Tíminn - 14.07.1982, Blaðsíða 2

Tíminn - 14.07.1982, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1982. I I iMm. FÆRIRÚT KVÍARNAR ■ Barbra Streisand leggur nú til orrustu á fleiri sviðum i kvikmyndaiðnaðinum en hún hefur átt við til þessa. Nú dugir henni ekki lengur að vera sjáif aðalstjarnan í kvikmyndinni, heldur þa^f hún bæði að leikstýra og framlciða, auk þess að leika aðalhlutverkið! Yentl hcitir þetta afkvæmi hennar og fjallar um unga gyðingastúlku, sem dulbýr sig sem strák, til að fá inngöngu i pólskan rabbinaskóla á 19. öldinni. Sem mótleikara valdi Barbra Mandy Patikin, sem hún kom auga á á leiksviði í New York, en þar lék hann hlutverk i Evitu. Áður hefur Barbra leikið á móti helstu karlhetjum kvikmyndanna, en einhverra hluta vegna eru karlstjömur ekki sérlega áfjáðar i að leika á móti Barbra. Walter Matthau, sem lék á móti henni í Hello Dolly,1 hefur gengið svo langt að lýsa því yfir, að eina | hlutverkið sem hann væri tilleiðanlegur til að leika á móti henni, væri i Makbeð, og franski leikarinn Yves Montand, sem lék á móti henni i On A Clear Day, fékk sig svo fullsaddan, að hann hefur lýst því yfir að aldrei framar skuli hann leika i handariskri kvikmynd! Clint Eastwood og Burt Reynolds hafa hreinlega neitað að leika á móti henni. Kannski gefa orð Roberts Redford einhverja skýringu á afstöðu karlanna til Barbra, en hann hefur sagt: Kvenlegleiki hennar dregur fram karlmennskuna i karlmönnum. Og karlmannleiki hennar dregur fram kvenlegheitin i þeim, viðkvæmni, róman- tik, eða hvaða nafni, sem það nefnist. Annar lítill aðdáandi Barbra orðar það enn grófara: Hún gerir hetjulegustu karlmenn að algerum aumingj- um! Það þykir vel af sér vikið af Barbra að vinda sér i svo stórhuga verkefni, sem Yentl er, eftir að komið hefur i Ijós, að síðasta myndin, sem hún lék i, er algerlega misheppnuð. Barbra hafði að vísu lag á að fá sæmilegt kaup fyrir þátttöku sina í henni, eða sem svarar 40 milljónum króna fyrir nokkurra vikna vinnu, en samt sem áður féll myndin i mjög grýttan jarðveg bæði hjá gagnrýnendum og áhorfendum. Siðasta plata Barbra, Guilty, aftur á móti.þykir hafa tekist mjög vel og selst eins og heitar lummur. En fari að halla undan fæti hjá Barbra í kvikmyndaiðnað- inum, er hún samt ekki á flæðiskeri stödd. Hún þykir séð i fjármálum og margvisleg áhugamál á hún, sem hún væri vís með að nýta sér. - Eg er vel að mér um matargerð, sérstaklega kinverska, og grænmetið mitt rækta ég sjálf. Mér þykir ógurlega gaman að fara i búðir og versla. Sérstaklega er ég vitlaus í að kaupa skó og föt. Og forngripi! Þar er ég alger sérfræðingur. Það þýðir engum að ætla að plata mig á þvi sviði. Eg veit upp á hár hvers virði hlutimir ero, segir hún. mm ITlUlg uiu iiuiu vviiu --------- ber einn dýrasta vangasvip veraldar. ■ Walter Matthau og Yves Montand eru reynslunni ríkari. Þeir hafa báðir leikið á móti Barbra i kvikmyndum og segja einum rómi: Aldrei framar! Þeir Burt Reynolds og Clint Eastwood hafa vaðið fyrir neðan sig og afþakka að leika á móti henni, þó að gull og grænir skógar séu i boði! ■ I mörg ár hefur Barbra búið með hárgreiðslu- meistaranum Jon Peters. ■ Í hjónabandinu með Elliott Gould eignaðist Barbra soninn Jason, sem nú er kominn á unglingsár. Vegna ótta við mannræningja vill Barbra sem minnst frá honum segja og þvertekur fyrir, að myndir af honum birtist almennings- sjónum. ■ l vitug stulka með blátt blóð fer med hlutverk Díönu prinsessu i bresku sjónvarpsmyndinni. Marie Osmond sem Díana prinsessa? ■ Romist hefur á kreik ordrómur þess efnis. að til standi að fá Marie Osmond til að leika Diönu prinsessu af VYales í kvikmynd. Bretum til mikillar skelfíng- ar! Þeir reyna þó að hugga sig við það. að hún megi að öllum líkindum ekki vera að því. þar sem hún er önnum kafin við að leika i kvikmynd, sent verið er að gera um Osmond - fjölskylduna. En Bretar ætla ekki að láta Banda- ríkjamenn taka frumkvæðið um aö gera kvikmynd um lif prinsessunnar. Þeir hafa sjálfir þegar gert tveggja tima sjónvarpsmynd fyrir litlar 21) milljónir króna. Og þar sem þeir kunna sig betur i samskiptum við kóngafólk en Kanarn- ir, sáu þeir til þess, að enginn ættleysingi færi með hið göfuga hlut- verk prinsessunnar. Hnossiö hlaut Catherine Oxenberg. tvitug fyrirsæta. en hún getur sjálf rakið ættir sínar til kónga, þar sem móðir hennar er Elisabet, prinsessa af Júgóslaviu. Angie veldur truflunum ■ Angie Bowie, sem lengi var gift David Bowie en skildi við hann fyrir þrem árum, hefur nýlega sent frá sér bók þar sem hún lýsir áronum, sem þau áttu saman. - Hjónaband okkar var alveg kolómögulegt, segir hún. - Þetta var eins og að vinna fyrir fyrirtæki. Mér fannst ég þess vegna eiga að bera eitthvað úr býtum, þegar því lauk, en það var nú öðru nær. Þess vegna skrifaði ég bókina! Sagt er, að David sé lítt hrifinn af þessu framtaki fyrr- verandi eiginkonu sinnar og lýsingunum, sem hún gefur af honum. En á meðan Angie spókar sig á götum Lundúna - borgar íklædd ballettklæðn- aði, lögreglumönnum staðar- ins til sárrar skapraunar, þar sem þeir álíta hana trufla umferðina, lætur David lítið á sér kræla. Hann er nú búsettur í Sviss ásamt 10 ára gömlum syni þeirra, Zowie. Angie á svo ársgamla dóttur með pönk- aranum Drew Blood, sem hún bjó með á búgarði í Kaliforníu aUt þar til í janúar á þessu ári. Þá ákvað hún, að hún þyldi ekki við þar lengur vegna leiðinda og labbaði sig út. Hún hefur nú búsetu í San Francisco og þykir liflegra þar en í sveitinni. ■ - Sjáðu um að fjariægja þessa kvensnift af götunum, sagði lögregluþjóninn við fylgdarsvein Angie Bowie i London! BARBRA

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.