Fréttablaðið - 04.11.2008, Blaðsíða 32
20 4. nóvember 2008 ÞRIÐJUDAGUR
NÝTT Í BÍÓ! NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500
SÍMI 564 0000
16
16
14
16
L
14
L
L
QUARANTINE kl. 8 - 10
MY BEST FRIENDS GIRL kl. 6 - 8 - 10
SKJALDBAKAN & HÉRINN kl. 6
16
14
L
QUARANTINE kl. 8 - 10.10
QUARANTINE LÚXUS kl. 5.50 - 8 - 10.10
MY BEST FRIENDS GIRL kl. 5.40 - 8 - 10.20
MAX PAYNE kl. 8 - 10.15
HOUSE BUNNY kl. 3.40 - 5.45
REYKJAVÍK-ROTTERDAM kl. 5.50 - 8 - 10.10
SKJALDBAKAN & HÉRINN kl. 4 - 6
LUKKU LÁKI OG DALTON BRÆÐUR kl. 3.45
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR
BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI
50 KR. AFSLÁTTUR EF ÞÚ
KAUPIR BÍÓMIÐANN Á
10
L
L
14
16
WHERE IN THE WORLD IS OSAMA BIN LADEN kl. 8 - 10
HÉR ER DRAUMURINN kl. 6 - 8 - 10
THE WOMEN kl. 5.30 - 8
REYKJAVÍK-ROTTERDAM kl. 5.40 - 10.10
BURN AFTER READING kl. 10.15
5%
5%
SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000
14
16
L
16
MY BEST FRIENDS GIRL kl. 5.45 - 8 - 10.15
MAX PAYNE kl. 8 - 10.15
HOUSE BUNNY kl. 5.50 - 8 - 10.10
BURN AFTER READING kl. 5.45 - 8 - 10.15
ENGIN MISKUNN. BARA SÁRSAUKI!
550kr.
fyrir börn
650kr.
fyrir fullorðna
KOMIN Í BÍÓ
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Í TÍMA
ÁLFABAKKA SELFOSS
AKUREYRI
KEFLAVÍK
KRINGLUNNI
HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 6 - 8 L
NIGHTS IN RODANTHE kl. 6 L
EAGLE EYE kl. 8 12
HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 8 L
SEX DRIVE kl. 8 - 10:20 12
BURN AFTER READING kl. 10:10 16
HSM 3 kl. 6D - 7:30 - 8:30D - 10:10 L
HIGH SCHOOL MUSICAL kl. 5:30 VIP
EAGLE EYE kl. 5:40 - 8 - 10:30 12
EAGLE EYE kl. 8 - 10:30 VIP
SEX DRIVE kl. 5:50 - 8 - 10:10 12
NIGHTS IN RODANTHE kl. 8 L
DARK KNIGHT kl. 10:10 vegna áskorana 12
GEIMAPARNIR m/ísl. tali kl. 6 L
ÞÚ HLÝÐIR, EF ÞÚ VILT LIFA!
Hörkuspennandi mynd frá STEPHEN SPIELBERG
MEÐ SHIA LABEOUF Í AÐALHLUTVERKI.„STÆRSTA OPNUN Á DANS & SÖNGVAMYND ALLRA TÍMA Í U.S.A“
HIGH SCHOOL MUSICAL kl. 5:40 - 8 - 10:30 L
EAGLE EYE kl. 8 - 10:30 12
SEX DRIVE kl. 8:20 - 10:30 12
JOURNEY 3D kl. 5:50 L
WILD CHILD kl. 5:50 L
DIGITAL
DIGITAL
DIGITAL-3D
HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 8 L
MAX PAYNE kl. 10:10 16
HAPPY GO LUCKY kl. 8 14
BANGKOK DANGEROUS kl. 10:10 16
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ 500 KR
- bara lúxus
Sími: 553 2075
QUARANTINE kl. 6, 8 og 10 16
EAGLE EYE kl. 8 og 10.15 16
SKJALDBAKANN OG HÉRINN kl. 6 (650 kr.) - ÍSL.TAL L
REYKJAVÍK ROTTERDAM kl. 10 12
MAMMA MIA kl. 6 og 8 L
TEKJUHÆSTA MYND ALLRA
TÍIMA Á ÍSLANDI
ATH! 650 kr.
Alls ekki fyrir viðkvæma!
