Fréttablaðið - 23.11.2008, Qupperneq 36
23. nóvember 2008 SUNNUDAGUR
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Sunnudagur 23. nóvember
➜ Kvikmyndir
15.00 Raspútín, leikin bandarísk
kvikmynd frá 1996 verður sýnd í MÍR-
salnum, Hverfisgötu 105. Enskt tal.
Aðgangur ókeypis.
➜ Tónleikar
13.00 Dagur harmon-
ikunnar Harmonikufélag
Reykjavíkur verður með tón-
leika í Ráðhúsi Reykjavíkur.
13.00 Gilligill Tónleikar í
tilefni af nýútkominni barnaplötu með
lögum og textum eftir Braga Valdimar
Skúlason í Salnum, Hamraborg 6, Kópa-
vogi. Einnig eru tónleikar kl. 15.00.
15.15 Sardas strengjakvartettinn
flytur verk eftir Jón Ásgeirsson og Beet-
hoven í Norræna húsinu við Sturlugötu.
16.00 Heyr mína sál Kammerkórinn
Hymnodia verður með útgáfutónleika
þar sem flutt verður kórtónlist eftir
íslenskar konur. Aðgangur er ókeypis.
Listasafnið á Akureyri við Kaupvangs-
stræti.
17.00 Blásaraoktettinn Hnúkaþeyr
flytur franska tónlist eftir tónskáldin
Ibert, Bossa og Francaix á Kjarvalstöð-
um við Flókagötu.
17.00 Kirkjukór Grenáskirkju flytur
litla messu eftir Charles Gounod og
létta trúarlega tónlist eftir ýmsa höf-
unda. Aðgangur er ókeypis og allir vel-
komnir. Grensáskirkja við Háaleitisbraut.
20.00 Stórsveit Reykjavíkur verður
með tónleika á Café Rosenberg við
Klapparstíg, þar sem flutt verður tónlist
eftir Thad Jones.
23.00 Hljómsveitin B. Sig spila á Café
Rosenberg.
➜ Dans
16.00 Tangóævintýrafélagið stendur
fyrir síðdegistangó á Café Rót, Hafnar-
stræti 17. Allir velkomnir.
➜ Fyrirlestrar
11.00 Er eitthvað réttlæti? Guð-
mundur Heiðar Frímannson flytur
fyrilestur á Bláu könnunni, Hafnarstræti
96, Akureyri.
➜ Samkomur
20.00 Tómasarmessa Messuhald í
Breiðholtskirkju við Þangbakka, með
fjölbreytilegum söng og tónlist þar sem
áhersla er lögð á fyrirbænarþjónustu og
virka þáttöku leikmanna. Sérstakur gest-
ur er Herbert Guðmundsson.
➜ Sýningar
Landslag í ljósaskiltum Sýning Bjarna
Helgasonar í Artóteki, 1. hæð Borgar-
bókasafns Reykjavíkur við Tryggvagötu.
Opið mán. 10-21, þri.-fimm. 10-19 og
um helgar 13-17.
➜ Bækur
13.00 Kellíngabækur Um þrjátíu
konur kynna bækur sínar með ýmsum
hætti í Gerðubergi, Gerðubergi 3-5.
➜ Leiðsögn
14.00 Ást við fyrstu
sýn Halldór Björn
Runólfsson verður
með leiðsögn um
sýninguna og mun
fjalla um þróun mynd-
listar allt frá tímum
Impressjónistanna til
okkar daga. Listasafni
Íslands, Fríkirkjuvegi
7. Opið alla daga nema mánudaga kl.
11-17.
15.00 Erlendur Sveinsson verður með
leiðsögn um sýningar Sveins Björns-
sonar; Sjórinn og sjávarplássið og Char-
lottenborgarárin. Opið alla daga nema
þriðjudag kl. 11-17, fimmtudaga 11-21.
Aðgangur ókeypis. Hafnarborg, Strand-
götu 34, Hafnarfirði.
