Fréttablaðið - 17.11.2008, Síða 10
10 17. nóvember 2008 MÁNUDAGUR
Innritun fyrir vorönn 2009
Innritun fyrir vorönn 2009 stendur nú yfi r. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu
skólans sem er opin 8.00-15.00 eða á heimasíðu skólans, www.fa.is. Um-
sóknarfrestur er til 20. nóvember. Umsækjendur sem óska eftir að mati á námi
frá öðrum skólum þurfa að skila ljósritum af prófskírteinum með umsókninni.
Rafræn innritun fer fram í gegnum menntagátt www.menntagatt.is/
Eftirtaldar námsbrautir eru í boði:
Stúdentsprófsbrautir:
• málabraut,
• félagsfræðibraut,
• náttúrufræðibraut og
• viðskipta- og hagfræðibraut.
Heilbrigðisskólinn:
• framhaldsnám sjúkraliða í öldrunarhjúkrun
• heilsunuddarabraut,
• heilbrigðisritarabraut,
• heilbrigðisritarabrú,
• lyfjatæknabraut,
• læknaritarabraut,
• sjúkraliðabraut,
• sjúkraliðabrú og
• tanntæknabraut.
viðbótarnám til stúdentsprófs
• Almenn námsbraut.
Nánari upplýsingar um allar þessar brautir eru á heimasíðu skólans, www.fa.is.
Skólinn býður einnig upp á fjarnám allt árið. Nánari upplýsingar á heimasíðu.
Skólameistari
ELDUR Í SANTA BARBARA Skógareldar
í Kaliforníu hafa valdið miklu tjóni.
Þarna brennur ein glæsivillan í Santa
Barbara, en um 70 hús hafa eyðilagst í
auðmannahverfinu Montecito.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur ákært tvo menn á
þrítugsaldri fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás
svo og nauðung, þegar þeir réðust harkalega að
manni á Höfn í Hornafirði. Jafnframt er annar
mannanna ákærður fyrir að hafa skallað lögreglu-
mann á lögreglustöð.
Að því er segir í ákæru réðust mennirnir tveir í
sameiningu á þann þriðja í geymslubili á Höfn. Þeir
slógu hann ítrekað í andlit og líkama og margspörk-
uðu í hann. Þá reif annar mannanna eyrnalokk úr
eyra fórnarlambsins, sló manninn í höfuðið með
barefli og sveigði aftur fingur hans.
Meðan á árásinni stóð neyddu mennirnir þann sem
þeir voru að misþyrma til að hlaupa nakinn um
húsnæðið, auk þess sem þeir hótuðu honum frekari
meiðingum og lífláti.
Fórnarlambið hlaut mikla áverka í andliti og
líkama við árásina. Meðal annars djúpan skurð í
andliti, mar, bólgur, eymsli og blæðingar víðs vegar í
andliti og sár á eyrnasnepli.
Auk þess sem ákæruvaldið krefst refsingar
mönnunum fer fórnarlambið fram á ríflega 600
þúsund krónur í skaðabætur. - jss
Tveir menn ákærðir fyrir misþyrmingar og nauðung:
Létu slasaðan hlaupa nakinn
HÖFN Í HORNAFIRÐI Mennirnir réðust á fórnarlambið í
geymslubili á Höfn í Hornafirði.
GRÆNLAND Ein af fjórum kjarn-
orkusprengjum úr B-52-herflug-
vél Bandaríkjahers hefur verið
týnd á hafsbotni við norðvestan-
vert Grænland síðan flugvélin
hrapaði þar árið 1968.
Bandaríska varnarmálaráðu-
neytið hefur haldið því fram að
allar sprengjurnar fjórar hafi
verið eyðilagðar, en breska
útvarpið BBC hefur fengið í
hendur skjöl sem staðfesta að
einungis þrjár þeirra fundust.
Íbúar í nágrenninu hafa lengi
haft áhyggjur af því að geisla-
mengun hafi valdið heilsutjóni á
fólki og skaðað lífríki á svæðinu.
Bandaríkjamenn halda því hins
vegar fram að geislamengun
hljóti að vera afar takmörkuð
vegna þess að fjórða sprengjan
hafi sokkið niður á hafsbotn.
Vélin brotlenti 21. janúar árið
1968 á ísbreiðu skammt frá
bandarísku Thule-herstöðinni á
Grænlandi. Bæði grænlenskir
heimamenn og danskir verka-
menn flýttu sér á staðinn til að
aðstoða áhöfnina.
Næstu mánuðina fór fram
viðamikið starf við að safna
saman braki úr vélinni sem hafði
dreifst um nágrennið. Einnig var
safnað saman nokkrum milljón-
um rúmmetra af ís, sem að hluta
innihélt geislavirkt brak úr vél-
inni.
Skjölin, sem BBC hefur undir
höndum, voru leynileg þar til nú
fyrir skemmstu. Í þeim kemur
fram að ummerki á ísnum, þar
sem vélin brotlenti, bendi til þess
að ísinn hafi bráðnað á bletti og
líklega hafi brot úr vélinni sokk-
ið þar niður á hafsbotn. Leifar úr
sprengjufallhlíf hafi fundist í
ísnum á þessum bletti, eftir að
hann fraus saman aftur.
