gengu í skrokk
á fjórum íbúum. Árásarmennirnir
voru á bak og burt þegar hún kom
á vettvang.
Tveir mannanna voru fluttir á
slysadeild með höfuðáverka en
hinir tveir, sem meðal annars voru
með brotnar tennur eftir átökin,
vildu ekki þiggja læknisaðstoð.
Lögregla leitar enn að þremur
árásarmönnunum. - þo
Líkamsárás á Hverfisgötu:
Einn tekinn,
þriggja leitað
BANDARÍKIN, AP Óháði forsetafram-
bjóðandinn Ralph Nader hefur
ekki verið mikið í fréttum, heldur
fallið nánast alveg í skuggann af
demókratanum Barack Obama og
repúblikananum John McCain.
Nader, sem er 74 ára, gerði sér
þó lítið fyrir á laugardaginn og sló
ræðumet. Hann segist hafa talað
samtals í að minnsta kosti 255
mínútur á 21 stað í Massachuss-
etts, sem dugir honum til að
komast í Heimsmetabók Guinness.
Hann byrjaði daginn klukkan
8.15 í Westfield, en lauk deginum
klukkan 23.30 í kosningateiti í
Sheffield. Þess á milli hafði hann
flutt ræður á matsölustöðum,
bókasöfnum og vinnustöðum víðs
vegar um ríkið í 15 mínútur til
hálftíma á hverjum stað. - gb
Þriðji frambjóðandinn:
Nader setti
ræðumet
RALPH NADER Býður sig fram til forseta
í 45 ríkjum Bandaríkjanna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STJÓRNMÁL „Þetta kemur kannski einhverjum á óvart
en ég held að þessi skoðun hafi verið að mótast á
síðustu mánuðum. Þeir atburðir sem hafa átt sér
stað á undanförnum vikum gera það að verkum að
fólk er orðið þeirrar skoðunar að nú megi engan
tíma missa,“ segir Valgerður Sverrisdóttir varafor-
maður Framsóknarflokksins.
Í ályktun sem samþykkt var á kjördæmisþingi
framsóknarmanna í norðausturkjördæmi um
helgina segir að í ljósi breyttra þjóðfélagsaðstæðna
skuli þegar hafinn undirbúningur að samningavið-
ræðum um inngöngu í Evrópusambandið og að
niðurstöðurnar skuli lagðar í þjóðaratkvæði.
Samþykktin gengur því lengra en fyrri hugmyndir
framsóknarmanna um að ganga til tvöfaldrar
þjóðaratkvæðagreiðslu, þar sem fyrst yrði kosið um
hvort hefja ætti viðræður yfirhöfuð.
Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins,
minnir á að umræðan hafi enn ekki verið tekin upp á
flokksþingi og því sé í raun engin niðurstaða komin í
málið.
„Þarna leggja menn beint til að það verði farið að
undirbúa aðildarumsókn sem flokkurinn hefur enga
afstöðu tekið til enn þá. Þetta sýnir að við lifum eins
og við séum á hverfanda hveli. Það er allt í uppnámi
í samfélaginu,“ segir Guðni sem vill dýpka umræð-
una.
„Þessi ályktun snýst þó um stóru spurninguna,
hverju viljum við Íslendingar fórna og hverju
viljum við ekki fórna. Við verðum fyrst að ná
samstöðu hér í þjóðfélaginu. Ég álít að við stökkvum
ekki í fangið á neinum við þessar aðstæður.“ - þo
Framsóknarmenn vilja flýta viðræðum um aðild að Evrópusambandinu:
Á skjön við vilja formannsins
GUÐNI ÁGÚSTSSON VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR
Bjargað tvisvar sama daginn
Þrjár björgunarsveitir Slysavarnafé-
lagsins Landsbjargar björguðu í gær
manni Héraðsmegin á Hellisheiði
eystri. Þar sat fólksbíll hans fastur, en
illskuveður var á svæðinu. Fyrr um
daginn hafði björgunarsveitin Hérað
sótt hann þegar hann lenti í vand-
ræðum á Öxi.
SAMGÖNGUR
EFNAHAGSMÁL Seðlabanki Íslands
hefði getað afstýrt óvissunni sem
ríkir um Icesave-reikningana í
Bretlandi og milliríkjadeilunni sem
upp er komin milli Breta og Íslend-
inga vegna þess máls með tilheyr-
andi álitshnekki fyrir Íslendinga.
Þetta segir Björgólfur Thor Björ-
gólfsson, einn af fyrrverandi eig-
endum Landsbankans, í viðtali sem
sýnt verður í fréttaskýringaþættin-
um Kompás í kvöld.
