Fréttablaðið - 03.01.2009, Qupperneq 8
8 3. janúar 2009 LAUGARDAGUR
1 Hve margir laxar veiddust í
Eystri-Rangá á nýársdag?
2 Hvað telur Vinnumálastofn-
un að atvinnuleysi verði mikið?
3 Af hverju er Fréttablaðið á
bleikum pappír?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 42
FJÖLMIÐLAR Fimm ára útgáfusögu
sunnlenska fréttablaðsins
Gluggans er nú lokið, en síðasta
eintak blaðsins kom út fyrir
áramót. Öllum starfsmönnum
hefur verið sagt upp.
Blaðið var fríblað og borið í
hvert hús á Suðurlandi og hafði
tekjur sínar af auglýsingum.
Gerð var tilraun til að breyta því í
áskriftarblað en það gekk ekki
sem skyldi þar sem ekki náðist að
safna nógu mörgum áskrifendum.
Efnahagsþrengingar eru sagðar
ástæða þess að blaðið er lagt
niður.
Fjórir fastir starfsmenn unnu
að útgáfu blaðsins og kom það út í
tæplega 8.000 eintökum. - kóp
Héraðsfréttablað hættir:
Glugganum lok-
að endanlega
VINNUMARKAÐUR Takmarkanir á
frjálsum atvinnu- og búseturétti
ríkisborgara frá Rúmeníu og Búlg-
aríu hefur verið framlengdur til
ársins 2012, samkvæmt frétt sem
birt er á vefsíðu Vinnumálastofn-
unar, en atvinnu- og búseturéttur
þessa fólks hefði átt að vera
gefinn frjáls um áramót.
„Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið
að framlengja heimild er setur
skorður á frjálsa för ríkisborgara
frá Rúmeníu og Búlgaríu til
atvinnuþátttöku hér á landi til
ársins 2012. Atvinnuþátttaka
þeirra á íslenskum vinnumarkaði
verður því áfram háð dvalar- og
atvinnuleyfum,“ segir þar. - ghs
Vinnumarkaður:
Atvinnuréttur
takmarkaður
NEYTENDUR Frá og með áramótum
verða allir greiðsluseðlar
Íbúðalánsjóðs sendir út með
rafrænum hætti. Þetta minnkar
pappírsnotkun og sparar peninga
auk þess að vera umhverfis-
vænna.
Seðlarnir birtast í heimabanka
viðskiptavina sjóðsins. Þeir sem
þess óska geta fengið pappírs-
seðla senda til sín. Nú þegar eru
greiðslumat, lánsumsóknir og
flestar þjónustubeiðnir rafræn
hjá sjóðnum.
Hluti seðilgjaldsins verður
felldur niður við breytinguna.
Gjaldtaka er þó ekki horfin því 75
króna greiðslugjald þarf að reiða
af hendi. - kóp
Breytingar hjá Íbúðalánasjóði:
Allir greiðslu-
seðlar rafrænir
GAZA, AP Ísraelski herinn hélt áfram
loftárásum á Gazasvæðið í gær,
sjöunda daginn í röð. Að þessu sinni
var ráðist á heimili margra af ráða-
mönnum Hamas-samtakanna, auk
þess sem sprengjum var varpað á
mosku.
Ísraelar virðast hafa tekið upp þá
nýbreytni að vara íbúa nærliggj-
andi húsa við árásum, ýmist með
símtölum eða með hljóðsprengjum.
Einnig var dreifiblöðum varpað úr
herþotum, þar sem gefin voru upp
símanúmer og íbúar hvattir til að
tilkynna Ísraelum um sprengju-
sveitir Hamas-samtakanna.
Alls hafa á fimmta hundrað
manns fallið og 1700 særst vegna
loftárása Ísraela á Gaza undan-
farna viku. Óljóst er hve margir
hinna látnu voru almennir borgar-
ar, en talsmaður Hamas-samtak-
anna segir að um helmingurinn séu
lögreglu- og öryggisþjónar á vegum
samtakanna. Sameinuðu þjóðirnar
segjast hafa heimildir um að meira
en hundrað hinna látnu séu almenn-
ir borgarar, þar af tugir barna.
