Tíminn - 09.03.1982, Blaðsíða 16

Tíminn - 09.03.1982, Blaðsíða 16
16 Þriðjudagur 9. mars 1982 fþróttir Heimsmeistarakeppriin í handknattleik: Rússar sigruðu eftir fram- lengdan leik lentu í erfiðleikum með Júgóslava en sigruðu 30:27 Pólverjar hrepptu þriðja sætið eftir sigur á Dönum ■ (iuArúnu Fcmu óskað til hamingju eftir að hún setti islandsmct á 'Sundmóti Ægis um helgina. Timamynd Ella Frá Axcl Axelssyni fre'ttaritara Tlmans á HM i V-Þýskalandi: ■ Það má með sanni segja að besta liðiö hafi orðið heims- meistarar, Rússar sem höfðu verið áberandi besta liðið i keppninni léku til úrslita við Júgöslava um heimsmeistara- titilinn i Dortmund i V-Þýska- landi á sunnudaginn. Lengi vel i leiknum leit þó út fyrir að Júgó- slövum myndi takast að leggja rússnesku birnina að velli þvi þegar nokkrar minútur voru til leiksloka var staðan 22-20 fyrir Júgóslava. En af miklu harðfylgi tókst Rússum að jafna leikinn áð- ur en yfirlauk 23-23og þvi varð að framlengja i 2x5 min. 1 framlengingunni virtist út- hald JUgó6lavanna gjörsamlega að þrotum komið. Rússar komust i 26-23 en Júgóslavar komust aldrei nær þeim en tvö mörk. Síð- ustu mínútur framlengingarinnar léku JUgóslavarnir maður á mann en allt kom fyrir ekki. Rússar sigruðu 30-27 og tryggðu sér I fyrsta skipti heimsmeistara- titilinn i' handknattleik. Mikillar taugaveiklunar gætti hjá báðum liðum i upphafi leiks- ins og þá sérstaklega hjá Rússum Sundmót Ægis: Guðrún Fema með tvö met ■ Guðrún Kema Ágústsdóttir sundkona úr Ægi setti tvö Is- landsmet á Sundmóti Ægis sem haldiðvari Sundhöll Reykjavikur um heigina. Guðrún Fema setti tslandsmet i fslandsmótið í blaki: Þróttur meistari Þróttur sigradi annað árið í röð í 1. deild karla Stúdfnur sigruðu í 1. deild ■ Þróttarar tryggðu sér hvenna um helgina islands- Sigurður meistari ■ Stangarstökkvarinn snjalli Sigurður T. Sigurðsson KR varðá sunnudaginn Islandsmeistari i stangarstökki innanhúss er hann stökk 4,70 m á Islandsmótinu sem haldið var f KR-húsinu. Siguröur reyndi við 5,15 m en tókst ekki að fara þá hæð, en við tilraun si'na varð Sigurður fyrir meiðslum sem ekki eru alvarleg. Gisli Sigurðsson varð armar stökk 4,30 m og Elías Sveinsson KR varð i þriðja sæti stökk 4,15 m. Gamla kempan Valbjörn Þor- láksson varð fjórði og stökk hann fjóra metra. röp—. meistaratitilinn í blaki er þeir sigruðu UMSE 3-1, og á föstudaginn sigruðu þeir Víking með sömu tölu. Þróttur hefur nú hlotið 28 stig en aðalkeppinautar þeirra Stúdentar geta ekki halað inn fleiri stig en 26. Þá hafa Stúdinur tryggt sér Is- landsmeistaratitilinn i 1. deild kvenna og er þetta i fyrsta skipti sem titillinn fellur þeim i skaut. Þá hefur Bjarmi tryggt sér rétt til að leika i 1. deild karla aö ári og að öllum likindum munu þeir taka sæti Laugdæla á þeim vigstöðvum en þeir eru svo gott sem fallnir eftir tapið fyrir Ey- firðingum um helgina. röp—. 100 metra bringusundi synti vegalengdina á 1.15,9 en gamla metið var 1.16,31. Þá setti hún einnig met i 50 metra bringusundi fékk timann 36,2 en gamla metiö var 36,4. Ragnheiður Runólfsdóttir IA setti einnig Islandsmet á þessu móti, Ragnheiður synti 100 metra baksund á 1.11.9 en gamla metið var 1.12,46. Guðrún Fema Ágústsdóttir hlaut Afreksbikar mótsins en hann er veittur fyrir besta afrek mótsins og fékk hún bikarinn fyrir metsundið. röp-. Þór f 1. deild ■ Körfuknattleikslið Þórs tryggði sér um helgina rétt til að leika i 1. deild að ári er þeir báru sigur úr býtum i úrslitakeppni 2. deildar sem fram fór á Akureyri um helgina. Fjögur félög tóku þátt i úrslita- keppninni auk Þórs, Vestmanna- eyingar, Breiðablik og Mennta- skólinn á Egilsstöðum. Þór sigraði alla keppinauta sina en i siðasta leiknum gegn Breiðablik lentu þeir i erfiðleik- um og þeim tókst ekki að tryggja sér sigur fyrr en á siðustu sekúndunni Úrslitin i leikjunum uröu þessi. Þór-IV 87-69 IV-IME 78-72 Þór-IME 104-90 IV-Breiðablik 86-84 Þór-Breiðablik 77-76 Leik Menntaskólans og Breiða- bliks varð að fresta þar sem þeir fyrrnefndu komust ekki til ieiks. röp-. sem áttu hverja feilsendinguna