Fréttablaðið - 23.11.2008, Page 18

Fréttablaðið - 23.11.2008, Page 18
2 matur Skýringar á uppskriftatáknum: Til hátíða- brigða Hvunndags/til hátíðabrigða KökurE Eftirréttur LJÚFUR ILMUR JÓLA Hrefna Sigurjónsdóttir Er líða fer að jólum berst oft hátíðlegur og ljúfur kökuilmur um híbýli manna. Ilmurinn af piparkökum, kanil og öðru góðgæti kallar óneitanlega fram minningar um notaleg vetrarsíðkvöld og huggulegar jólastundir. Kökubakstur er í raun tilvalin tómstundaiðja fyrir fjölskylduna og kjörið tilefni til að hópast saman. Minningarnar sem skapast þegar litl- ir fingur útbúa sín fyrstu piparkökulistaverk eru ómetanlegar og gaman er að flétta fallega tónlist saman við herlegheitin. Einnig þykir þeim yngri oft gaman að dunda sér við að teikna, púsla eða hvað sem er á meðan mamma og pabbi móta litlar kökur og hræra saman góð- gæti sem litlu höfðingjarnir dæma síðan með ísköldu mjólkurglasi eða heitu súkkulaði. Kjörið er að mynda gjörninginn og senda vitnisburð í jólakorti til vina og ættingja. Eldri börn og unglingar hafa ekki síður gaman af þrátt fyrir að sumir reyni að halda öðru fram. Sannleikurinn er sá að allir elska kökur og góðgæti og allir eiga sína uppá- halds sort, ungir sem aldnir. Hægt er að skiptast á um að velja undirleikinn og einnig væri hægt að haga málum svo að hver og einn fái að velja sína sort sem bökuð verður. Auk þess eru kökurnar kannski ekki aðalmálið heldur sú notalega stund og sam- vera sem skapa má í kringum baksturinn. Mikil- vægt er að láta ekki stress og streitu taka yfir. Engin lög eru um hvað þarf að baka margar sort- ir eða hvernig þær eiga að vera. Engin refsing er fyrir hendi þótt deigið sé keypt tilbúið eða jafnvel kökurnar sjálfar. Aðalatriðið er að haga jólaundir- búningnum eftir eigin höfði og líta á baksturinn sem skemmtun eða dægradvöl þar sem fjölskyldan kemur saman og útbýr eitthvað dásamlegt. matur kemur út mánaðarlega með sunnudagsblaði Fréttablaðsins. Ritstjórn: Emilía Örlygsdóttir og Roald Eyvindsson Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Forsíðumynd: Arnþór Birkisson Pennar: Gunnþóra Gunnarsdóttir, Hrefna Sigurjónsdóttir, Ragnheiður Tryggvadótt- ir, Vera Einarsdóttir, Þórdís Lilja Gunnarsdóttir Ljósmyndir: Fréttablaðið Auglýsingar: Bjarni Þór Sigurðsson bjarnithor@365.is Ég hef bakað þá marga í gegnum tíð- ina, en síðastliðin 25 ár hef ég haft það fyrir sið að baka kransinn á aðventunni,“ segir Hafdís Guð- jónsdóttir, lektor við menntasvið Háskóla Íslands, og jólabarn. „Upphafið var að ég var áskrif- andi að norskum matreiðslubók- um og fann þessa uppskrift í einni þeirra. Síðan er ég óskaplega mikið jólabarn og þykir aðventan dásamlegur tími,“ segir Hafdís og hlær. „Aðalmálið er að hafa nóg af fyllingu svo kransinn verði ekki þurr. Ef maður setur vel af smjöri, kanilsykri og möndlum þá virkar hann næstum því eins og marsipan,“ útskýrir Hafdís og nefnir að barnabörnin vilji hann helst einfaldan með kanilsykri. -hs Árviss og gómsætur aðventukrans Hafdís Guðjónsdóttir, lektor við menntasvið Háskóla Íslands, hefur bakað að- ventukrans með fyllingu síðastliðin 25 ár og er hann vinsælastur með kanilsykri. GRUNNDEIG 3 dl mjólk 50 g ger eða einn pakki þurrger ½ dl (60 g) olía eða 75 g smjör/smjörlíki 5 msk. sykur ½ tsk. salt 1 tsk. kardimommu- duft ½ kg (8-8½ dl) hveiti FYLLING 3-4 msk. smjör 3 msk. sykur ½ tsk. kanill 1 egg til að pensla með 50 g möndlur til skrauts AÐVENTUKRANSINN HENNAR HAFDÍSAR Gott á jólunum! VERSLUN SÆLKERANS Í Bakaríinu við brúna á Gleráreyrum á Akureyri eru allar krásir handgerðar og úrvalið meira en gengur og gerist að sögn eigandans Andrésar Magnússonar. „Það liggur mikil handavinna að baki því sem við gerum. Hér eru að jafnaði um átta bakarar að vinna verk sem einn maður gerir þar sem notast er við vélar. Þetta er visst afturhvarf til fortíðar sem Akureyringar kunna vel að meta,“ segir Andrés, sem opnaði bakaríið fyrir níu árum. Viðskiptavinir geta að hans sögn gengið að því vísu að í bakaríinu sé allt ferskt og nýbakað enda er það tæmt í lok hvers dags og byrjað að fylla hillurnar með nýjum kræsingum snemma morguns. „Þá notum við engin kemísk hjálparefni auk þess sem brauðin eru flestöll sykur- og mjólkurlaus.“ Fyrir utan brauðin er mikið úrval af sætabrauði, allt frá snúðum yfir í konfekt auk þess sem boðið er upp á smurt brauð og súpur af ýmsu tagi. „Við erum með fjörutíu manna kaffistofu á efri hæðinni og koma margir hingað í hádegismat.“ - ve Bakaríið við brúna Hitið mjólk í um 37°C. Blandið saman olíu, sykri, salti og kardimommum og blandið vökvanum saman við hveiti og hnoðið. Látið deig hefast í 30 mínútur. Fletjið deigið út, smyrjið með smjörinu og dreifið kanilblöndunni yfir ásamt möndlum. Rúllið deig saman og búið til hring/krans. Látið hefast í 20 mínútur. Penslið kransinn með eggi og dreifið möndlum yfir. Ef setja á kerti í kransinn þarf að gera ráð fyrir því og setja kertahöldur úr álpappír í hann áður en hann fer í ofninn. Bakið í 25 mínútur við 225 °C neðst í ofni. Setjið ál- eða bökunar- pappír yfir ef kransinn dökknar of mikið. Kælið og setjið kertin í aðventukransinn þegar hann er borinn fram. Fallegt er að skreyta í kring með greni. Einnig er hægt að setja kerti (dagatal) í miðjuna. Hægt er að setja ýmiss konar fyllingar í kransinn, til dæmis möndlur og hnetur, þurrkaða ávexti eða súkkulaði. FRÉTTA B LA Ð IÐ /VILH ELM Hafdís hefur bakað kransinn á aðventunni síðastliðin 25 ár og hefur hefðin borist lengra innan fjölskyldunnar þar sem allir þekkja nú kransinn og margir baka hann á aðventunni. Brauðbær • Hótel Óðinsvé • Þórsgata 1 • odinsve@odinsve.is • odinsve.is Við gerum veisluna þína Brauðbær sérhæfir sig í dönsku smurbrauði og pinnamat. 40 ára reynsla og fagmennska tryggir gæði veisluþjónustu okkar – vertu viss um að fá fyrsta flokks veitingar í veisluna þína. Pöntunarsími 552 0490 eða 511 6200 F í t o n / S Í A

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.