Fréttablaðið - 23.11.2008, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
MÓTMÆLI „Ég vildi ekki að gott fólk myndi slasa
sig við að bjarga einhverjum tittlingi. Heldur
frekar að þessi kraftur yrði notaður í að kné-
setja þessa ríkisstjórn. Koma á algjörri og
almennri og tafarlausri byltingu,“ sagði Haukur
Hilmarsson mótmælandi sem í gær var látinn
laus úr haldi lögreglu.
Hátt í fimm hundruð manns mótmæltu hand-
töku Hauks, fyrir utan lögreglustöðina við
Hverfisgötu. Mikil reiði var meðal mótmælenda
sem reyndu að brjóta sér leið inn til að frelsa
Hauk. Fjöldi lögreglumanna, gráir fyrir járnum,
sló skjaldborg um innganginn. Lögreglan beitti
piparúða í átökum við mótmælendur.
Haukur var handtekinn eftir vísindaferð í
Alþingi á föstudagskvöld þar sem hann var eftir-
lýstur vegna vangoldinnar sektar við Innheimtu-
miðstöð sekta og sakarkostnaðar á Blönduósi.
Haukur var sektaður um tvö hundruð þúsund
krónur fyrir aðild að mótmælum við álverið á
Reyðarfirði árið 2006. Fyrir hálfum mánuði
flaggaði Haukur Bónusfánanum á Alþingishús-
inu þegar mótmælin á Austurvelli stóðu sem
hæst.
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborg-
arsvæðinu, hafnar því að handtaka Hauks teng-
ist mótmælunum á Austurvelli í gær.
- hhs/jse sjá síðu 6
SKOÐANAKÖNNUN Um 32 prósent
segjast styðja ríkisstjórn Sjálf-
stæðisflokks og Samfylkingar,
samkvæmt nýrri skoðanakönnun
Fréttablaðsins. 68,4 prósent
styðja hana hins vegar ekki. Í
október sögðust 41,3 prósent
styðja ríkisstjórnina, en 58,8 pró-
sent voru henni andvíg.
„Ég hef fullan skilning á þessu,
fólk er reitt og kvíðið eins og eðli-
legt er í kreppu. Þá er skiljanlegt
að það beini sínum spjótum að
ríkisstjórninni,“ segir Össur
Skarphéðinsson iðnaðarráð-
herra.
Bjarni Benediktsson, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokksins, segir að
aðgerðaáætlanir fyrir heimilin
og fyrirtækin, séu í smíðum. „Ég
tel að þegar þessi mynd verður
dregin skýrar upp þá muni þetta
snúast við.” segir Bjarni.
„Ég held að það sé tímaspurs-
mál hvenær stjórnin áttar sig á
því að þetta gengur ekki og hún
játar sig sigraða,“ segir Stein-
grímur J. Sigfússon, formaður
Vinstri grænna.
Valgerður Sverrisdóttir, for-
maður Framsóknar tekur í sama
streng. „Þetta er afleit útkoma
fyrir ríkisstjórnina enda hefur
stjórnarandstaðan flutt van-
trauststillögu,” segir Valgerður.
Mestur er stuðningur við
stjórnina meðal Sjálfstæðis-
manna, 88,2 prósent. Stuðningur-
inn er 50,4 prósent meðal Sam-
fylkingarfólks, 21,1 prósent
meðal þeirra sem ekki gefa upp
stuðning við flokk, 8,3 prósent
meðal framsóknarfólks og 3,8
prósent meðal vinstri grænna.
Samfylking er stærsti flokkur-
inn samkvæmt þessari könnun
með 33,6 prósent fylgi. 27,8 pró-
sent styðja Vinstri græn og 24,8
prósent styðja Sjálfstæðisflokk-
inn. 6,3 prósent styðja Framsókn-
arflokk og 4,3 prósent styðja
Frjálslynda flokkinn. 3,3 prósent
segist myndu kjósa einhvern
annan flokk.
Einungis 49,9 prósent tóku
afstöðu til flokka í könnuninni.