Rokktríóið 200.000 naglbítar
ætlar með Lúðrasveit verkalýðs-
ins til Akureyrar til að spila í
Íþróttahöllinni 15. nóvember
næstkomandi. Villi naglbítur
lætur kreppuhjalið ekkert stoppa
sig.
„Það er mikilvægt að tónlistar-
menn standi sig vel þegar svona
árar,“ segir hann. „Þeir verða að
gefa fólki tækifæri til að fara út,
standa saman og hlusta á góða
tónlist.“
Að sögn Villa er verkefnið –
tvennir tónleikar, plata og heim-
ildarmynd – mjög dýrt. Fyrri
tónleikarnir fóru fram á Menn-
ingarnótt en platan og heimildar-
myndin ættu að vera tilbúin í
tæka tíð fyrir tónleikana fyrir
norðan. Skortur á stöndugum
bakhjörlum er ekkert að flækjast
fyrir Villa. „Mjög margir sem
lýstu yfir áhuga á að styrkja
okkur hafa nú dregið í land,“
segir hann. „Í staðinn hafa tvö
góð norðlensk fyrirtæki hlaupið
undir bagga, Norðurorka og Goði.
Eins er Akureyrarbær mjög
jákvæður. Það þarf að koma sex-
tíu manns norður og smíða hundr-
að fermetra svið. Menn redda sér
bara. Palli túbuleikari ætlar til
dæmis að leigja rútu og keyra
okkur norður. Félag bókagerðar-
manna ætlar að leggja til hús-
næði. Goði splæsir svo á okkur
kjötsúpu í sándtékkinu.“
Villi segist stoltur af því að
þetta bauk rokkaranna með lúðra-
sveitinni hafi blásið miklu lífi í
sveitina. „Það voru 25 virkir
félagar í sveitinni þegar við byrj-
uðum samstarfið í byrjun árs, en
nú eru félagarnir orðnir 56. Þó að
þetta verði ekki til annars en að
helmingi fleiri félagar marseri
niður Laugaveginn 1. maí næst
þá er ég ánægður.“
Miðasala á tónleikana er hafin
á midi.is og er miðaverð 2.500
krónur.
Naglbítar blása lífi í lúðrasveitina
MENN REDDA SÉR BARA 200.000
naglbítar og Lúðrasveit verkalýðsins.
LJÓSMYND/ARI MAGG
Þjóðarsálin hans Jóns míns fagnar
tvítugsafmæli sínu á þessu ári og
fer mikinn af því tilefni. Auk þess
að slengja spánnýjum dægurflug-
um framan í þakklátan lýðinn með
reglulegu millibili voru allar breið-
skífur sveitarinnar endurútgefnar
í tveimur sérlega veglegum köss-
um í vor, og nú er komið að þre-
faldri safnplötu með helstu smell-
um sveitarinnar og meðfylgjandi
heimildarmynd um farsælan feril-
inn. Raunar birtist heimildarmynd-
in Hér er draumurinn í þremur
útgáfum; stuttri sem verður sýnd á
Stöð 2, langri sem fylgir safnplöt-
unni og svo millilangri sem sýnd
var í bíó um síðustu helgi. Vonandi
hefur tekist betur til með styttri og
lengri útgáfu myndarinnar en þá
sem sýnd var í bíó, því sú er bæði
bit- og kraftlaus og þjónar afar tak-
mörkuðum tilgangi.
Heldur fátítt er að ráðist sé í
gerð heimildarmynda um íslensk-
ar hljómsveitir og ber því að lofa
framtakið sem slíkt. En best
heppnuðu myndunum úr þessum
geira hefur tekist að forðast það
sem einna helst gerir Hér er
draumurinn að svo miklum von-
brigðum sem raun ber vitni; hvim-
leiða upptalningu á plötum, ártöl-
um, lögum og mannabreytingum í
tímaröð. Þau sárafáu skipti sem
persónuleikum meðlima Sálarinn-
ar er leyft að láta ljós sitt skína í
viðtölum lyfta myndinni svo um
munar upp úr rútínunni, en aðeins
um stundarsakir. Það er mikil
synd, því eftir tveggja áratuga
feril er á hreinu að safaríkar
bransasögurnar frá þessum húm-
oristum hefðu nægt í yfir hundrað
heimildarmyndir.
