Fréttablaðið - 04.11.2008, Blaðsíða 6
6 4. nóvember 2008 ÞRIÐJUDAGUR
„Barry er sá eini sem sagðist vilja verða forseti,“ segir
Murtiningsi, tæplega sjötug kona á Indónesíu, sem var
kennari Baracks Obama þegar hann var átta ára. „Ég
vona að draumur hans rætist.“
Hún fylgist grannt með atburðunum í Bandaríkjunum,
rétt eins og aðrir kennarar, samnemendur og fyrrver-
andi nágrannar Obama á Indónesíu, þar sem hann bjó í
nokkur ár í æsku.
Í Kenía fylgjast einnig ættingjar Obama spenntir með
kosningunum. Margir þeirra hafa verið tíðir gestir heima
hjá ömmu hans í þorpinu Kogelu.
„Allir eru óskaplega ánægðir og spenntir og hlakka til
að halda fögnuð daginn eftir kosningarnar,“ segir Malik
Obama, hálfbróðir forsetaefnis bandaríska Demókrata-
flokksins.
Víða um heim birtu dagblöð í gær ýmsar útgáfur af
stuðningsyfirlýsingu við Obama. Hann „á skilið að sigra“
sagði til dæmis leiðarahöfundur írska dagblaðsins The
Irish Times í gær.
„Obama er besta vonin um endurreisn Bandaríkj-
anna,“ sagði í leiðtoga ástralsks fjármálablaðs og í Sam-
einuðu arabísku furstadæmunum sagði leiðarahöfundur
dagblaðsins Gulf Times að Obama geti „lagfært þann
mikla skaða sem Bush-stjórnin hefur unnið á ímynd
Bandaríkjanna“. - gb
Heimurinn fylgist spenntur með bandarísku forsetakosningunum:
Flestir halda með Barack Obama
VINSÆLL Í KENÍA Á heimaslóðum ömmu Obama í Kenía
mátti sjá þennan mann með veglegan hatt skreyttan mynd-
um og fréttum af Barack Obama. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BANDARÍKIN Demókratinn Barack
Obama og repúblikaninn John
McCain hafa verið á stöðugum
ferðalögum síðustu daga um svo-
nefnd lykilríki, þar sem mjótt er á
mununum um hvor þeirra muni
sigra.
Sannkölluð tímamót yrðu fólgin í
því að Bandaríkjamenn fengju í
fyrsta sinn forseta sem er dökkur á
hörund og á ættir sínar að rekja til
Afríku. Sú staða ein og sér myndi
ekki aðeins breyta ímynd Banda-
ríkjanna út á við, heldur gæti hún
haft víðtækari áhrif innan Banda-
ríkjanna.
Kosningabaráttan hefur verið
söguleg og úrslitanna er beðið af
mikilli eftirvæntingu. Obama
hefur verið býsna sigurviss undan-
farið, en McCain segist sannfærð-
ur um að eiga enn möguleika á sigri
þrátt fyrir að skoðanakannanir sýni
flestar annað.
Spurningin er ekki síst sú, hvort
skoðanakannanirnar séu áreiðan-
legar eða hvort einhver innbyggð
skekkja sé í þeim sem gæti skilað
sér í harla óvæntum úrslitum.
Til dæmis skapar fjöldi nýrra
kjósenda í þessum kosningum
nokkra óvissu, auk þess sem til-
hneiging gæti verið hjá fólki að
svara þvert um hug sér þegar
spurt er hvort það ætli að kjósa
þeldökkan frambjóðanda, og nið-
urstaðan á kjörstað yrði því allt
önnur en skoðanakannanir gefa til
kynna.
Samkvæmt skoðanakönnunum
hefur Obama á lokasprettinum um
það bil sjö prósenta forskot á
McCain á landsvísu, en í reynd eru
það kosningarnar í hverju ríki sem
ráða úrslitum. Obama þykir nokk-
uð öruggur um að fá meirihluta í
öllum þeim ríkjum þar sem flokks-
bróðir hans John Kerry vann sigur
á George W. Bush árið 2004. Það
myndi tryggja honum 252 atkvæði,
sem þýðir að hann vantar aðeins 18
atkvæði frá hinum ríkjunum sem
kusu Bush fyrir fjórum árum til að
ná þeim 270 atkvæða meirihluta
sem þarf til sigurs á kjörmanna-
samkomunni, þar sem formlegt
kjör forseta fer fram.
McCain þyrfti hins vegar bæði
að ná sigri í eins mörgum Bush-
ríkjum og mögulegt er, auk þess
sem hann þarf að ná til sín ein-
hverju af þeim ríkjum sem síðast
kusu demókratann Kerry. Þar þykir
muna mest um Pennsylvaníu, auk
þess sem tap í Ohio, Flórída eða
Virginíu gæti orðið honum að falli.
