Tíminn - 14.07.1982, Page 19
MIÐVIKUDAGUR 14. JULI 1982.
23
og leikhús - Kvikmyndir og leikhús
kvikmyndahornið
Richard O’Brien í hlutverki sinu
Lítið stud -
Leið meðferð
Nýja bió
Stuð meðferð/Shock Treatment
Leikstjóri Jim Sharman
Aðalhlutverk Jessica Harper, Cliff
DeYoung, Richard O’Brien.
Tónlist, Ijóð og handrit Richard
OBrien
■ Richard O’Brien er heilinn á
bakvið geysivinsælan söngleik sem
gengið hefur árum saman í London
„Rocky horror picture show“ en
þessi söngleikur var festur á filmu
fyrir nokkrum árum og þótti þá af
flestum að hálf illa hefði tekist til.
„Shock Trcatment" er sagt vera
framhaldið af þessum söngleik, og
vissulega skartar sú mynd tveimur af
aðalpersónum fyrri söngleiksins
þeim Brad og Janet auk þess sem
O’Brien fer með eitt hlutverkanna en
þar með er upptalið það sem þessar
tvær myndir eiga sameiginlegt og ef
kvikmyndin „Rocky horror...“ var
talin hálf misheppnuð verður þessi
mynd að teljast hörmuleg.
O’Brien er nokkuð lúnkinn laga-
smiður og lögin í myndinni „Stuð-
meðferð“ eru hress rokklög sem
gaman er að hlýða á, umgjörðin um
þau er hinsvegar hvorki fugl né
fiskur, torskilin og illa útsett.
„Stuð meðferð" gerist á einhvers
konar samblandi af sjónvarpsstöð og
geðveikrahæli. Hraðréttakonung-
urinn Farley (DeYoung) hefur keypt
þátt í stöðinni og er ætlun hans að
gera Janet (Harper) að stórstirni en
fyrst verður að losna við mann
hennar Brad (DeYoung) og þvi er
honum kúlpað inn á geðveikrahælið.
Áætlanir hraðréttakóngsins takast
þó ekki sem skyldi, Janet fer að lita
of stórt á sig, Brad kemst úr
„stuðinu", tveir umsjónarmenn ann-
ars þáttar sem lagður hefur verið af
eru að krukka i málunum hraðrétta-
kónginum til óþurftar og hljómsveit
þáttar hans Óskar Drill og Borarnir
standa meðjanet. Raunareru Óskar
. og félagar þeir einu i myndinni sem
eru í „stuði“.
Shock treatment er mjög lik
annaFÍ rokkóperu sem hér hefur
verið sýnd það er mynd Brian
DePalma „Phantom of the Parad-
ise“, hefur til að bera saman „Faust“
þemað og skartar leikkonu sem
leikur í báðum þessum myndum
Jessicu Harper. Af þessum tveimur
er „Phantom...,, þó nokkrum
gæðaflokkum ofar en þessi sem hér
er gagnrýnd.
Pað hefði verið mun sniðugra fyrir
O’Brien að þrykkja tónlist sinni á
breiðskífu og láta kvikmyndum á
efninu vera þvi hún bætir lögin
ekkert nema siður sé.
- FRI
Friðrik Hl
Indriða-
son skrifar
o Stuð meðferð
★★ Sólin ein var vitni
★★ Sverðið og Seiðskrattinn
O Auga fyrir auga II
★★Amerískur varúlfur í London
★ ÁrásarsveitZ
★ Jarðbúinn
★★★ Lola
★★★ Framísviðsljósið
i imans
* * * * frábær • * + * mjðg góð ■ * * gðð ■ * sæmileg ■ O léleg