Tíminn - 09.03.1982, Qupperneq 5
Þri&judagur 9. mars 1982
5
fréttir
■ Vogaskóli starfræktur áfram.
um með skipan sem gerir unnt að
reka hann innan ramma núgild-
andi laga og reglugerðar um
skólakostnað.
Við viljum leggja áherslu á að
þær reglur gera erfitt að skipu-
leggja skólastarf i grunnskólum i
Reykjavik þannig að æskilegur
nemendafjöldi verði i bekkjum.
Brýnast er i þvi sambandi að unnt,
verði að fækka i fjölmennustu
deildum. Reglurnar þyrfti að
endurskoða þannig að hver skóli
verði sjálfstæö rekstrareining”.
Fáir þorskar og rýrir í afla Grindvíkinga:
„ÉG ER HRÆDDUR UM AD „SVARTA
SKÝRSIAN” SÉ AÐ SANNA GILEN SÍTT
ef þetta lagast ekki á næstu tveimur vikum”
segir Sigurður Rúnar Steingrfmsson
■ „Ég veit ekki hvernig i and-
skotanum þetta endar. Ef það fer
ekki að lagast á næstu tveim vik-
um er ég hræddur um að „Svarta
skýrslan” sé að sanna gildi sitt”.
A þessa leið fórust Sigurði Rúnari
Steingrimssyni vigtarmanni i
Grindavik, orð um þorskafla
þeirra Grindvikinga á yfirstand-
andi vertið.
Sögnum sunnan úr Grindavik
ber saman um að miklu minni
þorskur sé nú í aflanum en verið
hefurá undanförnum árum. Sum-
ir segja að nú sé hlutur þorsks
ekki nema um 20% af þvi sem var
i fyrra. Sigurður Rúnar hafði ekki
handbærar tölur til að staðfesta
að þetta væri rétt, en hann sagði
að það munaði miklu, hvað
þorskurinn væri miklu 'minni i
aflanum nú.
Hann bætti þvi þó við að það
væri ekki að fullu sanngjörn við-
miðun, þvi þorskurinn hefði verið
óvenju mikill siðustu tvö ár. Það
hefði lika verið venjulegt á árum
áður að þorskurinn kæmi ekki
fyrr en i febrúar eða mars úr
djúpinu og upp á miðin aö neinu
ráði. Þa hefði hann komiö i loðn-
una. „Nú er engin loðna og það
litla sem veiðist af þorski er mag-
urt, hefur sýnilega ekki nóg æti.
Það hefði átt að stöðva loðnu-
veiðarnarstrax i haust, þegar séð
var hvert stefndi. Það er ekkert
að marka það sem skipstjórarnir
segja um loðnuna, þeir vilja veiða
meðan eitthvað er hægt að veiða.
Við mundum gera það lika i
þeirra sporum”, sagði Sigurður
Rúnar Steingrimsson.
Vestmannaeyjar
„Hér er bullandi loðna allt i
kring”, sagði Torfi Haraldsson
vigtarmaður i Vestmannaeyjum
þegar Timinn leitaði frétta hjá
honum. Torfi sagöi að eitthvað
svolitið meira væri komið á land i
Eyjum núna en á sama tima i
fyrra, en nú væri það mest ufsi
sem hefði litið verið af á seinni
árum. „Þorskurinn er litið farinn
aðláta sjásig ennþá”,sagði Torfi
og bætti við að það væri eðlilegt
ástand og bara timaspursmál ■
hvenær hann kæmi. „Hann á bara
eftir að ganga inná”. Torfi var
spurður hvort þorskurinn sem
veiðist væri horaðri en menn eiga
að venjastum þetta leyti árs. „Ég
hef ekki heyrt talað um það”,
svaraði hann.
Hann var þá spurður hvort
hann hefði orðið var við nokkurn
kviða i sjómönnum um að þorsk-
aflinn væri að minnka verulega
vegna skorts á æti.
„Það er að visu kominn heldur
langur timi, sem þorskurinn hef-
ur ekki látið sjá sig en það er eng-
in svartsýni i mönnum og ekki
y
ástæða til”, svaraði Torfi Har-
aldsson.
Höfn
„Aflinn hefur verið i slaklegu
meðallagi að undanförnu uppi
sæmilegt og niður i ekkert", sagði
Egill Jónasson yfirverkstjóri i
fréttum af fiskiriinu á Höfn i
Hornafirði. „1 gær komu 19 bátar
að með samtals 240 tonn af
tveggja nátta fiski. Það þykir
okkur heldur dræmt”.
Vertiðin i heild er heldur betri
en i fyrra, en ufsinn er mun meiri
hluti i aflanum, en veriö helur.
Allir bátarnir eruá netum og tóku
þau fyrr en i fyrra. Þegar spurt
var um átu i fiskinum sagði Egill
að fiskurinn sem nú veiddist væri
fullur af sili en þvi væri ekki að
neita að það heföi verið áberandi
miklu minni loðna i honum i
febrúar en venja væri. Hann
sagði að menn hel'öu oröið varir
við loðnuna, en minna en áður.
Datsun Sunny Grand Luxe
Nú koma DATSUN bllarnir beint frá Japan
1 |
. ■
Vegna sérstakra samninga við verksmiðjurnar
getum við boðið þennan fjölskyidubíl
til afgreiðslu l/„ AA C/>n
ímaín.k. á |\|. aa.OUU."
(Gengi 26.2. ’82)
GREIÐSLUKJÖR:
40.000.— lánað til 8 mánaða — Aukin fyrirgreiðsla möguleg
t.d. beðið eftir láni eða sölu á eldri bil.
Hvar færðu betri kjör?
Fastir fylgihlutir
• Digital klukka
• Snúningshraðam.
• Hnakkapúðar framan.
• Rafhituð bakrúða
• Rúllu öryggisbelti
• Teppi
• Hanskahólf
• Pakkahilla
• Hólf m/framsæta.
• Kveikjari
• 2ja hr. þrurrkur m/bið
• Rafm. rúðusprauta
•Háþr. framlj.þvottur
• Inniljós m/dyrarofa
• Sólskermar
• Armpúðar
• öryggisspegill
• :ija hraða miðstöð
• Hiti á hliðarrúður
• öryggisljós fyrir:
• Hleðslu,
• Olfuþrýsting,
• Há ljós,
• Handbremsu,
• Bremsuvökva,
• Innsog.
• Neyðarljós
• Litaðar rúður
• Læst bensinlok
• Farangursrými opnað innanfrá.
• Gúmmiklæddir hliðarlistar.
Datsun € umboðið
INGVAR HELGASON
Vonarlandi vid Sogaveg 1 Simi 33560