Tíminn - 17.06.1982, Page 4
4
FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1982
Föstudagur 18. júní
kl. 20:30
Gamla Bíó
Tónleikar
Breska kammersveitin
The London Sinfonietta leik
Dagskrá
Listahátíðar
í Reykjavík
Laugardagur 19. júní
kl.20:30
Leikfélag Reykjavíkur
Skilnaður
Frumsýning á nýju leikriti eftir Kjartan Ragnarsson, sem einnig er
leikstjóri.
Laugardagur 19.júní
kl.9:30
Norræna húsið
Föndurstofan
Opin öllum (hámarksfjöldi barna þó 15, aldur 3-6 ára)
Laugardagur 19. júní
kl. 17:00
Kjarvalsstaðir
Hafliði Hallgrimsson:
Fimm stykki fyrir píanó
(Halldór Haraldsson, píanó)
Guðmundur Hafsteinsson:
Brunnu beggja kinna björt Ijós
(Nora Kornblueh, selló, Óskar Ingólfsson, klarinett, Snorri S.
Birgisson, píanó)
Sunnudagur 20. júní
kl. 17:00
Laugardalshöll
Tónleikar
Sinfóníuhljómsveit íslands
Stjórnandi Gilbert Levine
Einsöngvari Boris Christoff, bassi
kl.20.30
Leikfélag Reykjavíkur
Önnur sýning á nýju leikriti eftirKjartan Ragnarsson
Sunnudagur 20. júní.
kl.14:00 '
Kjarvalsstaðir
Þorkell Sigurbjörnsson:
1) Niu lög við Ijóð eftir Jón úr Vör.
(Ólöf K. Harðardóttir, söngur Þorkell Sigurbjörnsson pianó)
2) Petits Plaisirs (smáglens) (Rut Ingólfsdóttir, fiðla Unnur María
Ingólfsdóttir, fiðla Inga Rós Ingólfsdóttir selló, Hörður Áskelsson,
sembal)
Ath. breyttan tónleikatíma.
Sunnudagur 20. júní
kl. 10:00
Gönguferð á vegum Arkitektafélagsins.
Gangan hefst við Gróðrastöðina Alaska.
Mánudagur 21. júní
kl. 18:00
Norræna húsið
Föndurvinnustofa
„Að mála - Börn og listamenn”
Jens Mattiasson frá Sviþjóð
Klúbbur Listahátíðar i
i Félagsstofnun stúdenta
við Hringbraut
17. júní: Guðný Guðmundsdóttir og Halldór Haraldsson flytja
sígaunamúsik.
18. júní Kvartett Kristjáns Magnússonar.
19. júní Karl Sighvatsson og Soyabaunabandið.
20. júni Kvartett Kristjáns Magnússonar.
Matur frá kl. 20.30.
Opið frá kl. 18:00-01:00 alla daga nema laugardaga og sunnudaga
frá kl. 18:00-03:00.
Matur framreiddur frá kl. 20.30.
Miðasala í Gimli við Lækjargötu.
Opin alla daga frá kl. 14-19.30.
Sími Listahátíðar: 2 90 55.
fréttir
Aukning umframskrefa á símum Reykjavíkurborgan
„ALVEG EÐLILEG"
segir Þorvarður Jónsson, yfirverkfræðingur
Pósts og síma
■ Á þriðjudag sagði Tíminn frá
niðurstöðum úr rannsóknum borgarend-
urskoðanda, sem sýndu að skrefatalning
Pósts og sima hefði orðið til þess að
umframskrefunum hefði fjölgað um
rúmlega 50%, ef mið var tekið af þremur
stærstu aðalsimum borgarinnar. Aukn-
ingin nam hins vegar um þriðjungi,
þegar tekið var tillit til notkunar á 177
öðrum simaviðtækjum, eða 31.3% að
meðaltali. Blaðið ræddi við Þorvarð
Jónsson yfirverkfræðing hjá Pósti og
síma um orsakir þessa.
„Þar sem það er þetta fyrirtæki sem
rannsóknin er byggð á, verður þetta að
teljast eðlilcgt," sagði Þorvarður, „enda
er um það bil öll símanotkun borgarinn-
ar á timabilinu frá 8-19, mánudaga til
föstudaga. Notkun sima er því nær engin
um kvöld og helgar og hvert símtal fær
á sig skrefatalningu. Skrefatalningin er
í 6 mínútur og meðallengd símtala í
Reykjavík er um 2.6. minútur. Það
veldur um 41-42% hækkun, sem er nærri
meðalhækkuninni hjá borginni.
Þessi rannsókn sýnir því ekkert um
heimilissímana og þar er hækkun miklu
rninni," sagði Þorvarður.
