Tíminn - 17.06.1982, Síða 6

Tíminn - 17.06.1982, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 17. JÚNf 1982 Bilaleigan\$ CAR RENTAL 29090 SESm3 REYKJANESBRAUT 12 REYKJAVIK Kvöldsími: 82063 ÍSSKAPA- OG FRYSTIKISTU VIÐGERÐIR Breytum gömlum ísskápum i frystiskápa. Góð þjónusta. WOfk: REYKJAVIKURVEGI 25 Hafnarfirði sími 50473 Starf bæjarstjóra Starf bæjarstjóra á Sauðárkróki er laust til umsóknar. Upplýsingar um starfið gefur bæjarstjóri í síma 95-5133. Umsóknarfrestur er til 28. júni n.k. og skulu umsóknir stílaðar til bæjarstjórans á Sauðár- króki. 16. júní 1982 Bæjarstjóri GLUGGAR OG HURÐIR Vönduð vinna á hagstœðu verði. Leitið tilboða. ÚTIHURÐIR Dalshrauni 9. Hf. S. 54595. Aðeins kr. 17.400 fyrir Suzuki bifhjói Þetta er sérstakt tskifæri fyrir þá sem vilja gera góð kaup og eignast Suzuki Tsl25er bifhjól. Við getum afgreitt aðeins nokkur Suzuki Tsl25er bifhjól fyrir aðeins kr. 16.800 (sama verð og létt 50 cc vélhjól kostar í dag.) SUZUKI UMBOÐIÐ Suðurlandsbraut 6 simi 83499 Framsóknar- og sjálfstæðis- menn stjórna Grindavík GRINDAVÍK: Nýkjörin bæjarstjórn seti bæjarstjórnar verður Ólína Ragn- öllum 3ja og 5 manna nefndunum. í Grindavík kom nýlega saman til síns arsdóttir og 1. varaforseti Kristinn Eins varð samkomulag um að Eiríkur fyrsta fundar. Þar kom fram að Gamalielsson. Gildir það allt kjör- Alexandersson verði ráðinn bæjar- framsóknarmenn og sjálfstæðismenn tímabilið. Þá munu framsóknarmenn stjóri til 1. mai 1983. hafa myndað saman meirihluta. For- og sjálfstæðismenn skipta með sér - G.V./HEI. NORÐURLAND: Samkvæmt könn- un á þætti landbúnaðar í atvinnulífi þjóðarinnar voru um 6.800 ársverk unnin í landbúnaði árið 1980, þar af um 6.000 við sauðfjár og nautgripa- rækt, að því er fram kom á ráðstefnu þeirri er haldin var i Miðgarði s.l. föstudag, i tilefni aldarafmælis búnað- arfræðslu á Hólum í Hjaltadal. En þar var gerð grein fyrir stöðu landbúnaðar- mála á íslandi um þessar mundir. Auk framangreinds fjölda er talið að um ■ Ráðstefna um þróun landbúnaðar var haldin í tilefni af þvi að öld er nú liðin 3.000 ársverk hafi farið til úrvinnslu síðan búnaðarkennsla hófst hér að Hólum í Hjaltadal. Um 800 störf við loð- dýrarækt innan fárra ára ullar, skinna, mjólkur og kjöts. í ræðu landbúnaðarráðherra, Pálma Jónssonar kom m.a. fram að i bili a.m.k. hefur þrengst um markað fyrir búvörur, ekki sist innanlands og enn frekar fyrir kjötið en mjólkurafurðirn- ar. Gífurleg sala var þó á lambakjöti i maímánuði s.l. Miklar umræður urðu um nýjar leiðir i landbúnaði. Aðallega voru það nýjar aukabúgreinar svo sem hlunn- indi ýmisskonar, loðdýrarækt og fisk- eldi sem menn telja gefa möguleika á eflingu íslensks landbúnaðar. Kom fram að rekaviður, silungur i vötnum og æðardúnn eru víða lítið notuð hlunnindi. Þannig taldi t.d. Arni G. Pétursson að nota mætti rekavið sem mikilvægan orkugjafa. Einnig taldi hann silungsvötn viða yfirfull. Þá töldu menn að viða, ekki sist á Norðurlandi, megi koma við fiskirækt i stórum stil. Hjá Áma ísakssyni, fiskifræðingi kom m.a. fram að á Norðurlandi væri stórlax um 50% af heimtum laxaseiða sem sleppt er á móti 20% Suðvestanlands. Flestir munu þó binda einna mestar vonir við refa og minnkarækt, en refarækt er talin henta venjulegum búrekstri allvel og stofnkostnaður refabúa sagður tiltölulega lágur. Sums staðar sé t.d. unnt aðnýta ýmsargerðir húsa sem fyrir eru á jörðum til að hýsa refina og spara þannig byggingar. Tekið var fram að allar þessar nýju búgreinar