Fréttablaðið - 17.11.2008, Blaðsíða 31
MÁNUDAGUR 17. nóvember 2008 19
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Mánudagur 17. nóvember
➜ Fyrirlestrar
12.30 Kristleifur Björnsson mynd-
listarmaður heldur fyrirlestur um eigin
verk í húsnæði myndlistardeildar LHÍ,
Laugarnesvegi 91.
➜ Dans
20.00 Tangóævintýrafé-
lagið stendur fyrir tangó-
kvöldi þar sem boðið verð-
ur upp á ókeypis kennslu
í argentískum tangó. Allir
velkomnir.
➜ Myndlist
Ágúst Bjarnason sýnir verk í húsakynn-
um SÍM, Hafnarstræti 16. Opið alla virka
daga kl. 9-16.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is folk@frettabladid.is
> GJAFMILD LEIKKONA
Nicole Kidman er dugleg að
lífga upp á starfsandann á
tökustað með því að færa
samstarfsfólki sínu ýmiss
konar góðgæti. Leikstjóri
hennar í myndinni Austr-
alia, Baz Luhrmann, segir
Nicole hafa einstakt lag á því
að stuðla að góðum anda á
tökustað, en við tökur kaupir
hún gjarnan sushi eða kaffi
og múffur handa öllum til að
halda tökuliðinu gangandi.
Bandaríska leikkonan
Angelina Jolie lætur árásir
Jennifer Aniston lítið á sig fá.
Hún hefur lýst því yfir að hún
hyggist hætta kvikmyndaleik
áður en langt um líður. Það
muni ekki gerast með stórum
hvelli heldur ætlar Jolie að
draga sig smám saman í hlé.
„Ég ætla ekki að vera að leika
eitthvað mikið lengur,“ segir
Jolie í samtali við fréttavef
BBC. „Ég ætla að klára
ákveðna hluti og svo byrja á
því að halda mig til hlés. Ég vil
vera tilbúin þegar ég verð
amma einn daginn,“ segir
leikkonan.
Jolie ætlar sér að vinna í nokkra mánuði á
næsta ári en taka sér síðan ársleyfi. „Fyrst
vinn ég kannski að einu
verkefni á ári. Svo líða
kannski þrjú ár á milli og svo
hverf ég bara af sjónarsvið-
inu.“ Jolie og unnusti hennar,
Brad Pitt, eiga sex börn og
hafa því í nægu að snúast.
Jolie segir þessa ákvörðun
ekki síst helgast af því að hún
vilji einbeita sér alfarið að
uppeldinu. „Ég ber mikla
ábyrgð gagnvart þeim og þarf
að sjá til þess að þau hljóti gott
uppeldi og að við séum alltaf
til taks fyrir þau,“ segir Jolie.
Hún þarf þó væntanlega ekki
að kvíða því að innkoma
fjölskyldunnar bíði stórvægilegan skaða, Pitt
er síður en svo þekktur fyrir að taka að sér
hlutverk í bíómynd fyrir einhverja smáaura.
Jolie kveður Hollywood
HÆTTIR AÐ LEIKA INNAN
SKAMMS Angelina Jolie hefur
lýst því yfir að hún hyggist
smám saman draga sig í hlé frá
Hollywood og sinna þess í stað
uppeldi barna sinna.
Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
E
LK
O
L
in
du
m
–
S
kó
ga
rli
nd
2
. M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
1
99
k
r/
sk
ey
tið
.
HVER VINNUR!
9.
SENDU SMS
BTL EWW Á NÚMERIÐ 1900
ÞÚ GÆTIR UNNIÐ WORLD OF WARCRAFT!
VINNINGAR: TÖLVULEIKIR OG DVD MYNDIR OG FLEIRA
HEITASTI LEIKUR ÁRSINS
Bandaríska leikkonan Lindsay
Lohan hefur fengið nóg af athygl-
inni sem hún fær frá paparazzi-
ljósmyndurunum í Los Angeles.
Lohan var á allra vörum þegar
drykkjulæti hennar náðu hámarki
á síðasta ári. Hún skráði sig í kjöl-
farið í meðferð og þegar áfengið
var víðsfjarri virtust ljósmyndar-
ar hafa misst áhugann.
En þegar Lindsay byrjaði með
plötusnúðinum Samönthu Ronson
varð áhuginn á Lindsay enn meiri
enda áttu menn ekki von á því að
Lohan væri lesbía. Hún hefur nú
fengið sig fullsadda af öllum þeim
sem elta hana á röndum.
„Paparazzarnir í Los Angeles
eru þeir verstu. Þeir hlýða engum
fyrirmælum, ekki einu sinni frá
lögreglunni. Þeir virða engar
umferðarreglur og stefna lífi
manns og limum í hættu,“ sagði
Lindsay í viðtali við Access Holly-
wood. „Mér finnst að þeir ættu
allir að byrja á því að fá sér í glas
og láta mig síðan í friði. Þeir fá að
drekka og ég fæ frið til að lifa ein-
hverju venjulegu lífi,“ bætti
Lindsay við.
Lindsay þreytt á ljósmyndurum
Bandaríska söng- og leikkonan
Jennifer Hudson hefur þakkað
aðdáendum sínum fyrir stuðning-
inn sem hún hefur fengið að
undanförnu. Móðir hennar, bróðir
og sjö ára frændi voru öll myrt í
heimabæ hennar Chicago á
dögunum og var harmleikurinn
vitaskuld mikið áfall fyrir hana.
