Tíminn - 17.06.1982, Qupperneq 1

Tíminn - 17.06.1982, Qupperneq 1
Hátíðahöldin í dag 17. júní — Bls. 10-11 TRAUST OG FJÖLBREYTT FRÉTT ABLAÐ! Fimmtudagur 17. júní 1982 135. tölublað - 66. árg. Síðumúla 15-Pósthólf370Reykjavík-Ritstjórn86300 - Auglýsingar 18300 - Afgreiðsla og áskrift 86300 - Kvöldsímar 86387 og 86392 NÆR 190 KILO AF MARI- HUANA SEND T1L ÍSLANDS — markaðsverðid um 20 milljónir króna —- ekki tekist að upplýsa hverjir eru eigendur eiturlyfjanna ■ Rúmlega eitt hundrað áttatiu og niu kíló af marihuana að verðmæti um 20 miOjónir króna á islenskum fíkni- efnamarkaði, eru nú i vörslu lögregl- unnar í Reykjavík. Ekki er vitað hver er cigandi efnisins. Hins vegar er vitað að efnið var sent frá Jamaica, tO New York. Þar fannst það i lok aprfl og kom þá i Ijós að sendingin var merkt ákveðnu fyrirtæki á íslandi. Sneru yfirvöld i Bandaríkjunum sér þá tfl íslenskra yfirvalda og lögðu tfl að sendingin yrði látin fara hingað tfl lands eftir venjulegum leiðum. FéUust lögregluyfirvöld hér á landi á það, i von um að málið yrði upplýst. Sendingin kom svo hingað með Flugleiðavél frá New York þann 5. mai s.l. Fjórir umferðarlögreglumenn úr Reykjavik voru sendir á vettvang til að fylgjast með sendingunni. Var henni fyrst komiö i vörugeymslu á Keflavíkurflugvelli, en samdægurs var hún send til Reykjavíkur og sett i vörugeymslu Flugleiða viðBíldshöfða. Þar kom í ljós að henni fylgdi svonefndur AIRWAY BILL sem farmskjal. Kom þar fram að sending- unni var lýst sem varahlutum í skip frá nafngreindu fyrirtæki i Jamaica. Farm- gjald hafði verið greitt alla leið frá Jamaica um New York til íslands. Rannsóknaraðilar í Bandarikjunum gátu ekki veitt upplýsingar um hvort liklegt væri að fikniefnunum væri ætlað að fara á markað hérlendis. Þeir töldu líklegra að fsland væri viðkomu- ■ Það kom fram á blaðamannafundinum sem haldinn var á lögreglustöðinni i gær að vel er hugsanlegt að fíkniefnin hafi fengist á mjög lágu verði á Jamaica. Bjarki Eliasson, yfirlögregluþjónn sýnir blaðamönnum fíkniefnin. staður og þess yrði freistað að koma efnunum áfram til óþekkts áfangastað- ar. Þó var ekki talið útilokað, að einhver freistaði þess að fá sendinguna afhenta hér með því að framvisa tilskildum pappírum. Einnig var talið hugsanlegt að reynt yrði að koma efnunum i skip til flutnings með svokölluðum transitvarningi. Siðdegis sama dag og sendingin kom ■ Á islenskum fiknicfnamarkaði var verðmætið sem þessir kassar innihéldu um 20 milljónir króna (tveir milljarðar gamlir). hingað til lands var ákveðið að flytja kassana úr vörugeymslunni og á lögreglustöðina i Reykjavik. Um kvöldið voru kassarnir opnaðir og fikniefnin tekin úr þeim og komið fyrir í öruggri vörslu á aðallögreglustöðinni í Reykjavík. Kassarnir voru siðan fluttir aftur í vörugeymsluna. Lögreglan hefur haft nánar gætur á fyrirtækinu sem sendingin var stiluð á. Ekkert hefur komið í Ijós sem bendir til að það sé viðriðið þetta mál. Á blaðamannafundi sem sakadóm- ur i ávana- og fikniefnum, lögreglu- stjórinn i Reykjavik og tollgæslustjóri efndu til i gær kom fram m.a. að mjög náið samstarf var meðal þessara þriggja embætta við rannsókn þessa máls. Voru þau öll sammála um það, að affarasælast yrði að fylgjast með sendingunni úr fjarlægð þegar hún kom til landsins. Var þvi talið óráðlegt að láta rannsóknarlögreglumenn vakta sendinguna, vegna hugsanlegrar eftirtektar sem þeir kynnu að vekja hjá öðrum sem ætluðu sér að ná sendingunni. Einnig kom fram að haft var samstarf við Interpol og bandarisku rannsóknarstofnunina DEA í þessu máli. Allir rannsóknaraðilar vildu fá lengri tima til að vinna þetta mál i kyrrþey. „Með einkcnnilegri frétt i einu dagblaðanna i morgun var höggvið á rannsóknarhnútinn í miðj- um klíðum," sagði Ásgeir Friðjóns- son, sakadómari i ávana- og fikniefn- um á fundinum í gær. Þess má geta að verðmæti þessarar fíkniefnasendingar jafngildir tveimur skuttogurum af fullkomnustu gerð, yfir hundrað sæmilegum nýjum bilum og tuttugu til þrjátiu ibúðum. -Sjó ASÍ UAÐI MALS A SKERTUM VERÐBÓTUM ■ „Það hefur kannski einhverjum dottið í hug að fuUt eins gott væri að semja sjálfur um vísitöluskerðingu, þannig að menn viti nákvæmlega að hverju þeir ganga, heldur en að láta blekkja sig með einhverjum talnaleik um kjarabætur og eiga síðan á hættu einhverjar óvissar ráðstafanir stjóm- valda, sem kannski yrðu ennþá stórfeUdari. Þvi það em jú almenn sannindi að enginn fær raunvemlegar kjarabætur við núgUdandi aðstæður“, sagði einn af samninganefndarmönn- um ASI i samtaU við Tímann í gær. Sú hugmynd mun hafa verið viðmð af ASÍ-mönnum að VSÍ fallist á ekki minni prósentuhækkanir en felast i samningi byggingarmanna á móti skertri vísitölu, sem þá um leið næði kauphækkuninni af byggingarmönn- um. Eðlilega þykir ASf mönnum súrt að sætta sig við minna en þeir og vitað er að torvelt verður að fá VSf til að fallast á svo miklar hækkanir og munu þeir þvi hugsa þetta sem mótleik. Tillaga um frestun verkfalla var sem kunnugt er lögð fram af sáttanefnd, en samkvæmt góðum heimildum munu rætur hennar liggja i röðum þeirra ASÍ-manna, cnda samþykktu þeir hana skjótt. En farið var að kvisast að ýmiss hinna tiltölulega fáu félaga úti á landi sem boðað höfðu verkfall 18. júni væru að guggna á framkvæmdinni auk þeirra bresta sem farnir voru að myndast i samstöðuna innan VR. VSÍ og VMSS samþykktu frestun með þvi skilyrði að hún gilti a.m.k. til 2. júlí Spurður um útlit samningamálanna nú og verkfallsfrestun svaraði Þor- steinn Pálsson: „Menn urðu sammála um að reyna að finna einhverjar leiðir til lausnar og þær eru menn að skoða. Um frestun verkfalla verður þú að spyrja hina. Það var ekki samkvæmt ósk frá okkur. Um sömu atriði sagði Björn Þór- hallsson: „Ég held að þetta sé komið í svona eðlilegan vinnufarveg, og treysti að það sé ekkert fals í því. Þegar menn fundu inn á það hugarfar sýndist okkur það mikið i húfi, að við tókum þá áhættu að fallast á tillögu sáttanefndar um frestun verkfall- anna“. -HEI Erlent yfirlit Englandi - bls. 7

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.