Fréttablaðið - 31.12.2008, Blaðsíða 7
H A U S
MARKAÐURINN 7ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2008
V I Ð Á R A M Ó T
sjávarborðinu, lítur út fyrir að
Ísland muni standa af sér nú-
verandi ókyrrð,” sagði Roberts
Vanes í grein um íslenska banka-
erfið í Acquisitions Monthly.
Nokkrum dögum síðar sigldu
bankarnir inn í ísbreiðu.
„Við leggjum áherslu á að fjár-
málakerfið í landinu geti starfað
óhindrað áfram eins og verið
hefur,“ sagði Geir H. Haarde,
þegar ríkið tók yfir 75 prósenta
hlut í Glitni í lok september. Þá
höfðu mikil fundahöld verið í
Seðlabankanum helgina á undan.
Glitnismenn höfðu leitað í Seðla-
bankann eftir þrautarvaraláni.
„Þessi atburðarás kemur mér
verulega á óvart og er maður þó
orðinn ýmsu vanur úr þessari
átt,” sagði Jón Ásgeir. Ákvörð-
un Seðlabankans um þjóðnýt-
ingu Glitnis væri óskiljanleg
og óhugnaleg. Davíð Oddsson
sagði að Glitnir hefði farið í þrot
innan skamms hefði þetta ekki
verið gert. Markaðurinn upp-
lýsti að hagfræðisvið Seðlabank-
ans hefði ekki verið haft með
í ráðum til að meta afleiðing-
ar þessa.
Stoðir, stærsti eigandi Glitn-
is, fór í greiðslustöðvun. Hrun-
ið var hafið.
OKTÓBER
Lánshæfismat bankanna lækk-
aði í kjölfar Glitnismálsins.
Davíð Oddsson mætti á ríkis-
stjórnarfund og vildi þjóðstjórn.
Kaupþingsmenn komu til kvöld-
fundar í stjórnarráði.
„Krónan er orðin eins og
geislavirkur úrgangur sem allir
forðast að koma nálægt,” sagði
Þórólfur Matthíasson, prófess-
or við Háskóla Íslands. Geng-
isvísitalan fór yfir 200 stig. Er-
lendir bankar hættu viðskiptum
með krónu.
„Ég fullyrði hér að ríkisstjórn
mín mun hvergi slá af í þeirri
stefnu sinni að tryggja með
öllum tiltækum ráðum stöðug-
leika fjármálakerfisins og færa
þær fórnir sem nauðsynlegar
kunna að verða,” sagði Geir H.
Haarde, í stefnuræðu á Alþingi.
„Ég bendi á að hann er einn ör-
fárra í Evrópu sem enn er starf-
andi án þess að hafa notið sér-
stakrar aðstoðar seðlabanka,”
segir Ásgeir Friðgeirsson, tals-
maður Landsbankans, í byrjun
október. Síðar kom fram að þá
þegar hefði bankinn leitað eftir
þrautarvaraláni.
„Ég er sannfærður um að
okkur takist að halda okkar hlut
og laga okkur að breyttum að-
stæðum,” sagði Sigurður Ein-
arsson, stjórnarformaður Kaup-
þings.
Daginn eftir kom forsætisráð-
herra óvænt fram í sjónvarpi.
„Sú hætta er raunveruleg, góðir
landsmenn, að íslenska þjóðar-
búið myndi, ef allt færi á versta
veg, sogast með bönkunum inn
í brimrótið og afleiðingin yrði
þjóðargjaldþrot. Engin ábyrg
ríkisstjórn teflir framtíð þjóð-
ar sinnar í slíka tvísýnu, jafnvel
þótt sjálft bankakerfi þjóðarinn-
ar sé í uppnámi. Til slíks höfum
við, ráðamenn þjóðarinnar, ekki
leyfi. Íslenska þjóðin og fram-
tíð hennar gengur framar öllum
öðrum hagsmunum.” Um kvöld-
ið samþykkti Alþingi neyðarlög-
in. Fjármálaeftirlitið varð valda-
mesta stofnun landsins. Gengi
krónunnar hrundi.
„Það gera sér allir grein fyrir
því að mikil verðmæti hafa farið
forgörðum síðustu sólarhringa,
en ég vona að skilanefndin reyni
að varðveita þau verðmæti sem
eftir eru,” sagði Þorsteinn Már
Baldvinsson, fráfarandi stjórn-
arformaður Glitnis, eftir að
skilanefnd tók yfir stjórn bank-
ans.
