Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.01.2009, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 03.01.2009, Qupperneq 28
24 3. janúar 2009 LAUGARDAGUR GÓÐ VIKA / SLÆM VIKA AUGNABLIK FINNDU ORÐIN FRÉTTAGETRAUN VIKUNNAR Orðin geta verið á ská, upp, niður, afturábak eða áfram. TILKOMUMIKIÐ Áramótabrennur eru töfrandi og margir sem hafa af því gaman að fylgjast með þeim. Fjölmenni var á áramóta- brennunni í Grafarvogi þar sem myndin er tekin. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR HORFT ÚT Í HEIM Kolbeinn Óttarsson Proppé 1. Hvað heitir knattspyrnumaðurinn íslenski sem er á leið til Liverpool? 2. Hversu margir sóttu um starf sérstaks saksóknara, sem rann- saka á aðdraganda bankahruns- ins, áður en umsóknarfrestur rann út? 3. Hvað verða mörg leyfi boðin út til olíuleitar á Drekasvæðinu? 4. Tónleikaferð hvaða poppara aflaði mestra tekna á síðasta ári? 5. Hvaða tveir gamalreyndu tónlistarmenn spila nú með Pops? 6. Hvað eru mörg íslensk börn ættleidd á ári hverju? 7. Hver er framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins? 8. Hver var maður síðasta árs, samkvæmt Mark- aðnum? 9. Hvað heitir sirkussýningin sem sýnd er í Hafn- arfirði nú um helgina? 10. Úr hverju drápust á þriðja tug hrossa í kringum hátíðardagana? 11. Hvenær var fyrsta áramótaskaup Ríkissjónvarpsins sýnt? 12. Umboðsmaður Alþings komst að þeirri niðurstöðu í lok ársins að miklir annmarkar hefðu verið á skipan Árna M. Mathisen á héraðsdómara. Hvað heitir hér- aðsdómarinn sem skipaður var? 13. Salurinn fagnaði tíu ára afmæli í vikunni. En hvar er hann? 14. Hvað voru margir sæmdir fálkaorðunni á nýársdag? 15. Mikil mótmæli voru fyrir utan Hótel Borg á gamlársdag þar sem reynt var að ná eyrum ráðamanna sem sátu þar inni við útsendingu árlegs sjónvarpsþáttar. Hvað heitir hann? Kranamaðurinn Babu Sassi, frá Kerala í suðurhluta Indlands, kippir sér lítið upp við að vera álitinn hetja af þúsundum byggingarverka- manna í Dubai. Raunar veit Babu minnst af þessari stöðu sinni, en flökkusögur um hann fara eins og eldur í sinu um hina gríðarlega fjölmennu stétt. Óvíða er byggt jafnmikið og í Dubai og því margir sem heyra af Babu í kaffiskúrunum. Babu er kallaður „Indverjinn á hátindi heimsins“ og ekki að ósekju. Dagleg störf hans fara fram í tæplega 900 metra hæð, og þótt vissulega bendi ýmsar staðreyndir til þess að heimurinn sé aðeins hærri en það, er þetta býsna hátt. Babu er kranamaður og sem slíkur er hann vanur að vera hátt uppi og horfa niður á heiminn. Kraninn hans er hins vegar staðsettur ofan á hæstu byggingu heims, hinni 819 metra háu Burj Dubai. Þar situr hann daglangt í krananum, sem sjálfur er nokkrir tugir metra, og hífir og slakar eins og vindurinn. Það eru ekki hæfileikar Babu í að hífa, eða nákvæmni hans við að slaka timburstöflum á hárréttan stað, sem gera hann að þeirri hetju sem hann er. Ástæða allra flökkusagnanna um hann er sú að Babu býr í krananum sínum. Honum finnst það of mikil fyrirhöfn að fara tæpan kílómetra niður á jörð til að koma sér þaðan heim. Og því sé fínt að halla sér bara í þröngu stýrishúsi kranans. Hvort það segir meira um aðstæður heima fyrir hjá Babu en þægindi kranans skal ósagt látið. Hins vegar hefur þessi saga farið eins og eldur í sinu á meðal byggingarverkamanna í landinu og borist víða út um heimsbyggðina. Og sögurnar verða æ meira spennandi og hetjuljómi Babus verður skærari. Daglega glímir hann við dauðann þarna uppi í háloftunum og þegar vinnu lýkur og hinir dauðlegu halda heim á leið leggur hann sig í krananum. Hver veit nema hann hífi á nóttunni þegar aðrir sofa; slíkir eru kraftar Babus. Þó eru sumir sem segja hann vera