Af heildinni segjast 29,4 prósent
vera óákveðin, 15,0 prósent segj-
ast myndu skila auðu.
- ss/ sjá síðu 4
33,4%
70,7%
Fr
ét
ta
bl
að
ið
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Fréttablaðið er með 112%
meiri lestur en Morgunblaðið
Allt sem þú þarft... ... alla daga
Meðallestur á tölublað m.v. höfuðborgarsvæðið
18–49 ára. Könnun Capacent í ágúst - október 2008.
Sími: 512 5000
SUNNUDAGUR
23. nóvember 2008 — 321. tölublað — 8. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
Bæklingur fylgir með
inni í blaðinu í dag
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
JENS LAPIDUS
Miklu frekar lögfræð-
ingur en skáld 22
HEIÐURINN AÐ VEÐI
Guðjón Friðriksson ræðir um Sögu
af forseta.
VIÐTAL 12
Hvað er ábyrgð?
Ábyrg manneskja nýtur
trausts og virðingar 14
1 -1
-2
-1
2
ÉL NYRÐRA Í dag verður norðan
eða norðvestan 5-18 m/s, hvass-
ast norðvestan til. Stöku él nyrðra
annars yfirleitt bjart með köflum.
Frostlaust með ströndum annars
vægt frost.
VEÐUR 4
Matur[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MAT ]Nóvember 2008
Uppskriftir að gómsætum smákökumÓmissandi í baksturinnKonfekt að hætti Halldórs Kr. Sigurðssonar Heimagert konfekt
Kökubakstur getur verið notaleg samveru-
stund fyrirf
úr eldhúsinu
Ilmurinn
FY
LG
IR
Í
D
A
G
B
6,3%
7
4Ko
sn
.
D
24,8%
25
17
Ko
sn
in
ga
r
S
33,6%
18
23
Ko
sn
in
ga
r
V
27,8%
9
19
Ko
sn
.
FYLGI STJÓRNMÁLAFLOKKA
Hvaða lista myndir þú kjósa ef geng-
ið yrði til kosninga nú?
Skoðanakönnun Fréttablaðsins 22. nóv.
2008 - fjöldi þingmanna og fylgi (%)
F
4,3%
4
Ko
sn
.
0
Sjö af tíu styðja ekki stjórnina
Einungis 31,6 prósent styðja ríkisstjórnina, en 68,4 prósent styðja hana ekki. Samfylking fengi 23 þing-
menn, Vinstri græn 19, Sjálfstæðisflokkur 17 og Framsóknarflokkur fengi fjóra kjörna ef kosið yrði nú.
LAUS ÚR STEININUM Fjöldi fólks hópaðist að lögreglustöðinni við Hverfisgötu í Reykjavík í gær að loknum áður skipulögðum mótmælum við Austurvöll. Krafðist fólkið þess
að Haukur Hilmarsson mótmælandi sem flaggaði Bónusfána á Alþingishúsinu fyrir hálfum mánuði, yrði látinn laus, en hann var handtekinn deginum áður. Nokkur átök urðu
eftir að hluti hópsins braut sér leið inn í lögreglustöðina. Haukur, fyrir miðri mynd, losnaði um sexleytið. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Lögreglan beitti piparúða í átökum við mótmælendur við Hverfisgötu í Reykjavík seinnipartinn í gær:
Mótmælendur réðust inn í lögreglustöðina
„Mér finnst lögreglan hafa gengið of langt,“
segir Álfheiður Ingadóttir, þingmaður Vinstri
grænna sem var við mótmælin. „Það er algjör-
lega ólíðandi að fólki sé kippt úr umferð fyrir að
mótmæla eins og gert var í tilfelli þessa unga
manns. Ég skil því vel reiði fólksins, þetta eru
félagar hans sem ofbýður þessar aðfarir. Það að
handtaka manninn með þessum hætti daginn
fyrir útifund er eins og hefndaraðgerð, það er
líka ögrun og slík vinnubrögð eru aðeins til þess
fallin að ýta undir reiði fólks.“
SKIL VEL REIÐI FÓLKSINS