Skömmu síðar tók skilanefnd
við Landsbankanum.
Davíð Oddsson kom í Kast-
ljós. „Við ætlum ekki að borga
erlendar skuldir óreiðumanna,”
sagði hann.
Bretar settu hryðjuverkalög
á Landsbankann. Kaupþing féll.
Atburðarás „sem enginn sá fyrir
eða gat haft stjórn á,” sagði Sig-
urður Einarsson.
Gengið var fest í rúman dag.
Gjaldeyrir var skammtaður.
Norrænar lánalínur voru virkj-
aðar. „Ég segi nú bara þó fyrr
hefði verið. Þetta á að tryggja
viðskipti með nauðsynlega hluti
eins og lyf, olíu og, ef því er að
skipta, matvæli.” sagði Össur
Skarphéðinsson, iðnaðarráð-
herra.
Nýir bankar voru stofnaðir.
Eignir peningamarkaðssjóða
bankanna stórminnkuðu. Helm-
ingur varð eftir. Öllu meira en
langt í frá allt var greitt síðar.
Seðlabankinn lækkaði óvænt
stýrivexti um þrjú og hálft pró-
sentustig 15. október. Þeir voru
síðan hækkaðir í 18 prósent. Þá
þótti ljóst að Ísland færi að efna-
hagsáætlun Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins. Tilkynnt var 24. ok-
bóber að leitað yrði til sjóðs-
ins. Skilyrði efnahagsaðstoðar
fengust ekki birt. Margir gagn-
rýndu að farið væri til sjóðs-
ins, Vinstri-græn þar fremst í
flokki, en aðrir sögðu enga aðra
leið í stöðunni. Willem H. Buiter,
breskur hagfræðingur, greindi
frá því að hann hefði lagt þetta
til við stjórnvöld þegar á vor-
mánuðum.
Fréttablaðið upplýsti að Seðla-
bankinn kynni að tapa hundr-
uðum milljarða í endurhverf-
um viðskiptum við fallna banka.
Smærri bankar eru enn á fresti
til að færa Seðlabankanum veð.
Sumir sögðu Seðlabankann vera
tæknilega gjaldþrota.
„Ég vil ekki fegra myndina.
Exista er í erfiðri stöðu,” sagði
Lýður Guðmundsson, stjórn-
arformaður í lok mánaðarins.
Ákveðið var að taka félagið af
markaði.
NÓVEMBER
Blásið var til rannsóknar á
bankahruninu. Valtýr Sigurðs-
son, ríkissaksóknari, og forveri
hans Bogi Nilson voru fengnir
til verksins, en sögðu sig frá því
vegna fjölskyldutengsla.
„Reynist það rétt að stjórn
Kaupþings hafi afskrifað skuld-
ir starfsmanna vegna hluta-
bréfakaupa í bankanum munu
stjórnvöld sækja það fast
að samningum þar að lútandi
verði rift,“ sagði Björgvin G.
Sigurðsson viðskiptaráðherra.
„Þarna er ekki gætt jafnræð-
is heldur er greinileg mismun-
un í gangi. Almenni hluthafinn,
sem kannski hefur tapað ævi-
sparnaðinum eða er með lán á
bakinu fyrir hlutabréfakaupun-
um, þarf að standa sína pligt,”
sagði Pétur H. Blöndal, formað-
ur efnahags- og skattanefndar
Alþingis. Skattayfirvöld rann-
saka málið. Skúli Eggert Þórð-
arson, ríkisskattstjóri, segir að
hafi skuldir verið gefnar eftir,
teljist þær til tekna.
Enda þótt sótt hafi verið um
aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins, stóð allt fast í þeim hefn-
um. „Enn sem komið er, hefur
ekkert formlegt erindi borist
stjórn sjóðsins,” sagði Thomas
Moser, fulltrúi Sviss í stjórn Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins. Geir H.
Haarde hafði skömmu áður sagt
að ekki hefði verið lokið við við-
bótarfjármögnun. Það mál stóð
fast vegna Icesave deilunnar.
