Tíminn - 09.03.1982, Blaðsíða 23

Tíminn - 09.03.1982, Blaðsíða 23
ÞriOjudagur 9. mars 1982 og leikhús - Kvikmyndir og leikhús kvikmyndahornið ■ Jamrs ISoud (Itogcr Moore) er ekki beinliuis árennilegur. James Bond í tólfta sinn ADKINS FYRIIt ÞÍN AUGU (For Your Kyes Only). Sýningarstaður: Tónabió. Ueikstjóri: Jolin Glcn. Aðalhlutverk: ltogcr Moore (Jamcs Bond), Carole Bouquet (Melina Haveioek), Topol (Colombo), Julian Clover (Kristatos), Michael Gothard (Lorque). Ilandrit: llichard Maibaum og Michael G. Wilson. Myndataka: Alan llume. Franileiðandi: Albert R. Broccoli fyrir Kon l’roducitions, dreift af United Artisls, 1981 Söguþráður: — Þegar James Bond hcfur bjargað sér frá tilraun gamals óvinar sins, Blofeld, til aö senda hann yfir i aiman heim, er honum falið það verkefni að bjarga mikilvægu tæki, sem er um borð i bresku njósnaskipi sem sökk út af ströndum Grikklands og Albaniu. Breski njósnarinn llavelock hafði áður reynt að ná tækinu en verið myrtur ásamt konu sinni. Dóttir Havclockhjónanna, Melina hefur svarið að hcfna morðanna, og hún keinur James til hjálpar er hann lendir mitt á ineðal inorðingja Havelock-hjónanna. Þau sleppa bæðiog James tekst mcð aðstpð tölvu að bera kennsl á einn samsæris- mannanna, Locque að nafni og fær þær upplýsingar, að hann sé i tygjum við griskan smyglara, Colombo. James leitar þeirra á skiðastaðnum Cortina d’Ampezzo, og lendir þar i höggi við Loc- que og mcnn hans. I.oks er James handtekinn af Colombo og kemur þá i ljós að Colombo er alis ekki skúrkurinn heldur annar grískur milljónamæringur, sem notaði Locque sem handbendi sitt. Að öðru leyti er ekki réttað rekja söguþráðiun nánar. Þessi nýjasta Bond-kvik- myndsem mun vera sú tólfta i röðinni, er að ýmsu leyti ööru visien fyrri myndirnar. Hér er mest áhersla lögð á nokkur áhrifamikil alriði þar sem glæfragosar kvikmyndanna fá að sýna hvaö þeir geta. F'yrst kemur fjörlegt atriöi þar sem Blofeld reynir að koma Bond fyrir kattarnef i þyrlu en íellur sjálfur i staöinn ofan i háan verksmiðjureykhál! Nokkru siðar verðum viö vitni að bráðskemmtilegum eltingar- leik i bifreiðum um skógi- vaxnar griskar fjallshliöar og þorp. Um miöja myndina berst leikurinn til skiðapara- disari'Cortinad’Ampezzo, þar sem James Bond lendir i mikl- um átökum og eltingarleik við leigumorðingja á skiðum og mótorhjólum, og þarf m.a. aö renna sér á skiðum niöur bob- sleðabraut! Og i seinni hluta myndarinnar fáum við meðal annars að sjá Bond eiga við óvini og hákarla neöansjávar og siðan klifa snarbrattan tind til að komast i kastala Kristatosar, sem er þar uppi á toppi fjallsins. Þetta eru allt skemmtilega ★ ★ ★ Fram i sviðsljósið ★ Wholly Moses ★ ★ Aðeins íyrir þin augu útfærð atriði sem oft eru bæði íyndin og spennandi. Hins vegar er söguþráöurinn óneitanlega dálitið þunnur, enda ekki frá lan Flemming kominn og eillhvað hefur áhugi Bonds á kveníólkinu dvinað meö árunum, þvi hér segir hann ungri stúlku sem biður hans afklædd i rúminu, að l'á sér rjómais i staðinn! Roger Moore hefur leikið Bond, 007 i fimm kvikmynd- um, svo þessi fræga söguper- sónaer i margra hugum tengd honum. Það fer þó varla hjá þvi að Moore gerisl nú helst til gamall lyrir þetta hlutverk. Þá er Carole Bouquet ólikleg sem Bondstúlka en Topol hins vegar mjög góður sem giskur smyglari. —ESJ Stjörnugjöf Tfmans * + ★ * frábær ■ ★ * ★ mjttg gtttt ■ * * gtt* • * sæmlleg • O léleg

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.