Tíminn - 17.06.1982, Side 17
FIMMTUDAGUR 17. JUNl 1982
17
fþróttir
■ Heimir Karlsson sækir að marki Eyjamanna, en Páll markvörður Pálmason er sneggri til og gómar knöttinn. Mynd. Ari.
Víkingur sigraði ÍBV 2:0 í Meistarakeppninni:
Verðsku Idaðu r
Víkingssigur
■ Gunnar Gunnarsson og Heimir
Karlsson tryggðu Víkingum sigurinn i
hinni svokölluðu Meistarakeppni KSÍ i
gærkvöldi með því að leggja að velli ÍBV
2-0. Voru Vikingamir vel að sigrinum
komnir, þeir léku einn af sinum betri
leikjum það sem af er sumri.
Nokkuð jafnræði var með liðunum í
fyrri hálfleiknum, en þó voru Vikingarn-
ir öllu ákveðnari, m.a. átti Aðalsteinn
skot í stöng ÍBV-marksins utanvírða.
Hinum megin varði Ögmundur vel frá
Ómari í tvígang.
Eftir fremur rótega byrjuri seinni
hálfleiks átti Ómar Torfason tvö
sannkölluð dauðafæri á 63. mtn, en tókst
ekki að nýta þau. Aðeins mín. seinna
skoraði Gunnar Gunnarsson með
hörkuföstu skoti úr vítateignum, 1-0.
Undir lok leiksins bætti Heimir Karlsson
við öðru marki, fékk stungusendingu og
skoraði af öryggi, 2-0.
{liði Víkings átti Gunnar Gunnarsson
skinandi góðan leik. Þá voru Þórður
Marelsson og Jóhannes Bárðarson
góðir. Annars varð það áberandi hjá
Vikingsliðinu í þessum leik hve jafnt
það var.
Hjá ÍBV bar mest á Ómari Jóhanns-
syni í fyrri hálfleik.
-IngH
Alsírbúar sigrudu Vestur-Þjóðverja 2:1
Ótrúleg
úrslit
■ Snillingurínn Karl-Heinz Rummen-
igge skoraði mark fyrir Vestur-Þjóðverj-
ana, en það dugði ekki til og
Alsirbúamir fóro með sigur af hólmi.
Perú missti
af messurmi
Frá Erik Mogensen, fréttamanni
Tímans á Spáni:
■ Landslið Perú gat ekki notið ætlaðs
messuhalds að dvalarstað sinum við La
Coruna, vegna fjarveru prests þess- er
átti að þjóna þeim í messunni.
Forráðamenn Perú-liðsins eru mjög
vonsviknir vegna þessa atviks, jafnvel
óttaslegnir því flestir leikmennirnir eru
ákafir kaþólikkar og eru vanir að
leggjast á bæn fyrir hvern leik.
Margir hafa hent gaman að fréttum af
brostnum messuvonum Perúmanna og
kom siðar i ljós að þeir voru hálf
niðurbrotnir i leiknum gegn Kamerún
(sem endaði óvænt 0-0.)
Frá Erik Mogensen, fréttamanni Tím-
ans á Spáni:
■ Úrslitin í leikjum Heimsmeistara-
keppninnar hér i dag (miðvikudag) voru
með ólikindum, einkum að Alsirbúum
skyldi takast að leggja sjálfa Vestur-
Þjóðverja að velli, 2-1. Þá kom það
verulega á óvart að Spánverjum skyldi
ekki takast að sigra Honduras. Einu
úrslitin sem kallast „normal" voru sigur
enskra gegn Frökkum, 3-1.
Fyrsti hálfleikur leiks Englendinga og
Frakka var fremur jafn, en fyrsta markið
skoraði Robson eftir aðeins 30 sek. Á
24. mín jafnaði Soler fyrir Fransmenn
og eftir það fóru þeir að sækja i sig
veðrið. Hinn frægi Platini var tekinn úr
umferð af Wilkins.
Seinni hálfleikur var hinn fjörugasti,
Frakkar sóttu framanaf, en Englending-
ar tóku forystuna með góðu marki
Robson með skalla, 2-1. Skömmu
seinna skoraði Mariner þriðja markið,
3-1.
Hinn mikli hiti (34 gráður) setti svip
sinn á leikinn. Copell, Francis og
Robson áttu bestan leik enskra. Platini
var bestur í liði Frakka.