Hamas-menn halda ótrauðir
áfram að skjóta heimagerðum
sprengiflaugum yfir landamærin
til Ísraels, og ræður hending ein
hvar þau koma niður.
Flest þeirra húsa, sem Ísraelar
eyðilögðu í gær, voru mannlaus, en
á fimmtudaginn var Nizar Rayan,
einn af fimm helstu leiðtogum
Hamas, ráðinn af dögum ásamt
fjórum af eiginkonum sínum og tíu
af börnum sínum.
Moskan, sem jöfnuð var við jörðu
í gær, var að áliti Ísraela nátengd
Hamas-samtökunum, sem einnig
eru sögð hafa notað hana sem
vopnageymslu.
Víða í Mið-Austurlöndum var
efnt til fjöldamótmæla gegn Ísrael
að loknu föstudagsbænahaldi. Þús-
undir manna mótmæltu á Vestur-
bakkanum og lýstu samstöðu sinni
með íbúum Gazasvæðisins. Í Jerús-
alem tókst Ísraelum að takmarka
mótmælin með því að banna karl-
mönnum innan fimmtugs að fara til
föstudagsbæna í Al Aksa-mosk-
unni.
Ísraelar leyfðu í gær nærri 300
íbúum Gazasvæðisins, sem hafa
erlendan ríkisborgararétt, að yfir-
gefa svæðið, sem hefur verið nán-
ast algerlega lokað.
Condoleezza Rice, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sagði í gær
að Hamas-samtökin hafi „haldið
íbúum Gazastrandar í gíslingu allar
götur síðan þau gerðu ólöglega
stjórnarbyltingu gegn Mahmoud
Abbas“, forseta Palestínustjórnar.
gudsteinn@frettabladid.is
Ísraelar byrjaðir að
vara við árásunum
Nærri fimm hundruð manns hafa fallið í loftárásum Ísraela á Gazasvæðið und-
anfarna viku, þar af að minnsta kosti hundrað almennir borgarar. Í gær var
sprengjum varpað á mosku og heimili margra ráðamanna Hamas-samtakanna.
Æ FLEIRI BÖRN BORIN TIL GRAFAR Nizar Rayan, einn af helstu leiðtogum Hamas-samtakanna, var í gær borinn til grafar ásamt
fjórum eiginkvenna sinna og tíu barna sinna. Þau fórust í loftárás Ísraela á bæinn Beit Lahiya á fimmtudag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BANDARÍKIN, AP Ökumenn í
Bandaríkjunum, sem orðið hafa
uppvísir að því að aka undir
áhrifum áfengis, þurfa framvegis
að blása í blöðru áður en þeir geta
ekið af stað.
Samkvæmt nýrri löggjöf í sex
af ríkjum Bandaríkjanna er þeim
gert skylt að koma fyrir nýjum
útbúnaði í bifreiðum sínum, sem
gerir þeim ókleift að ræsa vélina
fyrr en þeir hafa sannað það, með
því að blása í tækjabúnaðinn, að
þeir séu allsgáðir.
Auk þess þurfa þeir að blása í
tækið með reglulegu millibili
meðan á akstri stendur. - gb
Ný lög í Bandaríkjunum:
Blásið í blöðru
til að ræsa bíl
Bílvelta í Víkurskarði
Bílvelta varð í Víkurskarði í gærdag,
þegar kona missti stjórn á bíl sínum.
Mjög mikil hálka var á svæðinu. Bíll-
inn var óökufær eftir veltuna. Konan
var flutt á slysadeild en var ekki talin
mikið slösuð.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Allir fengu bókhaldsforrit
Öll heimili í Súðavíkurhreppi hafa
fengið bókhaldsforritið Bóthildi að
gjöf frá sveitarfélaginu. Höfundur þess
býr í Súðavík, en um 70 heimili eru í
sveitarfélaginu.