Hann segir að bresk yfirvöld hafi
boðist til að taka yfir alla Icesave-
reikninga degi áður en neyðarlögin
voru sett. Það var þó gegn því að
Landsbankinn greiddi 200 milljónir
punda, eða því sem nemur um 37
milljörðum króna, sem tryggingu.
Eftir að breska fjármálaeftirlitið
hafði lengi sýnt tregðu í málinu
urðu vatnaskil, að sögn Björgólfs,
sunnudaginn 5. október, en þá var
boðist til að koma Icesave úr
íslenskri lögsögu á fimm dögum.
Landsbankanum var veittur frestur
til hádegis næsta dags til að reiða
fram trygginguna svo að af þessu
mætti verða. Hann segir að beðið
hafi verið um lán til þess hjá Seðla-
bankanum gegn bestu hugsanleg-
um veðum. Seðlabankinn hafi hins-
vegar ekki virt Landsbankamönnum
svars þar til klukkan hálfeitt að
hádegi mánudags, 6. október, en þá
var þeim tilkynnt að þeir fengju
ekki lánið. „Við áttum sjálf nóg af
lausu fé. Það var hins vegar í
íslenskum krónum og það var engin
leið að nálgast gjaldeyri,“ segir
Björgólfur við Kompás.
Þetta segir hann jafnframt skýra
hörð viðbrögð Alistairs Darling,
fjármálaráðherra Breta. Darling
hafi talið að fyrst Íslendingar hafi
ekki veitt Landsbankanum trygg-
inguna hefðu þeir ekki í hyggju að
standa við skuldbindingar sínar
vegna Icesave.
Eiríkur Guðnason, einn þriggja
seðlabankastjóra, vildi ekki bregð-
ast við orðum Björgólfs í gær. „Ég
er í fríi í dag og ég er með gesti. Ég
fer ekki að fara í vinnuna núna.“
Sigurjón Árnason, fyrrum banka-
stjóri Landsbankans, segir Seðla-
bankann upphaflega hafa verið
beðinn um þúsund milljónir evra
vegna þess að Bretarnir báðu um
umtalsvert hærri fjárhæð. „Eftir
samningaviðræður náðum við að
lækka þá fjárhæð í 500 milljónir.
Hluta átti að nota í Icesave og rest-
ina í annað. En við vorum með eign-
ir upp á 2,5 milljarða evra á móti.
Þar á meðal voru ríkisskuldabréf,
kröfur á lífeyrissjóði og ýmsar
erlendar eignir. Það voru mikil
vonbrigði fyrir okkur að fá ekki
lánið. Ekki síst í ljósi þess að við
skulduðum Seðlabankanum ekki
krónu. “
Inntur eftir viðbrögðum við við-
talinu segir Össur Skarphéðinsson
iðnaðarráðherra: „Ég minnist þess
aldrei í lotunni að það hafi komið
beiðni til okkar í ráðherrahópnum
um slíkt lán. Hins vegar hlýtur
Seðlabankinn að svara fyrir sig.“
„Þessar upplýsingar Björgólfs
eru mjög athyglisverðar,“ segir
Ólafur Ísleifsson, lektor í hagfræði
við Háskólann í Reykjavík. „Og
þær hljóta að skoðast í því ljósi að
Seðlabankinn hafði einnig hafnað
Glitni um lán skömmu áður. Seðla-
bankinn hlýtur að gera grein fyrir
ástæðu fyrir ákvörðunum sínum
við fyrsta hentugleika.“
Leitað var án árangurs eftir við-
brögðum Geirs H. Haarde forsæt-
isráðherra, Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur utanríkisráðherra,
Árna Mathiesen fjármálaráðherra,
Ingimundar Friðrikssonar seðla-
bankastjóra og Þorgerðar K. Gunn-
arsdóttur menntamálaráðherra.
- jse, hhs
Segir flýtimeðferð hafa
strandað á Seðlabanka
Björgólfur Thor Björgólfsson segir að Seðlabankinn hefði getað afstýrt óviss-
unni um reikninga Icesave með því að veita Landsbankanum 30 milljarða lán.
BJÖRGÓLFUR ÁSAMT FYRRUM BANKASTJÓRUM LANDSBANKANS Í þætti Kompáss
sem sýndur verður í kvöld á Stöð 2 segir Björgólfur Thor Björgólfsson að Seðlabank-
inn hafi neitað bankanum um lán sem afstýrt hefði getað deilunni við Breta.
ÁRNI PÁLL
ÁRNASON
SPURNING DAGSINS