Þar stóðu Evrópuríki saman um
að veita ekki lán nema málið
yrði til lykta leitt. Hermt var að
forseti Íslands hefði skammað
Breta, Svía og Dani á fundi með
erlendum sendiherrum. Stjórn-
málaflokkar á Alþingi tilnefndu
sitt fólk í ný bankaráð.
„Málefni Stíms ehf. hafa verið
til skoðunar hjá Fjármálaeftirlit-
inu, þar með talið lánveitingar,”
segir Íris Björk Hreinsdóttir,
upplýsingafulltrúi Fjármálaeft-
irlitsins. Félagið var talið dæmi
um hvernig fjármálafyrirtæki
hefðu reynt að halda uppi hluta-
bréfaverði með leppfélögum.
Alþingi setti lög um gjaldeyr-
ishöft, bann við fjármagnsflutn-
ingum og skilaskyldu á erlendum
gjaldeyri. Þetta var gert að boði
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins til að
verja krónuna falli við flot.
DESEMBER
Fyrsta fréttin í jólamánuðinum
var um lægsta gengi krónunnar
frá upphafi. Gengisvísitalan fór
yfir 250 stig. Gengið hækkaði
síðan við flotið. Því var lýst svo
að krónan væri bæði með „kút
og kork“. Lilja Mósesdóttir hag-
fræðingur, taldi að skilaskylda
á gjaldeyri skýrði tímabundna
hækkun. Gengisvísitalan lækk-
aði ört og fór í 190 stig en undir
lok ársins var hún komin aftur í
yfir 220.
Fjárlög voru samþykkt. Hall-
inn er yfir 150 milljarðar en auk
þess verður mikill niðurskurð-
ur og skattprósentan hækkuð
um 1,25 prósent. Þau munu vera
í samræmi við skilyrði Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins. Tilkynnt var
að sjóðurinn setti Íslendingum
tilsjónarmann með aðsetur hér
á landi.
Davíð Oddsson sagði í viðtali
við danskt blað að hann myndi
snúa aftur í stjórnmálin, yrði
honum ýtt út úr seðlabankan-
um.
Jón Ásgeir Jóhannesson
og fleiri honum tengdir voru
ákærðir fyrir skattsvik. Hagar
voru sektaðir um yfir 300 millj-
ónir króna fyrir samkeppnis-
lagabrot.
„Mér finnst þetta mikil gjaf-
mildi,” sagði Vilhjálmur Bjarna-
son, framkvæmdastjóri Sam-
taka fjárfesta, um að eigendur
Milestone fái áfram hlut í fyrir-
tækinu, eftir uppgjör, enda þótt
skuldirnar séu helmingi meiri
en eignir.
ALÞJÓÐAGJALDEYRISSJÓÐURINN TEKUR VIÐ Poul Thomsen,
fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins gagnvart Íslandi, útlistar efnahags-
aðstoð sjóðsins á blaðamannafundi. MARKAÐURINN/ANTON
MILLI STEINS OG SLEGGJU Lárus Welding gengur í sal milli
Ingimundar Friðrikssonar og Davíðs Oddssonar. Á þessum
fundi var tilkynnt um yfirtöku ríkisins á Glitni. MARKAÐURINN/GVA
DAVÍÐ FÆR KRISTALSKÚLU Davíð Oddsson seðlabankastjóri
upplýsti í nóvember að hann hefði þegar í febrúar fengið bend-
ingar um að bankarnir myndu ekki getað fjármagnað sig. Hann
varð sextugur í janúar og fékk þá gefins kristalskúlu.
MARKAÐURINN/EYÞÓR ÁRNASON
KAUPÞINGSMENN Á KVÖLDFUNDI Hreiðar Már og
Sigurður Einarsson ræddu við forsætisráðherra seint um kvöld
skömmu fyrir fall Kaupþings. MARKAÐURINN/STEFÁN
Björgólfur Thor Björgólfs-
son er ennþá ríkasti Íslend-
ingurinn. Eignir hans eru
metnar á 230 milljarða. Aðrir
standa ekki eins vel að vígi.
Sem dæmi voru eignir Ág-
ústs og Lýðs Guðmundssona
metnar á 80 milljarða hvors
um sig fyrir ári síðan. Nú eru
eignir hvors þeirra metnar á
19 milljarða. Það er einung-
is fjórðungur af því sem þeir
áttu þegar úrvalsvísitalan stóð
sem hæst.
