Tíminn - 12.06.1982, Blaðsíða 1
50 ára afmæli Framsóknarfélags Árnesinga - bls. 8-9
Blað Tvo
1 blöð
1 í dag
Helgin 12.-13. júní 1982
131. tölublað — 66. árg.
— bls. 14
Ótti
Colombo
— bls. 2
ErSent
yfirlit:
Óvissa í
Póllandi
Tókíó
í rúst
bls. 15
Snjall
trúdur
— bls. 5
Uppistandið hjá sjálfstæðismönnum í bæjarstjórn Njarðvíkur:
NEYDDU BÆIARFULLTRÚA
TIL AÐ SEGJA AF SÉR!
■ JúUus Rafnsson, einn af fjórum
bæjarfuiltrúum Sjálfstæðisflokksins í
Njarðvík, sagði af sér embætti á fundi
í bæjarstjórninni i gærdag, og var
afsögnin tekin til greina með sam-
hljóða atkvæðum. Ágreiningur hefur
verið um það innan meirihluta Sjálf-
stæðisflokksins í Njarðvik, hvort
auglýsa eigi stöðu bæjarstjóra. Varð
Július einn undir i þeirri baráttu við
flokksbræður sina. Vildi hann auglýsa
stöðuna í samræmi við gefln kosninga-
loforð fýrir bæjarstjórnarkosningarn-
ar.
Tehir Július að meðframbjóðendur
sínir hafi svikið loforð, sem þeir hafi
gefið honum, um að staðan yrði
auglýst. Á mánudaginn var fundur
haldinn í fulltrúaráði sjálfstæðisfélag-
anna i Njarðvík. „Þessi fundur
samþykkti starfsreglur fyrir bæjarfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins, þar sem
þeim er meinað að hafa aðra skoðun
eða greiða atkvæði i bæjarstjórn á
annan hátt en meirihlutinn ákveður,"
sagði Július Rafnsson á fundi bæjar-
stjórnar Njarðvikur i gærdag. Jafn-
framt samþykkti fundurinn að leita
hófanna með meirihlutasamstarf með
öðrum flokkum ef hann gæfi sig ekki
í málinu um auglýsingu stöðu bæjar-
stjóra.
„Ljóst er að þessari samþykkt er
beint gegn mér vegna afstöðu minnar
til auglýsingar stöðu bæjarstjóra, og
gefið i skyn að mér sé nú þegar ofaukið
í þessum meirihluta. Vegna framan-
greindra kosningaloforða og sam-
komulags, sem meirihlutinn hefur nú
samþykkt að svikja með fulltingi
fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna i
Njarðvík, sé ég mér ekki fært að taka
þátt i meirihlutasamstarfi sjálfstæðis-
manna“, sagði Július Rafnsson.- Kás
■ Það var áfram sumarbliða í höfuðborginni i gær, og óvenjumargt fólk á ferli i miðborginni, þar sem rikti sannkölluð
markaðstorgSStemmnÍng. (Tínumynd: Róbert)
■ Verðlagsráð hefur samþykkt
hækkun á bensini, gasolíu, svart-
olíu, neyslufiski og unnum kjöt-
vörum, og koma þær til fram-
kvæmda i dag. Eru hækkanirnar
á bilinu 10-20%.
Hver litri af bensíni hækkar úr 9.45
kr. í 10.70 kr. eða um 13.2%. Af
hækkuninni sem nemur 1.25 kr. renna
79 aurar i rikissjóð, eða 63%
hækkunarinnar. Hækkunin stafar af
gengissigi, hækkun á dreifingarkostn-
aði, en þó fyrst og fremst hækkun
opinberra gjalda.
Hver lítri gasoliu hækkar um 15%,
úr 3.65 kr. i 4.20 kr. Hækkunin stafar
af gengissigi, auknum dreifingarkostn-
aði og hækkun opinberra gjalda, en þó
vegur þar þyngst tillag til að greiða
niður óhagstæða stöðu innkaupa-
jöfnunarreiknings, en hann er nú
óhagstæður um 25 millj. kr. i stað 9
millj. kr. i lok janúar sl.
Svartoliutonnið hækkar um 19.8%,
úr 2470 kr. í 2960 kr. Hækkunin stafar
af gengissigi og erlendum verðhækkun-
um.
Verðlagsráð tók siðast ákvörðun
um hækkun á oliuvörum um má: ða-
mótin janúar-febrúar sl., en á þv.'
tímabili sem liðið er siðan hefur
bandaríkjadollar hækkað um 16.3%.
Auk olíuvaranna hefur Verðlagsráð
samþykkt 10.5% hækkun á neyslufiski
sem er bein afleiðing nýtilkominnar
fiskverðsákvörðunar yfimefndar
Verðlagsráðs sjávarútvegsins, og
13-16.7% hækkun á unnum kjötvörum
sem er á sama hátt bein afleiðing nýs
búvöruverðs sem tekin var ákvörðun
um á dögunum.
- Kás