eigi það sammerkt að þróun þeirra er að hefjast hér á landi og nokkur tími muni því líða þar til þær hafi öðlast fastan sess sem hluti af islenskum landbúnaði. Þó er talið að loðdýraræktin út af fyrir sig geti innan fárra ára veitt allt að 800 manns atvinnu. - HEI. ■ Sýning á verkum Bjöms Skaptason- ar hefur verið opnuð i Galleri Lækjar- torgi i dag. Bjöm er 21 árs, hefur lokið stúdentsprófi, en er sjálfmenntaður í myndlistinni. Sýningin verður opin kl. 14.00 til 18.00 mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga, en kl. 14.00 til 22.00 aðra daga vikunnar. Handritasýning í Árnastofnun ■ Stofnun Árna Magnússonar hefur að venju opnað sumarsýningu handrita í Árnagarði. Á sýningunni eru handritin tvö sem endurheimt voru 21. april 1971: Konungsbók eddukvæða og Flateyjar- bók. Að öðru leyti er sýningin einkum helguð Jónsbók, og eru þar mörg handrit hennar auk litmynda og vegg- spjalda með skreytingum úr handritum. Jónsbók nefnist lögbók sú sem gerð var að frumkvæði Magnúsar konungs lagabætis og lögtekin á Alþingi árið 1281. Hún er kennd við Jón lögmann Einarsson sem átti þátt i gerð hennar og flutti hana til íslands. Deilur voru um Jónsbók í öndverðu, og voru íslendingar tregir til að samþykkja ýmis nýmæli hennar, en síðan varð hún mjög vinsæl og undirstaða islensks réttarfars i margar aldir. TC19WD 1 l3lK>Ílldll\ ■ Steypubíll frá B.IVI Vallá stórskemmdist þegar hann valt skammt frá bænum Dýjahlið á Kjalarnesi í fyrrakvöld. BíIIinn var á leið að nýbyggingu við bæinn og var honum ekið eftir bráðabirgðavegi. Vegarkanturinn gaf sig undan þunganum, bíllin fór á hliðina og siðan ofan i skurð. Ökumaðurinn slapp ómeiddur. Ljósmynd: Sverrir Vilhelmsson. Engins Type: Horsapower: Torque: Transmission: stuttar fréttir 2-stroke cyde. air-cooled, 1-cylinder 9.5 kW (12.5 HP) at 8,000 r/min 12.5 N.m. (1.30 kg-m, 3.4 Ib-ft) at 6-speed constant mesh Háskólamenn njá rikinu: Búa við 40-80% lakari launakjör — en starfsbræður þeirra á almennum vinnumarkaði ■ Aðalfundur launamálaráðs BHM var haldinn i orlofsheimilum bandalags- ins að Brekku i Biskupstungum fyrir skömmu. Á fundinum lét Már Pétursson af starfi sem formaður ráðsins, en við ' tók Ásthildur Einarsdóttir. Eftirfarandi ályktun um kjaramál var samþykkt á fundinum: „Á þessu vori gengu enn einu sinni kjaradómar um kjör rikisstarfsmanna innan BHM. Enn einu sinni tók dómurinn alfarið mið af þeirri einföldu kröfu rikisins að ekki mætti bæta kjörin. Enn einu sinni hundsaði dómurinn þau skýru lagaákvæði sem gera honum skylt að miða laun ríkisstarfsmanna við laun hliðstæðra starfsstétta hjá öðrum launa- greiðendum. Nú er svo komið að laun ríkisstarfs- manna innan BHM eru 40-80% LÆGRI en hliðstæðra stétta hjá öðrum launagreiðendum. Mjög mikill urgur er í félagsmönnum þeirra félaga sem aðild eiga að launamálaráði BHM. Ekki bætir úr skák sú Ijósa stefna ríkisvaldsins að semja um verulegar lagfæringar til handa einstök- um stéttum sem hafa tangarhald á hinum bráðari almannahagsmunum og þeim sem hafa hátt sölugengi á markaði augnabliksins. Með þessu er öðrum beinlínis sagt að una lélegum kjörum eða hypja sig ella. Margir hypja sig - en aðrir telja sig bundna af störfum sínum. Þessi framkoma ríkisvaldsins er með öllu óþolandi. Nú virðast hópuppsagnir vera tísku- fyrirbrigði sem dugir vel til kjarabóta vegna pólitisks slagkrafts. Því verður ekki trúað að ríkisvaldið telji málum betur komið i slíkri upplausn."

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.