Markaðurinn, viðskipta-
blað Fréttablaðsins, birt-
ir í dag lista yfir fimmtán
ríkustu Íslendingana. Mikl-
ar breytingar hafa orðið í
hópi þeirra sem komast á
listann. Menn eins og Hann-
es Smárason, sem átti eign-
ir upp á 42,5 milljarða króna
fyrir ári, komast ekki á lista.
Hið sama á við um Magn-
ús Kristinsson. Hans eignir
voru metnar á um 40 millj-
arða króna.
Björgólfur ríkastur í júlí
RÍKASTUR UM MITT ÁRIÐ Björgólfur Thor Björgólfsson gengur af fundi forsæt-
isráðherra á köldu haustkvöldi skömmu fyrir þjóðnýtingu Landsbankans. Í kjölfarið
fór Samson eignarhaldsfélag í þrot. MARKAÐURINN/DANÍEL RÚNARSSON
„Við höfum fengið nokkrar fyr-
irspurnir um fjárhagsstöðu
sjóðsins, einkum frá erlend-
um blaðamönnum,“ sagði Jónas
Þórðarson, framkvæmdastjóri
Tryggingasjóðs innstæðueig-
enda. Þessi frétt sem birtist
snemma á árinu vakti ekki mikla
athygli en var ef til vill fyrir-
boði um það sem koma skyldi.
Þá var fólk byrjað að taka pen-
inga út af Edge og Icesave.
Sigurjón Árnason, bankastjóri
Landsbankans, staðfesti að svo
væri, en bætti við að aðrir legðu
inn í staðinn. „Viðskiptavinum
hefur fjölgað mikið, en hver
og einn leggur inn lægri fjár-
hæð.“ Síðar í mánuðinum var
tilkynnt um að Icesave-reikn-
ingar yrðu opnaðir víðar en í
Bretlandi. „Samkvæmt heim-
ildum Markaðarins nema heild-
arinnlán á þessum reikningum
nú um 800 milljörðum króna,
sem kemur sér vel fyrir bank-
ana nú þegar fátt er um fína
drætti á alþjóðlegum fjármögn-
unarmörkuðum.“
Telegraph sagði íslenska banka
standa á brauðfótum og Sunday
Times varaði landa sína við því
í febrúar að leggja hærri upp-
hæðir inn á íslenska innláns-
reikninga en 35 þúsund pund. Á
sama tíma lögðu Bretar fúlgur
fjár inn á Icesa-
ve-reikninga
í Lands-
bankaúti-
búinu og
á Edge-
reikninga
í dótturfé-
lagi Kaup-
þings.
Það var svo í júní að Icesave
hóf göngu sína í Hollandi. „Það
er miklu verðmætara að hafa
350 þúsund viðskiptavini en
100 þúsund,“ sagði Sigurjón í
ágúst.
„Mest ræddum við hvaða
lærdóm má draga af þessu
stormasama ári á fjármála-
mörkuðum,” sagði Björgvin
G. Sigurðsson viðskiptaráð-
herra um fund sinn með
Alistair Darling, fjármála-
og bankamálaráðherra Bret-
lands. Fundurinn snerist ein-
göngu um að koma Icesave-
reikningunum í breska lögsögu.
Það upplýstist síðar, en í
millitíðinni seldi
Baldur Guð-
laugsson,
ráðuneyt-
isstjóri
í fjár-
mála-
ráðu-
neyt-
inu,
sem einnig sat fundinn, öll
hlutabréf sín í Landbankanum.
Landsbankinn féll í byrjun
október. „Þau geta ekki bara
neitað að standa í skilum,“
sagði Gordon Brown, for-
sætisráðherra Bret-
lands, um íslensk
stjórnvöld og inn-
stæður Breta í ís-
lenskum bönk-
um á Sky-sjón-
varpsstöðinni.
Hann sagði
það hafa verið rétta ákvörðun
að grípa til ákvæða í lögum um
hryðjuverk til að kyrrsetja ís-
lenskar eigur í Bretlandi.
Síðar var birt samtal Árna M.
Mathiesen, fjármálaráðherra,
við Alistair Darling, sem fram
fór í síma 7. október. Þar varaði
Darling meðal annars við af-
leiðingum af því að Íslending-
ar gætu ekki ábyrgst Icesave-
reikninga.
