Tíminn - 07.07.1982, Qupperneq 1
WMHfffTHBSTfBffTTf
fylgja bladinu í dag
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTT ABLAÐ!
Miðvikudagur 7. júií 1982,
151. tbl. 66. árg.
í það
heilaga
bls* 2
Flat-
fótur
- bls. 23
Á hesta-
slóðum
— bls. 22
Sjónvarpið ver einkarétt sinn á útsendingu
HM-leikja hérlendis:
FÉKK LÖGBANN SETT Á
FYRIRTÆKW VIDEÓSON
„Helvíti hart, þegar sjónvarpið stendur sig ekki í
stykkinu’% segir forsvarsmadur Vídeóson
■ Fógetarétturinn í Reykjavík hefur
sett lögbann á sýningar fyrirtækisins
Videóson á leikjum frá heimsmeistara-
keppninni á Spáni. Lögbannið var sett
að kröfu rikisútvarpsins, sem telur sig
eiga einkarétt til sýninga frá heims-
meistarakeppninni hér á landi. Úr-
skurðurinn var kveðinn upp um
kvöldmatarleytið i gær af Þorsteini
Thorarensen, borgarfógeta.
„Það verða ekki fleiri leikir sýndir á
okkar kerfi,“ sagði Jóhannes Reykdal,
forsvarsmaður Videóson, í samtali við
Tímann i gær. „Mér finnst óneitanlega
helviti hart, að Sjónvarpið, sem ekki
stóð í stykkinu varðandi útsendingar
frá heimsmeistarakeppninni, skuli
fara fram á þetta lögbann. Það kemur
úr hörðustu átt því að það eina sem
fyrir okkur vakti , var að gefa fólki
kost á að fylgjast með þessu vinsæla
sjónvarpsefni," sagði Jóhannes.
„C.B.U. hefur selt Rikisútvarpinu
sýningarréttinn á öllum leikjum frá
heimsmeistarakeppninni á Spáni.
Sjónvarpið borgaði fyrir hann 450
þúsund krónur og þvi var farið fram á
þetta lögbann,“ sagði Bergur Guðna-
son, lögmaður Ríkisútvarpsins í lög-
bannsmálinu.
„Þegar ég fór þess á leit, féllust
Vídeósonmenn á að sýna ekki fleiri
leiki frá keppninni. En ég taldi ekki
nægilega tryggt, að loforðið yrði
haldið. Þess vegna varð að fara fram
á lögbann. Þvi brot á lögbanninu er
alvarlegt mál sem kallar yfir sig
refsiábyrgð," sagði Bergur.
Ennfremur sagði Bergur, að innan
viku yrði Ríkisútvarpið að höfða
staðfestingarmál, þar sem skotið yrði
lagalegum rökum undir lögbanns-
beiðnina. Ef beiðnin reynist ekki á
rökum reist, fellur lögbannið niður og
verður þá Rikisútvarpið að greiða
allan kostnað sem af því hlýst til
Videóson.
- Sjó.
'
■ Það er skemmtilegt að sltreppa í sund i sól og bliðu, eins og sést á þessari dömu á myndinni. Og sund er lika heilsusamlegt sport sem sjálfsagt er að stunda, þótt
ekki sé trimmdagur.
Timamynd: EUa
„HUGSANUEGA T1L GODS”
— segir Ólafur Jóhannesson, utanrfkisráðherra, um
efnahagssamvinnusamninginn við Sovétríkin
■ „Kjarni málsins er sá að ég tel
hugsanlegt að samningurinn verði til
góðs fyrir ísland. Þeim möguleika
megum við aldrei visa á bug ókönnuð-
um. f þessum samningi tel ég engar
hættur felast, því í honum eru ekki
■HBBn
neinar skuldbindingar. Hér er að finna
viljayfirlýsingar en nánari framkvæmd
fer svo alveg eftir þeim samningum
sem kunna að verða gerðir með
skirskotun til þessa samnings. Ég verð
því að skora á þá sem telja einhver
ákvæðanna hættuleg að benda á þau.
Ég get ekki komið auga á þau.“
Þetta sagði Ólafur Jóhannesson,
utanrikisráðherra, í samtali við
Tímann i gær, þegar hann var spurður
álits á nýundirrituðum efnahagssam-
vinnusamningi Isiands og Sovétríkj-
anna, sem skiptar skoðanir hafa verið
Sjá nánar viðtal bls. 5