Tíminn - 26.05.1982, Blaðsíða 1
íslendingaþættir fylgja blaðinu í dag
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTT ABLAÐÍ
Miövikudagur 26. maí 1982
117. tölublað — 66. árgangur
M/b Jóhanna Magnúsdóttir brann og sökk á Medallandsbugt:
ÖMURLEG LÍFSREYNSLA
— segir Gísli Guðmundsson, skipstjóri
Erlent yfirlit:
■ „Égvar nú ikoju þegar elds-
ins varð vart. Stýrimaðurinn
ræsti mig og sagði mér aö það
væri kominn mikill reykur i
vélarrúmið. Þá rauk ég náttúr-
lega framúr og kikti niður og sá
það var mikill eldur og reykur i
kringum túrbinuna,” sagði Gisli
Guðmundsson, skipstjóri á Jó-
hönnu Magnúsdóttur RE 74 sem
brann á Meöallandsbugt i fyrri-
nótt og sökk siðan um klukkan
09.30 i gærmorgun. Það var
aflaskipið Þórunn Sveinsdóttir
frá Vestmannaeyjum sem
bjargaði skipverjum Jóhönnu
sem voru sex talsins.
„Þegar ég sá hvernig komið
var hafði ég samband við Vest-
mannaeyjaradió. Þrátt fyrir að
erfitt væri að athafna sig vegna
reyks i stýrishúsinu tókst það.
Þvi næst leið smástund og við
sáum það að útilokað var að
komast að eldinum og þá var
ekkert annað en að gera gúm-
bátana klára. Við fórum upp á
stýrishús og hentum þeim út og
létum þá liggja klára við siðuna
um stund. En fljótlega sá ég að
eldurinn ar orðinn svo mikill að
það var vonlaust að halda þessu
áfram svo ég sagði strákunum
að koma sér i bátana. Það hefur
sennilega veriö um miðnættið
og við vorum i bátunum um
klukkutima áður en Þórunn
Sveinsdóttir kom okkur til
bjargar,” sagði Gisli.
— Svo fylgdust þið meö bátn-
um brenna þar til hann sökk?
„Jú. Og það var ömurleg lifs-
reynsla að horfa á svona góðan
bát eyðileggjast af eldi og
sökkva. Báturinn var alveg sér-
staklega góður og við höfðum
gert mjög mikið fyrir hann.”
— Hvernig var vistin i gúm-
bátunum?
„Það fór ágætlega um okkur i
bátunum, nema hvað að ég var
nokkuð illa klæddur. Þótt ekki
hafi verið sérstaklega kalt þá
var kaldaskitur og talsverður
sjór,” sagði Gisli.
— Sjó.
Rýfur
Thatcher
þing?
— bls. 7
fhættu
bls. 2
■ Mikill mannfjöldi safnaöist saman á bryggjunni i Vestmannaeyjum þegar Þórunn Sveinsdóttir kom inn meö skipbrotsmennina af Jó-
hönnu Magnúsdóttur sem brann og sökk á Meöallandsbugt. A innfelldu myndinni er áhöfnin á Jóhönnu Magnúsdóttur.
Mynd Guömundur Sigfússon.
Hver fær fimmta manninn í borgarráði á næsta borgarstjórnarfundi?
MIN NIH LUTAFLOKKARN-
IR RÆÐA UM SAMSTARF
4
■ „Það var haldinn fundur i
dagmeð öllum borgarfulltrúum
minnihlutaflokkanna í borgar-
stjórn i dag. Ég var bundin
vinnu og komst ekki á hann, en
mér skilst að þar hafi hvorki
verið lagðar linur á einn eða
annan hátt, en hins vegar var
talaö um að hittast aftur sem
fyrst”, sagði Guðrún Jónsdóttir
annar borgarfulltrúi Kvenna-
framboðsins i samtali við Tim-
ann i gær. Á þessum fundi
ræddu borgarfulltrúar minni-
hlutans hugsanlegt samstarf
þessara aðila um kosningu full-
trúa i nefndir.
Á aukafundi borgarstjórnar
nk. fimmtudag verður kjörinn
borgarstjóri, forseti borgar-
stjórnar, skrifarar og borgar-
ráð. Af þessum embættum
koma væntanlega tveir fulltrúar
i borgarráöi i hlut minnihlutans.
Alþýöubandalagið fær annan
þeirra, en hins vegar er spurn-
ingin sú hver fær fimmta mann-
inn i borgarráöi, og hvort ein-
hver samvinna geti orðiö á milli
þessaraaðila um nefndarskipan
aö öðru leyti.
„Það er hvort tveggja til um-
ræðu að allur minnihlutinn
standi saman, eða þá einhver
hluti hans. Það er ekki séð fyrir
endann á þvi ennþá”, sagði
Sigurður E. Guðmundsson,
borgarfulltrúi Alþýðuflokksins i
samtali við Timann i gær.
1 krafti sins meirihluta fær
Sjálfstæðisflokkurinn að sjálf-
sögðu meirihluta i öllum nefnd-
um og ráöum borgarinnar. Al-
þýðubandalagið fær einnig einn
fulltrúa i öllum fimm- og sjö-
manna nefndum. Þá eru eftir
ýmist eitt eða tvö sæti, þannig
að dæmið gengur ekki upp, þeg-
ar þrir flokkar standa þar enn
fyrir utan.
— Kás.
Súkku-
laðiís
— bls. 10
Cannes-
hátíðin
— bls. 23