„Forystumennirnir í bank-
anum bera auðvitað ábyrgð á
því að þetta fór af stað. Menn
geta ekki vikið sér undan þeirri
ábyrgð í sjálfu sér,“ sagði Geir
H. Haarde. Icesave hefði falið í
sér gríðarlega áhættu fyrir Ís-
land. Úr þessu máli hafi orðið
ein erfiðasta milliríkjadeila
sem Íslendingar hafi lent í.
„Ég er þess fullviss að ef rétt
verður farið með þær eignir, þá
duga þær fyrir Icesave-reikn-
ingunum og gott betur,“ sagði
Björgólfur Thor Björgólfsson í
lok október.
Samist hefur um að Íslend-
ingar greiði að lágmarki 20.887
evur fyrir hvern Icesave reikn-
ing. Sú upphæð nemur á sjö-
unda hundruð milljarða króna,
en eignir koma á móti.
Lárus Finnbogason, formað-
ur skilanefndar Landsbankans,
sagði í desember að líkast til
myndu 150 milljarðar standa
út af þegar eignir hefðu verið
seldar. Þá er ekki tekið tillit til
fjármagnskostnaðar.
Icesave:
Ævintýri í evrum og pundum
SPURT UM ICESAVE Erlendir blaðamenn og íslenskir spurðu margra spurninga um Icesave-reikningana á blaðamannafundum Geirs H. Haarde forsætisráðherra og
Björgvins G. Sigurðssonar viðskiptaráðherra. MARKAÐURINN/PJETUR
HOLLENDINGAR MINNA Á SIG Icesave borða var veifað á knattspyrnuleik í
Hollandi. Þarlendir sparifjáreigendur óttuðust um sitt. NORDICPHOTOS/AFP
Í 400 stærstu fyrirtækj-
um landsins telja 76 pró-
sent stjórnenda að aðstæður í
efnahagslífinu séu frekar eða
mjög slæmar. Telja 22 prósent
þær hvorki góðar né slæm-
ar og einungis 2 prósent telja
þær góðar, samkvæmt könnun
Capacent Gallup sem birt var
um mitt árið.
Vísitala efnahagslífsins miðað
við núverandi aðstæður hefði
aldrei verið lægri frá því að
sambærilegar kannanir hóf-
ust árið 2002. Meirihluti fyr-
irtækjanna bjóst við óbreytt-
um starfsmannafjölda en um
fjórðungur hugðist fækka
starfsfólki. Hjá einungis 19
prósentum svarenda væri nú
skortur á starfsfólki en mikill
meirihluti þeirra, 81 prósent,
taldi sig hins vegar hafa nægj-
anlegt starfsfólk.
Svartsýni um mitt ár
SVARTSÝNI Á EFNAHAGSLÍFIÐ Þrír af hverjum fjórum stjórnendum voru
svartsýnir um efnahagslífið um mitt árið. Þá var þegar búið að tilkynna um mörg
hundruð uppsagnir í fiskvinnslunni og framundan enn frekari uppsagnir í bygging-
ariðnaði. MARKAÐURINN/GVA
yrissjóðurinnkom
200
175
150
125
100
75
50
ja
n.
fe
b.
m
ar
.
ap
r.
m
aí
jú
n. jú
l.
ág
ú.
se
p.
ok
t.
de
s.
nó
v.
2008
G E N G I E V R U N A R
5
10
15
20
V E R Ð B Ó L G A N
ja
n.
fe
b.
m
ar
.
ap
r.
m
aí
jú
n. jú
l.
ág
ú.
se
p.
ok
t.
de
s.
nó
v.
2008
%
VERÐBÓLGAN ÓX „Þessi verðbólguskot
eru allaf upp á við. Verðbólgan hefur
farið vaxandi frá árinu 2003 í mjög
föstum takti. Það væri kannski nær að
tala um verðbólgustökk,“ sagði Gylfi
Arnbjörnssn hjá Alþýðusambandinu.
GENGIÐ HRUNDI Enda þótt krónan
fljóti nú og evran kosti rétt um 160 krón-
ur hjá Seðlabankanum, eins og myndin
sýnir, þá skráði evrópski seðlabankinn
evruna á 290 krónur þriðja desember. Sú
skráning stendur enn.