Tíminn - 09.03.1982, Blaðsíða 22
Þriðjudagur 9. mars 1982
22
eftir helgina
Af hverju er
ekki byggt
í Videy?
■ Þeir sem halda upp á
gömul hús og sinna friðun
rottunnar hafa margt þarfa-
verkið unnið. Þeir hafa hindr-
að það að sögufræg hús eins og
Fjalakötturinn og Bernhöfts-
torfan hyrfu, og núna eru þeir
búnir að tryggja Grjótaþorp-
inu öllu eilift lif.
Enekkier þviá hinn bóginn
að leyna, þó að þessi
mannúðarstefna sé góð fyrir
rottugang og gömul hús, þá
hefur hún lilca sina skipulags-
legu vankanta. Borgaryfir-
völd hafa orðið að taka upp
sérstaka jöklastefnu handa
fólki meðpunkta ervill byggja
sér ný hús i höfuðborginni.
Þannig er búið aö byggja i
snjóþyngslum i Breiöholts-
jökli, i Arbæ, og þótt viö á Sól-
vallagötunni vilum naumast
af vetri, þá mætum viö oft bil-
um i miðbænum á snjólausum
dögum, sem eru meö þykka
klakabrynju á sér, eins og þeir
séu að koma úr Þrengslunum,
eða norðan af Holtavöröu-
heiöi, en eru svo eítir á aö
hyggja aöeins að koma úr
hrakningshverfum borgar-
innar, eða úr Breiðholti og
Hraunbæ.
Ötrúlega mikill munur er
nefnflega á veðurlagi á lág-
lendi höfuöborgarinnar og
heiðarbyggðinni. Og nú virðist
enn eiga að hefja nýjan jökla-
búskap. Nú við Rauðavatn og
við Golfvöllinn.
Þar verður hægt að moka
miklum snjó þegar frammi
sækir.
Menn hafa þó um nokkurt
skeið reynt að leysa þessi mál
með öðrum hætti. Talað er um
að fá land hjá rikinu, sem á
þægileg lönd i Grafarholti, eða
meö ströndinni i átt aö Gufu-
nesi, og talað er um byggða-
þéttingu.sem er reyndar þeg-
ar hafin, og mælist vel fyrir i
landi, þar sem bensin hækkar
nær þvi i hverri viku. Alþýðu-
bandalagið vill byggja á
Rey kjavikurflugvelli og í
varplandinu í Vatnsmýrinni,
suður af Norræna húsinu, allt
eins vel þótt Reykjavikurflug-
völlur sé einn fjölmennasti
vinnustaður borgarinnar og
skapi ómældar tekjur fyrir
borgina.
Ekki skal þó farið frekar út i
þá sálma,en mig langar þd til
að vekja athygli á einum stað,
sem aldrei er talaö um, þegar
rætter um ný byggingasvæði,
en það er Viðey og Engey.
Þar voru áður höfuðból.
Skúli Magnússon létreisa Við-
eyjarstofu, eitt veglegasta hús
landsins þar árið 1753 og bjó
frekar i' tjaldi á meðan, en i
Bessastaðastofu, sem þó
fylgdi hans embætti.
1 Viðey er mikil saga, bæði í
andlegu lífi og veraldar-
amstri.
Milljónafélagið reisti þar
mikla starfsstöð árið 1907 og
rak þar útgerð, og þar voru
tvær hafskipabryggjur, áður
en slik bryggja varð til i
Reykjavikurhöfn. Voru skipa-
komur þar um 400 á ári og um
60.000 tonn af vörum fóru um
þessar bryggjur. Starfaði
félagið með miklum blóma,
einkum á árunum 1910-1913.
Farið var á bátum mflli
lands og eyjar, alveg eins og
nú er gjört, en brú var aldrei
gjörð út i Viðey,
A hinn bóginn virðist það al-
veg hafa gleymst að á vorum
dögum er auðvelt að brúa út I
Viðey,og þarflildega til þess
færriýtur.eða ýtutima en fer i
að halda snjóruðningi við i Ar-
bæ og Hraunbæ i heilt ár.
