Fréttablaðið - 17.11.2008, Blaðsíða 17
fasteignir
17. NÓVEMBER 2008
Fasteignasalan Eignamiðlun
hefur til sölu 97,2 fermetra
endaraðhús á einni hæð í
grónu hverfi við Krókabyggð í
Mosfellsbæ.
H úsið stendur á vel gróinni 383,2 fermetra eignarlóð og aðkoma er að vestan-
verðu. Gott bílaplan er fyrir fram-
an húsið og gróinn og afgirtur
garður til suðurs og vesturs.
Komið er inn í forstofu með for-
stofuskáp. Inn úr forstofu er geng-
ið inn í alrými. Á hægri hönd eru
stofa, borðstofa og eldhús. Í eld-
húsi er hvít L-laga innrétting með
svartri granítborðplötu. Flísalagt
er á milli efri skápa og borðplötu
með glermósaík. Í innréttingu er
blástursofn ásamt keramik hellu-
borði. Öll eldhústæki eru frá Gor-
enje. Í eldhúsi er borðkrókur við
V-laga glugga sem gefur mikla
birtu.
Borðstofan og stofan eru rúm-
góðar með mikilli lofthæð. Úr
stofu er góður gluggi út í garð
til suðvesturs. Alrými, stofur og
eldhús, ásamt baðherbergi, eru
flísalögð með ljósum flísum. Bað-
herbergið var endurnýjað fyrir
um tveimur árum og er flísalagt í
hólf og gólf, með baðkari og inn-
réttingu. Umhverfis baðkar og
ofan á innréttingu er ljós marm-
aramósaík frá Vídd. Hiti er í gólfi,
einnig er handklæðaofn og upp-
hengt Starck-salerni og blöndunar-
tæki.
Innst á gangi eru tvö góð svefn-
herbergi sem eru parketlögð með
sérvöldum fjalla-hlyni frá Agli
Árnasyni. Barnaherbergið er
vinstra megin með glugga í aust-
ur og úr því er samanbrotinn stigi
upp á efra loft með góðu geymslu-
plássi. Þar við hlið er gott hjóna-
herbergi með fataskáp og úr því
er gengið út á 50 fermetra afgirta
timburverönd í austur og suður. Á
veröndinni er ágætur verkfæra-
skúr og einangrað smáhýsi.
Eignin getur verið laus til af-
hendingar fljótlega. Ásett verð er
29,8 milljónir.
Verönd í suður og austur
Krókabyggð er í grónu hverfi í Mosfellsbæ.
Grunnur að góðu lífi
Fasteignasala :: Lágmúla 7 :: 108 Reykjavík :: sími 535_1000
Þorlákur Ó. Einarsson lögg. fasteignasali
Þórhildur Sandholt lögfr. og lögg. fasteignasali
Gengið frá greiðslumati
Sótt um íbúðalán
Sótt um lengingu og
styttingu á lánstíma
Á ils.is getur þú:
Bráðabirgðamat
Ýmsar reiknivélar
Netsamtal við ráðgjafa
Umsókn um rafrænar
afborganir lána
Önnur þjónusta á ils.is:
Hafðu samband og kynntu þér málið!
™
Hefurðu kynnt þér
kaup á búseturétti?
Með kaupum á búseturétti
færðu það sem máli skiptir;
heimili
Öryggi til framtíðar, frelsi þegar þér hentar
Sími: 520 5788 · Veffang: www.buseti. is