Þetta varð til þess að í apríl
þetta ár hafi kafbátur verið send-
ur undir ísinn til að leita að týndu
kjarnorkusprengjunni, en sú leit
hafi ekki skilað árangri. Dönsk
stjórnvöld voru ekki upplýst um
tilgang þessarar kafbátsferðar.
Danskir verkamenn, sem send-
ir voru á slysstaðinn til björgun-
arstarfa, hafa sagt að ekki hafi
verið gætt að öryggi þeirra gagn-
vart geislamengun.
Fjórir þeirra veiktust alvar-
lega á seinni árum og er grunur
um að það sé af völdum geisla-
mengunar sem þeir hafi orðið
fyrir á sínum tíma. Tveir þess-
ara manna eru nú látnir.
Þeir hafa á síðustu árum farið
með mál sitt fyrir dómstóla í
Evrópu, en þeim málaferlum er
ekki lokið. Þeir segja að sam-
kvæmt tilskipun frá Evrópusam-
bandinu frá árinu 2000 hefði átt
að fylgjast sérstaklega með
heilsu þeirra síðan þá, en það
hefur ekki verið gert.
Danska stjórnin er hörð á því
að engin tengsl hafi verið sönnuð
milli björgunarstarfa þeirra eftir
flugslysið og heilsufars þeirra.
gudsteinn@frettabladid.is
Kjarnorku-
sprengja týnd
í fjörutíu ár
Árið 1968 hrapaði bandarísk herflugvél skammt frá
Thule-herstöðinni á Grænlandi. Ein af fjórum kjarn-
orkusprengjum úr vélinni hefur verið týnd síðan.
Íbúar á svæðinu óttast geislamengun og danskir
verkamenn hafa höfðað mál.
HERFLUGVÉL AF GERÐINNI B-52 Sams konar vél og þessi brotlenti á hafísbreiðu við
bandarísku herstöðina á norðvestanverðu Grænlandi fyrir fjörutíu árum.
NORDICPHOTOS/AFP
DÓMSMÁL Hæstiréttur dæmdi í
gær mann í fimmtán mánaða
fangelsi fyrir vörslu barnakláms.
Áður hafði hann verið dæmdur
til þrettán mánaða fangelsis í
Héraðsdómi Reykjaness.
Maðurinn hafði í vörslu sinni
tæplega fimmtán þúsund
ljósmyndir og rúmlega 200
hreyfimyndir sem sýndu börn á
kynferðislegan og klámfenginn
hátt. Hann rauf einnig skilorð
dóms frá árinu 2004, en þá var
hann dæmdur í sjö mánaða
skilorðsbundið fangelsi fyrir að
hafa haft önnur kynferðismök en
samræði við fimm ára stúlku.
- þeb
Hæstiréttur þyngir dóm:
15 mánuðir fyrir
vörslu barnakláms
Erill á höfuðborgarsvæðinu
Fjórir voru teknir fyrir ölvunarakstur
og fjögur umferðaróhöpp voru
tilkynnt til lögreglunnar í gær og fyrri-
nótt. Engin alvarleg slys urðu á fólki.
LÖGREGLUFRÉTTIR
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
ákært tæplega tvítuga stúlku
fyrir ofbeldisbrot, þar á meðal að
slá starfsmann fjölskyldudeildar-
innar á Akureyri í andlitið með
blóðugu glerbroti. Starfsmaðurinn
hlaut skurð fyrir neðan vinstra
auga og var hætta á að hann hefði
smitast af lifrarbólgu B og C.
Utan þessa er stúlkunni gefið að
sök að hafa kýlt annan starfsmann
í höfuðið. Þeim þriðja hótaði hún
að smita hann af HIV-sjúkdómi.
Á slysadeild fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri hótaði hún svo
tveimur starfsmönnum lífláti. - jss
Stúlka ákærð fyrir ofbeldi:
Sló með blóð-
ugu glerbroti
TÆKNI Microsoft á
Íslandi efnir 1. desem-
ber til samkeppni
meðal allra vinnustaða
á Íslandi sem miðar að
því að íslenska verði
aðaltungumálið í tölv-
um landsmanna. Sam-
keppnina kynnti Hall-
dór Jörgensson,
framkvæmdastjóri
Microsoft á Íslandi, á
málræktarþingi sem
haldið var í Háskóla
Íslands á degi íslenskr-
ar tungu í gær.
„Í grundvallaratriðum erum við
að bjóða skólum, stofnunum og
fyrirtækjum til þátttöku í keppni
sem gengur út á það að innleiða
íslenskt notendaviðmót í sem
flestar tölvur,“ segir
Halldór. Hann segir
sérstaka áherslu lagða
á keppni milli grunn-
skólanna og verða
verðlaun veglegust í
þeim flokki, eða í
formi styrkja til
tækja- og hugbúnaðar-
kaupa.
„Jafnframt verða
veittir veglegir góð-
gerðastyrkir í nafni
átaksins, en skólarnir
tilnefna góðgerða-
félög. Hjá fyrir tækjunum er þetta
hins vegar spurning um að hljóta
viðurkenninguna Okkar mál,“
segir Halldór en keppnin stendur
til 17. júní.
- ve
Vill samkeppni í skólum, stofnunum og fyrirtækjum:
Íslenska verði aðalmálið
í tölvum landsmanna
HALLDÓR JÖRGENSSON