á fætur annarri i upphafi. Rússar náðu þó fljótlega foryst- unni i leiknum komust i 6-4, 8-5 og 10-7. En þá tók Júgóslavneski markvörðurinn sig til og varði mjög vel m.a. 5 vitaköst. Júgó- slavar jöfnuðu 10-10 og þegar flautað var til hálfleiks var stað- an 13-12 fyrir Júgóslaviu. Júgóslavar komust í 14-12, Rússar gátu jafnað i upphafi seinni hálfleiks en Belov lét ver ja frá sér viti. Júgóslavar héldu þessum tveggja marka mun fram undir miðjan seinni hálfleik. Úti- spilarar Rússa áttu ekkieins góð- an leik nú og i fyrri leikjum þeim gekk erfiðlega að eiga við vörn Júgóslava, sérstaklega á þetta við um Belov fyrirliða Rússa. Rússar náðu nú samt að jafna metin 17-17 og siðan er jafnt upp i 20-20 en þá ná Júgóslavar tveggja marka forystu 22-20 eins og áður sagði. Kidjaev og Anpilogow voru markahæstir hjá Rússum skor- uðu 5 mörk hvor en Jurina skor- aði mest fyrir Júgóslava 5 mörk. Dómgæslan gerði út- slaiíið Danir og Pólverjar léku til úr- slita um 3-4 sætið á mótinu og var leikur þeirra æsispennandi og stórskemmtilegur. Fimm þúsund áhorfendur urðu vitni að ömur- legri dómgæslu og það er óhætt að segja að hún hafi gert útslagið með úrslitin i leiknum. Rúmensku dómararnir voru mjög á bandi Pólverja i leiknum og svo til færðu þeim sigurinn á siífurfati. Danir lötu mun betur heldur en Pólverjarnir og voru þeir oftast yfir i leiknum, komust i 8-4 en misstu þá forystu niður i eitt mark fyrir hálfleik staðan 13-12. Danir yfir i seinni hálfleik þó munurinn væri ekki mikill eitt til tvö mörk. Pólverjar jafna 17-17 og komast siðan yfir 18-17 og var það i fyrsta skipti i leiknum. Danir náðu þó forystunni aftur 20-18 en Pólverjar jafna 20-20 lokamin mjög spennandi, 21-21 og 22-22 með ólöglegu marki, steig greini- lega niður inn i teig áður en hann skoraði. En dómararnir voru á öðru máli siðan var dæmd töf á Dani og einnig á Pólverja. Þá var dæmt á Christiansen og skömmu siðar var honum vikið af velli, nokkrar sdiúndur eftir. Dæmdur var ruðningur á Pólverja en Dön- um tókst ekki að nýta sér það. Pólverjar ná boltanum og þeim tókst að skora sigurmarkið nokkrum sek fyrir leikslok. Rúmenar unnu A-Þjóðverja 24- 21 i keppninni um fimmta sætið og V-Þjóðverjar sigruðu Spánverja 19-15 i' keppninni um 7 sætið. Ungverjar sigruðu Tékka*24-18 i keppninni um 9 sætið og Sviar lentu i 11. sæti er þeir sigruðu Sviss 25-17. Fyrirliði Rússa Belov var kjör- inn leikmaður mótsins en Rúmeninn Stinga varð marka- hæstur skoraði 65 mörk sem er nýtt met. Næstur honum Kovacs Ungverjalandi með 56 mörk. Axel/röp —. Pétur með á nýjan leik Pétur Pétursson skoraði mark fyrir Anderlecht og Lárus Guðmundsson var einnig á skotskónum ■ „Mérgekk ágætlega og þaðer gaman að vera búinn að fá tæki- færi á nýjan leik” sagði Pétur Pétursson knattspyrnumaður sem leikur með belgiska félaginu Anderlecht. Péturog félagar léku um helg- ina á útivelli við Beringen og lauk þeim leik með jafntefli 2-2. „Við vorum yfir2-l þartil 5 min voru til leiksloka er þeim tókst að jafna metin, þetta var mikill klaufaskapur hjá okkur að missa leikinn niður i jafntefli”. Pétur kom Anderlecht yfir 2-1 er hann skwaði gott mark með skalla er 15 min voru liðnar af seinni hálfleik. Lárus Guðmundsson landsliðs- maður úr Vikingi sem leikur með Waterschei skoraði mark fyrirlið sitt er Waterschei tapaði fyrir FC Liege 2-1. Arnór Guðjohnsen og félagar hans hjá Lokeren gerðu jafntefli 1-1 gegn Courtrai. Lið Sævars Jónssonar CS Brugge tapaði 3-0 fyrir Molenbeek og Gent sem Ragnar Margeirsson leikur með gerði jafntefli við Antwerpen 0-0. röp —. Ragnhildur sigraði ■ Punktamót kvenna I borö- tennis var haldið um helgina f Laugardalshöll en fyrir mótinu stóðu KR og Orninn. Ragnhildur Sigurðardóttir UMSB varð hlutskörpust I meistaraflokki kvenna, Asta Úr- bancic Erninum varð i ööru sæti og Kristín Njálsdóttir UMSB varð þriðja. Elísabet ólafsdóttir Erninum sigraöi il.flokki kvenna, Arna Sif Kærnesteð varð í öðru sæti og Gróa Sigurðardóttir KR varð i þriðja sæti. röp —.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.