Tekjurýrnun
fram úr áætlun
„Þegar Póstur og sími tók upp
skrefatalningarkerfið þá var það vitað
að lækkunin á langlínusimtölum mundi
valda miklu meiri tekjuminnkun en
nemur tekjuaukningu af skrefatalningu
á bæjarsimtölum. Við vissum því að
stefnt var út í tekjurýrnun, en gerðum
ekki ráð fyrir að rýrnunin yrði jafn mikil
og hún virðist hafa orðið. Samt ber þess
að geta að þær mælingar sem fyrir liggja
segja ekkert algjörlega ótvírætt fyrr en
í haust. Ástæðan er sú að ársfjórðungun-
um er skáskotið, þ.e. landinu öllu er
skipt i þrjá hópa og ársfjörðungar taldir
á mismunandi hátt hjá hverjum þeirra.
Reikningar hvers hóps eru gerðir upp á
mánaðarfresti og þvi erfitt að gera
samanburð nema á löngum samanburð-
artíma. Óyggjandi niðurstöður höfum
við þvi ekki fyrr en í haust. Bráðabirgð-
artölur hingað til virðast þó gefa i skyn
að tekjurýrnun vegna þessarar breyting-
ar haft valdið meiri tekjurýrnun en ráð
var fyrir gert. Ástæðan kann að vera sú
að margir notendur séu tortryggnir út i
breytinguna að ástæðulausu, en hver
talning er nefnilega alls ekki dýr. Hringi
menn klukkutímalangt símtal, þá gefur
það tíu talningar, kostar einar 6-7
krónur og það eru ekki svo miklir
peningar nú.“ -AM
Adalfundur Sambands íslenskra samvinnufélaga:
Aldarafmæli Sam-
vinnuhreyfingarinnar
■ Aðalfundur Sambands íslenskra
samvinnufélaga verður haldinn um
næstu helgi. í tilefni af aldarafmæli
samvinnuhreyfingarinnar er hann að
þessu sinni haldinn á Húsavík, aðsetri
Kaupfélags Þingeyinga, sem er elsta
kaupfélag landsins. Fundurinn hefst kl.
13.00 föstudaginn 18. júni og lýkur
siðdegis á laugardag. Á sunnudag
verður síðan haldin hátíðarsamkoma á
Laugum, þar sem afmælisins verður
minnst.
111 fulltrúar
frá 44 félögum
Á aðalfundi Sambandsins eiga að
þessu sinni rétt til fundarsetu 111
fulltrúar frá 44 Sambandskaupfélögum.
Auk þess sækja fundinn stjórnarmenn
Sambandsins, framkvæmdastjórar þess,
framkvæmdastjórar samstarfsfyrirtækja
og ýmsir aðrir starfsmenn Sambandsins.
Fyrir fundinn verður að vanda lögð
ítarleg prentuð ársskýrsla, þar sem
greint er frá starfsemi hinna ýmsu deilda
Sambandsins og birtur ársreikningur
þess, og jafnframt verður flutt skýrsla
stjórnar og forstjóra. Sérmál fundarins
eru stefnuskrá samvinnuhreyfingarinn-
ar, sem lengi hefur verið unnið að, og
er búist við að hún verði tekin til
lokaafgreiðslu.
Allir landsmenn
velkomnir
Hátiðarsamkoman að Laugum í
Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu hefst
kl. 15.00 sunnudaginn 20. júni. Valur
Arnþórsson, formaður stjórnar Sam-
banjsins, setur hátíðina, forseti íslands,
Vigdís Finnbogadóttir, flytur ávarp og
Finnur Kristjánsson, formaður afmælis-
nefndar, heldur ræðu. Að þvi búnu
verður fluttur leikþátturinn „Isana
leysir“ eftir Pál H. Jónsson undir
leikstjórn Sigurðar Hallmarssonar. Þá
flytur Robert Davies ávarp, en hann er
fulltrúi Alþjóðasamvinnusambandsins
á hátiðinni. Sigriður Ella Magnúsdóttir
syngur einsöng, en að þvi loknu flytur
Erlendur Einarsson hátiðarræðu. Þá
verður á dagskrá kórsöngur Kirkjukóra-
sambands Suður-Þingeyjarsýslu, og að
lokum mun Valur Amþórsson slita
samkomunni.
Allir landsmenn eru boðnir velkomnir
á þessa hátiðarsamkomu i tilefni af
aldarafmæli samvinnuhreyfingarinnar.
Listahátíð 1982
Konungur bassasöngvaranna
Boris Christoff
með Sinfónfuhljómsveit
íslands
Stjórnandi:
Gilbert Levine
gardalshöll
Sunnudaginn 20. júní
kl. 17.00 '
Efnisskrá:
Beethoven: Leonóra forleikur nr. 3
Mozart: Aría Leporellos úr óperunni Don Giovanni
Verdi: Forleikur að óperunni Vald örlaganna Recitativ og aríur
Bankós úr II. þætti óperunnar Macbeth
Söngur Filippusar li. úr óperunni Don Carlos
Hlé
Glinka: Atriði og aría úr óperunni Lif keisarans
Tsjaikovsky: Rómeó og Júlia
Mussorgsky. Dauði Boris keisara úr óperunni Boris Godunov
Miðasala í Gimli v. Lækjargötu
kl. 14.00-19.30, daglega. Sími 29055