Fréttablaðið - 04.11.2008, Blaðsíða 4
4 4. nóvember 2008 ÞRIÐJUDAGUR
UTANRÍKISMÁL Norðmenn hafa
ákveðið að bjóða Íslendingum lán
upp á 4 milljarða norskra króna,
eða sem svarar um 75 milljarða
íslenskra króna, til að vinna bug á
efnahagskreppunni hér á landi. Þá
hefur seðlabanki Noregs ákveðið
að veita Seðlabanka Íslands lán að
fjárhæð 500 milljónir evra til allt
að fimm ára að því tilskildu að ríkið
gangi í ábyrgð. Lán sem Seðlabank-
inn hefur tekið í gegnum gjaldeyr-
isskiptasamning bankanna verður
framlengt út árið 2009.
Jonas Gahr Støre, utanríkisráð-
herra Noregs, var í opinberri heim-
sókn hér á landi í gær. Hann sagði
að Íslendingar gætu ekki unað því
að myntin virkaði ekki og því væri
mikilvægt að fá stuðning. Það hafi
verið gott hjá Íslendingum að leita
til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins því að
þá berist stuðningur frá öðrum
löndum, þar á meðal hinum
Norðurlandaþjóðunum.
Á miðvikudag verður fundur í
embættismannanefndinni, sem
stofnað var til á Norðurlandaráðs-
þingi í Helsinki í síðustu viku. Gahr
Støre segist ekki vita hvort teknar
verði ákvarðanir um stuðning þjóð-
anna því hann viti ekki hvað sé
skipulagt í Kaupmannahöfn og
Stokkhólmi. Norðmenn hafi viljað
lýsa yfir stuðningi við Íslendinga
vel tímanlega og þeir ætli að vinna
að því að Íslendingar fái norrænan
stuðning. Engan tíma megi missa.
Hann vonast til þess að hinar þjóð-
irnar hugsi með svipuðum hætti.
„Það er mikilvægt að fá sem
fyrst fé til að koma íslensku krón-
unni aftur í gang,“ segir hann. „Það
er mikilvægt að Alþjóðagjaldeyris-
sjóðurinn geti sem fyrst gefið
stimpil á aðgerðirnar.“
Gahr Støre hitti Geir H. Haarde
forsætisráðherra í gær. Forsætis-
ráðherra lýsti yfir að hann hefði
falast eftir því að Norðmenn tækju
að sér milligönguhlutverk í deilu
Íslendinga við Breta vegna Icesa-
ve-reikninganna, hugsanlega einn-
ig Holland. Hann kveðst einnig
hafa rætt þetta við fulltrúa Breta
og þeir hafi ekki tekið illa í það.
Gahr Støre segir að Norðmenn
taki ekki afstöðu í deilu Íslendinga
við Breta og að þeir muni ekki neita
því að miðla málum ef báðar þjóðir
óski þess. Hann segist hafa rætt
málið við fulltrúa Breta á Íslandi.
Norðmenn verði að fá yfirsýn yfir
málið áður en hann geti sagt nokk-
uð. Málið sé viðkvæmt hjá báðum
þjóðum og fjármálin verði að
leysast milli þessara þjóða.
Gahr Støre ræddi málin á fundi
Samfylkingarinnar í gær.
ghs@frettabladid.is
Norðmenn vilja
lána fjóra milljarða
Norðmenn lána Íslendingum 4 milljarða norskra króna, eða 500 milljónir evra,
til fimm ára. Gjaldeyrisskiptasamningur seðlabankanna verður framlengdur út
árið 2009. Norðmenn eru reiðubúnir að miðla málum í deilunni við Breta.
STIMPILL FÁIST SEM FYRST Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs, segir að
mikilvægt sé að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn geti sem fyrst gefið stimpil á björgunar-
aðgerðirnar á Íslandi. Hann segir að engan tíma megi missa. Hann ræddi málin á
fundi Samfylkingarinnar í Iðnó í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ranglega var sagt í myndatexta í blað-
inu á sunnudag að Commerzbank
krefðist gjaldþrotaskipta Straums. Líkt
og segir í meginmáli fréttarinnar var
átt við Samson, félag í eigu Björgólfs-
feðga.