Grynningar eru bæði við land i
Gufunesi og i austanveröri
Viðey, þannig að ekki þarf
annað en að brúa álinn milli
lands og eyjar. Þarna má
gjöra glæsileg ibúðarhverfi og
lika starfsstöövar, leggja heitt
vatn og rafmagn, og nægjan-
leg jarðefnieru ígrenndinni til
að nota i akveg, eða brúar-
sporða.
Eg veit ekki hvort þetta plan
gengurá hagsmuni rottunnar í
bænum, eða almenn friðunar-
sjónarmið, en ekkert þarf þó
að rifa. Viðeyjarkirkja er i
góðu standi og Viðeyjarstofa i
viðgerð, en þetta eru ein
virðulegustu hús landsins. Ef
til vill ætti borgarstjóri
Reykjavikur að eiga heima i
Viðeyjarstofu, þegar allt er
komið i kring, og eru þá bæði
Viðeyjarstofa og Bessastaða-
stofa sömu höfuðból og þau
voru á 18. öld.
Þarna fengjust sjávarlóðir
góðar, og snjólett er i Viðey,
það vita allir, og siðarmeir
mætti færa byggðina út i Eng-
ey, með tengingu við hana úr
Viðey.
Þarna eru mikil lönd og ólikt
hentugri til búsetu en holtin
ofanvið Reykjavik.
Jónas Guðmundsson
Jónas Guðmundsson, rithöfundur skrifar
flokksstarfið
Bingó
Félag ungra framsóknarmanna heldur bingó n.k. sunnu-
dag kl. 14.30 að Hótel Heklu Rauðarárstig 18.
FUF Reykjavik.
Skagfirðingar — Sauðárkróksbúar
Almennur stjórnmálafundur verður i framsóknarhúsinu
Sauðárkróki laugardaginn 13. mars kl. 13.30.
Steingrimur Hermannsson formaöur Framsóknarflokks-
ins og alþingismennirnir Páll Pétursson, Stefán Guð-
mundsson og Ingólíur Guðnason.
Framsóknarfélag Skagafjarðar.
Borgarnes nærsveitir
Næstkomandi föstudagskvöld hefst 3ja kvölda keppni i
félagsvist. Spilað veröur föstudagaan 12. mars, 25. mars
og 16. april. Hefst kl. 20.30 öll kvöldin.
Framsóknarfélag Borgarness.
Akranes
Fulltrúaráðsfundur Framsóknarfélagsins á Akranesi
verður haldinn miövikudaginn 10. mars kl. 21.00 i Fram-
sóknarhúsinu Sunnubraut.
Dagskrá:
1. gengið frá framboðslista fyrir n.k. bæjarstjórnarkosn-
ingar.
2. Onnur mál.
Stjórnin
Viðtalstimi borgarfulltrúa
Páll R. Magnússon fulltrúi i stjórn Verkamannabústaða
og atvinnumálanefnd Reykjavikur og Valdemar Kr. Jóns-
sonformaður veitustofnana verða til viðtals aö Rauðarár-
stig 18laugardaginn 13. mars milli kl. 10 og 12.
Fulltrúaráð
Aðalfundur Framsóknarfélags Reykjavikur
Framsóknarfélag Reykjavikur heldur aöalfund sinn, fimmtu-
daginn 11. mars 1982kl. 20.30, að Rauðarárstig 18 kaffiteríu.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Samkvæmt lögum félagsins skulu tillögur um menn i fulltrúaráð
hafa borist eigi siðar en tveim dögum fyrir aðalfund.
Tillaga stjórnar um aðal- og varamenn i fulltrúaráð fram-
sóknarfélaganna i Reykjavik liggur frammi á skrifstofunni að
Rauðarárstig 18.
Stjórn Framsóknarfélags Reykjavíkur.
Hafnfirðingar og nágrannar
3ja kvölda spilakeppni verður i Iðnaðarmannahúsinu
Linnetsstig 3, 4. mars 18. mars og 2. april óg hefst kl. 20.30
hvert kvöld.
Kvöld-og heildarverölaun.
