Fréttablaðið - 04.11.2008, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 04.11.2008, Blaðsíða 30
18 4. nóvember 2008 ÞRIÐJUDAGUR NOKKUR ORÐ Freyr Gígja Gunnarsson ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Undanfarið hefur sú tilfinning vaxið ásmegin að ég sé staddur í kvikmynd. Ekki bara hvaða kvikmynd sem er heldur hefur mér þótt ég vera í Terminator 2. Og búið sé að hleypa Söruh Connor út. Heimurinn sem Sarah sá var að hverfa. Þurrkast út. Hún vissi að það myndi taka áratugi að byggja upp nýtt samfélag úr rústunum. Það myndi kosta stríð og mannfórnir. Þegar hún reyndi að vara alla við var hún sett inn á geðveikra- hæli. Látin dúsa þar inni árum saman. Sögð hafa ofskynjanir. Sarah reyndi að þjálfa son sinn. Reyndi að telja honum trú um að þetta væri allt að fara á versta veg. En sonurinn gaf lítið fyrir skýringar móður sinnar. Taldi hana vera geðveika. Og fór að leika sér á mótorhjólinu með Guns ‘n‘ Roses í eyrunum. Kannski að Ísland hafi bara verið John Connor á unglingsárunum. Neitaði að hlusta. Vildi bara miklu frekar leika sér á bensínfrekum leiktækjum. Mamman hlyti bara að vera geðveik, heimurinn var nefnilega bara svo fínn og góður eins og hann var. En svo kom Tortímandinn. Brá sér í allra kvikinda líki. Lagði allt í rúst. Sarah Connor hlýtur að hafa orðið fegin. Fyrir þó ekki annað en að geta loks fært sönnur á það að vera ekki geðveik. En um leið hrygg yfir því að enginn skyldi hlusta á hana. Og að sá eini sem gæti bjargað henni og heiminum um stundarsakir væri gamli Tortím- andinn. Hljómar kunnuglega. Enda átti Sarah erfitt með að treysta Adda Svakanagg. Tortímingar-Ísland Ertu með eitthvað við mjög þurrum hársverði? Apótek Lyfseðlar Fyrirgefðu, en er þetta barn ekki of gamalt til Jæja Maggi, við eigum við vandamál að stríða! Sko! Ef þetta snýst um eldsvoðann í kjallaranum í síðustu viku þá get ég... Var eldsvoði í kjallaranum? Uuu... Nei nei... Jæja, vanda- málið... Almáttugur, hann veit um bananann í púströrinu á bílnum! Ég er dauður! haltu bara áfram! Mamma Manstu hvað það var sem þú hreifst af við pabba? Það var... Var það hár- toppurinn sem hann reyndi að greiða yfir ennið? Eða of litlu fæturnir hans?Eða var það eitthvað annað? Hmm Hvað fékk þig til að segja: „Þetta er það sem ég vil vakna upp við hliðina á það sem eftir er ævinnar?“ Hvað? Ég er viss um að kettir eiga fullt af góðum ráðum og mikilvægum boðskap sem við myndum skilja ef við gæfum okkur tíma til að hlusta. Skelltu þessu í þig... Barn? Hvaða barn? að vera á brjósti? Aaaaaaaaaaaa! Það er barn þarna undir! Híhí! Þetta var fyndið mamma! Þetta rekur þær forvitnu alltaf burt. ESKIMOS G ot t Fó lk

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.