17.00 CRAFT Andr-
ea Maack verður
með listamanna-
spjall í D-salnum þar
sem hún ræðir um
sýningu sína í Lista-
safni Reykjavíkur við
Tryggvagötu. Ókeypis
aðgangur.
➜ Myndlist
Kynjaskepnur úr íslenskum þjóðsög-
um Í verslun og veitingastofu Þjóð-
menningarhússins stendur
yfir sýning á teikningum
eftir Jón Baldur Hlíð-
berg. Þjóðmenningar-
húsið, Hverfis-
götu 15 er
opið alla
daga frá
kl. 11-17.
➜ Leiklist
20.00 GRAL Grindvíska atvinnuleik-
húsið sýnir leikverkið 21 manns sakn-
að í Saltfisksetrinu, Hafnargötu 12a,
Grindavík. Nánari upplýsingar á www.
gral.blog.is.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Einleiksformið hefur verið vin-
sælt hér á landi um nokkurt skeið,
Mr. Skallagrímsson, Brák og nú
síðast í sýningu fyrirtækis leik-
ara sem ætlar að standa fyrir
sýningarhaldi í Grindavík. Graal
kallar hópurinn sig og er mættur
með sína fyrstu sýningu: Víðir
Guðmundsson reynir að koma
höndum yfir atburðaríka ævi
Odds V. Gíslasonar. Formið sem
hann og Benedikt og Brynhildur
grípa til er upphaflega endurvak-
ið í Buffó-leik Darios Fo sem
hann stundaði við miklar vin-
sældir um langan tíma. Það er
svo Benedikt sem flytur hingað
sænska leikstjórann Enquist sem
hafði þróað þennan stíl hjá Pero-
leikhúsinu í Stokkhólmi.
Einn leikari er á sviðinu með
sem fæsta leikmuni og stekkur
milli sögumanns og ólíkra per-
sóna sem koma við sögu, hann
breytir fasi og burði og segir
margradda sögu með ólíkum stíl-
tegundum. Formið leyfir hröð
stökk í tíma og rúmi og milli
manna. Það krefst í raun afburða-
leikara nema sú stefna sé tekin
að vinna með gerólík textasvið
eins og Fo gerði, hið helga – bif-
líuna – og hið vanhelga – manninn
í sinni saurugustu mynd.
Graal-hópurinn stefnir á fasta
vist í Grindavík. Hann er kominn
með stefnuyfirlýsingu, er kom-
inn með samstarfssamning við
sveitarfélög og fyrirtæki, setur
markið hátt: framundan eru
minnst þrjár sviðsetningar. Það
er gott að eiga slíkan hóp að. Suð-
urnesjamenn áttu fyrir löngu að
hafa komið sér upp einhverjum
slíkum hópi eins og önnur minni
sveitarfélög.
Fyrsta verkefni hópsins er erf-
itt: æviferill séra Odds er fjöl-
breytilegur frá því hann er for-
maður hér í Reykjavík, situr í
Lærða skólanum og hefur um
síðir prestferil. Hann er ham-
hleypa, á kant við samtíð sína, er
frömuður í atvinnurekstri og
félagsstarfi og hverfur loks til
Ameríku þar sem hann verður
farandpredikari. Lengi er hann
alkohólisti en verður ofstopafull-
ur bindindismaður. Heimildir um
hann eru rýrar ef marka má gögn
sýningarinnar en duga þó til að
kveikja spennandi sögu. Víðir
Guðmundsson rekur söguna og
fer með öll hlutverk. Hann er
glæsilegur ungur maður en hefur
ekki þjálfun eða reynslu til að
skila öllum þeim aragrúa fólks
sem höfundar draga fram. Per-
sónugalleríið lifnar ekki í hönd-
um hans og sumpart um að kenna
verkinu. Þar er ekki svarað mik-
ilvægum spurningum um klerk-
inn: athafnaþrá hans og um síðir
sterka trú.