Mætið stundvislega.
Allir vclkomnir
Framsóknarfélag Hafnarfjarðar.
Húnvetningar
Almennur stjórnmálafundur verður haldinn á Hótel
Blönduósi föstudaginn 12. mars 1982 kl. 21.00
A fundinn mæta:
Steingrimur llermannsson samgöngu og sjávarútvegs-
ráðherra og alþingismennirnir: Páll Pétursson, Stefán
Guðmundsson og Ingólfur Guðnason.
Allir velkomnir
Framsóknarfélögin Austur-Húnavatnssýslu
Framsóknarvist — Ferðakynning
Félag framsóknarkvenna i Reykjavik heldur fund 11.
mars að Hótel Heklu kl. 8.30
Spiluð verður framsóknarvist og Samvinnuferðir-Land-
sýn verða með ferðakynningu m.a. sýna þeir kvikmynd.
Fjölmennið og takið með ykkur gesti
Stjórn F.F.K.
Scanía
111 ’80 2ja drifa. Frambyggður, kojuhús
sindrapallur 5.40 m. Kranapláss. Ekinn 50
þús. Skipti möguleg.
Upplýsingar i sima 95-5514.
Kvikmyndir
Sími78900
Fram i sviðsljósið
(Being There)
f\
I Grlnmynd i algjörum sérflokki.
I Myndin er talin vera sú albesta
sem Peter Sellers lék I, enda fékk
hun tvenn Oskarsverðlaun og var
útnefnd fyrir 6 Golden Globe
Awards. Sellers fer á kostum.
Aðalhlutv.: Peter Sellers, Shirley
MacLaine, Melvin Douglas, Jack
Warden.
Islenskur texti.
Leikstjóri: Hal Ashby.
Sýnd kl. 3, 5,30, 9 og 11.30.
Endless Love
Enginn vafi er á þvi aö Brooke
Shields er táningastjarna ungl-
inganna i dag. Þiö muniö eftir
henni úr Bláa lóninu. Hreint frá-
I bær mynd. Lagiö Endless Love er
til útnefningar fyrir besta lag i
kvikmynd í mars nk.
| Aöalhlutverk: Brooke Shields,
I Martin Hewitt, Shirley Knight.
Leikstj.: Franco Zeffirelli.
' Islenskur texti.
aýnd kl. 3.05, 5.20, 7.20 9.20 Og
11.20.
A föstu
(Going Steady)
Frábær mynd umkringd Ijóman-
um af rokkinu sem geisaöi um
1950. Party grin og gleöi ásamt
öllum gömlu góöu rokklögunum.
Bönnuö börnum innan 12 ára.
Sýnd kl. 3.10, 5.10 og 7.10.
íslenskur textí.
Halloween
T.
Halloween ruddi brautina i gerö
hrollvekjumynda, enda leikstýrir
hinn dáöi leikstjóri John Carpen-
ter (Þokan). Þessi er frábær.
Aöalhlutv.: Donald Pleasence,
Jamie Lee Curtis, Nancy Lomis.
Bönnuö börnum innan 16 ára.
Islenskur texti.
Sýnd kl. 9.10 og 11.10.
Trukkastríðið
(Breaker Breaker)
Heljarmikil hasarmynd þar sem
trukkar og slagsmál eru höfö I
fyrirrúmi. Fyrsta myndin sem
j karate-meistarinn Chuck Norris
! leikur I.
Aöalhlutv.: Chuck Norris, George
Murdoch, Terry O’Connor.
| Bönnuö innan 14 ára.
lslenskur texti.
Sýnd kl. 3.15, 5.15 og 7.15.
Dauðaskipið
(Deathship)
Þeir sem lifa þaö af aö bjargast
úr draugaskipinu, eru betur
staddir aö vera dauöir. Frábær
hrollvekja.
Aöalhlutv.: George Kennedy,
Richard Crenna, Sally Ann How-
es. Leikstj. Alvin Rafott.
Bönnuö börnum innan 16 ára.
íslenskur texti.
Sýnd kl. 9.15 og 11.15.