Tíminn - 09.03.1982, Side 4
4
Þri&judagur 9. mars 1982
Jörð til sölu
Jörðin Syðri-Knarrartunga Breiðuvikur-
hreppi Snæfellsnesi er til sölu (leiga kem-
ur einnig til greina)skipti æskileg á góðri
húseign helst tvibýlishúsi á Stór-Reykja-
vikursvæðinu.
Vélar og áhöfn geta fylgt.
Upplýsingar gefur eigandi jarðarinnar
Guðbjartur Karlsson simi um Arnarstapa
Snæfellsnesi.
Refarækt
Blárefur h.f. mun sem fyrr gefa væntan-
legum refabændum kost á, að sækja nám-
skeið um meðferð og hirðingu blárefa.
Námskeiðið verður haldið að Sveiflu
Krisuvik. Nánari upplýsingar gefur Jón
M. Magnússon i sima 43270.
Ath. 1. hluti: Fengitimi, hefst siöari hluta marsmán.
Sauðfjárjörð
við Eyjafjörð
Óskað er eftir tilboðum i jörðina Flögu i
Skriðuhreppi. Réttur áskilinn til að taka,
hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Allar upplýsingar gefur eigandi jarðar-
innar Sigurgeir Ágústsson Þórunnarstræti
83 Akureyri. Simi 96-24987.
Landmælingar
íslands
kortadeild
Staða kortateiknara er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
rikisins. Æskilegt er að umsækjandi hafi
lokið prófi i tækniteiknun. Umsóknir
ásamt upplýsingum um aldur, menntun
og fyrri störf, sendist Samgönguráðuneyt-
inu fyrir 29. mars 1982. Nánari upplýsing-
ar gefur deildarstjóri Kortadeildar
Svavar Berg Pálsson.
Tryggingar
Óskum að ráða mann i Brunadeild til
tjónauppgjörs, nú þegar.
Starfið gerir kröfur til góðrar grunn-
menntunar og hæfni i samskiptum.
Frekari upplýsingar veitir Starfsmanna-
hald á skrifstofu.
#Samvinnutryggingar g.t.
Ármúla 3,
Simi 81411
Sænskunámskeið í
Framnás lýðháskóla
Dagana 2.-13 ágúst n.k. verður haldið
námskeið i sænsku fyrir Islendinga i lýð-
háskólanum i Framnas i Norður-Sviþjóð.
Þeir sem hyggja á þátttöku verða að taka
þátt i fornámskeiði i Reykjavik, sem ráð-
gert er að verði 11.-13. júni.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
um skipulag námskeiðsins og þátttöku-
kostnað fást á skrifstofu Norræna félags-
ins i Norræna húsinu, simi 10165.
Umsóknarfrestur er til 15. april.
Undirbúningsnefnd.
Wtmm'
Samþykkt fræðsluráds:
Vogaskóli starfi
áfram með öllum
aldursárgöngum
— med skipan, sem gerir unnt að reka hann innan
ramma núgildandi laga og reglugerðar
Bókun meirihlutans
Aðrir fræðsluráðsmenn, þ.e.
Kristján Benediktsson, Elin
Pálmadóttir, Hörður Bergmann,
Davið Oddsson, Ragnar Júliusson
og Sigurður G. Tómasson
svöröuðu þessari bókun meö ann-
arri, þar sem segir m.a. að „með
þeirri samþykkt, sem við höfum
gert um skipulagningu skóla-
starfs 1 Vogaskóla fyrir næsta
skólaár er ekki gert ráð fyrir að
„færa nemendur milli hverfa” og
þvi siður,,... leggja niður... heila
skóla”. Meginefni samþykktar-
innar er að Vogaskóli starfi
áfram með öllum aldursárgöng-
■ Fræðsluráð Reykjavík-
ur hefur nú fallið frá þeirri
hugmynd að breyta Voga-
skóla þannig að þar verði
aðeins fjórir yngstu ár-
gangarnir, enda verði
samkomulag um að
bekkjadeildir verði ekki
það margar að verulegur
kennslukostnaður þurfi að
lenda á borgarsjóði að sögn
Kristjáns Benediktssonar,
formanns fræðsluráðs.
Þessi breyting var gerð eftir að
fyrri hugmyndin hafði mætt mik-
illi andstöðu bæði kennara við
skólann og foreidra i hverfinu.
Samkomulag var um þessa
skipan mála i fræðsluráði, nema
hvað fulltrúi Alþýöuflokksins
Bragi Jósepsson var á móti og
gerði grein fyrir afstöðu sinni i
sérstakri bókun. Þar segir Bragi
m.a. að hann telji eðlilegt „að
gera nauðsynlegar breytingar á
rekstri einstakra skóla án þess aö
færa nemendur milli hverfa eða
með þvi aö leggja niður heila
bekki eða jafnvel heila skóla. Ég
tel þvi ekki rétt að samþykkja þá
breytingu sem lögð er til”.
Nú bjóðum við ýmsa möguleika fyrir fermingarnar. Tweedjakkar frá kr. 900.—, buxur kr. 450.— og
prjónavesti kr. 150.—, eða buxur og vesti og sportblússur íýmsum gerðum og verðum. Og auðvitað er
skyrtan og bindið með klút í stíl ásamt skónum á sama stað.