fífldjarfan. Augljóslega þurfi verkamenn hvíld og það sé líka betra en ekki að kranamaðurinn sé úthvíldur, þar sem hann lætur þyngslin svífa yfir hausum mannanna. Sagan af Babu er dæmigerð saga í uppbyggingu og þenslu. Féð skortir ekki í Dubai og þar hafa menn skuldbundið sig til að láta það flæða áfram þrátt fyrir heimskreppuna. Og tíminn er peningar og ekki má verkið stoppa. Það þekkjum við hér á Íslandi þar sem kappið var oft meira en forsjáin í byggingarframkvæmdum. Þannig verða flökkusögur eins og sagan af Babu stjórntæki í höndum valdsins. Þannig hefur það alltaf verið, sama hvort um var að ræða íslenska sjómenn, áður en vökulögin tryggðu þeim sex tíma hvíld á sólarhring í upphafi 20. aldarinnar, eða sovéska verkamenn sem voru píndir áfram með verkamannahetjuna Stakanov sem fyrirmynd, sem vann sólarhringum saman Sovétríkjunum til dýrðar. Íslendingar gætu kannski bent Dubaibúum á að það er ekkert sérstaklega eftirsóknarvert að æða áfram án þess að sjást fyrir. Um það vitna hálfkaraðar byggingar um allt höfuðborgarsvæðið og flekkótt háhýsi af hverjum flísar hafa fallið vegna slælegra vinnu- bragða í flýtinum. Engan Babu Sassi hér, takk. Indverjinn á hátindi heimsins Lausnir: 1. Guðlaugur Viktor Pálsson 2. Enginn 3. Fimm 4. Tónleikaferð Madonnu? 5. Gunn- ar Þórðarson og Magnús Kjartansson 6. Eitt til tvö 7. Sigþrúður Guðmundsdóttir 8. Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar 9. Stórasti Sirkus Íslands 10. Úr salmonellu- sýkingu, sem líklega barst úr settjörn í bit- haganum. 11. Á gamlárskvöld árið 1966 12. Þorsteinn Davíðsson 13. Í Kópavogi 14. Ellefu 15. Kryddsíld Góð vika... ...fyrir Skaupsfólk Silja Hauksdóttir, Sigurjón Kjartansson og allir sem stóðu að Skaupinu geta varla kvartað því Skaupið slapp fyrir horn og vel það. Það hefði reyndar þurft yfirburðaklúðrara til að klúðra Skaupi eftir annað eins ruglár. Þrátt fyrir að skorið væri við nögl í fjárframlögum Rúv miðað við fyrri góðærisskaup leit Skaupið metnaðarfullt út og var fyndið á löngum sprettum. Almenn ánægja er með það í samfélaginu, þótt eldra fólk heyrist tala um að Spaugstofan hefði nú örugglega gert þetta betur. ...fyrir mótmælatrúbador Hörður var kjörinn Maður ársins á Rás 2 með miklum yfirburðum. Þetta er heiður sem aðeins útvaldir hljóta og þrátt fyrir að hafa gefið út ótal sólóplötur síðan 1970 hefur Hörður ekki átt möguleika á þessum titli fyrr. Dropinn holar steininn og enn á ný stendur Hörður fyrir útifundi í dag á sama stað og á sama tíma, á Austurvelli kl. 15. Slæm vika... ...fyrir Kryddsíldarumsjónar- mann Vitanlega er Sigmundur Ernir hundfúll yfir endasleppri Kryddsíld á gamlársdag. Hver vill láta „brjálaðan skríl“ stoppa beina útsendingu sem maður er með og leggja þar með stein í götu „lýðræðislegrar umræðu“, eins og það er kallað. Reyndar voru fjórir viðmælendur búnir að fá að jarma í góða stund í boði Rio Tinto í kapp við hávært baul og bank útivið, sem mun hafa verið í boði banka- hrunsgremjunnar. Geir komst ekki einu sinni í partíið, sem er slæmt, því hann hefði örugg- lega haft eitthvað rosalega ferskt og uppbyggilegt til málanna að leggja. Eða þannig. ...fyrir mótmælanorn Eva Hauksdóttir á ekki sjö dagana sæla. Hún neyðist hvað eftir annað til að gera að piparúða- augnmeiðslum fjölskyldumeðlima og nú eru einhverjir kónar farnir að böggast á Norna- búðinni hennar á Vesturgötu. Margoft er búið að rústa rúðunni og telur Eva þessar árásir tengjast þátttöku hennar í mótmælun- um. Löggan dregur lappirnar í málinu, samkvæmt Evu, og því er vonandi að hún hafi einhverja galdra í pokahorninu til að vinna gegn óværunni. -drg

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.