LEIÐRÉTTING
UTANRÍKISMÁL Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir utanríkisráðherra og
Jonas Gahr Støre, utanríkisráð-
herra Noregs, undirrituðu í gær
samning landanna um kolvetnis-
auðlindir sem liggja yfir marka-
línur landanna.
Í samningnum er kveðið á um
að semja skuli um skiptingu og
nýtingu þegar kolvetnisauðlind er
á landgrunni beggja landanna.
Ráðherrarnir undirrituðu
einnig samkomulag um fjórðungs
þátttökurétt landanna í olíustarf-
semi á hvort annars hluta á
sameiginlegu nýtingarsvæði
landanna við Jan Mayen. - ghs
Noregur og Ísland:
Samningur um
auðlindirnar
UNDIRRITUN Jonas Gahr Støre, utanríkis-
ráðherra Noregs, og Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir utanríkisráðherra undirrita
samning milli þjóðanna.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KARLSSON
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
18°
13°
16°
14°
11°
15°
14°
13°
11°
12°
23°
15°
18°
27°
5°
15°
22°
7°
4
4
4
6
5
5
5
6 7
5
710
6 5
8
8
8
10
13
6
8
6
13
7
8
9
8
8
4
3
5
Á MORGUN
8-15 m/s vestan til, annars
mun hægari.
FIMMTUDAGUR
3-8 m/s, stífastur eystra.
9
HVASST VESTAN TIL Í
KVÖLD OG NÓTT
Mjög kröpp og djúp
lægð nálgast landið í
dag. Strax um hádegi
verður komin stíf suð-
austan átt á landinu
vestanverðu og þar
mun bæta í stöðugt
í dag og kvöld. Í nótt
má búast við suðaust-
an stormi vestanlands
og á hálendinu.
Annars staðar verður
vindur hægari. Þessari
lægð fylgja hlýindi
og væta um mestallt
land.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
DÓMSMÁL Hæstiréttur staðfesti
nýlega dóm Héraðsdóms Vest-
fjarða yfir karlmanni á fertugs-
aldri sem dæmdur var í sex
mánaða fangelsi fyrir kynferðis-
brot gegn fjórtán ára stúlku.
Maðurinn er einnig dæmdur
fyrir áfengislagabrot, fyrir að
hafa veitt stúlkunni og vinkonu
hennar áfengi. Ennfremur var
einnig dæmdur fyrir umferðar-
lagabrot en lögreglan stöðvaði
manninn þar sem hann ók án
ökuréttinda. Með þessum brotum
sínum rauf maðurinn skilorð og
voru málin dæmd saman.
Þá er manninum gert að greiða
stúlkunni 150 þúsund krónur í
miskabætur auk rúmlega 350
þúsund króna í áfrýjunarkostnað,
þar með talin málsvarnarlaun
verjanda síns. - ovd
Hæstiréttur staðfestir dóm:
Braut gegn fjór-
tán ára stúlku
Veltu pallbíl í Þingvallasveit
Tveir menn voru fluttir með sjúkrabíl
á slysadeild í gærmorgun eftir að þeir
veltu pallbíl sínum á Grafningsvegi við
Heiðabæ í Þingvallasveit. Mennirnir
eru ekki taldir alvarlega slasaðir.
Hraðakstur við Hvolsvöll
Lögreglan á Hvolsvelli stöðvaði
sjö ökumenn fyrir að aka of hratt í
umdæmi sínu í síðustu viku. Sá sem
hraðast ók var á 137 kílómetra hraða
þar sem 90 er hámarkshraði.
Þrír teknir ölvaðir við stýri
Lögreglan á Selfossi tók þrjá
ökumenn um síðustu helgi fyrir að
aka undir áhrifum áfengis auk þess
sem þrír ökumenn voru teknir fyrir
hraðakstur.