Gömul myndskeið af tónleikum,
úr fjölmiðlum eða prívat upptök-
um geta reynst myndum af þessu
tagi óþrjótandi brunnur. Hér er
draumurinn nýtir hann fremur
illa, þótt vissulega megi hafa
gaman af sumri nostagíunni sem
boðið er upp á. Vandinn er að ekki
er kafað nógu djúpt og því virkar
myndin mestan part eins og hluti
af kynningarefni („press-kitti“)
fyrir nýja plötu. Allt of yfirborðs-
kennd og gljáandi. Hvar er frægt
æðiskast Stefáns Hilmarssonar
eftir að áhorfandi stal derhúfunni
hans á tónleikum, sem náðist á
filmu og var sýnt í fyrri heimildar-
myndinni (Garg frá 1992)? Hvers
vegna er ekki minnst einu orði á
misheppnuð hliðarspor með-
limanna á borð Pláhnetuna og end-
urreisn Pelican? Var ómögulegt að
gabba þó ekki væri nema einn af
óteljandi fyrrverandi trommurum
sveitarinnar í viðtal? Til að svona
mynd gangi upp verður hreinlega
að minnast á mistökin ekki síður
en sigrana. Breyskleikinn er nauð-
synlegur hluti sögunnar.
Ef til vill verða öll þessu
umkvörtunarefni óþörf þegar
lengri útgáfan kemur út á DVD, en
bíóútgáfunni tekst ekki að kveikja
nýjan neista fyrir Sálinni. Ein vin-
sælasta hljómsveit Íslandssögunn-
ar á betra skilið. Kjartan Guðmundsson
Vondur draumur, maður!
KVIKMYNDIR
Hér er draumurinn
Sýnd í Háskólabíói (styttri útgáfa
á Stöð 2 og lengri útgáfa á DVD).
★★
Heimildarmyndin um Sálina hans
Jóns míns er ágætlega unnin tækni-
lega en vantar allan persónuleika.
Fleiri sögur á kostnað hvimleiðrar
upptalningar hefðu bætt miklu við.
Blaðafulltrúi Joaquins
Phoenix hefur staðfest að
kvikmyndin Two Lovers
verði hans síðasta mynd
á ferlinum. Hann ætli að
snúa sér alfarið að tónlist í
framtíðinni.
Joaquin Phoenix er hættur að
leika. Þessar fréttir hafa komið
kvikmyndaheiminum í opna
skjöldu. Enda hafði Phoenix end-
anlega tryggt sér stöðu meðal
þeirra bestu með frammistöðu
sinni í Walk the Line. Þar lék
Phoenix sjálfan Johnny Cash,
manninn í svörtu. Og uppskar
meðal annars Golden Globe-verð-
launin og tilnefningu til Óskars-
verðlauna. Allt lítur út fyrir að sú
kvikmynd hafi haft það mikil
áhrif á Phoenix að hann hafi
ákveðið að segja endanlega skilið
við kvikmyndalistina. Og einbeita
sér að tónlist. Hins vegar má einn-
ig gera ráð fyrir að andlát besta
vinar hans, Heath Ledger, hafi
einnig haft mikið að segja um
þessa ákvörðun.
Fram kemur hjá blaðafulltrúa
leikarans að hann hafi að undan-
förnu leikstýrt tónlistarmynd-
böndum og sökkt sér ofan í þá list-
grein.
Phoenix byrjaði snemma að
leika, fyrsta opinbera hlutverkið
fékk hann átta ára gamall í sjón-
varpsþáttunum Seven Brides for
Seven Brothers. Leikarinn gekk
þá undir nafninu Leaf. Phoenix sló
eiginlega fyrst í gegn í kvikmynd
Gus Van Sant, To Die For, árið
1995. Og á Van Sant því heiðurinn
að því að hafa gert þá bræður,
River og Joaquin, að stjörnum. En
River lék einmitt aðalhlutverkið í
My Own Private Idaho.
Joaquin náði loks að slíta sig frá
nafni bróður síns með frammi-
stöðu sinni í Gladiator. En þar fór
hann með hlutverk hins valda-
sjúka og illa Commodus. Phoenix
tók síðan upp samstarf við ind-
verska leikstjórann M. Night Shy-
amalan og lék í bæði Signs og The
Village. freyrgigja@frettabladid.is
Phoenix er hættur að leika
HÆTTUR Stórleikarinn Joaquin Phoenix er hættur að leika eftir tæp 25 ár í bransan-
um. Hann ætlar að snúa sér að tónlist í framtíðinni. Hér er hann í hlutverki Johnny
Cash í Walk the Line.