Tíminn - 09.03.1982, Page 17
Þriöjudagur 9. mars 1982
17
íþróttir
■ tslandsmeistarar Njarövikur i körfuknattleik 1982: Aftari röö frá vinstri: Marinó Einarsson, Július
Valgeirsson, Valur Ingimundarson, Jón Viöar Matthiasson, Ingimar Jónsson, Jónas Jóhannesson,
Gunnar Þorvarðarson og Hilmar Hafsteinsson þjálfari.
Fremri röð f.v. Albert Eðvaldsson, tsak Tómasson, Danny Shouse, Brynjar Sigmundsson og Arni
Lárusson. Timamynd Ella
Njarðvík íslandsmeistarar í körfuknattleik:
„Bjóst við að mót-
ið yrði jafnara9’
sagði Hilmar Hafsteinsson þjálfari Njard-
vikinga eftir sigurleikinn gegn ÍR
■ „Ég er mjög ánægöur meö aö
titillinn skuli vera kominn i höfn,
en ég bjóstnú ekki viðþvi aö þessi
leikur yrði svona léttur gegn ÍR
þar sem þeir hafa verið okkar
erfiðustu mótherjar i gegn um ár-
in” sagði Hilmar Hafsteinsson
þjálfari Njarövikinga eftirleikinn
gegn ÍR i úrvalsdeildinni i körfu-
knattleik i Hagaskóla á sunnu-
daginn.
Njarðvikingar sigruðu i þeim
leik 58-86 og tryggðu sér þar með
íslandsmeistaratitilinn annaö ár-
ið i röð en Njarðvik á einum leik
eftir ólokið gegn KR.
IR-ingar stóðu ekki lengi i
Njarðvikingum það var aðeins
fyrstu mi'núturnar sem leikurinn
var jafn en siðan tóku Njarövík-
ingar örugga forystu og henni var
aldrei ógnað. Mesti munurinn á
liöunum var rétt undir lok leiks-
ins 28 stig.
Jónas Jóhannsson var langbesti
maðurinn á vellinum og átti hann
einn af sínum bestu leikjum. Þá
var Valur einnig sterkur hjá
Njarðvikingum. Valur var stiga-
hæstur Njarðvikinga skoraði 25
stig Danny Shouse skoraöi 19 og
Árni 17.
Stanley skoraði mest i af-
spyrnuslöku IR-liði 20 stig Jón
Jörundsson skoraði 12 stig.
„Égbjóst nú við að íslandsmót-
iö yrði jafnara en raunin varð á,
við og Framarar komum best
búnir undir mótið. Ef ekki hefði
komið tilmeiösli Stu Johnson hjá
KR hefðu þeir komiö mun betur
út úr þessu”. röp—.
Islandsmótið íknattspyrnu innanhúss:
Breiðablik fór meö
sigur af hólmi
sigruðu Siglfirðinga 6:4 eftir framlengdan leik
■ Breiðablik varð tslandsmeist-
ari i knattspyrnu innanhúss er
þeir sigruðu Siglfiröinga 6-4 i úr-
slitaleik eftir framlengdan leik i
Laugardalshöll á sunnudags-
kvöldið.
Siglfirðingar komu mjög svo á
óvart á mótinu þeir gerðu sér litiö
fyrir og lögðu að velli bæði KR og
Val 4-3 i riðlakeppninni og gerðu
2-2 jafntefli við Hauka.
Breiðablik sigraði Fram 8-3,
Viking 6-2 og Þór Akureyri 5-2 i
sinum riðli, voru yfirburðirnir
miklir. 1 undanúrslitunum léku
Breiðabliksmenn við Akranes og
sigraði Breiðablik 4-2.
Siglfirðingar lentu.á móti FH i
undanúrslitum og sá leikur var
einn skemmtilegasti leikur móts-
ins. Eftir venjulegan leiktima var
staðan jöfn 3-3 og þá þurfti að
framlengja i 2x2,30 min og aftur
var jafnt 4-4. Enn varð að fram-
lengja en hvorugu liðinu tókst að
skora i þeirri framlengingu. Var
þvi ákveðið að þriðja framleng-
ingin skildi leikin þar til öðru
hvoru liðinu tækist að skora mark
og eftir 8. min. leik tókst Óla
Agnarssyni að skora sigurmarkið
fyrir Siglfirðinga. Leikur þessi
stóð yfir i 38 min. og er honum
lauk þustu áhorfendur inn á völl-
inn og hylltu Siglfirðinga sem átti
sér dyggan hóp aðdáenda.
Ekki var laust við að þreyta
gætti i liöi Siglfirðinga er þeir
léku viö Breiðablik úrslitaleikinn
enda engin furöa þar sem þeir
höfðu staðið i ströngu.
Breiöablik komst i 3-0 en i
seinni hálfleik tókst KS að jafna
leikinn og að venjulegum leik-
tima loknum var staðan jöfn 4-4.
Breiðabliksmenn voru sterkari i
framlengingunni og sigruðu 6-4.
Breiðablik varð Islandsmeistari
en KS lið mótsins. rnn-
■ Breiðablik varð um helgina tslandsmeistari I knattspyrnu innan-
húss en þeir sigruðu Siglfiröinga 6-4 í úrslitum. TimamyndElla
Snjóþotur m/ stýri
Snjóþotur m/bremsum
Einnig BOB-BORÐ
o.m.fl.
Enginn póstkröfu-
kostnaður
Póstkröfusími
14806
Eitt og hálft tonn.
Lyftihæð 40 cm.
IMjög hagstætt verð.
Póstsendum
1 1/2 til 5 tonn.
GS
varahlutir
Ármúla 24, Reykjavík. Sími 36510.
Bifreiða-
tjakkar
SUNN-
LENDINGAR
Fjölbreytt úrval
Ýsa — Ýsuflök — Lúða
— Gellur — Kinnar_
Hrogn og lifur
ofl. ofl.
Tökum fisk í reyk
Fiskbúð Glettings
Gagnheiði 5, Selfossi
______l
Fahr heybindi vélar
• Tvær stærðir: HD-360 og HD-460
• ótrúlega lágt verð
• Qrfáum vélum óráðstafað úr vetrarsendingu