Næsti forseti, hvort sem hann
verður Obama eða McCain, á hins
vegar ekki í vændum sjö dagana
sæla. Meðal erfiðra verkefna, sem
hann þarf að takast á við, er efna-
hagsvandinn, sem er svartari en
sést hefur í háa herrans tíð, og svo
þarf hann að finna einhverja leið út
úr stríðinu í Írak.
gudsteinn@frettabladid.is
Úrslitastund nálgast
í sögulegri baráttu
Sögulegri og óvenjulangri kosningabaráttu lýkur í dag þegar Bandaríkjamenn
kjósa sér forseta. Mikil spenna ríkir um úrslitin þrátt fyrir að skoðanakannanir
hafi lengi bent til þess að Barack Obama eigi sigurinn svo gott sem vísan.
Wisconsin 10 Michigan New Hampshire 4
WA
11
OR
7
CA
56
NV
6
ID
4
MT
3
ND
3
WY
3
UT
6 CO
9
NM
6
AZ
10
TX
34
OK
7
KS
6
NE
5
SD
3
MN
10
IA
7
WI
10
IL
21
MO
11
AR
6
LA
9
MS
6
AL
9
GA
15
SC
8
FL
27
TN 11
NC
15
KY 8
IN
11
MI
17
OH
20
PA
21
ME
4
NY
31
VA
15
WV
15
AK
3
HI
4
NH
3
VT
3
MA
12
RI
4
CT
7
NJ
15
DE
3
MD
10
DC
3
McCain
öruggur
McCain
stendur vel
Barátturíki Obama
öruggur
Obama
stendur vel
Bandarískir kjósendur velja ekki forseta og
varaforseta í beinni kosningu, heldur er í
hverju ríki fyrir sig kosinn ákveðinn fjöldi
kjörmanna. Flest ríkin hafa það fyrirkomu-
lag að allir kjörmenn þess falla í skaut þess
frambjóðanda sem fær flest atkvæði.
Forsetakjör í Bandaríkjunum
Repúblikanar: McCain/Palin Demókratar: Obama/Biden
© GRAPHIC NEWS
157 30675Kjörmannafjöldi
270
Atkvæði þarf til að ná meirihluta á kjörmannaþingi
HEIMILD: WWW.REALCLEARPOLITICS.COM
McCain Naumur munur Obama
Er rétt að þjóðin fái að ganga
til kosninga innan skamms?
Já 66,6%
Nei 33,4%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Telur þú að eigendur íslenskra
fjölmiðla hafi áhrif á efnistök
þeirra?
Segðu þína skoðun á visir.is
®
Auglýsingasími
– Mest lesið
SÖFNUN Fermingarbörn úr 65
sóknum í öllum landshlutum
gengu í hús í gær til að safna pen-
ingum til verkefna Hjálparstarfs
kirkjunnar í fjórum löndum Afr-
íku. Börnin ganga aftur í hús í
dag, milli klukkan 17.30 og 21.
Í tilkynningu frá Hjálparstarfi
kirkjunnar segir að árlega fræði
starfsfólk kirkjunnar um þrjú
þúsund fermingarbörn um
aðstæður í fátækum löndum Afr-
íku. Áhersla sé lögð á fræðslu um
skort á hreinu vatni og árangur
af verkefnum hjálparstarfsins.
Með söfnunum sem þessari fái
fermingarbörnin tækifæri til að
leggja sitt af mörkum en þetta er
í tíunda sinn sem söfnunin er
haldin.
„Það skiptir kannski ekki öllu
máli hversu mikið fólk gefur
heldur skiptir máli sá hugur sem
fólk sýnir með því að taka þátt í
henni,“ segir séra Guðmundur
Karl Brynjarsson, prestur í
Lindasókn í Kópavogi. Hann segir
að ef allir í sókninni gæfu fimm-
tíu krónur myndi það jafngilda
hálfri milljón króna.
Söfnunarféð í ár rennur til
verkefna í Mósambík, Malaví,
Úganda og Eþíópíu. Í tilkynningu
Hjálparstarfs kirkjunnar segir að
í fyrra hafi fermingarbörnin safn-
að um 8 milljónum króna sem
reikna megi með að tryggt hafi
um 42 þúsund manns aðgangi að
hreinu vatni til frambúðar. - ovd
Fermingarbörn safna peningum til verkefna Hjálparstarfs kirkjunnar í Afríku:
Hugurinn skiptir mestu máli
VIÐ UPPHAF SÖFNUNAR Fermingarbörn
í Lindasókn létu til sín taka í gær þegar
þau gengu í hús í Kópavogi.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
DANMÖRK, AP Íbúar í Kristjaníu,
fríríkinu svonefnda sem danskir
hippar stofnuðu í Kaupmannahöfn
fyrir nærri fjórum áratugum, hófu
í gær málflutning sinn fyrir
dönskum dómstól, þar sem þau
krefjast þess að dönsk stjórnvöld
viðurkenni rétt þeirra til að nýta
landsvæðið, þótt ríkið sé eigandi
þess.
Íbúarnir kærðu stjórnvöld árið
2006 eftir að þau hófu aðgerðir
gegn fíkniefnaviðskiptum og
kynntu áform um að rífa hús og
byggja íbúðarblokkir á svæðinu,
þar sem danski sjóherinn hafði
áður haft aðstöðu. Búist er við
úrskurði dómstólsins í janúar. - gb
Dómstóll í Danmörku:
Örlög Kristjan-
íu ráðast brátt
KJÖRKASSINN