„Mig langar að þakka ykkur
öllum fyrir bænir ykkar og
kærleiksríkar hugsanir á þessum
erfiðu tímum. Ég og systir mín
höfum fengið mikinn styrk í
gegnum ást ykkar og umhyggju-
semi,“ skrifaði Hudson á
Myspace-síðu sína.
Aðdáendum
þakkað fyrir
JENNIFER HUDSON Söng- og leikkonan
hefur þakkað aðdáendum sínum fyrir
stuðninginn.
Kate Winslet segist ekki hafa
farið í stranga megrun fyrir
hlutverk í nýjustu mynd sinni
The Reader, þar sem hún mun
koma nakin fram. Winslet, sem
hefur verið tilnefnd fimm
sinnum til Óskarsverðlauna,
segist ekki búa yfir neinu
megrunarleyndarmáli.
Í viðtali við breska blaðið
Daily Mail segist leikkonan
hvorki hafa ráðið sér kokk né
einkaþjálfara heldur eldi hún
sjálf heima fyrir og borða allt
nema pasta, en það valdi henni
magapínu. Hún segist ekki
kunna við að láta segja sér fyrir
verkum í ræktinni og æfir því
pilates heima hjá sér í stað þess
að stunda líkamsræktarstöðvar.
Nakin í nýrri
bíómynd
ÓFEIMIN Kate Winslet segist ekki elta
nein megrunarráð heldur elda sjálf og
æfa pilates heima í stofu.
LOHAN KOMIN MEÐ NÓG Lindsay Lohan
hefur ekki átt mikilli velgengni að fagna
undanfarin ár en ástamál hennar hafa
haldið henni í sviðsljósinu á árinu.
Led Zeppelin-goðsagnirnar Jimmy Page og John
Paul Jones hafa ákveðið að halda í tónleikaferð um
heiminn ásamt syni trommarans Johns Bonham,
Jason. Robert Plant verður hins vegar víðs fjarri og
því stendur ekki til að notast við nafnið Led Zeppel-
in. „Án Plants kemur ekki til greina að notast við
nafnið. Zeppelin er ekki til án hans,“ segir talsmaður
hinnar nýskipuðu sveitar. Leit stendur nú yfir að
eftirmanni hans.
Aðdáendur rokkgrúppunnar hefur lengi dreymt
um að fá Led Zeppelin saman á ný. Þeir draumar
virtust ætla að rætast þegar þeir tróðu upp til
minningar um útgefanda sinn, Ahmet Ertegun. Þar
fóru þeir á kostum og spiluðu marga af sínum
þekktustu slögurum, áhorfendum til mikillar gleði. Í
janúar leit allt út fyrir að Zeppelin kæmi saman og
myndi halda í tónleikaferð en það var slegið af í lok
síðasta mánaðar. Nafnið Led Zeppelin hefur
jafnframt verið lagt til hliðar.
Zeppelin-dúett breytir um nafn
EKKERT LED ZEPPELIN Jimmy Page hyggst ekki notast við Led
Zeppelin-nafnið þegar hann ferðast um heiminn með John
Paul Jones og Jason Bonham.
Magnús Scheving og hans
fólk í Latabæ stefna að því
að fikra sig inn á tölvu-
leikjamarkaðinn. Það gæti
skilað fyrirtækinu háum
fjárhæðum ef af verður.
„Það hafa margir sýnt þessu áhuga.
Og við erum í viðræðum við marga
af stærstu tölvuleikjaframleiðend-
um heims,“ segir Hrólfur Sigurðs-
son hjá Latabæ. Fyrirtækið hefur
fengið ráðgjafarfyrirtækið AT
New Media til að aðstoða sig við
söluna á vörumerkinu til tölvu-
leikjaframleiðslu og staðfestir
Hrólfur það í samtali við Frétta-
blaðið. Hann vildi hins vegar ekki
gefa upp hvaða fyrirtæki hefðu
sýnt þessu áhuga.
Fréttablaðið greindi frá því í okt-
óber í fyrra að Magnús Scheving
og Latibær hefðu fullan hug á því
að fikra sig inn á þennan stóra og
mikla markað sem malar gull á
hverju ári. Þeir höfðu þá mestan
hug á því að ná samkomulagi við
fyrirtæki sem framleiddu leiki
fyrir leikjatölvuna Wii. Hrólfur
segir það ekkert hafa breyst og að
töluvert hafi þokast í þessum við-
ræðum. Hann vildi þó ekki gefa
upp hvenær endanleg niðurstaða
lægi fyrir. „Þetta er náttúrlega
ekki í höfn fyrr en það er í höfn.
Við erum hins vegar bjartsýnir á
að þetta verði að veruleika.“
Hrólfur segir jafnframt að Wii
sé ákaflega mikilvæg í þessu sam-
hengi. Hún reyni á hreyfigetu
barnanna og sjálfstæða hugsun en
Wii er einhver vinsælasta leikja-
tölva heims. „Það er mikil vakning
um allan heim hjá foreldrum og
stofnunum um að þessir hreyfinga-
leikir séu að gera eitthvað gott. Ég
býst því við að Latibær sé að fara
inn í þetta á hárréttum tíma,“ segir
Hrólfur. freyrgigja@frettabladid.is
Latibær í viðræðum við
tölvuleikjaframleiðendur
LATIBÆR Stefna inn á nýjan markað sem malar gull á ári hverju.
WII Latibær verður ef til vill á næstu
árum fáanlegur sem tölvuleikur í þessa
vinsælu leikjatölvu.