LÖGREGLUFRÉTTIR
STJÓRNMÁL Valgerður Sverrisdóttir,
varaformaður Framsóknarflokks-
ins og þingmaður í Norðausturkjör-
dæmi, segist enn telja miklar líkur
á að Alcoa reisi álver á Bakka við
Húsavík þótt tafir verði á fram-
kvæmdum.
Ákveðið var fyrir helgi að fresta
rannsóknarborunum og verða
ákvarðanir um framhald teknar að
ári. „Þetta eru gríðarleg vonbrigði,“
segir Valgerður sem þó bindur
vonir við að af verkefninu verði.
Fari þó svo að af því verði ekki sé
mikilvægt að vita það sem fyrst
svo hægt verði að finna nýja sam-
starfsaðila um nýtingu jarðhita-
orkunnar á Norðausturlandi.
Í yfirlýsingu
aðstandenda
Bakkaverkefn-
isins segir að
frestunin sé til
komin „meðal
annars vegna
óvissuástands á
fjármálamörk-
uðum“. Valgerð-
ur segir að hið
alþjóðlega
ástand hafi vissulega sitt að segja
en framkoma stjórnvalda gagnvart
verkefninu hafi ekki verið þeim til
sóma. „Það hefur sitt að segja að
stjórnvöld bökkuðu verkefnið
aldrei almennilega upp,“ segir hún.
Í síðustu viku var líka upplýst að
útboð framkvæmda við Vaðlaheið-
argöng frestist. Töf á undirbúningi
og breytt staða í efnahagsmálum
eru sagðar ástæðurnar.
Valgerður furðar sig á aðferða-
fræðinni enda eigi ríkið ekki að
draga úr framkvæmdum sem þess-
ari á samdráttartímum. „Ráðherr-
ann [Kristján L. Möller samgöngu-
ráðherra] hefur fjárfest í þessu
verkefni með stórum orðum þannig
að ég yrði mjög undrandi ef þetta
er það fyrsta sem stjórnvöld slá af.
Vaðlaheiðargöngin eru augljóslega
mjög arðbær framkvæmd sem að
auki er að hluta til einkafram-
kvæmd.“ - bþs
Óvissa ríkir um stórframkvæmdir í atvinnu- og samgöngumálum á Norðurlandi:
Þetta eru gríðarleg vonbrigði
VALGERÐUR
SVERRISDÓTTIR
SUÐUR-AFRÍKA, AP Jacob Zuma,
leiðtogi Afríska þjóðarráðsins,
fer ófögrum orðum um nýjan
stjórnmálaflokk, sem stofnaður
verður í desember.
Nýi flokkurinn er klofnings-
flokkur út úr þjóðarráðinu þar
sem töluverð ólga hefur myndast
eftir að Zuma tók við af Thabo
Mbeki nýverið. Nýi flokkurinn
stefnir á sigur í þingkosningum á
næsta ári, sem þó þykir ólíklegt
vegna yfirburðastöðu Afríska
þjóðarráðsins. - gb
Nýr flokkur í Suður-Afríku:
Afríska þjóðar-
ráðið klofnar
EFNAHAGSMÁL Efnahags- og
alþjóðafjármálaskrifstofa hefur
verið sett á fót í forsætisráðu-
neytinu. Skrifstofustjóri er Björn
Rúnar Guðmundsson sem áður
vann í Landsbankanum og þar
áður í Þjóðhagsstofnun og
fjármálaráðuneytinu.
Þótt forsætisráðuneytið eigi að
fara með hagstjórn samkvæmt
reglugerð um Stjórnarráð Íslands
hefur það ekki haft sérstaka
efnahagsskrifstofu innan sinna
vébanda. Hefur málaflokkurinn
fallið undir almenna skrifstofu
ráðuneytisins ásamt til dæmis
alþjóðamálum og málefnum
ríkisstjórnar og ríkisráðs. - bþs
Forsætisráðuneytið eflir sig:
Efnahagsmálin
í sérstaka deild
GENGIÐ 03.11.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
216,0081
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
124,18 124,78
201,38 202,36
159,55 160,45
21,424 21,55
18,847 18,957
16,2 16,294
1,2502 1,2576
185,02 186,12
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR