Tíminn - 17.06.1982, Síða 3
FIMMTUDAGUR 17. JUNI1982
fréttir
íslendingar þátttakendur í viðamiklum hvalarannsóknum f sumar:
HVALUR HF. STENDUR
UNDIR KOSTNAÐINUM
Til Súdans á
vegum Rauða
krossins
■ Jón H. Hólm kaupmaður í
Reykjavík, er á leið til Súdan þar sem
hann mun starfa á vegum Rauða Kross
íslands næstu þrjá mánuði.
Meginverkefni Jóns verður að sjá
tvennum flóttamannabúðum í Austur
Súdan og læknaliði i bænum Kassala
fyrir lyfjum og hjúkrunargögnum.
Ráðningatíma Jóns Hólm likur 1.
september. J>á er fyrirhugað að annar
íslendingur leysi Jón af hólmi og starfi í
Súdan fram að áramótum.
■ Bresk leiguflugvél og hafrannsókna-
skipið Árni Friðriksson verða á næstu
vikum upptekin við verkefni á vegum
Alþjóða hvalveiðiráðsins, Norðmahna
og íslendinga. Verkefnið er talning og
merking hvala hér við land og allt austur
undir Grænland. Hvalur h.f. greiðir að
mestu eða öllu leyti hlut tslendinga i
þessu verkefni.
Að sögn Jóhanns Sigurjónssonar hjá
Hafrannsóknarstofnun hefur Hvalur
h.f. sýnt verkefnum af þessu tagi mjög
mikinn skilning á undanförnum árum og
lánað skip sín til þeirra, fullmönnuð, ef
svo ber undir. Jóhann vildi ekki áætla
hve stór hlutur Hvals yrði i kostnaðin-
um, en taldi að 20.000 ensk pund væri
ekki of hátt áætlað.
Leiðangur Árna Friðrikssonar hefst
20. júni og stendur til 20. júlí. Fyrri tvær
vikurnar verður skipið vestur af landinu
við talningu og merkingu stórhvala, en
síðan fer hann norður fyrir land að sinna
hrefnunni. Bresk flugvél hefur verið
leigð í 100 flugtíma til að telja á
fjarlægari slóðum.
Jóhann Sigurjónsson er á förum i
næstu viku til að sitja fundi vísinda-
nefndarinnar á vegum Alþjóða hval-
veiðiráðsins, en þeir hefjast 25. júni. Að
undanförnu hafa hvalveiðiþjóðirnar inn-
an ráðsins mjög fundað um hver verði
þeirra viðbrögð ef til þess kemur að
ráðið samþykki algjört bann við hval-
veiðum, eða takmarki þær mikið
umfram það sem nú er.
Allar þjóðir sem eru innan Samein-
uðu þjóðanna, eiga rétt á þátttöku i
Alþjóðahvalveiðiráðinu. Á seinni árum
hefur borið á að þjóðir, sem ekki veiða
hval og eiga engra hagsmuna að gæta,
taki sæti í ráðinu, að þvi er virðist til að
koma á friðun hvala. Frá siðasta þingi
ráðsins, hafa fjórar þjóðir bæst þar i
hópinn og er talið að þrjár þeirra fylli
flokk hvalfriðunga, þ.e. írar, Finnar og
Mónacobúar, en vafi er um afstöðu
V-Fjóðverja. SV
Nýja símaskráira nú komin út
— „jafnréttiðM belgir hana út eftir að hvoru tveggja hjóna eru skráð fyrir síma
■ Ný simaskrá fyrir árið 1982 kom út
i gær. Verður byrjað að afgreiða hana í
Reykjavik á mánudaginn, 21. þessa
mánaðar, en jöfnum höndum verður að
MERKI TIL STUÐN-
INGS ÖLDRUÐUM
Merkinu er ætlað að tákna langlífi,
sjálfstraust, samfelldan vöxt og tengsl i
samfélaginu. Merkið er teiknað af
áttræðum Bandaríkjamanni.
í Reykjavik verður sölubörnum af-
hent merkið frá klukkan 10 i dag að
Frikirkjuvegi 11, en 17. júni-nefndir
munu annast dreifingu merkisins út um
land. Merkið kostar 20 krónur.
því unnið að koma henni út á land.
Upplag símaskrárinnar er að þessu sinni
um 111 þús. eintök, en nú munu
símanúmer í notkun á öllu landinu vera
tæplega 88 þús. talsins.
Mikið er um brcytingar á skránni frá
fyrra ári, bæði nafnabreytingar, svo og
vegna flutninga og aukanafna. Nema
breytingar um 20-24% af heildinni, sem
er mun hærra hlutfall en á síðasta ári. í
Reykjavik einni hefur nöfnum t.d.
fjölgað um 4-5 þús. Eru þar i flokki bæði
nýir notendur, og eins hefur færst i vöxt
að hvorutveggja hjóna eða sambýlis-
fólks skrái sig i skrána. Jafnréttið verður
því til þess að auka umfang og jafnframt
notagildi skrárinnar.
Símaskráin fyrir árið 1982 er algjör-
lega tölvukeyrð eins og sú sem kom út
i fyrra. Léttir það verkið til muna, enda
fer fram sívinnsla frá degi til dags, þar
sem breytingum og nýjum símanúmer-
um er bætt inn jafn óðum. Eru
simnotendur hvattir til að tilkynna
breytingar strax og þær gerast, en biða
ekki til áramóta vegna þessa breytta
fyrirkomulags. _ Kás.
■ Barmmerki i tilefni af ári aldraðra
er nú komið á markaðinn. Sala á því
hefst í dag, 17. júni.
Merkið prýðir einkennismynd heims-
ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um
öldrun, sem haldin verður í Vín í sumar.
Myndin er af bengölsku fíkjutré, sem
getur orðið geysistórt og skýlt allt að 20
þúsund manns undir greinum sínum.
Um 222 millj. fengnar að láni í Japan
■ Undirritaður hefur verið í Tokyo
samningur um lán til islenska ríkisins að
fjárhæð 5 milljarðar yena sem er
jafnvirði sem næst 222 milljóna króna.
Lánið er skuldabréfalán, en bréfin hafa
þegar verið seld beint til nokkurra
liftryggingafélaga í Japan fyrir milli-
göngu Nikko Securities.
Lánið er veitt til 15 ára og endurgreið-
ist á árunum 1994-1997. Vextir eru
8,6% en útgáfugengi bréfannaer 99,75.
Gert er ráð fyrir að lánsféð renni að
mestu leyti til hitaveituframkvæmda
hérlendis i samræmi við fjárfestingar- og
lánsfjáráætlun ríkisstjórnarinnar.
Islenska rikið hefur einu sinni áður
tekið lán hliðstætt þessu, i jánúar 1978,
og var þá sama upphæð fengin að láni
fyrir milligöngu sömu aðila og nú.
Þjónustumiðstöð
KASK
í versluninni: SKAFTAFELLI
Allar nauósynlegar matvörur,
búsáhöld og vefnaóarvara
mióuó vió þarfir feróamanna.
I veitingastofunni:
Heitur matur og grillréttir. Opið frá kl. 9 til 22 alla daga
Þjónustumiöstöö;
Kaupfélag Austur- Skaftfellinga
Þjóögaröinum SKAFTAFELLI