SÚÐAVÍKURHREPPUR
UTANRÍKISMÁL Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir utanríkisráðherra
hefur ákveðið að veita 12
milljónum
króna til
mannúðarstarfs
á Gaza.
Ákvörðunin er
tekin vegna
hörmungar-
ástandsins sem
þar er og er
aðstoðin veitt
með milligöngu
Rauða kross
Íslands og
Palestínuflóttamannaaðstoðar
Sameinuðu þjóðanna.
Á gamlársdag tók ráðherra
undir yfirlýsingu Friðarráðs um
ástandið á Gaza. Þar er þess
krafist að Ísraelsher hætti
árásum sínum á Gaza og alþjóða-
samfélagið er hvatt til að senda
alþjóðlegt herlið á vettvang. - kóp
Utanríkisráðherra:
Veitir 12 millj-
ónum til Gaza
INGIBJÖRG
SÓLRÚN
GÍSLADÓTTIR
Tæplega 9.000 atvinnulausir
Atvinnuleysi hefur aukist verulega
í landinu undanfarna mánuði. Um
áramótin voru tæplega 9.000 manns
atvinnulausir á landinu, langflestir á
höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesj-
um.
VINNUMARKAÐUR
– Lifið heil Lægra
verð
í Lyfju
www.lyfja.is
30% verðlækkun
á VISINE augndropum. Dæmi: Visine fyrir þreytt
og viðkvæm augu: 2.078 kr. 1.455 kr. Gildir til 15.1. 2009
22% verðlækkun
á NICORETTE tyggjói í 210 stk. pk.
Dæmi: Fruitmint, 2 mg: 6.348 kr. 4.949 kr.
VEISTU SVARIÐ?
VINNUMARKAÐUR Íslandspóstur
hefur sagt upp fastri yfirvinnu hjá
tæplega þrjátíu bréfberum á höf-
uðborgarsvæðinu. Yfirvinnan
hefur verið frá hálfum tíma og
upp í einn tíma á dag og nemur
launalækkunin að jafnaði 18-36
þúsund krónum fyrir skatta. Bréf-
berarnir hafa verið með um 200
þúsund krónur á mánuði.
Yfirvinnan sem um ræðir hefur
verið reglubundin og þá fyrst og
fremst í sambandi við flokkun á
fyrirtækjapósti en Ingimundur
Sigurpálsson, forstjóri fyrirtækis-
ins, segir að þessi póstur hafi að
magni til dregist saman og verið
sé að mæta þeim samdrætti.
„Þetta er bundið við þessa tegund
af vinnu og nær ekki til allra bréf-
bera, langt frá því,“ segir hann.
„Þetta er ekki bein launalækkun
heldur er verið að bregðast við
minnkandi umsvifum.“
Ingimundur segir að laun yfir-
stjórnenda hjá Íslandspósti hafi
ekki hækkað í samræmi við hækk-
un á almennum markaði í byrjun
ársins. Starfskjaranefnd stjórnar
Íslandspósts sé hins vegar með
launalækkun stjórnenda fyrirtæk-
isins til skoðunar í framhaldi af
tilmælum forsætisráðherra um að
kjör stjórnenda fyrirtækja í eigu
ríkisins verði tekin til endurmats.
„Það mál er til skoðunar í ljósi
framkvæmdarinnar á þessum
lögum og ég á von á að það verði
tekin ákvörðun af stjórninni fljót-
lega upp úr áramótum,“ segir Ingi-
mundur.
Um 450 bréfberar starfa hjá
Íslandspósti. - ghs
Íslandspóstur segir upp fastri yfirvinnu bréfbera á höfuðborgarsvæðinu:
Lækkun upp á 18-36 þúsund
INGIMUNDUR SIGURPÁLSSON