En mjór er mikils vísir. Leik-
hópur í Grindavík er stórtíðindi
fyrir Nesið og því betri sem
aðstaða er fyrir hann þess meiri
líkur eru að þar nái menn sterk-
ari tökum á viðfangsefnum
sínum. Páll Baldvin Baldvinsson
Grindavíkurleikflokkurinn
LEIKLIST
21 manns saknað
eftir Guðmund Brynjólfsson,
Víði Guðmundsson og Berg Þór
Ingólfsson.
Leikstjóri: Bergur Þór. Leikmynd: Eva
Vala Guðjónsdóttir.
★★
Snotur sýning en brotakennd.
LEIKLIST Víðir Guðmundsson leikur mörg hlutverk í nýju verki um ævi Odds V.
Gíslasonar
Með hliðsjón af ástandi efnahagsmála vill Húsafriðunarnefnd taka fram eftirfarandi:
Áskorun til sveitarfélaga og arkitekta
Bæta má manngert umhverfi með fleiru en ný-
byggingum einum saman. Í byggingararfi þjóð-
arinnar eru fólgin verðmæti úr fortíðinni, bæði
menningarsöguleg og listræn, sem nýtast vel
menningartengdri ferðaþjónustu. Þá er það
löngu viðurkennt að það sé vitnisburður um
menningarstig hverrar þjóðar, hvernig hún
umgengst byggingararfinn. Með vandaðri húsa-
könnun er lagður grunnur að mati á varðveislu-
gildi einstakra húsa, húsasamstæðna, byggða-
mynsturs, götumynda og hverfa. Þótt mörg
sveitarfélög hafi á undanförnum áratugum látið
kanna varðveislugildi eldri byggðar í því skyni
að auðvelda vinnu við skipulag og ákvarðana-
töku þar að lútandi, eru mörg þéttbýlissvæði
sem enn bíða úrlausnar hvað þetta varðar.
Núgildandi lög um húsafriðun kveða á um að öll
hús, sem reist eru fyrir 1850, skuli vera friðuð.
Verði frumvarp til laga um menningarminjar,
sem menntamálaráðherra ráðgerir að leggja
fyrir Alþingi á næstunni, að lögum, mun friðuðum
húsum fjölga verulega, en í frumvarpinu er gert
ráð fyrir að öll mannvirki, sem byggð voru fyrir
1900, verði friðuð. Af þessum sökum er enn
brýnna en áður að ráðast í gerð húsakannana.
Um leið og Húsafriðunarnefnd skorar á sveitar-
félög og arkitekta að beina sjónum sínum að
þessum málaflokki, tekur nefndin fram:
• Húsafriðunarnefnd hefur látið taka saman
leiðbeiningar um gerð húsakannana og gefið
út á prenti. Ráðgert er að innan tíðar verði
leiðbeiningar þessar í endurskoðaðri útgáfu
aðgengilegar á heimasíðu nefndarinnar.
• Þegar kemur að úthlutun styrkja úr húsa-
friðunarsjóði 2009 mun nefndin láta um-
sóknir um styrki til húsakannana hafa for-
gang og styrkja gerð þeirra eins og framast er
kostur og fjárhagur sjóðsins leyfir.
Húsafriðunarnefnd | sími 570 1300 | husafridun@husafridun.is | husafridun.is
Skilaboðaskjóðan
Þorvaldur Þorsteinsson og Jóhann G. Jóhannsson
sun. 23/11, örfá sæti laus
Síðustu sýningar
Gjafakort á Kardemommubæinn
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Þjóðleikhúsið
Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is
Utan gátta
Sigurður Pálsson
Snarskemmtileg sýning. JVJ, DV
Sýningum lýkur 13. desember!
Hart í bak
Jökull Jakobsson
Verk sem snertir okkur öll. EB, FBL
Aukasýningar í sölu
Leitin að jólunum
Aðventusýning Þjóðleikhússins
Sýningar hefjast 29/11
Tryggðu þér sæti
Gefum góðar stundir
Kardemommubærinn
Jólatilboð á gjafakortum
Sætið á aðeins 2.000
(fullt verð 2.800)