Fréttablaðið - 27.10.2008, Qupperneq 15
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
BÓKAHILLAN í barnaherberginu getur nýst á fleiri en
einn veg. Með smá málningu, nokkrum veggfóðurs- og
teppabútum og fjörugu hugmyndaflugi má breyta henni í
algjört draumadúkkuhús.
„Ég safnaði þjóðbúningadúkkum
í stórum stíl á yngri árum, en nú
hafa þær allar ratað í geymsluna
nema þessi japanska sem skipar
veigamikinn sess í stofunni,“
segir hönnuðurinn Ingibjörg
Hanna um heimilismun sem henni
áskotnaðist í Japan sem táningur.
„Þá bjó ég hjá japanskri fjöl-
skyldu í unglingaskiptum Lions.
Japanar eru með eindæmum gjaf-
mild þjóð og gauka í sífellu að
manni gjöfum án tilefnis, en eftir
fimm vikna dvöl þurfti ég að
senda til Íslands tvo fulla kassa af
ýmsum varningi sem mér hafði
borist í gjafaumbúðum,“ segir
Ingibjörg Hanna og brosir að
minningunni.
„Japanar eru fremstir meðal
jafningja í hvers kyns tækni og
þegar kveðjustundin nálgaðist
vildi japanska fjölskyldan gefa
mér nýjustu tegund steríógræja
að skilnaði. Ég átti náttúrlega
fermingargræjur heima í her-
bergi og þótti auk þess óþægilegt
að þiggja svo stóra gjöf, en ákvað,
úr því ég var að safna þjóðbún-
ingadúkkum, að gera þá mála-
miðlun að biðja um japanska
dúkku í staðinn,“ segir Ingibjörg
Hanna sem þá sá fyrir sér litla og
hógværa þjóðbúningadúkku, en
fékk í staðinn japanska geisju af
fínustu gerð í viðhafnar gler-
kassa. „Ég varð vitaskuld óskap-
lega hrifin, en þetta var örugg-
lega dýrasta týpan sem þau fundu
og þurfi sérflutning milli heims-
álfna,“ segir Ingibjörg Hanna
sem þessa dagana er í óðaönn að
fylgja hönnun sinni, Raven og Not
Rudolf herðatrjám og snögum úr
hlaði á Evrópumarkað.
„Ég er alltaf með eitthvað eftir
sjálfa mig í notkun heima og
hugsa hönnun mína mikið út frá
því sem mig sjálfa langar í eða
vantar.“
thordis@frettabladid.is
Geisja í stað steríógræja
Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir hönnuður fékk að kynnast örlæti Japana af eigin raun þegar hún varð hluti
af japanskri fjölskyldu á unglingsárunum og þurfti margar ferðir á pósthúsið til að senda gjafirnar heim.
Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir með geisjunni góðu og afsteypum af hönd og fæti eldri sonar síns en mótin fékk hún í BabySam og
gerði sjálf heima. Útkoman er afar nákvæm og skemmtileg til að snerta og skoða. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Einfaldur í notkun.
Geymir 30 mælingar í minni.
Skjár sýnir þrjú gildi samtímis:
púls, efri og neðri mörk.
Hlífðarbox fylgir með.
A
T
A
R
N
A
Blóðþrýstingsmælir
Blóðþrýstingsmælir á úlnlið.
Tilboðsverð: 5.900 kr. stgr.
Verð áður: 7.080 kr.
Boso-medistar S
Þriðjudaga og mmtudaga