Honduras tók óvænt forystuna á 7.
mín. leiksins gegn Spáni og var þar að
verki starfsmaður að nafni Zlaya, en
Spánverjar sóttu stíft nær allan fyrri
hálfleikinn. Hið sama var uppi á
teningnum i seinni hálfleiknum uns
Saura fiskaði viti, sem Lopez Uarte
skoraði úr, 1-1. Vöm Honduras-búa var
Frá Erik Mogensen, fréttamanni Tím-
ans á Spáni:
■ Vestur-þýski landsliðseinvaldurinn,
Jupp Derwall, hefur í fararneyti sinu 4
svokallaða njósnara, hverra hlutverk er
að fylgjast með leikjum andstæðinga
Þjóðverjanna. Meðal spionanna er Bert
Vogt, einn besti leikmaður landsliðs-
föst fyrir hinni miklu sókn spánskra.
Þá er komið að sigri Alsír gegn
Vestur-Þýskalandi. Þeir þýsku áttu mun
meira í þessum leik, en Alsírbúarnir
vörðust vel og áttu skyndisóknir inn á
milli. Staðan í hálfleik var 0-0.
í seinni hálfleiknum tóku Alsirarnir
forystu en Rummenigge jafnaði fyrir
þýska. Sú sæla varð skammvinn því
Alsir kvittaði fyrir sig aðeins 2 min
seinna og tók forystuna 2-1. Þeim
úrslitum varð ekki haggað þrátt fyrir nær
stöðuga sókn Vestur-Þjóðverjanna.
Óvæntustu úrslit í HM frá 1950 (er
Kanar sigruðu Englendinga) voru stað-
reynd. EM/IngH
ins U-21, en hans hlutverk er að
„kortleggja“ enska landsliðið. Þjálfari
U-liðsins, Dietrich Weise, mun verða til
staðar á leik Brasiliu og Rússlands, sem
er opnunarleikur 6. riðils. Hinir tveir
sem eftir eru hafa júgóslavneska og
spánska landsliðið á sínum snærum.
EM/lngH
Fjórir T,njósnarar”
med vestur-þýskum
PUNKTAR
Tveir
knattspyrnumannanna úr liði
ítala, sem sigraði í keppninni
1934, voru „náðaðir“ af þáverandi
einvaldi Mussolini. Mussi vildi
ekki að liðið frá 1934 tapaði leik
og bannaði þvi að leika saman
meir. En 4 árum seinna urðu
ítalirnir að verja titil sinn og þá
sótti þjálfarinn, Vittorio Puzzo,
það hart að tveir úr 1934-liðinu
yrðu „náðaðir“ og varð það, úr
eftir miklar fortölur. Auðvitað
sigruðu ítalirnir í kcppninni
(1938), lögðu Ungverja að velli i
úrslitaleiknum 4-2.
Úr því að
ítalir eru til umræðu hér má geta
þess að HM-leikmennimir nú fá
rúmlega 200 þúsund krónur hver
fyrir það eitt að tryggja sér sæti í
milliriðlunum.
Þrir leikir
eru á dagskrá HM í dag. í öðrurn
riðli leika Chile og Austurríki og
er það nánast úrslitaleikur um sæti
í milliriölinum, því Vestur-Þjóð-
verjarnir verða að teljast vtsir um
framhald i keppninni. Þá leika
Tékkar gegn Kuwait-búum i 4.
riðli og Júgóslavar mæta Norður-
frum i 5. riðli.Siðamcfndi leikur-
inn ætti að gcta orðiö spennandi.
Á föstudag leika síðan Brasilia-
Skotland (þvílikur leikur...), ítal-
ía-Pcrú og loks Argentina-Ung-
verjaland, en þann leik verða
Argentinumennirnir að vinna.
Fransmaðurinn
Bemard Lacombe á merkilegt
met í HM. Árið 1978skoraði hann
eftir aðeins 38 sck. i leik
Frakkanna gegn Ítalíu. En, þvi
miður, ítalirnir hristu af sér slenið
og sigruðu 2-1.
Hvor er betri
Maradona eða Zico? Þessari
spurningu var varpað fram til 136
blaðamanna í Norður-, Mið- og
Suður-Ameriku. Maradona sigr-
aði naumlega, hlaut 572 stig gegn
524 stigum Zico. Nú i HM gefst
hins vegar fótboltaáhugamönnum
um allan heim tækifæri á að kveða
upp sinn úrskurð. Við hér á
Timanum teljum að staðan sé nú
1-0 fyrir Zico eftir fyrstu lcikina.
Hvaö finnst ykkur?
Pelé „tippar“
hvaða lið komast í milliriðlana: 1.
riðill: ítalia og Pólland, 2vriðill:
Vestur-Þýskaland og Chilc, 3.
riðill: Argentina og Belgia, 4.
riðill: England og Tékkóslóvakia,
5. riðilt: Spánn og Júgóslavia, 6.
riðill: Brasilia og Skotland...